Alþýðublaðið - 01.07.1967, Síða 11
á OL í Mexíkó 1968
Sendimaður mexíkönsku Olympíu-
nefndarinnar segir undirbúning
ganga vel
lirifum. Hins vegar hefðu íþrótta
menn náð þar betri árangr^ en
víða annars staðar, svo sem í
köstum, stökkum og hlaupum á
stuttum vegalengdum. Hins vegar
taldi hann, að í öryggisskyni væri
betra að væntanlegir keppendur á
Olympíuleikunum dveldu í Mex
íkó í nokkra daga til að venjast
loftslagsbreytingunni.
Þá skýrði Dr Hay frá því, að
í sambandi við Olympíuleikana
yrði haldin listsýning, er hæfist
15. sept. 1968. Yrðj hverju landi,
sem aðild ætti að Olympíuleikun
um boðið að senda tvö listaverk
á sýninguna, annað í klassiskri
list og hitt í nútíma stíl. Listsýn
ing þessi væri um leið keppni og
yrðu veitt verðlaun beztu lista-
verkunum, sem þar væru að dómi
sýningarnefndar.
Sunnudaginn 25. júní sl. kom
hingað til lands sérstakur sendi
maður Olympíunefndar í Mexikó,
Dr Eduardo Hay.
Kom hann með hið formlega
boð til Olympíunefndar íslands um
þátttöku íslendinga í Olympíuleik
unum (sumarleikar), sem fram
fara í október 1968.
Afhenti Dr Eduardo Hay for-
manni Olympíunefndar íslands,
Birgi Kjaran, mjög skrautlega
bók með silfurslegnum skinn-
spjöldum. Voru inn í bókinni,
skrautrituð ávarpsorð til
Olympíunefndar íslands um
að íslendingar væru boðnir til Ol
ympíuleikanna. Viðstaddur at-
liöfn þessa var auk formanns
fundarritari Olympíunefndar ís-
lands, Hermann Guðmundsson.
Birgir Kjaran þakkaði boðið og
óskaði Olympíunefndinni í Mex-
íkó farsældar í störfum við und
irbúning og framkvæmd Olympíu
leikanna 1968.
Við þetta tækifæri gaf Dr.
Eduardo Hay ýmsar upplýsingar.
Hann sagðist hafa farið um Ev-
rópu að undanfömu og afhent
þar Olympíunefndum viðkomandi
landa boð á Olympíuleikana 1968
Sagði hann að öllum undirbún-
ingi að Olympíuleikunum í Mex-
íkó miðaðj vel áfram og fullgerð
ur væri þegar aðalleikvangurinn,
sem rúmaði 100 þús. áhorfendur.
Dr. Hay taldi að allt of mikið
veður hefði verið gert úr áhrif
um hins þunna lofts i Mexikó á
keppnisgetu íþróttamanna. Um
árabil hefðu farið fram stórar
iþróttakeppnr í Mexkó, svo sém
Pan American leikarnir og ekki
hefði borið á neinum slæmum á
Unglingamótið
kl. 3 í dag
LTngrlingameistarm. ísl. í frjáls
um íþróttum verður háð um
helgina á Laugardalsvellinum
og hefst kl. 3 báða clagana.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum í dag: 100 m. hlaupi,
110 m. grindahlaupi, 400 m.
hlaupi, 1500 m. lilaupi, kúlu-
varpi, hástökki, langstökki,
spjótkasti, 1500 m. hindrunar
hlaupi, og 4x100 m. boðhlaupi.
Margir snjallir unglingar
eru meðal þátttakenda, m. a.
Þorsteinn Þorsteinsson, KR, Er
lendur Valdimarsson, ÍR og
Arnar Guðmundsson, KR. Má
búast við skemmtilegri keppni
í flcstum greinum. Á mynd-
inni sézt Þorsteinn Þorsteins-
son. í
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Paul Wilson, USA stekkur 5,38 m., sem er heimsmet.
Beztu afrekin i
stangarstökki 1967
Bandaríkjamaðurinn Paul Wil
son stökk 5,38 m. á meistaramóti
Bandaríkjanna um síðustu helgi,
sem er nýtt heimsmet. Beztu af-
rek í stangarstökki á árinu til
þessa eru sem hér segir:
Paul Wilson, USA, 5,38 m.
Bob Seagren, USA, 5,36 m.
Herve Encausse, Frakkl. 5,20 m.
Richard Railsback, USA, 5,20 m.
Dennis Pliilips, USA, 5,20 m.
C. Papanikolau, Grikkl. 5,20 m.
James Eshelman, USA, 5,16 m.
Fredrick Burton, USA, 5,12 m.
Klaus Lehnertz, V.-Þýzkal. 5,10 m.
Riehard Sloan, USA, 5,05 m.
Eins og kunnugt er keppti
Dennis Philips, USA, sem er I
3.—6. sæti á skránni á meistara
móti íslands innanhúss í vetur
og stökk þá 4,80 m.
KEINO hljóp enska mílu á
móti í Nairobi nýlegt á 3:55,0
mín., sem er næstbezti tími í
heimi á þessu ári.
■—★—-
SKÝRT hefur verið frá ár-
angri Paul Wilson í stangarstökki
og míluhlaupi Jim Ryun Hér er
árangur í fleiri greinum, en hann
var frábær, þó að ekki væru sett
nein heimsmet. Lee Evans sigr
aði í 440 jarda hlaupi á 45,3 sek.,
en Vincent Matthews varð annar
á 45,5 sek. Tommie Smith varð
meistari í 220 jördum á 20,4 sek.,
en Jim Hines varð annar á sama
tíma. Randy Matson sigraði I
kúluvarpi með 20,4 m og Stein
hauer varð annar með 19,96 m. —>
Wade Bell varð meistari í 880
jördum á 1:46,1 mín og Dennis
Carr hlaut annað sæti á 1:47,1
mín. í 3000 m. hindrunarhlaupi
sigraði Pat Traynor bandarískur
meistari á tímanum 8:42,0 mín.
Delmon McCabb sigraði í spjót-
kasti kastaði 81,77 m., en næstur
varð Gary Stenlund með 79,83 m.
Keppni varð hörð í þrístökki, þar
sigraði Charles Craig með 16,19
m., en Art Walker varð annar
með 16,16 m. Van Nelson sigraðl
í 6 mílna hlaupi á 28:18,8 mín.,
en næstur varð Tom Laris með
28:19,2 mín.
1. júlí 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