Alþýðublaðið - 22.06.1967, Side 16
Bert bak
STUNDUM, en aS sjálfsögðu ör
sjaldan, kemur það fyrir þá sniil-
inga, sem skrifa Baksíðuna, að
vita ekki hvað þeir eiga að skrifa
um, og er þá að sjálfsögðu illt í
efni, því að bert blað að baki er
að sjálfsögðu afskaplega illa sett.
Nú geta ber bök, sérstaklega á
forkunnarfögrum skvísum, verið
mjög svo indæll lilutur, einkum
ef maður má koma við, en því mið
ur mundi nú vera heldur hæpið
að bera saman eitt venjulegt dag-
blað, sem ekki er einu sinni prent
að bláum, rauðum eða blárauðum
lit eins og Tíminn, við forkunnar
fagra skvísu, en þó mætti ef til
vill finna eitthvað sameiginlegt
með innihaldinu.
Eitt dagblað er afskaplega
virðulegt að framan og sýnir þar
ekki annað en það allra bezta,
sem það hefur upp á að bjóða,
rétt eins og forkunnarfögur
skvísa í bikini. Síðan kemur inn-
volsið. Það er nú saman sett af
ýmsu, misjafnlega geðslegu. Alís
konar sögur, jafnvel kjaftasögur
utan úr heimi, koma þar og svo
er þar að sjálfsögðu leiðarinn á
nokkurn veginn sama stað og
hjartað í skvísunni. Framhalds-
sagan kemur svo í óæðri endann
og loks komum við enn einu sinni
að beru bakinu.
Augljóst er, að við svo búið má
ekki standa. Hylja verður bakið,
hvort sem mönnum líkar betur
eða verr. Eins og við höfum áður
sagt getur bert bak haft sinn
sjarma, á minnsta kosti á meðan
menn eru að velta því fyrir sér,
'hvort nokkuð sé hinum megin. En
þarna komum við eiginlega að að-
alatriðinu, og því, sem gerir ber
bök á forkunnarfögrum skvísum
sérlega 'ánægjuleg. Hvað gerist,
þegar hún snýr sér við?
Prestastefnunni lýkur í dag
— Guðfræðiráðstefna sett á
morgun.
í Tjarnarkoti
i;
Það eiga heima hjónakorn
í hólma úti í Tjörn,
þar fæddust nýskeð fimmburar
og falleg svanabörn.
í Tjarnarkoti er túnið graent'
og töðuvon í bú.
En svanapabbi er sómakær
«g sér um börn og frú.
Og litlu skinnin undrast oft
hinn ógnarstóra sjó.
En svanamamma sveigir háls
eg syngur þau í ró.
— Heyrið þér illa?
— Síðan hún kom kefur enginn
kvartað.
Það er undarlegrt að það
skuli aldrei vera baegt að
semja um frið, nema ÞaSf sé
stríð fyrst.
Qot/vi
Það er svei mér grott að
það skuli ekki vera mlkið að
gera fyrir okkur táningrana í
sumar. Þá gctur nsaður
slæpnt með góðri santvúdta.
Það getur vel verið gstt að
hafa neytendasamtök, en ég
vildi nú líka að einhv«rjir
stofnuðu neitendasanutöh —
H einkum fyrir ungar stúlkar.