Alþýðublaðið - 22.06.1967, Page 15
KEA.
Frh. af. 7. síðu.
1965 í 925 milljónir króna árið
1966.
Fundurinn 'ákvað að greiða í
reikninga félagsmanna af tekju-
afgangi ársins, sem var 882 þús-
und krónur, 6% arð af viðskipt-
um þeirra við Stjörnu Apótek,
sem þeir sjálfir hafa greitt.
Úr menningarsjóði félagsins
hafði á árinu 1966 verið úthlut-
að 70 þúsund krónum til 7 aðila,
en tekjur sjóðsins voru 250 þús-
und króna framlag samþykkt á
80 ára afmælisfundi félagsins
síðastliðið ár, auk vaxta.
Aðalfundurinn samþykkti nú
250 þúsund króna framlag til
Menningarsjóðs.
Á fundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
,,Aðalfundur Kaupfélags Ey-
firðinga, Akureyri, 1967 lýsir yf
ir megnri óánægju með fram-
leiðslu Áburðarverksmiðjunnar
Iif. Gufunesi og með áburðar-
verzlunina í landinu yfirleitt.
Virðist svo, sem ástand kjarná-
áburðarins sé jafnvel verra í vor
en nokkru sinni fyrr, og úrbætur
í átt til nieira valfrelsis um lá-
tourðarkaup ekki sýnilegax-.
Fyrir því skorar fundurinn á
stjórn Áburðaverksmiðjunnar
að hefja sem fyrst endurbygg-
ingu verksmiðjunnar með endur
bætur og aukna fjölbreytni
framleiðslunnar fyrir augum.
Jafnframt telur fundurinn, að
nú þegar beri verksmiðjunni að
gera endurbætur á pökkun
Kjarnans, til dæmis með notkun
plastumbúða".
í stjórn félagsins voru endur-
kjörnir til iþriggja ára, Jón Jóns
son kennari, Dalvík og Sigurður
O. Björnsson, forstjóri, Akur-
eyri. Endurskoðandi til tveggja
ára var endurkjörinn Sigurður
Óli Brynjólfsson, kennari, Akur
eyri, og varaendurskoðandi til
tveggja ára var endurkjörinn
Steingrímur Bernhardsson,
nýtt&hetra
VEGA
KORT
bankaútibússtjóri, Akureyri. í
stjóm Menningarsjóðs til
þriggja ára var endurkjörinn Jó
hannes Óli Sæmundsson, fyrrv.
skólastjóri, Akureyri, og vara-
menn í stjórn Menningarsjóðs
til tveggja ára Hjörtur E. Þór-
arinsson, toóndi, Tjöm og Árni
Kristjánsson, menntaskólakenn-
ari, Akureyri. Þá voru einnig
kjörnir 15 fulltrúar á aðalfund
Sambands ísl. samvinnufélaga.
Um kvöldið báða fundardag-
ana sýndi Leikfélag Akureyrar
fulltrúum og gestum þeirra sjón
leikinn „Draumur á Jónsmessu-
nótt“ eftir Shakespeare.
Kjaradeila
Frh. af 3. síðu.
geta þess hér, aö samningstoundið
kaup málmiðnaðarmanna er í dag
2.410 krónur á viku.
Á hvaða stigi standa málin í
dag?
Nú virðist stefna atvinnurek
enda vera sú, að ekki eigi að lag-
færa heldur beinlínis lækka kaup
okkar hlutfallslega, ef miðað er
við önnur félög innan Alþýðu-
sambandsins, sem flest hafa feng-
ið fram hækkun á kaupi félags-
manna. Því er haldið fram, að
kaup hafi eingöngu hækkað hjá
hinum lægst launuðu, en það er
ekki rétt. Kaup hefur hækkað hjá
þeim, sem voru í sömu flokkum
og við eða jafnvel í hærri launa-
flokkum.
Að lokum sagði Snorri, að málm
og skipasmiðir væru staðráðnir í
því að ná rétti sínum í deilu þess
ari.
Ráðstefna
Frh af 2. siðu.
herra hefði sýnt á því að koma
upp fyrrnefndri deild við ráðu-
neytið til að sinna fjölskyldu- og
neytendamálum almennt.
