Alþýðublaðið - 12.07.1967, Síða 7
Flestar konur búast við því, að
þær verði sólbrúnar eítir nokkra
daga í sól og fríi. En það er
ekki svo auðvelt og á heldur ekki
að vera, því að húðin þarf að
venjast sólargeislunum, þá brenn-
ur hún ekki. Húðin hefur eitt-
hvað vanizt sólinni i vor, en fæst-
ar eiga þess kost að liggja í sól-
baði hvern sólardag, heldur verða
að bíða eftir fríinu og þá er eftir
að vita hvort sólinni þóknast að
láta sjá sig.
Til að vernda húðina skuluð
þið nota góða sólarolíu eða sól-
krem. Finnið það, sem hæfir
bezt húðinni, því að ekki lientar
öllum það sama. Olíuna eða krem
ið á að bera á, áður en farið er
í sólbað og bera á aftur eftir
nokkra klukkutíma, þó að ekki sé
enn verið í sólbaði.
HREINLÆTI er dyggð og ekki
sízt í hitanum. En þó að farið sé
kvölds og morgna í bað, komast
sumir ekki hjá því að svitna í
hita og þeim sem hættir sérstak-
lega til að svitna, ættu að nota
svitaeyðandi sápu á hverjum
morgni. Þvoið ykkur vel með
henni og skolið með volgu vatni.
Allir — það ætti kannske að vera
óþarfi að taka þetta fram — bera
eftir baðið svitaeyðandi meðal
undir hendur. Og ef heitt er í
veðri á að þvo sér oft á dag undir
höndum. Og svitameðalið á allt
af að vera í töskunni eða ferða-
töskunni, hvert sem farið er.
Hár undir höndum verður allt
af að fjarlægja með jöfnu milli-
bili. Auðveldast er að fjarlægja
hárin með lítilli rakvél, sem auð-
velt er að taka með sér í ferða-
lög, einnig er gott að nota hár-
eyðingarkrem. En ef krem er not-
að, verður að prófa fyrst á húð-
inni hvort viðkomandi hefur of-
næmi fyrir kreminu. Einnig verð-
í SUMARSÓL OG FRÍI
PaS @r hásimiar og tfmi sólbaSa ©g si/marfrfa. En þegar vi3 liggjym í sélbaði,
megum við ekki gleyma því að sólin ©g útiloftið þurrkar húðina, svo að nauðsyn-
iegt er að hugsa vel um að snyrta hana. Esnnig þarf að hugsa vel um hárið og
ýmislegt fSeira, sem segir frá hér á eftir.
ur að muna eftir því, að minnst
24 stundir verða að líða frá því
að hárið er fjarlægt, þar til not-
að er svitameðal og þá er sama
hvor aðferðin hefur verið notuð.
Fæturnir verða að vera fal-
legir, þegar við göngum í opn-
um sandölum. Hærðir fótleggir
eru ekki beint aðlaðandi, heldur
ekki grófir hælar og skakkar tá-
neglur. Hár á fótleggjum má fjar-
lægja, annað hvort með lítilli
rakvél eða háreyðandi kremi, en
auðveldast og fljótlegast er að
nota rakvél.
kvöldin úr heitu sápuvatni og
setjið síðan fingurgómana ofan i
skál með volgri olívuolíu með
nokkrum sítrónudropum. Nuddið
hendurnar vel í ea. þrjár mínútur.
Að sjálfsögðu á svo að sverfa
neglurnar, og mýkja naglaböndin
með sérstöku kremi og síðan að
lakka þær. Ef að nöglunum hætt-
ir til að springa fást sérstök nagla
lökk, sem eiga að styrkja negl-
urnar. Og þau eru notuð undir
litaða lakkið. Ef hugsað er um
neglurnar samkvæmt framan-
sögðu munu hendurnar haldast
fallegar og neglurnar sterkar.
Við verðum líka að liugsa vel
um neglurnar í fríinu. Nuddið
hendurnar og sérstaklega negl-
urnar með feitu kremi nokkrum
sinnum á dag eða nuddið fingur-
gómana með olíu — t. d. vanalegri
sólarolíu — þar til neglurnar eru
orðnar heitar og geta tekið til sin
næringu. Þvoið hendurnar á
Augun og umhverfi þeirra eru
sérstaklega viðkvæm yfir sumar-
mánuðina, hin mikla sólarbirta
verður til þcss, áð við pírum aug-
un og hrukkur myndast í kring.
Þess vegna verður að hugsa sér-
staklega vel um augun yfir sum-
arið. Gott er að skola augun á
hverjum morgni úr kamillute eða
saltvatni og með því má koma í
veg fyrir bólgur og augun verða
björt og frískleg. Notið aldrei
venjulegt krem á húðina í kring
um augun. Það er of þungt og
skaðar meira en gagnar. Sérstök
krem fást' til að bera á hina við-
kvæmu húð í kringum augun.
En gleymið ekki að setja upp
sólgieraugu, þegar farið er út í
sólina. Þau varna óvelkomnum
hrukkum og vernda augun gegn
of sterku ljósi, en þá verður líka
að vanda val sólgleraugnanna.
Þó að ekki hafi verið mikið um
sól og heita daga undanfarið,
gætu þeir þó komið enn og ef
mikiíl hiti er, finnst mörgum gott
að bregða sér í kalda sturtu til
að kæla sig. En þetta er alrangt.
Kalda sturtan kælir aðeins augna
blik. Brátt er húðin orðin heit
aftur og fötin límast við kropp-
inn. Kalda vatnið örvar blóðrás-
ina mjög mikið. Þess vegna er
bezt að byrja á því á heitum dög'-
um að fara í ylvolgt bað. Ilmandi
baðsalt hressir lika. Sama er að
segja um kvöldbaðið, það á að
vera ylvolgt.
Vel á að hugsa um hárið. Notið'
sem minnst af hárlakki í sumai-
hitanum, leyfið hárinu að hvílast
og gefið því nauðsynlega nær-
ingu.
Notið eins lítið púður og mögu-
legt er. Leyfið húðinni að anda
og eftir sumarfríið hafið þið yngst’
upp, hafið fallega húð, glansandi
hár, fallega fætur og hendur.
12. júlí 1967