Alþýðublaðið - 07.07.1967, Page 9
’ernd og olíumengun
reglugerðir banni að losa olíuúr-
gang í sjó nær landinu en 100
'Sjómílur frá eyjum og andnesj-
um.
Nýlega átti ritstjóri Dýra-
verndarans tal við einn af þeim
vísindamönnum, sem bezt bafa
fylgzt með hinu mikla undri,
myndun Surtseyjar og síðan því,
hvernig líf kviknar í eyjunni.
Hann segir, að fram að þessu
hafi þar ekki setzt að aðrir fugl-
ar en ritan, en hún hafi þegar
tekið sér bólfestu í sjávarhömr-
um eyjarinnar. Hins vegar hafi
dvalið þar um stundar sakir aðr-
ir sjófuglar, og farfuglar hafi
haft þar hvíldardvöl á ferðum
sínum. Ég spurði hann að því,
'hvort verulega bæri á olíumeng-
un sjávar í nánd við eyjuna og
■kvað hann því miður oft og tíð-
um geta að líta olíurákir, bletti
og iænur i sjónum kringum
Surtsey — eins og reyndar víð-
ar í nánd við Vestmannaeyjar,
og væri algengt, að í eyjunni
sæjust fuglar, sem annað tveggja
hefðu drepizt af völdum olíu
eða væru dauðvona af því, að
þeir hefðu lent í olíuúrgangi.
Bæri mikla nauðsyn til að líta
betur eftir að bátar úr Eyjum
og raunar öðrum verstöðvum,
virtu lögin, sem banna olíumeng
un sjávar. Væri vel, að sjómenn
fiskiflotans fengju svipaða af-
stöðu gagnvart fuglunum og sjó
mennirnir úr Bolungavík, sem
frá hefur verið sagt hér í blað-
inu í sögum þeim, sem birzt hafa
eftir Fjnnboga Bernódusson.
Út af eyðileggingu baðstrand-
anna á Suður-Englandi datt mér
1 hug Mývatn í Mývatnssveit.
Það er fullyrt af víðförlum og
margvísum náttúrufræðingum,
áð Mývatnssveit sé eitt af hin-
um miklu undrum veraldar, —
bæði sakir hinnar sérstæðu og
frábærlega fögru náttúru, en
einnig sem fuglaparadís, sem
vart eigi sína líka enda mun það
þegar þykja fullreynt, að ekkert
á íslandi þyki erlendum ferða-
mönnum jaínfurðulega fagurt og
Mývatn og umhverfi þess, með
öllu hinu iðandi lífi vængjaðra
vera, og eigi ísland þarna ekki
aðeins dásamlegt furðuverk nátt
úrunnar, heldur einnig frábær-
lega arðsama auðlind, ef rétt og
vel sé á haldið.
En pú hefur þegar verið á-
kveðið að hefja þarna allmikinn
verksmiðjure'kstur, og búizt er
við, að í sambandi við hann rísi
upp um það bil þrjú hundruð
■manna þorp. Þá verður lagður
breiður bílvegur mjög skammt
frá suðurbakka vatnsins, og um
hann munu aka óvenjustórir,
þungir og hávaðasamir vörubíl-
ar. Fullyrt er, að þarna verði
svo örugglega um allt búið, að
hvorki landið, gróðurinn, veiðin
í vatninu né fuglalífið bíði tjón
af hinum væntanlega verk-
smiðjurekstri eða nokkru því,
sem honum fylgir. En skilorðir
menn hafa tjáð ritstjóra þessa
blaðs, að þegar hafi þótt við
brenna, að sumir verkamenn, er
þarna hafi unnið, hafi alls
ekki virt friðun fuglanna, heldur
skotið fugla við vatnið og á því,
og liætt er við, að fólk, sem
þarna kemur aðvífandi og sezt
að, en ek'ki hefur vanizt lífinu
iþarna frá barnæsku, virði ekki
fuglalífið eins og nauðsyn ber
til, og að brot kunni að verða
fleiri og meiri en svo, að þau
valdi ekki. alvarlegu og varan-
legu tjóni. Þarna mun og stór-
um aukast umferð tankbíla, og
víst er um það, að ef slíkir bílar
lenda í árekstrum eða aka út af
vegi, svo að olíugeymarnir
springa og olían rerinur út í
vatnið, þá er voðinn vís. Er nauð
synlegt, að ákveðinn sé slíkum
bílum mjög lágur hámarkshraði
á vegum í grennd við vatnið.
Og hvað sem öðru líður, virð-
ist mér þarna svo mikið í húfi,
að sjálfsagt sé, að á kostnað
verksmiðjufélagsins verði hafðir
þarna samvizkusamir og vel
þj'álfaðir verðir, sem gæti þess
jafnt á nótt sem degi, að ekki
séu brotin lög eða reglur, og
sé þar engin iinkind sýnd. Er-
lendis er miklu til þess kostað,
að ekki líðist, að brotin séu frið
unarlög á sambærilegum stöðuir
og Mývatnssveit, og þung viður-
lög eru við brotunum. Má alls
ekkj dragast að koma skipan á
slíka varðgæzlu, svo að stemmd
verði á að ósi.
BISKUPINN
VlSIIERAR
Biskupinn yfir íslandi, herra Sig-
urbjörn Einarsson, vísiterar í sum-
ar Skagafjarðar og Húnavatns-
prófastsdæmi.
Vísitazían hófst á mánudag í
Rípurkirkju í Hegranesi og Sauð-
arkrókskirkju og heimsótti biskup
tvær til þrjár kirkjur í Skagafirði
frajn til 12. júlí í, Hóladómkirkju
sunnudaginn 9. Þá hefst heimsókn
í Húnavatnssýslu og stendur til
17. júlí og svo aftur 18. til 20.
ágúst.
Guðsþjónusta verður í öllum
kirkjum, svo og kirkjuskoðun og
viðræður við söfnuð og prest.
Sóknarnefndir, safnaðarfulltr. og
aðrir sóknarmenn eru boðaðir til
viðtals. Einnig eru fermingarbörn
ársins sérstaklega boðin að koma
til fundar við biskúp.
Guðfræðiráðstefna á vegum
þjóðkirkjunnar og Lútherska
heimssambandsins hófst í Reykja-
vík 22 þ.m. Þetta er önnur ráð-
stefnan, sem haldin er hér á veg-
um þessa aðilja. Umræðuefni að
þessu sinni var. Ráðsmenn Guðs-
gjafa. Hefur þetta efni verið
rannsakað af guðfræðingum og
rætt á ráðstefnum presta og .leik.
nianna.
Um 20 prestar sátu ráðstefn-
una auk tveggja guðfræðinga Lút
herska heimssambandsins, sem
báðir fluttu hér fyrirlestra. Ráð-
stefnan stóð í þrjá daga.
7. júlí 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ ®
Pepsi, Pepsi-Cola og Miranda eru skrásett vörum., eign PEPSICO INC., N.Y.
, \evsW
Appelsín. Nýja AppelsíniS á nýrrf
flösk“ sem
02.
ei'kur
anæSjun
Enn ein gæ3a-
vara frá
PEPSIC0
INC., N.Y.