Á ráðstefnunni var einnig rætt
um bílatryggingar á Norðurlönd-
um. Fulltrúa FÍB, Hauki Péturs-
syni, var boið til fundarins, og
skýrði hann frá starfi Hagtrygg-
inga. Vakti erindi hans allmikla
athygli og var að því gerður góð-
ur rómur.
Norræna neytendamálanefndin
(Nordisk Komité for Konsument'
spörgsmál) var sett á fót árið
1957 samkvæmt ályktun fundar
Norðurlandaráðs sama ár. Fyrsti
formlegi fundur hennar var í jan
úar 1958, en ísland gerðist' ekki
aðili að nefndinni fyrr en ái'ið
1962. Nefndin opnaði skrifstofu í
Osló 1964, og hefur starf hennar
farið vaxandi ár frá ári. Hið eig-
inlega hlutverk nefndarinnar er
að efla samstarf og samræmingu
á sviði neyzluvörurannsókna og
neytendafræðslu á Norðurlöndun-
um og gæta hagsmuna neytenda.
Á hinum Norðurlöndunum er haft
mjög strangt eftirlit með gæðum
neyzluvarnings oþ réttmætum
verzlunarháttum. Haft er náið eft-
irlit með því, að vörur uppfylli
þau skilyrði, sem sett hafa verið,
svo og að neytendur séu ekki
blekktir meö fölskum auglýsing-
um.
Eftir lok fundarins í gær spjall
aði blaðamaður Alþýðublaðsins
lítils háttar við þrjá' nefndar-
menn, þau Ney Mork, fulltrúa
Svia, Inger Valle, formann norsku
nefndarinnar og Olavi Vayrynen,
formann finnsku nefndarinnar.
Þau lýstu öll ánægju sinni með
þennan fyrsta fund Norrænu neyt
endamálanefndarinnar á íslandi
og fóru lofsamlegum orðum um
dvölina hér. Þau voru heppin með
veður og sögðust ekki hafa búizt
við að á íslandi væri svo gott
veður, þau höfðu búizt við meiri
rigningu, dimmu og kulda. Ney
Mork, fulltrúi Svía, hrósaði mjög
drykkjarvatninu okkar, en í Sví-
þjóð er vatnið ekki gott til drykkj
ar, þeir verða að hreinsa það svo
mikið. Öll voru þau sammála um
að þau hafi undrast', hve húsa-
kynni fólks í Reykjavík væru
góð og hve mikið væri af nýbygg
ingum. Einnig fannst þeim bíl-
stjórarnir áberandi kurteisir, er
þeir stönsuðu til að hleypa fólki
yfir götu. Þeim fannst sérlega
mikið koma til listasafns Einars
Jónssonar, en það höfðu þau heim
sótt í gær.
Sjonvarp
Frh. af 1. síðu.
muna er það hefur sendingar
að nýju. Enn mun þó ekki hafa
verið ákveðið, hvenær það
verður, en útvarpsráð mun
væntanlega taka ákvörðxm um
það einhvei-n næstu daffa, hve
langt sumarleyfahlé sjónvarps-
ins verði.
Geimferðahópur
Framhaid af bls. 3.
tveir úr tendgönguliðfi flotans
(marines).
Meðal geimfaranna eru tuttugu
giftir og þrír ógiftir. Þeir giftu
eiga eitt til sex börn hver. Sam
anlagt eiga þeir 52 börn Geimfar
amir eru á aldrinum 30 til 37
ára og hæð þeirra er frá 175 til i
183.
Allir sinna þeir einhverjum á-
hugamálum i frístundum. Flestir
stunda einhvers konar íþróttir.
Trésmiðar eru þó áhugamál
þriggja þeirra og tveir stunda
bíla- og útvarpsviðgerðir.
Auk þess hafa þeir allir ein-
hver fræðileg áhugamál, svo sem
stjömufræði, stærðfræði og einn
fæst meira að segja við að lesa
skapgerð manna af rithandarsýn
ishomum. Tveir stunda leiklist
og myndhögg. Tónlist og bók-
menntir em einnig vinsælt af-
þreyingarefni meðal þeirra.
Þótt harðar kröfur séu gerðar
til geimfara, þá hafa þessir menn
einnig tíma og hæfileika, til að
sinna ýmsum hugðarefnum.
