Alþýðublaðið - 12.07.1967, Side 10

Alþýðublaðið - 12.07.1967, Side 10
VINIR MÍNIR ... Frh. úr opnu. hún naumlega undan einhverju villidýrinu, en hugrekki hennar var óbugandi. Auk þess hafði hún sérstakt lag á dýrum og vann fljdtt traust þeirra. Loftslagið og veðurfarið var allt annað en þægilegt. Regntím- ' inn stóð yfir frá október fram í maí, og þá rigndi í bunum á hverj um einasta degi, stundum tólf klukkutíma samfleytt. Það var stöðug barátta að bjarga farangri og tækjum frá eyðileggingu, papp- ’ ir gegnblotnaði, væta komst að „ linsum í myndavélum og kíkjum, þykkt myglulag settist á alla | hluti, og auðvitað var erfitt að ' komast leiðar sinnar þegar grasið óx í fjögurra metra hæð, lækirn- ir urðu að stórfljótum, og jarðveg urinn varð eitt myglufen. Jane fór að ferðast meira og meira í trján um eins og aparnir eftir því sem i leið 'á regntímann. Og það var þó : kostur við vætuna, að þá heyrðist • ekki skrjáf í laufum eða grasi þeg i ar hún læddist um meðal villidýr- !: anna. Það var stór dagur þegar 'hún : kynntist Davíð gráskegg. Hún i hafði að vísu séð hann nokkrum “ sinnum úti í skóginum, og hann í var ekki eins hræddur við 'hana og hinir aparnir. En einn góðan veðurdag kom hann labbandi að 1 • tjaldbúðunum til að fá sér pálma hnetur sem voru orðnar þroskað- ar á tré fyrir ofan aðaltjaldið. Jane sat kyrr og horfði á hann, > gætti þess að hræða hann ekki. , Hann fékk sér hnetur og gaf henni hornauga meðan hann var ( að borða þær. Svo hljóp harin aft ur út í skóginn. Eftir það varð < hann daglegur gestur meðan 'hnet ' urnar entust. Hann sat á hækjum sér hinn rólegasti þótt Jane gengi C um, en hún kom aidrei of nærri honum. Hún komast að því, að hann var líka hrifinn af banönum svo að -hún birgði sig upp af stórum 'klösum úr næsta bananapálma. ■’ Og dag einn kom Davíð labbandi til hennar þar sem hún sat undir sóltjaldinu með nokkra banana á borði við hlið sér. Þegar hann var kominn alveg að henni nam hann allt í einu • staðar og starði á hana. Hárið fór að rísa iá honum þangað til i hann virtist a.m.k. helmingi stærri en venjulega. Þetta tákn- aði ákafa geðshræringu — ótta eða reiði. Jane hreyfði sig ekki og horfði rólega á hann, þótt henni væri ekki farið að verða um sel. Hvað myndi hann gera? Hún hugsaði til negrans sem hafði misst annað augað og kinnina. En hún stillti sig. i- Þá teygði Davíð fram aðra - krumluna og hrifsaði banana af i borðinu. Með hann hljóp hann : burtu eins og eldibrandur. En dag - inn eftir kom hann aftur. Þriðja daginn rétti Jane hon- rt um -banana. Það vakti hjá honum sterka geðshræringu. Hann fór að titra frá 'hvirfli til ilja, svo barði hann hvað eftir annað í trjábol með hnefanum og riðaði á fótun- um. En á endanum rétti hann fram lófann og tók við bananan- um. Þetta varð upphaf vináttu þeirra. Jane fór að taka með sér banana út í skóg og upp í fjöll, og þegar hún hitti Davið kom hann og settist við hlið hennar og þáði banana af mikilli náð. Hinir aparnir góndu steinhissa á og vissu ekki hvað þeir áttu að halda um þessa, undarlegu framkomu Davíðs, en hann var svo stór og sterkur, að þeir þorðu ekkert að malda í móinn. Brátt fór Davíð að koma jafn. vel þegar Jane hafði enga banana meðferðis. Hann sagði “Húh!