Alþýðublaðið - 01.07.1967, Side 9
Ljósblátt og- fölgrænt eru tald-
ir sefandi litir og góðir í svefn
herbergjum.
7. Sofðu í góðu rúmi. Þú
eyðir það miklum hluta ævinn-
ar í rúminu þínu, að þú ættir
að velja það bezta sem hægt er
að fá. Sofðu í löngu og breiðu
rúrni, svo að þú getir teygt vel
úr þér og liaft nóg pláss. Það
má ekki vera of mjúkt, því að
það er óhollt fyrir bakið að
sökkva á kaf ofan í dýnuna
og liggja allur í keng. Bezt er
að nota engan kodóa, og sæng-
in eða ábreiðurnar mega ekki
vera of þungar
8. Sofðu fyrir opnum
glugga. Hefurðu nokkurn tíma
sofið úti undir beru lofti? Eða
í tjaldi? Það er ótrúlegt hvað
maður þarf stuttan svefn til að
endurnærast fyllilega úti í nátt
úrunni. Næstbezt er að hafa
svefnherbergisgluggann opinn.
(Svo framarlega sem' þú liggur
ekki beint undir honum eða í
gustinum). Ef þú getur ekki sof
ið fyrir opnum glugga, skaltu
a.m.k gæta þess að lofta vel út
áður en þú ferð að sofa,
-^- 9. Rakt loft. Það er óhollt
fyrir lungun að sofa í mjög
þurru lofti. Hafðu ílát með
vatnj á ofninum, svo að þú vakn
ir ekki þurr í kverkunum eða
hóstandi.
10..Slökunaræfingar. Reyndu
þessa: þú liggur á bakinu í
rúminu þínu og kreppir hnef-
ana, gerir þig smám saman eins
stífan og þú mögulega getur.
Svo slakarðu á. Það er enginn
vandi með þessax-i aðferð, kem-
ur af sjálfu sér. Gerðu þetta
nokkrum sinnum, vertu stífur og
slakur á víxl. Áður en þú veizt
af ertu sofnaður.
■Jt 11. Eða þú teygir þig þang-
að til þér finnst þú vera orð-
inn svona um það bil fimm
metrar á lengd! Þá slakarðu aft-
ur á. Gerðu þetta nokkrum
sinnum og finndu hvað vöðvarn-
i-r njóta þess_
ýt 12. Liggðu kyrr. Reyndu að
koma þér þægilega fyrir, slak-
aðu svo á öllum vöðvum og
liggðu kyrr. Srnám sarnan fer
þig að syfja. Reyndu að hugsa
ekki urn neitt sérstakt, vera
alveg hlutlaus.
13. Geispaðu. Lokaðu aug-
unum og æfðu þig í að geispa
eins hjartanlega og þú getur.
Upp aftur og aftur. Finnurðu
hvað þig syfjar?
-jér 14. Eins og ský. ímsmdaðu
þér hugsanir þínar eins og ský
sem fljóta á' bláum himni —
þú veizt hvað það er róandi
að liggja endilangur á bakinu
og horfa upp í himininn á fal-
legurn sumardegi. Þú hoi-fir á
skýin líða hægt yfir liimininn,
en þú ferð ekki að elta þau eða
reyna að ná þeim. Sama með
hugsanirnar. Leyfðu þeim að
svífa eins og þær vilja Þær
koma þér ekkert við nxina. Srnám
saman verður lengra á milli
þeiri-a, himininn verður heið-
skír — og þú ei-t steinsofnaður.
tSt 15. Þú getur rifjað upp at-
burði dágsins í huga þínum,
byrjað á kvöldin og rakið þig
hægt aftur á bak. En gættu þess
að vera hlutlaus áhorfandi.
Þetta kemur þér ekki við, þú
horfir á atbui'ðarásina eins og
kvikmynd, en tekur engan þátt
í henni tilfinningalega séð.
