Alþýðublaðið - 07.07.1967, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 07.07.1967, Qupperneq 7
HEIMS María ein í þeim hópi HORFIÐ þið nífcvæmlega á| þessa mynd. Eru þær ekki bros- andi, stúlkurnar? Nei, fæstar brosa með munninum, — þær brosa með augunum, því að ein- hver hefur sagt við þær: Hugs- ið um bros. Þær eru orðnar æfðar í þessu, —■ æfðar í að láta taka mynd af sér, — og sannar- lega ættu þær að hafa ástæðu til þess að líta glaðlega út. Hve margar vildu ekki vera í þeirra sporum: — Þessar 32 stúlkur eru hæstlaunuðustu ljósmyndafyrir- sætur heims. Númer 10 er María Gudy, — íslandi, öðru nafni María Guðmundsdóttir. Flestar eru stúlkurnar þýzikar, margar bandarískar en annars eiga mörg lönd fulltrúa í þessum hópi. Þessar þrjátíu og þrjár stúlkur eru ráðnar hjá Ford Model Ag- ency í New York, — en það er keppikefli allra ljósmyndafyrir- sæta heims, að komast þangað. Þegar því marki er náð, — geta þær unnið sér inn gífurlegt fé árlega með því að vera alltaf viðbúnar, alltaf upplagðar til að selja vörur, hugmyndir og drauma. Ferðatöskur þeirra eru alltaf við hendina, þær búa á dýr um gististöðum, ferðast heims- hornanna á milli, hafa alltaf ein- hvern sitjandi við símann, svo að tækifærin gangi þeim ekki úr greipum, — þær gæta þess að sofa vel, lifa settum reglum,— og leyndur ótti býr í brjóstum þeirra allra. — Einn góðan veðurdag koma hin sterku ljós á myndastof unum upp um það, að þær eru ekki lengur sléttar og' fallegar eins og draumurinn um hina ungu fallegu konu. Áður gátu ljós- myndafyrirsætur gert sér vonir um að vera á hátindi frægðarinn- ar í tíu ár. Nú getur hún ekki gert sér vonir um meira en fimm til sex ár. Kannski fær hún ekki að vera svo lengi, — ekki ef fóllc fer að þreytast á henni. 'Það er nóg að gera á skrifstof- um Foi-d Model Agency í New York. Þar eru um 40 símar, — þangað hringja um 10000 manns á dag. 150 stúlkur og 75 sýningar menn eru þar í vinnu. Forstöðu- menn fyrirtækisins segja, að þýzk ar stúlkur séu nú hlutskarpastar í samkeppninni. Reikniheili sér fyrir því að velja og hafna. Það tekur hann aðeins augnablik að finna þá stúlku, sem bezt hæfir hverju sinni. Ef viðskiptavinirn- ir vilja fá stúlku, sem getur stað- * í , ið á baki á stökkvandi liesti, þá er ekki annað en sækja hana, — hún er fyrirliggjandi. Nú, er sótzt er eftir st-úiku, sem kann að leika á sekkjapípu, — þá er ekki annað en kalla á hana, — hún er líka fyrirliggjandi. Það tekur ekki langan tíma að vera uppgötvaður, — ef fólk er uppgötvað á annað borð. Stúlka gengur eftir götunni í regnkápu með slæðu um hárið. Hún er of þrekvaxin og hreyfir sig klunna lega. En það er eitthvað við hana, hún hefur svip, sem ljósmyndavél in getur liagnýtt sér. Þegar búið er að grenna hana um fimrn kíló, laga á henni andlitið og kenna henni andlitsförðun og hár- greiðslu, -■■ er hún orðin fyrsta flokks og það nýjasta, bezta og fínasta á markaðinum. Framhald á bls. 14. StóiksirRar á myndinni: 1. Wilhelmina, Þýzkaland. 2 Narbara Janssen, USA. 3. Tilly Tizzani, Ítalía. 4. Iris Bianchi, Ítalía 5. Sandra Paul, England. 6. Melissa Cong- don, USA. 7. Sandra Peterson, USA. 8. Hillevi Kekko, Finnland. 9. Holly Forsman, USA 10. María Guðmundsdóttir, ísland. 11. Donna Mitc- liell, USA 12. Diane Conlon, USA. 13. Agneta Frieberg, USA. 14. Veronica Hamel, USA. 15. Renata Boeck. Þýzkaland. 10. Dolores Hawkins, USA. 17. Agneta Darin, Svíþjóð. 18. Victoría Hil- berg, USA 19. Editha Dussler, Þýzkalandi. 20. Ann Turkel, USA. 21. Nabette, Kanada. 22. Margo McKendry, Ástralíu. 23. Astrid Schiller, Þýzka- landi. 24 Heather Hewitt, USA. 25. Sunny Griff- in, USA. 26. Helaine Carlin, USA. 27. Pia Christ- ensen, Finnland. 28. Anne Larson, England 29. Heide Wiedeck, Þýzkaland.20. Astrid Heeren, Gýzkaland. 31. Sammantha Jones, Kanda. 32. Erica Stech, Þýzkaland. 7. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.