Alþýðublaðið - 22.06.1967, Qupperneq 10
Jean-Louis Tringtignat, Luciana Angiolillo og Vittorio Gass-
man í kvikmynd Dino Riss, „II sorpasso“, sem Nýja bíó sýnir.
ÉG! PLAYBOY. II sorpasso.
Nýja bíó. ítölsk frá 1962.
Leikstjóri og framleiðandi:
DINO RISI.
Handrit: Ettore Scola og Rugg
ero Maccarj
Tónlist; Riz Ortolani.
Ég! pleyboy (ekki beint ís-
lenzkulegt nafn) fjallar um
tvær ólíkar manngerðir. Ann
ars vegar er áhyggjulaus æv-
intýramaður, ístöðulaus og
uppivöðslusamur, og er hans
helzta yndj að aka sportbíl.
Hins vegar er ungur og ófram
færinn maður, sem er að læra
lögfræði, og hefur því hlotið
takmarkaða lífsreynslu. Þeir
hitta af tilviijun friðsælan
sumardag í Róm, þegar borgin
virðist mannlaus, þar eð flest
ir hafa farið í sumarfrí.
Bruno (Vittorio Gassman) fær
unga manninn, Roberto (Jean-
Louis Trintignant), með sér í
Ianga ökuferð. Robert er í
fyrstu ekkert um þetta gefið,
en laðast þó síðar meir að
þessum ævintýramanni. Ro-
berto er fremur úrræðalaus
náungi, en Bruno er ekki
lengi að koma honum úr öll-
um vandræðum Lítið er um
kvennafar í þessari mynd, þó
oft líti bærilega út fyrir þeim
félögum hvað það snertir, og
jafnvel enn minna um drykkju
skap.
Þessu gjálífi nútímans er að
vísu ekkj gerð nein veruleg
skil í þessari kvikmynd. Allt
er þetta fremur laust í reipun
um og yfirborðskennt. Það er
svo sem ekkert nýtt við þessa
mynd, hvorki að efnj til né
Ieikstjórn. Þó er myndin á
engan hátt leiðinleg, það er
yfir henni viss fransk-ítalskur
sjarmi, sem oft á tíðum getur
á sinn hátt verið heillandi, en
það er kannski öðru fremur
skemmtilegri tónlist að þakka.
Þó eru viss atriði. sem.benda
til þess, að Dino Risi vilji
segja eitthvað með þessari
mynd, en það er eins og hann
komist aldrej að kjamanum
og niðurstaðan verður akkúr
rat engin. Þó myndin endj á
því, að Roberto deyr í bílslysi
eftir glæfralega ökuferð þeirra
kunningja, og sé nýbúinn að
lýsa því yfir, að þessir tveir
dagar, sem þeir hafi verið
saman, séu þeir beztu í hans
lífi, verður ekki dregin af því
endanleg niðurstaða. Risi virð
ist gera nokkrar tilraunir til
að skýra rótleysi nútímamanns
ins, a m. k. benda nokkur at-
riði til þess. Hann teflir þama
saman tveim andstæðum —
Bruno og Roberto. Það er
hinn ungi háskólanemi, sem
verður fyrir nokkrum áhrifum
frá ævintýramanninum. Bruno
verður þannig meiri persóna,
en Roberto verður aftur á
móti gersamlega áhrifalaus;
hann er jafnvel farinn að trúa
því, að allt nám hans í lög-
fræði sé tilgangslaust. Sé lit
ið á heildina verður myndin
fremur marklaus, við erum
litlu sem engu nær um rótleysi
nútímamannsins, hið svallsama
og andlausa líferni, er fylg-
ir í kjölfar velmegunar.
Það sem verður þó helzt
minnisstætt úr myndinni eru
nokkur gamansöm atriði eins
og t. d. atriðið á salerninu og
lokaatriðið, þar sem töluverð
spenna er, þó það hefði ef
til vill geta orðið betra.
