Alþýðublaðið - 30.07.1967, Síða 10

Alþýðublaðið - 30.07.1967, Síða 10
10 Sunnudags AlþýSublaðið — 30. júlí 1967 VILTU SEX DAGA SJON VARP? Viltu láta loka Keflarvíkursjónvarpinu? ÚTSENDINGAR íslenzka sjón varpsins hafa nú sem kunnugt er legiö niðri um mánaðar- skeið. Munu þær hefjast á ný eftir helgina, og verða fjögur kvöld í viku eins og áður var. Það var hins vegar frá upp- hafi markmið forvígismanna sjónvarpsins að smáauka starf semina unz sex daga útsend- ingu væri náð, Hefur nú um nokkurt skeið verið miðað við, að full útsending hæfist 1. sept'. ember næstkomandi. Alþýðu- blaðið ákvað að forvitnast um hug nokkurra sjónvarpseigenda til þessarar aukningar sem og til Keflavíkursjónvarpsins. Fara hér á eftir skoðanir þessa fólks. VIGDÍS Finnbogadóttir, kenn ari, vildi fjölga útsendingar- dögum sjónvarpsins tafarlaust í ljósi þess, að þá yrði banda- rískt sjónvarp lagt niður. Hún var ánægð með efni hins ís- lenzka sjónvarps og kvaðst hafa orðið vör við að það hefði dregið mjög úr glápi á Kefla- víkursjónvarpið, sem væri þjóðarhneisa. o SIGURJÓN Björnsson sál- fræðingur, lýsti sig andvígan auknum útsendingum íslenzka sjónvarpsins. Hann taldi meira um vert að bæta þá dagskrá, sem nú er send út. Sigurjón var ekki ánægður með íslenzka sjónvarpið til þessa. Hann kvað skorta á íslenzkt efni og of mikið væri um efni óhollt börn um. Sem dæmi um efni miður heppilegt börnum nefndi hann „Dýrlinginn”. Einnig taldi hann æskilegt, að íslenzkt tal yrði sett við erlendar kvikmynd ir til að stemma stigu við erl. tungumálaáhrifum. — Fréttir sjónvarpsins var hann hins veg. ar mjög ánægður með. Sigurjón kvaðst horfa lítið sem ekkert á Keflavikursjón- varpið, enda væri hann algjör- Iega mótfallinn því, og fylgj- andi tafarlausri lokun. o FRÚ Lára Sigurbjörnsdóttir taldi fjögurra daga útsendingu nægilega. Höfuðtakmarkið hlyti að_yera að bæta núverandi dag, skrá. Fréttir væru að vísu góð- ar og einstaka þættir einnig en yfir heildina væri dagskráin í núverandi mynd enginn menn ingarauki. Lára nefndi sérstak- lega pólsku kvikmyndirnar, sem sjónvarpið hefði sýnt og sagð- ist engan hafa hitt er lagt hefði þeim góð orð í munn. Ríkari áherzlu þyrfti að leggja á efni frá, er sýndi það bezta með til nefna hina þjóðlegu þætti Kristjáns Eldjárns, sem væru til fyrirmyndar. íslenzka sjón- varpið ætti einnig að taka til sýningar þjóðlegt efni erlendis frá. er sýndi það bezta með hverri þjóð. Frú Lára kvaðst ekki horfa á bandarískt sjón- varp, enda andvíg því með öllu. Hún sagðist þekkja til þess, að börn og unglingar horfðu enn mikið á Keflavíkursjón- varpið og vildi láta loka því tafarlaust. o REYNIR Karlsson, fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur vildi ekki, að út- sendingardögum yrði fjölgað. Frekar bæri að auka íslenzkt efni. Hann var þó ánægður með starfsemi sjónvarpsins til þessa. Að vísu taldi hann æsk- una hafa verið vanrækta, að nokkru, því þörf væri fleiri þátta ætluðu ungu fólki. Einn- ig taldi hann að sjónvarpið mætti sækja meira efni til íþrótta- og æskulýðshreyfingar innar. Ekki taldi Reynir ástæðu til að loka Keflavikursjónvarp- inu, það skapaði enga hættu, að því er séð yrði, og auk þess væri skammt í alheimssjón- varp. o Bessí Jóhannesdóttir, nýstúd- ent, vildi fjölga útsendingar- dögum, og kvað efni íslenzka sjónvarpsins hafa verið mun betra en hún nokkru sinni hefði þorað að vona. Því taldi hún mundu reynast unnt að korna í kring þessari aukningu án þess að því fylgdi lakara efni. Bessí sagði, að sjónvarpið mætti gera meira af því að sýna þætti úr daglega lífinu, ferðaþætti o.fl. Einnig fannst henni tilfinnanlega vanta einn virkilega vandaðan innlendan skemmtiþátt. Ekki taldí Bessí ástæðu til að loka Keflavíkur- sjónvarpinu. o VIGNIR Guðmundsson, blaða maður, lagði áherzlu á, að fjölga bæri útsendingardögum íslenzka sjónvarpsins í sex, svo framarlega sem það kæmi ekki fram í efnisgæðum. Hann taldi góðar vonir um að þetta reynd- ist unnt, t.d. mætti nýta ís- lenzkt listafólk mun meira en gert. hefði verið til þessa. Hann kvað það skoðun sína, að Kefla. víkursjónvarpið hefði engin skaðvæn áhrif og væri það skerðing á persónufrelsi að láta loka því, enda muni það hverfa af sjónvarpsskermum íslendinga á sama hátt og Kefla- víkurútvarpið hvarf með auk- inni dagskrá íslenzka útvarps- ins. o ZENITH sjónvarp HEIMSÞEKKT VÖRUMERKI RADÍÓFÓNAR STEREO TEPPAZ SPILARl í FERÐALAGIÐ h.ff. laugavcg 85, Reykjovik - Sfmi 16525

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.