Alþýðublaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 13
Leyniinnrásin (The Secret Invaison) Hörkuspennandi og vel gerð ný, amerísk mynd í litum og Panavision. Stewart Granger Mickey Rooney. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Allra síöasta sinn. JUDITH Frábær ný amerísk litmynd. Sophia Loren ÍSLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 9. Allt til raflagna Rafmagnsvörur Heimilistæki. Utvarps- og sjónvarps- tæki. RAFMAGNSVÖRU- BÚÐIN S.F. Suðurlandsbraut 12 Sími 81670 BÆNDUR Nú er rétti tíminn til að skrá vélar og tæki sem á að selja. TRAKTORA MÚGAVÉLAR BLÁSARA SLÁTTUVÉLAR ÁMOKSTURSTÆKI Við seljum tækin. Bíla- og Búvélasalan v/Miklatorg, sími 23136. BÍLAMÁLUN - RÉITINGAR BREMSUVIÐGERÐIR O. f'L. BIFREIÐAVERKSTÆÐEB VESTURÁS HF. Súðavogl 30 — Simi 35740. SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. ' rramhaldssaga effir Nicholas Johns FANGI ÖTTANS ________________ ____ __ Chris hreyfði sig ekki. — Síð- ast þegar þér komuð sagði Her- vey yður, að hún vildi ekkert við yður tala. — Það hefur breytzt. Ned glotti. — Eftir það, sem skeð hefur væri það brjálsemi að vera undir sama þaki og þér. Ég tek hana með mér og ráðlegg yður að reyna ekki að halda aftur af mér. — Burt af mínu landi, Stok- es, sagði Chris rólega. — Ég bannaði yður fyrir löngu að koma hingað. Hnefaleikamaðurinn gekk ógn andi áfram en á næstu stundu riðaði hann því Chris sló til hans. — Gott, bróðir. Ef þú endi- lega vilt. Mig hefur lengi lang- að til að sýna þér í tvo heim- ana! hvæsti Ned. Chris bar af sér fyrsta högg- ið og sló hnefaleikamanninn aft ur svo fast að hann riðaði við. Ned rauk áfram og lamdi hnef- unum í líkama Chris en Chris hopaði hvergi. Hann sló svo fast undir höku Neds að hann nær féll við. — Það er víst kominn tími til að sýna þér í tvo heim- ?na, stundi Chris. Hervey hafði heyrt hávað- ann inn í eldhúsið. Hún reif upp öyrnar og þaut út. — Chris, veinaði hún. Hann hikaði augnablik og leit á hana og þá fékk Ned tæki- færið sem hann hafði beðið eft- ir. Hann lagði allt sitt afl í högg ið sem lenti á vanga Chris. Chris féll aftur á bak og rak höfuðið í steinvegginn. Hann lá einkennilega kyrr á jörðinni og gapandi sár var á höfði hans. Hervey hljóp til hans. — Chris. Chris. Hún lagði höfuð hans í kjöltu sér og reyndi að vekja hann til með- vitundar en hann bærði ekki á sér. Hún leit á Ned Stokes. — Þú hefur drepið hann, kjökraði hún. Ned þurrkaði sér um munn- inn. Hann var skelfdur. Sárið sem var á höfði Mannings var ljótt. Þar voru hvassar brúnir á steinveggnum. — Leyfðu mér að' reyna, sagði hann. — Ég hringi ' lækninn. Hann ' erður að koma stiax, sagði Her vey og hljóp skelfingu lostin i pp að húsinu. 18. KAFLI Hervey fannst þessi dagur lengsti dagur í 1 fi sínu Chris hafði verið meðvitundarlaus síð an hann rak hö^'uðið í. Allan daginn hafði hú.i setið við beð hans en nú hafði liún farið í eldhúsið til að fá sér tebolla og matarbita, en hún hafði enga eirð í sínum beinum. Hún var alltaf að fara upp stigann til að hiusta. Berring læknir fannst það ráð legast að láta hann liggja heima í stað þess að flytja hann á sjúkrahús. Hann lofaði að líta inn um kvöldið til að vita, hvort einhver breyting hefði orðið. — Ég held það sé ekkert að óttast, sagði hann. — En hann gæti verið meðvitundarlaus í fleiri tíma. Sæktu mig strax ef honum versnar. 