Leikendur vekja enga sér-
staka athygli manns, nema
þá helzt Jean-Louis Trintign-
ant. Hann gerir hlutverki sínu
þokkaleg skil miðað við hversu
vanþakklátt það er og sting-
ur leikur hans í þessari mynd
verulega í stúf við MATA
HARI, þar sem hann lék að-
alhlutverkið á móti Jeanne
Moreau. Catharine Spaak leik
ur Lili, dóttur Brunos, en er
ekki nándar nærri eins yndis
leg og í myndinni Nakta lér-
eftið (La noia), sem Bæjar-
bíó sýndi. — Sig. Jón Ólafsson.
Aðalfuncfiur KEA:
Óánægja me5 áburðarframieiðsluna
ÁÐALFUNDUR Kaupfélags
Eyfirðinga var haldinn í Sam-
komuhúsi Akureyrarbæjar dag-
ana 6. og 7. júní s.l.
Rétt til fundarsetu 'höfðu 199
fulltrúar úr 24 deildum félags-
ins, en mættir voru 182 fulltrúar
úr 18 deildum auk stjómar fé-
lagsins, kaupfélagsstjóra, endur
• skoðenda og ýmissa gesta.
Fundarstjórar voru kjömir
Stefán Reykjalín, bygginga-
meistari og Gunnar Kristjáns-
son, Dagverðareyri, en fundar-
ritarar Amsteinn Stefánsson,
Stóra Dunhaga og Haraldur
Hannesson, Víðigerði.
í upphafi fundarins afhenti
formaður Starfsmannafélags K
EA, Gunnlaugur P. Kristinsson,
kaupfélaginu fundarhamar að
gjöf frá starfsfólki þess í tilefni
80 ára afmælis félagsins á s.l.
ári. Hamarinn er gerður af Sig-
tryggi Helgasyni, gullsmið og
Friðgeir Sigurbjörnssyni, hús-
gagnasmið.
Stjórnarformaður, Brynjóifur
Sveinsson, menntaskólakennari,
flutti skýrslu stjórnarinnar og
greindi frá verklegum fram-
kvæmdum félagsins á síðast-
liðnu ári.
Kaupfélagsstjórinn, Jakob Frí
mannsson, skýrði frá rekstri fé-
lagsins og las reikninga þess fyr
ir árið 1966. Heildarvörusala fé-
lagsins og fyrirtækja þess á inn
lendum og erlendum vörum þeg
ar með eru taldar útflutningsvör
ur, verksmiðjuframleiðsla og
sala þjónustufyTÍrtækja, hefur
aukist úr 802 milljónum króna
Framhald 'á 15. síðu.
Tvö stórblöð sameinast
Alþjóðaútgáfa ameríska stór-
blaðsins The New York Times, er
gefin hefur verið út í París síðan
í júní 1949, hætti að koma út um
síðustu helgi, er blaðið var sam-
einað öðru amerisku blaði igefnu
út í París Tthe New York Herald
Tribune—Washington Post. Hið
nýja blað heitir The International
Herald Tribune.
Þetta er önnur meirihiáttar breyt
ingin, sem verður á The Herald
Tribune í París síðan það var
stofnað fyrir 80 árum. 1 september
sl. eignuðust eigendur Washington
Post hluta í blaðinu og var nafni
þess þá breytt í það horf, sem get-
ur um að ofan. Nú sem sagt tekur
það aftur upp að mestu sitt gamla
nafn.
The New York Times byrjaði að
gefa út Parísarútgáfu sína í júní
1949, eins og áður getur, og var
þá flogið á hverri nóttu með ,,matr
essur“ eða mót af síðum blaðsins
frá New York, blýi rennt í mót-
in í París og það síðan prentað.
1952 var prentun blaðsins flutt til
Amsterdam, en síðan aftur til Par
Árið 1963 voru sett ný lög um
almenningsbókasöfn. Voru ýmsar
breytingar gtrðar á skipulagi opí
inbers stuðnings við almennings-
bókasöfnin, oig hann jafnframt auk
inn verulega. Setning laganna
hafði það í för með sér, að stuðn-
ingur ríkisins við almenningsbóka-
söfn hefur aukizt úr 1,8 miRjón kr.
