Alþýðublaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 14
ASÍ
Framhald af 1. síðu.
fiéu í sömu kjördeild. Hver kjör-
deild kýs þá tölu fulltrúa á þing
A.S.Í. sem sameiginleg félags-
mannatala félaganna í kjördeild-
inni gefur rétt til, miðað við heild
artölu félassmanna viðkomandi
aainbands og heildartölu fulltrúa,
sem sambandið á rétt til.
í landssamböndum, sem um
raeðir hér aö ofan, er félögum
heimilt, sem hafa jafnmarga eða
fleiri félagsmenn, en nemur þcirri
tölu, sem er að baki hvers full-
trúa viðkomandi sambands, að
inynda sérstaka kjördeild, hvert
tim sig, og kjósa fulltrúa á þing
A.S.Í. niiðaó við félagsmannatölu
sína.
Ennfremur geta félög, innan
sambands, sem ekki ná þeirri tölu
tfélagsmanna er um ræðir í 2.
inálsgr. skipað sér saman í kjör-
deild og telst þá félagsmannatala
þeirra saman við útreikning full-
trúafjölda á þing A.S.Í.
Þau landssambönd sem kjósa
sex fulltrúa eða færri skulu vera
ein óskipt kjördeild. Þó geta sam-
bönd, sem byggð eru á aðild sér-
grcinafélaga, skipað aðildarfélög
um í kjördeildir eftir sérgreinum.
enda séu eigi færri félagsmenn en
250 í kjördeild, sbr. 3. mgr. liér
að framan.
Þau núverandi sambandsfélög,
sem ekki verður skipað í lands-
sambönd og hafa a.m.k. þá tölu
félagsmanna sem standa aö baki
fulltrúatölu landssambandanna
kjósa fulltrúa með sama liætti og
landssamböndin. Þau verkalýðsfé-
lög sem hafa færri félagsmenn
kjósa fulltrúa í sameiginlegfi eða
sameiginlegum kjördeildum.
Nánari reglur um tilhögun full-
trúakjörs á þing A.S.Í. setja lands
samböndin hvert fyrir sig, en stað
festar skulu þær af stjórn A.S.Í.
áður en þær koma til fram-
kvæmda“.
2. „Sambandsstjórn skal kosin
til fjögurra ára í senn eins og
hér segir:
A reglulcgu sambandsþingi
skulu forseti og varaforseti kosn-
ir sérstaklega. Þá skal næst kjósa
13 meðstjórnendur og mynda þeir
ásamt forsetunum miðstjórn AI-
þýðusambands íslands.
Auk 15 miðstjórnarmanna kýs
sambandsþing 18 menn í sam-
foandsstjórn Af þessum 18 mönn-
um skal einn maður vera úr
hverju kjördæmi landsins — 8 að
tölu —. Skulu þeir eiga löglicim-
ili og búsetu í því kjördæmi, sem
þeir eru kosnir fyrir.
Til viðbótar þeim mönnum, sem
sambandsþing kýs í sambands-
stjórn skulu landssambönd og þau
núverandi sambandsfélög, scm
ekki vcrður skipað í landssam-
bönd þau, er mynda Alþýðusam-
bandið kjósa menn í sambands
stjórn eftir þeim reglum sem hér
segir, og er sambandsstjórn þá
fullskipuð:
Landssambönd með 2500 félags
menn og færri kjósa vo menn
hvert Landssamband með 2501 —
5000 félagsmenn kjósa tvo menn
livert. Landssambönd með 5001 —
10.«00 félagsm. skulu kjósa 3 menn
hvert og landssambönd sem liafa
fleiri en~10.000 félagsmenn skulu
kjósa fjóra menn hvert. Þau nú-
verandi sambandsfélög, sem ekki
verður skipað í landssambönd og
hafa jafnmarga eða fleiri félags-
menn, en fámennasta landssam-
bandið skulu kjósa menn í sam-
bandsstjórn eftir sömu reglum og
landssamböndin.
Sambandsstjórn kýs úr sínum
hópi ritara og gjaldkera".
í tillögunni um kosningu -til al-
þýðusambandsþings er við það
miðað að fulltrúatala á þingum
A.S.Í. verði framvegis sem næst
150, en miðað við núverandi fé-
lagsmannatölu, sem er um 34.500
þýðir það að um 130 manns stend
ur að baki hvers fulltrúa. Er hér
um allmikla fækkun á fulltrúum
að ræða. en Alþýðusambandsþing
bafa um talsvert skeið verið mjög
þung í vöfum, vegna þess hve fjöl
menn þau hafa verið. Samkvæmt
tillögunum verða eftirleiðis flest-
ir fulltrúarnir kosnir af landssam-
böndum starfsgreina, en ekki ein
stökum verkalýðsfélögum, en síð-
ustu ár hafa slík landssambönd
verið allmörg mynduð, og eiga nú
um % allra félagsmanna A.S.Í.
aðild að slíkum samböndum. Sam
kvæmt tillögunum um skipun sam
bandsstjórnar munu landssam-
böndin einnig skipa fulltrúa í
stjórn A.S.l. auk þeirra, sem kjörn
ir eru á alþýðusambnadsþingi.