“ lágt og blíðlega, settist hjá henni og strauk laust og varlega handleggi hennar og herðar. Hún fékk að snyrta hann, þ.e.a.s. tína rusl og kvisti úr feldi hans, skordýr og grasfræ - lýs og flær voru sim- pansarnir lausir við. Þeir eyða oft mörgum klukkustundum á dag í að snyrta hvern annan og sýna þannig samfélagslega hegðun á byrjunarstigi. Og nú fór Davíð að koma í 1 heimsókn hvort sem hann fékk banana og hnetur eða ekki. Hann var býsna þjófgefinn, stal bæði fatnaði og teppum, handklæðum og uppþvottarstykkjum sem hon um fannst gaman að naga Fljót- lega var hann orðin of fínn með sig til að borða banana með berki og öllu saman. Hann fór að fletta berkinum af á sama hátt og hann sá Jane gera, borðaði sjálfan bananann, en geymdi börkinn. Og vei þeim sem ætlaði að stela honum! Eftir nokkrar vikur kom Davíð með tvo vini sína og kynnti þá hátíðlega fyrir Jane sem skírði þá Golíat og William. Golíat var stærstur allra simpansanna, risa- vaxið dýr sem minnti á górillu, villtur, uppstökkur og stundum ofsafenginn í skapi William var dauðfeiminn og hlédrægur. Fyrst þorði hann ekki að koma og fá sér banana með hinum, heldur sat uppi í tré kjökrandi af sjálfsmeð aumkun. En sm'ám saman fékk hann kjarkinn, og loks urðu þeir allir þrír alúðarvinir Jane. Úr þessu átti Jane ekki erfitt með að vinna traust og vináttu hinna simpansanna Hún fylgdist með mæðrunum og börnum þeirra hvernig þau voru alin upp og hverjum framförum þau tóku. Það var gleðistund þegar Flo kom til hennar með nýfædda ungann sinn í faðminum, rétti hann fram og lét Jane strjúka varlega litla höf- uðið. Hún fékk að fylgjast með ástarlífi þeirra, fölskyldulífi, leikj um og alvöru, gleði og sorg. Hún fylgdist með aumingja Merlin litla sem missti móður sína barn- ungur og var óhuggandi. Hann hafði áður verið kátur og hrekkj- óttur krakki, en eftir að mamma hans dó varð hann þunglyndur og taugaveiklaður. Það er sennilegt, að hann nái aldrei eðlilegum þroska og verði jafnvel vangefinn. Þetta og margt annað getur varp- að ljósi á ýmisleg sálfræðileg vandamál mannanna, t.d. þeirra sem fara á mis við móðurást og umhyggju í bernsku. Hvort sem mennirnir eru komnir af öpum eða menn og apar af einhverjum sameiginlegum forföður, gefst þarna tækifæri til að rannsaka við brögð og vaknandi þroska hjá dýrum sem eru samt ekki svo fjarlæg frumstæðustu mönnum. Jane er ekki lengur ein við rannsóknir sínar. Fyrir nokkrum árum fékk dr. Leakey ágætan ljós myndara, Huga van Lawick barón, til að taka myndir af Jane og sim- pönsunum fyrir The Nat'onal Geo- graphic Society. Hugo var þaul- vanur að taka ljósmyndir og kvik- myndir af dýrum, bæði tömdum og villtum, og hafði meðal annars unnið töluvert fyrir sjónvarpið. Hann hafði mikinn áhuga á dýra- lífi, og það leið ekki á löngu áður en Jane og honum varð ljóst, að þau voru skyldar sálir Þau giftu sig í London, og það er einkenn. andi fyrir þau bæði, að brúðkaups dagarnir gátu ekki orðið nema þrír, vegna þess að afríski kokkur- inn þeirra sendi boð um, að ein apynjan væri búin að eignast unga. Þau flýttu sér aftur til Af- ríku, því að þetta var gullvægt tækifæri til að fylgjast með upp- vexti og þroska villts simpansa alveg frá fæðingu. Og nú er dr. Jane Goodall, barónessa van Lawick, stjórnandi tíu manna rannsóknaflokks í myrkviðum Afríku, án efa lærð- asti sérfræðingur veraldar á sínu sviði. Náttúruvísindin standa í ó- bætanlegri þakkarskuld við hana, og hún hefur áunnið sér aðdáun og virðingu vísindamanna í öllum löndum. Starfi hennar er ekki lok ið, heldur verður það æ umfangs meira, og hún heldur áfram að auka þekkingarforða mannkyns ins í mörgum greinum með rann sóknum sínum á lífi vina sinna, villtu simpansanna. X- Það þarf hugrekki til að láta full- vaxinn villtan simpansa koma svona nærri. Figan kitlar Jane á hálsinn í vináttuskyni. 10 12- júlí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.