Alþýðublaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 7
29. júní. LANGT er síðan við höfum skrifazt á og margt breytt, þú fluttur frá Bíldudal í Húna- þing, ég endurnýjaður vestur í Ameríku eins og happdrættismiðl. Hvort tveggja vœri frá- sagnarvert við tækifæri. Mér kom á óvart', hvert þú fluttist búferlum. Ekki svo að skilja, að ég telji í kot vísað. Húna- þing er fagurt hérað og búsældarlegt. Hins vegar hefði ég gjarnan kosið þig í nágrenni við mig á Suðurlandi, en sleppum því að sinni. Ég hef af þér góðar spurnir þarna norður frá, þó að leiðir okkar hafi ekki legið saman um ára- skeið. Svo getur til viljað, þrátt fyrir allar samgöngurnar. Því veldur annríkið og hrað- inn. Nú eru allir að flýta sér. Dagur í Vatnsdal. I Ég kom í Iíúnaþing fyrir ári síðan, en ók hjá garði þínum, vissi þig að heiman. Þá‘ bar mig í Vatnsdalinn fyrsta sinni á ævinni. Veðrið var fagurt og förunauturinn góður, Jón tónskáld Þórarinsson. Mikið hefur verið gumað af Vatns- dalnum í mín eyru, en ég varð vissulega ekki fyrir vonbrigðum. Þó vil ég líkjast Herjólfi þeim, sem sagði forðum kost og löst' á landinu. En Vatnsdalurinn er jarðfræðilegt ævintýri, og þó fannst Davíð heitnum Stefánssyni mest til um hann vegna mannfólksins. Um það get ég ekki borið, því að við börðum hvergi að dyrum eða guðuðum á glugga. Allt hefur sinn tíma og einnig það, að ég setjist inn í bæi Vatnsdæl- inga og deili við þá geði. Og þarna er hvert býli að kalia sögufrægt. Vatnsdalurinn geðjað- ist mér þannig, að ég gæti mætavel hugsað mér hann á Suðurlandi, en það segi ég sannarlega ekki um allar norðlenzkar sveitir. Davíð Stefánsson varð hrifinn af Vatnsdaln- um undir ævilokin eins og þegar ungur maður gerist ástfanginn. Hann sver sig líka um margt í ætt við fagra konu, broshýr, sviphreinn og mjúkur. Mig langar að koma þangað aftur. Svipþyrpingin. Nú vík ég að Suðurlandi, enda skyldurækinn við upprunann. Ég komst austur á Eyrarbakka þjóðhátíðardaginn. en þá er skammt til Stokks- eyrar eins og þú veizt. Við ókum niður Flóann í hellirigningit, 'en svo stytti upp. Allt í einu lék sjávarilmurinn uni mig, þetta ferska loft utan af opnu reginhafi. Sumir halda, að Ijótt sé í lágsveitum Árnessýslu. Ég voi’kenni slíkum mönnum, þeir eru eins og maðkar í mold. Hvergi á íslandi finnst' mér fegurra. Uppruni minn ræð- ur kannski úrslitum þeirrar ályktunar. Engin tilfinning er dýpri og rótgrónari en vita sig á slóðum forfeðra sinna. Minningarnar koma þar fram í hugann eins og svipþyrping. Og sljótt er það auga, sem ekki kann að meta fjöllin blá, grasið grænt og grjótið grátt, samlcik andstæðn- anna í unaðslegri heild öfgakenndra lita. Ef ég væri málari, þá myndi ég hvergi vinna ann- ars staðar en í Flóanum. Þó er hann mér kærastur vegna fólksins. Sumir ætla, að íslendingar liafi gerbreytzt á’ tækniöldinni, sem við lifum. Ég held ekki. Eyr- bekkingar söfnuðust í samkomuhúsið sitt forn- lega að kvöldi þjóðhátíðardagsins og voru um flest eins og Stokkseyringar í gamla daga. Veð- urbitnir sjómenn verða í mínum augum glæsi- legir liöfðingjar um leið og þeir hafa fata- skipti. Tungutak þeirra er snjallasta íslenzka, sem ég heyri, og sárgrætilegt finnst mér að hafa ekki niðinn af máli þeirra í eyrum mér dag livern. Þeir minna mig á bændurna í Rangár- þingi, þegar ég dvaldist í Stóru-Mörk sumrin góðu. Ég hygg, að þessir menn séu eins og for- feður mínir