Miðað við núverandi meðlimatölu
yrðu stjórnarmenn þannig skipað-
ir 17 talsins, þannig að alls sætu
50 menn í fullskipaðri sambands-
stjórn. Þessir 17 fulltrúar skipt-
ust þannig milli landssambandanna
að verkamánnasambandið fengi 4
menn, Landssambband íslenzkra
verzlunarmanna 3 menn, Sjó-
mannasamband íslands og Sam-
band Iðjufélaga 2 menn hvort og
Málm og skipasmiðasambandið,
Samband byggingarmanna, Lands-
samband vörubifreiðastjóra, Raf-
virkjasamband, SambancT bóka-
gerðarmanna og Samband mat-
reiðslu- og framreiðslumanna sinn
manninn hvert.
í tillögunum eru engin ákvæði
um það, með hvaða hætti full
trúakosning innan landssamband-
anna skuli fara fram, og má bú-
ast við að það geti orðið með
breytilegu móti. Nokkuð var rætt
að taka upp hlutfallskosningar, en
slík tilhögun hefur ekki fengið
hljómgrunn, en hins vegar er rétt
ur minnihluta talsvert tryggður
með því kjördeildarfyrirkomulagi,
sem notað verður í mörgum lands
samböndum.
Á það er lögð áherzla í sam-
bandi við þessar tillögur, að ekki
er gert ráð fyrir að neinar breyt-
ingar verði á samningsréttinum.
Þrátt fyrir stofnun landssamband
anna verður hann eftir sem-áður
í höndum einstakra félaga, en auð
vitað geta þau falið hlutaðeig-
andi samböndum að fara með
hann.
Minnismerki sjó-
manna á Akranesi
Á sjómannadaginn, 28 maí, bár
ust gjafir í tilefni afhjúpunar
minnismerkis sjómanna á Akra-
nesi, til minningar um sjómenn,
er gistu vota gröf, kr. 1 þús. frá
Magnúsi Kristóferssyni frá Götu-
húsum á Akranesi. Þá afhenti
Helgi S. Eyjólfsson, sem lengj hef
ur verið formaður Átthagafélags
Akurnesinga í Reykjavík, mér
sparisjóðsbók með um 20 þús.
krónum frá félögum átthagafélags
ins. — Átthagafélag Akurnesinga
í Reykjavík hefur frá upphafi sýnt
minnismerkismálinu mikinn skiln
ing og stuðning og hefur átt tvo
fulltrúa í minnismerkisnefndinni.
Ræktarsemi félaganna í þessu
máli, og öðrum, er varða æsku-
stöðvar þeirra hér efra, ber að
þakka af alhug. Vissulega hafa
þeir verið mörgum til fyrirmynd-
ar. —• Þessu fé mun vérða varið
til að kosta samantekt og um-
búnað minningabókar um drukkn
aða sjómenn af Akranesj og ná-
grenni.
Jón M. Guðjóneson.
í tengslum við minnismerki sjó
manna á Akranesi, sem afhjúpað
var á sjómannadaginn, 28. maí sl.
verður gerð bók, er geymi nöfn
allra þeirra sjómanna af Akra-
nesi og nágrenni, sem drukknað
hafa fyrr og síðar og vitað er um.
Skráð verða í bókina æviatriði
þeirra með mynd af þeim, sem
til eru og unnt verður að fá. —
Verður bókin varðveitt á opin-
berum stað, henni samboðnum,
þar sem almenningj gefst kostur
á að skoða liana, þeim, er þess
óska. — Nefnd minnismerkis
sjómanna á Akranesi, sem starf-
að liefur undanfarin ár, ákvað á
fundi fyrir nokkru, að halda lióp-
inn um sinn, meðan unnið verður
að þessari minningabók. Hefur
nefndin leitað til Ara Gíslasonar,
fræðimanns á Akranesi, um að-
stoð við samantekt bókarinnar, og
mun hann vinna verkið að mikl-
um hluta.
Það eru vinsamleg tilmæli nefnd
arinnar til fólks, að það Ijái þessu
málj stuðning, m.a með því að
lána myndir til eftirtöku af þeim,
sem bókin er helguð. Skráð verði
nafn þess, sem myndin er af, á
bakhlið hennar og upplýsingar,
sem hægt er að koma þar fyrir,
Vinsamlegast komið myndunum til
Ara Gíslasonar, Vesturgötu 138
(sími 1627), eða sóknarprestsins á
Akranesi, séra Jóns M. Guðjóns-
sonar. — Þeir, sem hafa í huga
að gefa minningargjafir um látna
sjómenn, geta snúið sér til sókn-
arprestsins með þær.