De Gaulle
Framhald af 1 Síðu.
og Sovétríkjanna hljóti að aukast
og slíkt muni stofna friðnum í
Evrópu í hættu. Þetta sjónarmið
er einnig að finna í þeirri yfir-
lvsingu, að stríðið í Vietnam hafi
skapað ástand, er gerí Kína kleift
að taka sína núverandi afstöðu og
til að vígbúast,
Talsmaður í Washington lýsti
yfir, að enginn, sem með atburð
um fylgdust sæi neitt samhengi
milli stríðsins í Austurlöndum
nær og stríðsins í Vietnam
Uppbótarsæti
Frh. af 1 síðu.
og 20 menn kjörna, Alþýðubanda-
lagið 16.923 atkvæði og 6 menn
kjörna og Óháði lýðræðisflokkur-
inn 1043 atkvæði og engan mann
kjörinn. Atkvæðatala að baki
hvers kjördæmakjörins þing-
manns verður því 3011 % atkv.
hjá Alþýðuflokknum, 1501 11/18
hjá Framsóknarflokknum, 1801%
hjá Sjálfstæðisflokknum og
282014 atfiv. hjá Alþýðubandalag-
inu. Eftir að uppbótarsætunum
hefur verið út'hlutað verður at-
kvæðatalan að baki hvers þing-
manns 1673 2/9 atkv. hjá Al-
þýðuflokknum, 1501 11/18 atkv.
hjá Framsóknarflokknum, 1566
18/23 atkv. hjá Sjálfstæðisflokkn-
um og 1692 3/10 hjá Alþýðu-
bandalaginu. Til þess að fullur
jöfnuður hefði náðst milli þing-
flokka hefði þurfa að úthluta 3
uppbótarsætum til viðbótar og
hefðu þau skipzt jafnt milli flokk-
anna þriggja, sem uppbótarsæti
hlutu.
Embætti
Frh. af 2. síðu.
Dr. Gísli Blöndal, hagfræðing-
ur, hefur verið settur til að gegna
embætti hagsýslustjóra ríkisins
frá 1. júlí næslkomandi.
Ævar ísberg, viðskiptafræðing-
ur, skattstjóri í Reykjanesum-
dæmi, hefur verið skipaður vara-
rikisskattstjóri frá 1. júlí næst-
komandi.
Ólafur Nilsson, löggiltur endur-
skoðandi, hefur verið skipaður
skattrannsóknarstjóri frá 1. sept-
ember næstkomandi.
Sveinn Þórðarson, viðskipta-
fræðingur, aðalendurskoðandi
Pósts- og síma, hefur verið skip-
aður skattstjóri í Reykjanesum-
dæmi frá 1. júlí næstkomandi.
AUGLÝSID
í Aiþýuublaðlnu
Móðjr okkar,
RÓSAMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist mánudaginn 19. júní 1967.
MARÍA ÁSTMARSDÓTTIR;
ELÍN ÁSTMARSDÓTTIR,
INGÓLFUR ÁSTMARSSON,
MAGNÚS ÁSTMARSSON
Hjartkær eiginmaður minn faðir okkar, tegndafaðir og afi
LEOPOLD JÓHANNESSON,
Hringbraut 88, Reykjavík.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. jíal
kl. 1,30. Blóm vinsamlega afþökkuð.
ÁGÚSTA JÓNASDÓTTIR,
BÖRN, TENGDABÖRN OG BARNABÖRN.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN ÞORSTEINSSON,
Langeyrarvegri 9, Hafnarfirði
er lézt hinn 16. þ.m., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði föstudaginn 23. þ.m. kl. 2 e.h.
SOFFÍA SIGURJÓNSDÓTTIR,
BÖRN, TENGDABÖRN OG BARNABÖRN.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem minntust okkar við
fráfall og jarðarför ástvinar okkar
BALDURS MAGNÚSSONAR,
Þórsmörk, Mosfellssveit.
Við þökkum ykkur sem heimsóttuð hann, starfsfólki og
læknum á Reykjalundj og lyflækningadeild Landsspítalans,
fyrir fróbæra umönnun í veikindum hans.
LÁRA HARALDSDÓTTIR OG BÖRN,
IIALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
MAGNÚS H MAGNÚSSON,
MARTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
HARALDUR GUÐJÓNSSON.
22. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |5