Alþýðublaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 7
MINNINGARORÐ:
SÉRA VIGFÚSINGVAR SIGURÐSSON
BORGARFJÖRÐUR eystri er
talinn einn fegursti íjörðurinn á
Austurlandi. Undirlendi er þar
breiðara og víðara en annars
staðar. Álfaborgin blasir við
augum, þegar inn er siglt fjörð-
inn. Dyrfjöllin há og tignarleg
í vestri, en Svartafell og Geit-
fell takmarka byggðina að aust-
an og Staðarfellið í suðri tengir
saman fjallahringinn. Prestsetr-
ið Desjarmýri er þarna stað-
sett innarlega fyrlr botni fjarð-
arins með fögru útsýni til allra
átta. AS Desjarmýri hafa setið
margir ágætisklerkar og þangað
var kvaddur til prestþjónustu
Vigfús Ingvar Sigurðsson 1912,
og því embætti hélt hann óslitið
í um það bil hálfa öld, unz hann
lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Þess má þó geta í því sam-
bandi, að þegar séra Ingvar,
eins og ég var vanur að kalla
hann, varð sjötugur, óskuðu
sóknarbörn hans eftir því, að
hann héldi prestskap áfram, eins
lengi og lög frekast' leyfa. Varð
hann við því kalli, og þess vegna
varð embættistími hans svo
langur, sem raun ber vitni.
Séra Ingvar var fæddur að
Kolsholti í Flóa 7. maí 1887, son-
ur merkishjóna er þar bjuggu,
Sigurðar Jónssonar og Guðrúnar
Vigfúsdóttur, konu hans. Hann
lauk stúdentsprófi 1909, og emb-
ættisprófi í guðfræði 1912, og
var sama ár vígður til Desjar-
mýrar, sem hann fékk veitingu
fyrir árið eftir. Desjarmýrar-
prestakall og Borgarfjörður
eystri varð síðan starfsvettvang-
ur séra Ingvars alla ævi, og sá
starfsdagur varð langur.
Séra Ingvar var vandaður til
orðs og æðis, og gekk upp í sínu
starfi alla tíð. Hann sinnti sín-
um embætt'isverkum með mik-
illi trúmennsku og tefldi stund-
um á tæpt vað til þess að kom-
ast’ á tvær erfiðar annexíur í
Njarðvík og Húsavík, en þangað
22. júní 1967 •- ALÞÝÐUBLAÐIÐ J
er alllangur og stundum erfiður
vegur, eða réttara sagt var þá,
til þess að hann gæti haft það
samband við söfnuði sína, sem
ætlast var til. Þetta kunnu söfn-
uðir hans að meta, því að, eins
og áður er sagt, skoruðu þeir
einróma á hann að halda prest-
störfum áfram eftir að hann náði
sjötugsaldri, sem (hann og gerði
Ennfremur var hann settur
prófastur 1 Norðurmúla-prófasts
dæmi síðustu árin.
Auk prestverkanna sinnti séra
Ingvar margvíslegum öðrum
störfum fyrir sóknarbörn sín.
Hann var oddvit'i Borgarfjarðar-
hrepps í rúman hálfan fjórða
áratug. Sýslunefndarmaður var
hann í tvo áratugi. Formaður
skólanefndar, í stjórn Búnaöar-
félags Borgarfjarðar og í stjórn
Kaupfélags Borgarfjarðar var
hann einnig í mörg ár. Á Desj-
armýri bjó hann myndarbúi
eftir að hann kom þangað, jók
mjög ræktað land jarðarinnar
og bætti húsakost svo til fyrir-
myndar var. í Borgarfirði og
meðal Borgfirðinga undi hann
sér vel, og landbúnaðarstörfin
þar í fögru umhverfi voru hon-
um mjög að skapi.
Ég hef nú þekkt séra Ingvar
í rúma fjóra áratugi, og tel að
hann hafi verið mikill mann-
kostamaður, hjálpfús, góðgjarn
og vildi hvers manns vanda
leysa. Hann unni íslenzkum
fræðum og var manna fróðastur
um ýmis söguleg efni, sérstak-
lega um allt' er snerti sögu hér-
aðsins, bæði fyrr og síðar. Hann
hafði einnig mikið yndi af því
sem kalla mætti alþýðlegan fróð-
leik, persónusögu, þjóðsögum
og frásögnum um sérstæða at-
burði. Mörgu slíku hélt hann til
haga og hafði yndi af að segja
frá, enda var frásagnargáfa hans
mikil og sérstök, og heillandi
fyrir þá sem á hlýddu.
Séra Ingvar var kvæntur Ing-
unni Ingvarsdóttur, dóttur séra
Ingvars Nikulássonar, er síðast
var prestur að Skeggjastöðum.
Var hún alltaf manni sínum hin
styrkasta stoð, bæði í sálusorg-
arastarfi hans, búsýslu allri og
sem félagi. Kunni hann vel að
meta þetta allt', enda voru þau
hvort öðru handgengin. Þrjú
börn þeirra eru á lífi, tveir syn-
ir er búa nú á Desjarmýri og
dóttir, búsett á Vífilsstöðum. —
Eftir að séra Ingvar lét af prest-
skap, fluttust þau hjónin til
Hafnarfjarðar og hafa verið hér
búsett hin síðustu ár. — 7. mai
sl. átti séra Ingvar 80 ára afmæli
en var þá kominn á sjúkrahús,
og á sjúkrahúsi lézt' hann 11.
þ.m. og fer útför hans fram í
dag. — Ég votta konu hans, frú
Ingunni, börnum þeirra öllum og
barnabörnum innilegustu samúð.
Nokkur huggun má þeim vera að
minningin um hann mun lifa,
ekki aðeins meðal þeirra Borg-
firðinga, sem lífsstarf hans var
bundið við, heldur einnig með
öllum þeim, sem af honum
höfðu nokkur kynni.
Emil Jónsson.
Ný uppfinning:
„tvíbura-krani“
SKIPSTJÓRI einn í Álasundi í
Noregi, Thor Fladmark, hefur
fengið einkaleyfi á nýjum skips-
krana og stofnað fyrirtæki í Osló
með það fyrir augum að hefja
framleiðslu og sölu á slíkum krön
um. Fyrirtækið nefnist Cargo
Handling International A/S.
Sú stofnun í Noregi, sem fer
með rannsóknir á sviði tæknibún-
aðar skipa, hefur rannsakað krana
.þennan og telur hann mjög góðan
í samanburði við þ'á krana, sem
nú eru í notkun.
Krani þessi kallast „The Twin
Crane“ eða tvíbura-kraninn og er
knúinn með vökvaþrýstingi. Hann
hefur tvo arma úr sama krana-
húsi, sem þýðir, að hann getur
unnið við tvær lúigur í einu og
lyft allt að 5 tonnum í einu sitt
hvoru megin á skipinu. Við þyngri
verk geta báðir kranarnir starfað 1
saman, svo að þá er hægt að
lyfta 10 tonnum með krananum.
Telur framleiðandinn, að aðeins
Á veiðum við
Grænland
Þetta er Pétur Sigurðsson, bát-
urinn sem nú er á Grænlands-
miðum og rótar þar upp fiski.
Sú tilraun til veiða er stór-
merk og er ekki ólíklegt að
fléiri fari í hans slóð.
taki tvær til þrjár mínútur að
tengja kranana saman, svo að þeir
geti unnið þannig.
Hið nýja fyrirtæki vonast til
að hafa fyrsta kranann af þessari
gerð tilbúinn eftir tvo til þrjá
mánuði. Á meðfylgjandi mynd má
sjá hvernig hinn nýi krani starf-
ar.
Mesta leit að
fjársjóðum
i sögunni
„MESTA leit mannkynssögunn-
ar að fjársjóðum“ er lýsingin á
þeim aðgerðum, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa hafizt handa um
í því skyni að hjálpa vanþróuð-
um löndum til að hagnýta málm
lindir sínar. í landafræðilegum
skilningi er lýsingin rétt, því
hér er um að ræða ekki færri
en 60 lönd. Þróunaráætlun Sam-
einuðu þjóðanna (UNDP) legg-
ur fram 41 milljón dollara (1763
milljónir ísl. kr.) til sérfræðiað-
stoðar og undirbúnings fjár-
festingar. Árangurinn er þegar
farinn að koma í ljós. Þau 48
verkefni, sem nú er unnið að,
'hafa þegar leitt í ljós mikið'
koparmagn á sjö svæðum í ^rg-
entínu, 70—80 milljón tonn a£
járnmálmi í Mexíkó og verulegt
magn af gulli í Tanzaníu.