Tanngæzla á elli-
heimilinu Grund
Þann 1. júlí næstkomandi hefst
starfræksla tanngæzlu á elliheim-
ilinu Grand í Reykjavík fyrir
vistmenn. Hefur í þessu skyni
verið komið upp fullkominni
tannlækningastofu með öllum til-
heyrandi tækjum Á stofunnj mun
starfa tannlæknir, Hörður Ein-
arsson, að staðaldri og fylgjast
með tannheilsu vistmanna elli-
'heimilisins. Er gamla fólkinu tal-
inn mikill akkur að þessari nýj-
ung, þar sem heilbrigði tanna
hefur mikla þýðingu fyrir heils-
una yfirleitt.
Á elliheimilinu prund eru nú
376 vistmenn, 279 konur og 97
karlar. í vistheimilinu að Ási í
Hveragerði, sem starfrækt er frá
Grund með stuðningi elliheimilis_
nefndar Árnessýslu, eru 32 kon-
ur og 27 karlar. Meðalaldur vist-
fólks er 80 ár. Svo sem sjá má
eru konur mun fleiri en karl-
menn, og er það eins héc sem
í nágrannalöndum okkar, að hlut-
fallið milli karla og kvenna, sem
ná mjög háum aldri, eru 3 konur
á móti 1 karli. Vesalings karl-
mennirnir deyja svo margir fyr-
ir aldur fram.
Framtíðarathafnarsvæði Grund-
ar er í Hveragerði, og fer nú
þegar allmikil starfsemi þar fram,
m.a. rekur elliheimilið þar gróð-
urhús.
Vistmönnum á Grund er auk
tanngæzlunnar veitt ýmiss konar
önnur þjónusta, t.d. er þar rak-
arastofa, fót- og handsnyrting og
andlitsböð. Gjald fyrir þetta er
innifalið í daggjaldinu, sem er
kr. 200 fyrir þá, sem rólfærir
eru, en kr. 310 fyrir þá sjúku.
Verksmiðjan Vífil-
fell 25 ára
Fyrir skömmu átti verksmiðj-
an Vífilfell h.f. 25 iára starfs-
afmæli, en hún stendur að fram-
leiðslu svaladrykksins „Coca
Cola“, sem öllum íslendingum er
kunnur.
Verksmiðjan hóf starfsemi sína
þann 1. júní 1942 og hefur starf-
að óslitið og við vaxandi gengi
síðan. Framleiðsla hennar á dag
Bridgespilarar i
Á fimmtudögum er spilað í
1 læknahúsinu við Egilsgötu. —
> Öllum Iieimil þátttaka.
Bridge-samband íslands.
er nú 60.000 flöskur, en þau af-
köst fullnægja vart eftirspurn-
inni.
Kók er framleitt úr sérstöku
kókefni, sem blandað er sykrj og
kolsýrðu vatni Kókefnið er fram
leitt í Bandaríkjunum og hvílir
mikil leynd yfir efnasamsetningu
þess, sem sést m. a. á því, að
uppskriftin að efninu er geymd
í eldtraustu bankahólfi einhvers_
staðar þar vestra, sem aðeins
tveir menn hafa aðgang að.
Coca Cola er útbreiddasti
svaladrykkur heims og er fram-
leiddur í 124 þjóðlöndum, Fram
leiðsla hans samanlagt yfir all.
an heiminn nemur 8 milljónum
flaskna á dag. Vinsældir drykks-
ins á íslandi eru sérstaklega mikl
ar, því að hvergi í heiminum er
salan meiri miðað við fólks-
fjölda.
GJAFABREF
FRA SUNDLAUQAR8JÓOl
6KÁLATÚN6HEIMILIBIH*
►ETTA BRÉF ER KVITTUN, EN PÓ MIKIU
FREMUR VIDURKENNING FYRIR STUDN-
ING VIÐ GOTT MÁLEFNI.
MtrKHVlK, p. n
f.h. Sm*mt•"!*** Uðkirt.il iiUiif
Kft.___________
OLÍUFYRING
OG BRENNARI
rúmlega 2 ferm. til sölu.
Upplýsingar í síma 81753 næstu kvöld.
— ÓDÝRT. —
Útför móður okkar, •!■
RÓSAMUNDU GUÐMUNDSDÓTTUR Í
fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 3. júlí kl. 10.30. ''
Maria Ástmarsdóttir, Elín Ástmarsdóttir, (
Ingólfur Ástmarsson, Magnús Ástmarsson
14 1. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐID