Alþýðublaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 3
KOSNING ASKEM MTANIR Sjávarkuldi tefur göngu síldarinnar HINUM árlega fundi rússnesk ra og íslenzkra fiskifræðinga lauk á Akureyri í fyrradag. Niðurstöð ur fundarins leiða í ljós, að út breiffsla hafíssins fyrir Norður- landi hefur verið með mesta móti í vor. AJ því leiðir, aff sjávarhiti er með feegsta móti, og norður af landinu befur hann ekki verið lægri í 40 ár. Þykir því líklegt, að A-LSSTA HÁTÍÐ Fyrir stuðningsmenn og starfsfólk A-listans á kjördegi verð- ur haldin í LIDO í kkvöld. Hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansj til kl. 1. Skemmtikraftarnir, dansmærin MARIA ARENDA frá Mar- okko og fjöllistaparið STAN og MARGARET koma fram. Borðpantanir frá kl. 4. Matur framreiddur frá kl. 7. KVIKMYNDASÝNING Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Háskólabíói n.k laug- ardag kl. 3. Boðsmiðar að skemmtunum í LIDO verða afhentir á skrif- stofu Alþýðuflokksins eftir hádeg; í dag. A-LISTINN í REYKJAVÍK. Nýr geimferðahópur kemur hingað 1. júlí Eins og skýrt hefur rerið frá í fréttum, koma 23 geimfarar til íslands þann 1. júlí næstkom- andi, og munu þeir dveljast hér við þjálfun í 8 daga.-Mun þjálf un þejrra einkum beinast að jarð fræði og náttúruskoðun. Með þeim verða bæði islenzkir og amerísk ir vísindamenn. Sjaldan mun jafn vel menntað- ur ferðamannahópur hafa lagt leið sína til íslands. Allir geimfararn ir hafa háskólapróf, en auk þess hafa 14 þeirra meistaragráðu og sjö bera doktorsnafnbót. Alls hafa 14 þeirra próf í verkfræði, eink- um i greinum, sem snerta flug og geimferðir. Hinir eru menntaðir ýmsum öðrum greinum, svo sem eðlisfræði, stærðfræði, heims speki, jarðfræði, viðskiptafræði, læknisfræði og fleiru. Þeim er öllum gert að kunna flug Þrír þeirra, sem ekki kunnu að fljúga, þegar þeir voru valdir geimfarar, hafa notið 53 vikna flugkennslu. Hinir kunna allir að fljúga og hafa allt að 5200 flug tíma að baki. Meðaltal flugtíma þeirra er 2800. Geimfarar þessir voru valdir til starfs í júni 1965 og í april 1966, og hafa síðan verið undir margs konar þjálfun. Enginn þeirra hef ur enn farið út í geiminn. Átta eru óbreyttir borgarar, sjö úr flotanum, sex úr flughernum og Framhald á 15. síðu. síldin gangi ekki upp að landinu fyrr en síðla sumars. S.l. sólarhring tilkynntu 1Ö skip um aflamagn, samtals 2.229 iestir. Veður var ágætt á miðunum, en síldin stóð djápt. Síldarflutninga- skipið Haföminn er komiff á mið- in, en þangaff er rúmiega éólar- hrings siglin£. Þessi skip tilkynntu um afla: Lestir. Gjafar VE 130 Jörundur II. RE 300 Örn RE 290 Arnar RE 180 Guðrún GK 100 Auðunn GK , 80 Höfrungur III. AK ‘ 180 Víkingur III.. S 130 Arnfirðingur RE 130 Hrafn Sveinbj GK 220 Sig Jónsson SU 180 Ásþór RE 130 Börkur NK .240 AUGLÝSIÐ í Alþýðublaðinu 9 mánaða kjaradeila málm- og skipasmíða EINS og flestum mun kunnugt hafa félög í Málm- og skipasmíða sambandl íslands átt í kjaradeilu við vinnuveitendur frá því í fyrrahaust. Hefur hvorki gcngið né rekið í þeirri deilu enn sem komið er, þótt tæpir átta mánuðir séu liðnir frá því að samningar runnu út. Undanfarnar vikur hafa einstök félög innan sambandsins látið koma til sólarhringsvinnu- SKEMMTIFERÐ ALÞÝÐUFLOKKS- FÉLAGSINS Á sunnudaginn kcmur verður farin eins dags skemmtiferð á vegum AI- þýðuflokksfélags Reykjavík- ur. Miðar á skrifstofu félags- ins, símar 16724 og 15020. Fjölmennum í skemmtilega ferð'. stöðvunar annað kastið til að knýja á um lausn málsins. Alþýðublaðið sneri sér í gær til Snorra Jónssonar, formanns Málm- og skipasmíðasambandsins, og bað hann að skýra lesendum nokkuð frá gangi, eða öllu held- ur seinagangi, þessarar kjara- deilu. Samningar félaganna runnu út 1. október s.l., sagði Snorri, en 26. sept. lögðum við fram til- lögur okkar að nýjum samningum. Fáeinum m'ánuðum áður höfðu al mennu félögin innan A.S.Í. gert nýja samninga og fengið nokkra kauphækkun. Við miðuðum því kröfur okkar við þá samninga, enda hefði okkar fólk að öðrum kosti lækkað hlutfallslega í launa flokkum. Hver voru svo viðbrögð vinnu- veitenda? Þeir fóru strax fram á frest. Þeir báru ekki fram nein rök um ósanngirni af okkgr hálfu, heldur báðu okkur aðeins um að sýna biðlund. Eftir tilkomu verðstöðv- unarlaganna skutu þeir sér á bak við þau, en í þeim er hvergi lagt bann við kauphækkunum. Hvað viltu segja um síðustu samninga ykkar við atvinnurek- endur? Siðast sömdum við um mánaða- mótin ágúst-september árið 1965. Þá viðurkenndu vinnuveitendur þá staðreynd, að starf okkar væri þess eðlis að lagfæra bæri kjörin einkum ef tillit væri tekið til þess, hve störf m'álm- og skipasmiða gætu verið óþrifaleg og erfið. Sýndu þeir við það tækifæri nokkurn skilning með því að semjt um 2-3% meiri kauphækk- un okkur til handa, en þá var al- mennt samið um. Hins vegar mættum við búast við auknum kjarabótum síðar, þegar geta þeirra leyfði. Við sættum okkur við þessa samninga í góðri trú á fögur fyrirheit. Til fróðleiks má Framhald 'á 15. síðu. Þotustimpill Hinn 1. júlí nk. fer Boeing- þota Flugfélags íslands í fyrstu áætlunarferðirnar, til London um morguninn og Kaupmanna liafnar síðdegis. í tilefni af þessum atburði, sem markar timamót í sam- göngumálum íslendinga, hefur póst- og símamálastjórnin lát- ið gera sérstakan póststimpil. Með póststimpli þessum verð ur hægt að fá stimplaðar allar bréfapóstsendingar, sem með þotunni eiga að fara. endá sé þeim skilað í afgreiðslu bsíéfa- póststofunnar í Pósthússtræti í Reykjavík, fullfrímerktum og á- rituðum í síðasta lagi kl. 18.00 fimmtudaginn 29. júní n.k. (Frá póst- og símamála- stjórninni). Bridgespilarar Á fimmtudöguin er spil- að í læknahúsinu við Egils- götu. Öllum heimilj þátttaka. Bridgesamband íslands. 22. júní 1967 -- ALÞÝÐUBLAÐIð 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.