voru, og ég er stoltur af. Og svo hefur þetta fólk framfæri af vinnu sinna handa, íslenzku erfiði, heiðarlegu starfi. Er furða, að maður vilji vera í flokki með því, þó að okkur hafi borið brott úr átthögunum að örlagadómi? Heilagt sakleysi- Ógleymanlegt var að sjá börnin á Eyrar- bakka. Þau sátu á gólfinu prúðbúin og glöð með framtíð íslands í augum sér, hraust, óttalaus, falleg. Svo risu þau á fætur milli skemmti- atriða, tókust í hendur og dönsuðu. Mér fannst þetta eins og jólatrésskemmtun í barnæsku minni hinum megin Hraunsár. Aldrei gleymi ég fyrsta mannfagnaðinum, seni ég sótti. Það var jóiatrésskemmtun í sam- komuhúsinu á Stokkseyri, og pabbi bar mig þapgað á háhesti í frosti og fjúki, en mamma leiddi Þorvald bróður minn. Gimli var í augum mínum vegleg salarkynni þetta dimma kvöld, baðaðist skæru ljósi, jólatréð á miðju gólfi eins og iundraskógur á að líta, skreytt greinum og stjörnum. Ég treysti mér ekki i leikinn vegna mæði og hjartsláttar, en sat á bekk fyrir gafli og dáðist að hópnum, fimum og mjúkum hreyf- ingum kátra dansandi barna. Svo kom til mín jafnaldri og gerðist vinur minn, en allt í einu störðu á mig blá og djúp augu lítillar stúlku í vorkunnsamri undrun, að vesalingur minn skyldi kominn á þennan vettvang. Þá' fannst mér ég ekki lengur einn og yfirgefinn í heiminum, en vonbiðill lífsins og brot af bergi samfélagsins. Svona er barnið næmt á umhverfi og tilveru í heilögu sakleysi mikillar gleði, séra Jón. Mánaskin minninganna. Manstu kvöldin, þegar við gengum Laufás- veginn veturinn, sem seinni heimsstyrjöldin kom til sögunnar og raslcaði jafnvægi heimsins og mannkynsins? Þá ákváðum við að ferðast ein- hvern tíma saman í átthaga okkar. Þú lýstir firðinum þínum fyrir austan svo, að ég sé hann enn hugarsjónum í mánaskini minninga þinna og hef þó aldi ei þangað komið. Samt var þér tilhlökkunin ríkust í muna. Þá hélt ég, að þú gætir varla annað orðið en Austfirðingur, og það hefur þú sennilega alltaf verið á' Bíldudal og vérður víst í Húnaþingi. Fólksflutningarnir á íslandi eru löngum taldir böl. Þá er metið, hvað tapast, en ekki hitt, sem vinnst. Ekki hefði ég orðið meiri og betri Sunnlendingur heima í FÍóanum. Sú lífsreynsla, þegar endurminning og tilhiökkun fléttast saman, verður okkur mörg- um opinberun. Eigum við henni ekki sitthvað að þakka? Samt er varhugavert að gera þessa átthagaást að átrúnaði. Mannlíi'ið heldur á'fram í sveitun- um og þorpunum viðs végar um land, og það ber að rækta með raunhæfu starfi og . farsælli stjórn á nýjum og betri tímum. Ég óttast ekki þá framtíð, sem speglaðist í augum barnanna austur á Eyrarbakka þjóðhátíðardaginn. Þau verða góðir íslendingar. Helgi Sæmundsson. T ryggingaskólari um slitið Tryggingaskólanum var slitið í samsæti í Þjóðleikhússkjallar_ anum 22 þ.m. Formaður skólanefndar flutti skólaslitaræðu og rakti í stórum dráttum stasísemi skólans á liðnu kennslumisseri, sem hófst í byrj un febrúar sl. Benedikt Sigurjónsson, hæst- aréttardómari, flutti á vegum skól ans þrjá fyrirlestra um ábyrgð farmflytjenda, og munu þeir verða gefnir út næsta vetur í bókaflokki skólans um sjótrygg- ingar. Kennsla fór fram í 2 greinum- ensku, með sérstöku tilliti til vá- tryggingamáls, og slysatrygging- um. Enskukennsluna annaðist Þorsteinn Egilson, fulltrúi. Verð ur því námskeiði haldið áfram næsta vetur og lýkur með prófi vorið 1968. Kennslu í