16. Andaðu djúpt og reglu-
bundið. Æfðu þig í að anda
lxægt og reglulega svolitla stund.
Finnurðu hvað hugurinn róast og
kyrrist? Reyndu að anda me/i
maganum; hæg kviðaröndun
lijálpar þér til að slaka vel á
(sama gildir á daginn ef þú ei't
taugaspenntur eða órólegur —
reyndu þá að anda hægt og
djúpt nokkrum sinnum og not-
aðu kviðaröndun en ekki brjóst-
öndun).
■fc 17. Kaffi er tvíeggjað sverð.
Flestir eiga erfitt með að sofna
ef þeir di'ekka stei'kt kaffi seint
á kvöldin. Svo eru aðrir sem
verða dauðsyfjaðir af því Þetta
stafar af því, að taugakerfið
þarf að vei'a í jafnvægi. Ef þú
ert taugaspenntur, verkar kaffi
illa, því að það gerir þig enn
spenntari. En ef þú ert oi'ðinn
of þreyttur til að geta sofnað
og úttaugaðui', þá getur kaffið
hresst þig mátulega - xnikið,
þannig að þú eigir hægara með
að sofna.
Íc 18.Áfengi. Ekki ráðlegt. Það
er slæmt fyrir lifrina og stór-
háskalegt að gera það að vana
að drekka áfengj til að róa sig.
Sarna má segja um sígarettui'.
Það er fölsk ró sem þær gefa,
og miklar reykingar valda oft
svefnleysi.
•ýc 19- Sykurmoli og glas af
vatni. Ef blóðsykurinn er orð-
inn of lítill að magni, getur ver-
ið gott ráð að drekka eitthvað
sætt. Bezt er ein teskeið af hun-
angi leystu upp í heitu vatni.
-^-20. • Heit mjólk með hunangi
eða sykri. Kalkið í mjólkinni
r verkar róandi á taugarnar, og
heit mjólk hefur sálfræðileg á.
hrif, • minnir á bernskudágana.
•Jc 21. Grasaseyð; af ýmsu tagi,
piparmyntute og fleira þess hátt
ar getur 'vérkað vel fýrir svefn-
inn. Ef þú venur þig á að
drekka bolla af heitu grasate
áður en þú fei'ð í rúmið vérkar
það smám saman eins og aðrir
fastir siðir og tilheyrir undir-
búningi svefnsins.
■ýc 22. Liggðu ekki- svangur í
rúrninu. Það er hvort tveggja
jafnslæmt fyrir svefninn að
boi'ða of mikið og vei-a of inn-
antómur. Ef bú borðar- of lítið á
kvöldin getui'ðu vaknað um
miðja nótt vegna hungurs. Þá
getur mjólkurglas eða grasate
nægt til að þú sofnir aftur.
-^- 23. Of þreyttur til að sofna?
Reyndu að gera nokkrar léttar
líkamsæfingar. Beygðu þig fx'am,
svo að blóðið streymi til höfuðs-
ins. Andaðu svo nokkrum sinn-
Fi'amhald á 15. síðu.
Fiskiðjuver Seyðisfjarðar
er til sölu, eða eftir atvikum leigu, ef um
semst.
Upplýsingar í Fjármálaráðuneytinu.
Bifreiðastjórar
Oskum að ráða tvo gætna og van-a bifreiða-
stjóra til aksturs í leigubifreiðum.
BIFREIÐASTÖÐ STEINBÓRS.
sími 11588.
Lokað
mánudaginn 2. júlí veg’na sumarleyfisferðar
starfsfólks.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu loftræstu
kerfis í hús Handritastofnunar og Háskóla ís
lands. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu
vorri gegn kr. 1.000.- skilatryggingu.
Lokað
vegna sumarleyfa 15. júlí til 8. ágúst.
GLER og LISTAR
Sími 36645 — Dugguvog 23.
Auglýsingasími: 14906
1. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9