árið 1963 í 4,8 millj. kr. í fyrra.
Eru almenningsbókasöfnin sívax-
andi þáttur í menningarlífinu, og
færist notkun þeirra ánægjulega í
vöxt.
Síðasta Alþingi samþykkti frum
varp um greiðslur af háKu hins
opinbera til höfunda fyrir notkun
verka þeirra í almenningsbókasöfn
um. Hingað til hafa höfundar enga
greiðslu fengið fyrir útlán bóka
sinna úr almenninigsbókasöfnum.
Nú var svo kveðiö á, að þeir aðilar
sem standa að rekstri almennings
bókasafna, þ.e.a.s. rí'ki og sveitar-
félög, skuli skoða greiðslu þókn-
unar til íslenzkra höfunda fyrir
útlán úr söfnunum eins og annan
rekstrarkostnað safnanna. Verður
greiðslan til höfundanna miðuð
við eintök bóka þeirra í söfnun-
um. Árleg greiðsla til höfundanna
mun ,eins og nú standa sakir, verða
um 900 þús. kr. á ári. Rennur hún
í sérstakan sjóð, sem höfundarn-
ir rtáðstafa sjálfir.
ísar árið 1960. Var blaðið í fyrstu
einskonar stytt útgáfa móðurblaðs
ins í New York, en þróaðist smám
saman í að verða allmiklu sjálf-
stæðara.
Saga Herald Tribune—Washing
ton Post er miklu lenigri, enda
rakti það blað sögu sína til ársins
1887, er James Gordon Bennett
stofnaði þaö, og heíur blaðið alla
tíð sðan verið gefið út sem sjálf—
stætt dagblað. Kennt hefur margra
grasa á sðum þess í 80 ár, og með-
al þeirra, sem skrifað hafa í blað-
ið, má finna nöfn eins og Ernest
Hemingway og Karl Marx.
Árið 1961 vom sett ný lög um
Fræðslumyndasafn ríkisins og
skipulagi þess breytt í ýmsum at-
riðum. Aður en lögin voru sett,
voru fjárveitingar til Fræðslu-
mydnasafnsins 250.000,— kr., en
voru í fyrra 890.000,— kr. í lög-
um þeim um greiðslu skólakostn-
aðar, se msíðasta Alþingi sam-
þykkti, voru ákvæði um, að telja
megi greiðslu skólánna til Fræðslu
myndasafnsins fyrir kaup á
fræðslumyndum til venjulegs
skólakostnaðar. í kjölfar þessa
mun eiga sér stað mikil aukning
á þjónustu fræðslumyndasafnsins
við skólana, og mun það verða
heilbrigðu og nýtízkulegu skóla-
starfi mikil lyftistöng, þar eð notk
un fræðslumynda fer nú hvarvetna
mjög í vöxt og þarf að stóraukast
hér á landi.
För til Danmerk-
ur á vegum Nor-
ræna félagsins
Þann 29 júní næstkomandi
verður farin för til Dan-
merkur á vegum Norræna félags
ins og Dansk-Islandsk samfund.
Eiga meðlimir Norræna félags-
ins og Dansk-Islandsk samfund
kost á íbúðaskiptum við nokkra
félagsmenn í Danmörku, og verð
ur fargjald mjög lágt. Ætlunin
er að reyna að halda uppi þess
konar ferðum í framtíðinni, ef
vel tekst að þessu sinni. Þeir
sem áhuga hafa á förinni geta
fengið allar upplýsingar um fjöl
skyldur, verð o.þ.h. hjá Ferða-
skrifstofunni Sunnu í Bankastræi
7, sími 16400. Verða íslending-
arnir í Danmörku í þrjár vikur.
> 10 22- J'úní 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