slysatryggingum önnuðust þeir Egill Gestsson, fulltrúi og Kr. Guðmundur Guð- mundsson, forstjóri. Alls luku 18 nemendur prófi í slysatryggingum Prófdómari var Benedikt Sigurjónsson, hrl. Tveir hlutu ágætiseinkunn. Bragi Lér- usson (Samvinnutryggingum) og Haraldur Sæmundsson (Bruna- bótafélagi íslands), og voru þeini afhent bókaverðlaun frá iSam- bandi slysatryggjenda. Trvggingaskólinn er rekinn á kostnað Sambands ísl. trygginga- félaga og fyrst og fremst ætlaður starfsmönnum tryggingafélaganna. Hófst starfsemi hans haustið'1962, og hefur 71 nemandi lokið próíi frá skólanum frá því hann tók til starfa. Kenndar hafa veri3 þessar tryggingagreinar: Bruna- tryggingar, bifreiðatryggingar, skipatryggingar, frjálsar ábyrgðar- trveaingar, farmtryggingar oí* slysatryggingar. Auk þess, hafa allmargir fyrirlestrar verið flutt- ir við skólánn. Að lokinni afhendingu próf- skírteina og verðlauna, ávarpaðl Ásgeir Magnússon, formaður Sa:n bands ísl tryggingafélaga, hrna nýútskrifuðu nemendur. Skólanefnd Tryggingaskólars: skipa Jón Rafn Guðmundsson, formaður, Tryggvi Briem og Þor steinn Egilson. Brezkir fóðurfræðingar kynntu sér landbúnað hér Fyrir nokkru voru hér á ferð 2 brezkir fóðurfræðingar frá The British Oil and Cake Mills Ltd. Aðalfundur Sambands lúðrasveita AÐALFUNDUR Sambands ís- lenzkra lúðrasveita var haldinn í Reykjavík sunnudaginn 25. júní að Café Höll. Formaður Halldór Einarsson skýrði frá störfum frá- farandi stjórnar, var það helzt, að túpusnillingurinn Reger Pobo frá Bandaríkjunum hélt tvö nám- skeið á vegum Sambandsins og tóku alls þrjátíu manns þátt í þeim. Ennfremur var hafin útgáfa á íslenzkum lögum fyrir lúðrasveit ir. Þessari starfsemi og annarri sem sambandið gengst fyrir er rnjög þröngur stakkur skorinn sök um fjárskorts. Fundurinn lagði mjög ríka áherzlu á að tónlistarfræðsla verði stóraukin í barna- og ungl- ingaskólum landsins og er núver- andi ástand í þeim málum óþol- andi. Fráfarandi stjórn vildi eigi taka endurkjöri og voru kosnir, Stígur Herlufsen formaður, Jón- as Magnússon ritari og Eysteinn Jónasson gjaldkcri. í Bretlandi, þeir Mr. J. Garner og Mr. W. H. M. Whitson. Menn þessir komu hingað á veg um Fóðurblöndunnar h.f. til.þess að kynna sér íslenzkan landbúnað, bæði aðstæður allar í sambancli við fóðrun gripa svo og að skoð'a íslenzkan búfénað og heygæði' til að athuga mismun á heyi hér cg í Bretlandi, með það fyrir augum að samræma B.O.C.M. fóður- blöndui-nar, sem hér eru á mark- aði, íslenzkum staðháttum. • Þeir Mr. Gamer og Mr. Whit- son ræddu við landbúnaðarráðu- nauta hér og ferðuðust víðá um landið og héldu fundi með bænd- um og umboðsmönnum Fóður- blöndunnar hf. Ennfremur ,skoð- uðu þeir íslenzk bóndabýli cg ræddu við bændur. ) Eftir fyrrgreindar athuganir og viðræður, töldu þeir að kúafóði r kögglarnir frá B.O.C.M. hentuð.i betur hérlendis en mjölið, þar sem kögglarnir innihalda mei: i sykur, en hann er vörn vif) súr- doða. Þeir Mr. Garner og M'r. Whitson, voru mjög hrifnir af ís- lenzka sauðfjárstofninum og töldu að B.O.C.M. sauðfjánblandan hentaði mjög vel hérlendiá, og bentu á, að með góðu ungkálfa- fóðri og kálfaeldisfóðri mætti ala upp kálfa fremur ódýrt, með svo nefndu hraðeldi og fengið, me3 því móti mjög gott nautakjöt, sem bændur ættu að geta selt hér á háu verði og bætt með þúí ai- komu sína. 1. júlí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.