19 Frú Galton leit á Hervey sem gekk eyrðarlaust um gólfið. — Setztu og borðaðu meðan tími gefst vina mín. Þú hefur ekk- ert borðað í kvöld. Hervey greip fram í fyrir henni. — Heyrirðu! Það heyrðist lágt hljóð að of- an og Hervey þaut upp. — Það er Chris. Hann er kom inn til meðvitundar. Hún þaut upp stigan i og inn til Chris. Hann lá með opin augun og horfði á bana. Hann tók um hendur hennar þegar hún kom að rúminu. — Liggðu kyrr ástin mín, sagði hún. — Berring læknir sagði að ég ætti að hringja til hans, ef einhver breyting yrði. Liggðu nú kyrr á meðan. En hann sleppti henni ekki. Hann var undrandi á svipinn og djúpar hrukkur milli augnanna. — Þú lentir í slysi, sagði Her- vey. — O, ég man hvað skeði, sagði hann styrkum rómi. — Ég slóst við Ned Stokes og hann henti mér á steinvegginn. — Rétt, en þú mátt ekki tala svona mikið. Hann þagnaði ekki. — Furðu- legt, hve ég man allt vel Ég hef ekki verið svona skýrt hugs- andi síðan ég lenti í fallhlífar- slysinu. Hann brosti. — Ég vaknaði fyrir fimm mínútum og ég hef legið og hlustað á ykkur tala síðan meðan ég var að jafna mig. Veiztu, hvað ég man? — Segðu Berring lækni það. Hervey reyndi að slíta sig lausa en hann hélt fast. — Fyrst segi ég þér það. Ég man, hvað skeði á heiðinni um kvöldið. Hervey stundi. — Minnstu ekki á það, Chris, bað hún. En hann virtist ekki heyra orð hennar. — Ég elti Maisie þegar hún hljóp frá mér, sagði hann. — En mér var svo óendanlega illt í höfðinu að ég gat ekki séð. Þessvegna missti ég hana úr höndunum á mér. Ég flæktist um ég gat ekki staðið kyrr fyr- ir höfuðkvölum. Svo sá ég hana aftur. Hún sat á steini. Það fór hrollur um Hervey. — Segðu ekki meira, Chris, bað hún. — Nú man ég allt, hélt hann áfram. — Hún sat ein á stein- inum. Ég sá hana greinilega og gekk til hennar, en svo. . . hann hikaði smástund. Hervey fannst það heil eilífð. — Þá sá Aukatónleikar Frh. af 2. síðu. rúmlega þrítugur að aldri, en hef ur þegar staðið á stjórnpalli hljóm sveita í mörgum löndum Evrópu og Ameríku, auk hljómsveitanna í heimalandi sínu. Macal hefur | einnig tekið þátt í alþjóðlegum I samkeppnum ungra hljómsveitar- stjóra, unnið fyrstu verðlaun í Be- sancon 1961, þriðju verðlaun í Mitropoulos-samkeppninni í N.Y. 1966. Cellóleikarinn, Stanislav Apolin, nam fyrst cellóleik við Janace'k tónlistarháskólann í Brno, en gerð ist síðan nemandi Rostropovitsj í Moskvu. Apolin hefur leikið í flest um löndum álfunnar með hinum fremstu hljómsveitum. Á verkefna skrá sinni hefur Apolin öll þekkt cellóverk. Um píanóleikarann, Radoslav Kvapil, má segja hins vegar, að hann hafi sérhæft sig í leik hinna sjaldgæfustu píanótónsmíða. Árið 1958 vann hann fyrstu verðlaunin í Janacek-samkeppninni, og hefur á takteinum öll píanóverk Jana- ceks og Dvoraks. Kvapil er einnig eftirsóttur kammermúsikant og kennari, en hann kennir við Tón- listarháskólann í Prag á mUli þess sem hann fer í tónleikaferðir til flestra landa álfunnar. Aðgöngumiðar að þessum tón- leikum eru seldir í bókabúðum Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri og í bókaverzlun Sig fúsar Eymundssonar, Austurstr. Tilboð Frh. af 1. síðu. um. sænskum, þýzkum mörkum, pundum o.s.frv. Sagði hann hins vegar, að mikill munur væri á þeim lægstu og hæstu. Tilboð þessi cru margs eðlis, m.a. er innifalin þjónusta, nám- skeið fyrir bifvélavirkja, verð á varahlutum o.fl. Tekur um hálfan mánuð að vinna úr þeim öllum. ég annan mann. Hann sá mig og hljóp. Ég hef víst verið ótta legur að sjá. — Hvern sástu? spurði hún spennt. — Ég þori næstum að sverja að það hafi verið Ned Stokes en ég er ekki viss. Hann var a.m.k. líkur honum. — En Ned Stokes var í Lon- don, sagði hún örvæntingarfuU. — Lögreglan fann hann þar. Hann fór daginn áður — eftir því, sem Maisie segir. Talaðu ekki meira, vinur minn. Ég hringi í lækninn. Læknirinn kom hálftíma sið- ar. Hann var lengi hjá sjúkl- ingnum og hann kom brosandi niður í eldhúsið. — Hann jafn- ar sig, Hervey. Ég gaf honum Frá Náttúru- lækningafélagi Reykjavíkur frá og með 1. júní verður góður morgunverður fram- reiddur í matstofu félagsins auk annarra máltíða. MATSTOFA N.-L.-F.-R. Hótel Skjaldbreið. N FRYSTIKISTUR. Frystikistur þrjár stærðir.: 275 lítra kr. 13.550.- 350 lítra kr. 17.425.- 520 lítra kr 21.100.- VID'QÐINSTORG SI M I 1 0 3 2 2 31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |,3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.