Alþýðublaðið - 07.07.1967, Síða 16

Alþýðublaðið - 07.07.1967, Síða 16
£1!!MI0GI!£$MÖ) DELIRÍUM LUNARIS Z2 FORÐUM þótti tunglið merki- legt aðallega fyrir það að það skein á jörðina og lýsti hæfilega þeim, sem kærðu sig ekki um að of vel væri tekið eftir þeim. Nú c-r það orði-ð merkilegt fyrir það að jörðin skín á það. Eins hélt maður áður að ef eitthvert kykvendi fyrirfyndist á cðrum plánetum mundi verða tek (ið á móti þeim hér á jörðinni jueð nokkru tilhaldi, annað hvort aueð eldi og brennisteini ellegar með súkkulaði og kaffi og rjóma- pönnukökum eins og tíðkaðist á myndarheimilum í íslenzkum sveit um í mínu ungdæmi En hér hef- ur farið á aðra lund, a. m. k. á voru landi. Þeim, sem ætla til tunglsins er miklu betur fagnað cn til mála kemur að gert verði rokkurn tíma við hina, sem ef til vill eiga eftir að koma þaðan. Hingað er nú kominn hópur inanna, sem ef til vill verða send- ir til tunglsins, eða líkur eru fyrir að einn eða tveir þeirra lendi á tunglinu. ef þeir reynast færir um að fara í slíka svaðil- för og ef þeir svo hitta tungliðv <sem virðist héðan neðan frá Fróni ekki svo afskaplega greinilegt skotmark. Hefur góðum skot- luönnum geigað á skemmra færi, eumir jafnvel hitt útlimina á ‘sjálfum sér, þegar þeir vildu bana tófu eða æðarkollu (en svo- leiðis skytterí hefur ekki verið í tízku um skeið). En meiri líkur eru þó á að þetta takist, því að Sigurður hefur lýst því yfir, að geimgæjarnir séu bara vel gefnir. Við komu þessara garpa til ís- Jands umturnaðist vort friðsama þjóðfélag. —■ Fyrirmönnum þótti sýnilega heiður að ísland væri talinn slíkur útkjálki byggðra bóla, að helzt mætti líkja því við tunglið af öllum skrýtnum af- Irimum þessarar plánetu. Forset- inn skrifaði þeim með eigin hendi Og forsætisráðherrann gekk á iund þeirra hinn gleiðasti. En einhvern veginn hefur ó- uppiýstur almúginn ekki skilið alla þessa dýrð og vængjablak englanna í skýjunum yfir komu geimgæjanna til þessa vors lítil- mótlega lands, og hefur hann því verið með ýmsar getgátur um það í hverju mikilvægi þeirra liggi. Sumum hefur dottið í hug að þetta séu súpermenn og afkom- endur venjulegra manna verði svona eftir svo sem milljón ár, þegar kompúter er kominn í stað inn fyrir heila, grjótkvörn í stað inn fyrir maga, hjarta ér búið til úr hrágúmmíi og taugarnar úr veiðarfæranæloni. Öðrum dettur i liug að stjórn- málamenn telji geimgæja merki- lega fyrrr það, að þeir eru van- ir að hanga í lausu lofti, en það er þjálfun, sem kemur sér vel fyrir pólitíkusa, einkum rétt eft ir kosningar, þegar enginn veit hvað á að leggja verk upp á að efna af kosningaloforðum, elleg- ar þegar þeir eru nýlega komnir úr stjórn og hættir að geta beitt fyrir kjósendur með fyrirgreiðsl- um og bitlingum. Þá geti það líka verið lærdóms- ríkt fyrir pólitíkusa að kynnast mönni'm. sem ekki aðeins eru langþjálfaðir i að hafa endaskipti á hlutunum heldur líka á sjálfum sér (eins og oft kemur fyrir úti í geimnum) en sú kunnátta getur komið sér afar vel þegar ógerlegt reynist að snúa hlutunum við, en svoleiðis lagað hendir líka í póli- tík. Enn fremur hefur því verið fleygt að sendimaðurinn til tungls ins eigi að leysa karlinn í tungL- inu af meðan hann fer í orlof til Mallorca eins og ailir alminlegir menn gera, en íiann eigi að hafa viðkomu á íslandi því að auðvitað ætli hann ,að feröast með Loi't- leiðum eins og geimgæjarnir vin- ir hans. Það gerir hann náttúr- lega SAS til bölvunar En hver sem ástæðan er, þykir mönnum einsýnt að við verðum að útvega okkur hið bráðasta nýj- an þjóðsöng og auðvitað verður það „Tunglið, tunglið taktu mig“, því að hvaða söngur annar gæti komið til greina? Ég held að það sé vilji örlaffanna að við hittumst. mc. n /TSf"1 s rs Frú Jensen er okkar bezti við skiptavinur. TÍMIWW Tilboð óskast i í sitrautlegan sveitabæ með þremur burstum. Upplýs* ingar að Meistaravöll* um 29, II. hæð. j Ef olían hefði ekki hækkað eftir Sínaí-stríðið hefði ég haldið að menn værn hætt. ir að vera glöggir á tæki- færi til að komast fram lijá verðstöðvunarlögunum. Nú ætla þessir geimgæjar til Fiskivatna, eins og þeir hafi ekki alltaf verið' að veiða síðan þeir komu. Þá batnar kannski siðferðið úr því pilsin eiga að síkka.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.