Alþýðublaðið - 06.08.1967, Side 6

Alþýðublaðið - 06.08.1967, Side 6
kvikmyndarlislarinnar. Kvik- myndagagnrýnendur í New York veittu honum hjn eflirsóttu verð laun sín fyrir bezta ieik árs- ins, og Hollywood veitti hon- um æðsta heiður sinn, Oscar- verðlaunin. Aðrir sem útnefnd ir höfðu verjð hurfu algerlega í skuggann, jafnvel Richard Burton sem hlaut mikið iof fyr ir leik sinn í „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?‘' Eurton tók því vel; hann hefur iengi verið einn af einlægustu aðdá- endum Scofields. „Þegar ég sá Seofield fyrst á sviði skildi ég loks hvað er að vera mikill leikari!1, sagði hann eitt sinn. „Þann mann hefur mig aldrei dreymt um að keppa við“. Og nú beinist ljóskastarinn fyrst fyrir alvöru að Paul Sco field, leikaranum og manninum. Oscar-verðlaunin eru fyrir leik ara eins og Nóbelsveiðlaunin fyrir rithöfunda — maður sem hlýtur þau fær ekki framar að vinna í kyrrþey Scofield hef- ur jafnan verið meinilla v;ð um stang og auglýsingabrask, en nú á hann orðið erfiðara með að sleppa. Nýlega sendi Holly- wood blaðamann á hans fund til að rekja úr honum garnirn- ar, og viðtalið sem hér bjrtist er ávöxtur samræðna þeirra sem fóru fram í búningsher- bergi Scofields í Lundúaleik- húsi-nu Aldwych Theatre þar sem hann er að leika i leik- riti Charles Dyer, „Stiginn". Það kom í ljós, að Scofield fékk fyrsta stóra hlutverkið sitt þegar hann var þrettán ára PAUL Scofield hefur lengi verið einn af vitrustu leikurum Bretlands. Kunnáttumenn dást að honum, og aðrir leikarar líta á hann með lotningu, en hann hefur ekki notið þeirrar frægð ar og hylli sem kvikmyndastjörn um fellur í skaut. Eða kannski væri réttara að segja, að hann hafi sloppið við hana. Hann hefur lejkið í nokkrum kvik- myndum, oftast lítil hlutverk, en í fyrra lék hann S'r Thom as More í kvikmyndinni „A Man For All Seasons", eitt af sínum beztu sviðshlutverkum, og síðan hefur verðlaununum ver ið að rigna yfir hann úr öll- um heimsins hornum. Túlkun hans er talin slík, nð hún hljóti að varðveitast sem einn af skærustu demöntum í sögu Sunnudags Alþýðublaðið — 6. ágúst 1967 standa uppi á þeim í tunglskin inu 'klæddur síðum kjól og mæna ástsjúkum augum á Ró* meó fyrir neðan — nei, það hafði ég nú aldrei hugsað mér. En þetta var betra en ekki neitt. Maður neitar ekki góðu hlutverki; það vissi ég strax þá”. Scofield reyndist hin prýðileg- asta Júlía. Og á næstu fjórum árum lék hann tólf stór Shake- speare-hlutverk — ekkert þeirra í pilsum. Seyján ára fór hann til London í leiklistarskóla, og tvítugur komst hann að við leik- húsið í Birmingham. Hann fékk smáhiutverk í Hamlet, en hann sá ekkert á sviðinu nema yndis- fagra átján óra stúlku sem lék Ófelíu. Hún hét Joy Parker. Ári síðar var nafn hennar Joy Sco- field. Og enn eru þau einhver hamingjusömustu hjón í leiklist arheiminum. Joy hætti ekki alveg að leika, en hún var ekki metnaðargjörn sjálfrar sín vegna. -Paul var að. alatriðið. Paul og börnin. Mart- in fæddist ári eftir að þau giftu sig Sarah nokkrum árum seinna. En Paul vann sig hægt og síg- and upp á við. Hann lét ekki mikið á sér bera, en hann lék mörg og ólík hlutverk, og hann lærði tæknibrögð sviðsins til fullnustu. Allt í einu fóru gagn- rýnendurnr að veita honum at- hygli, og þeir ’hófu hann upp til skýjanna, vegsömuðu túlkun hans í leikriti eftir leikriti. Hann hafði fágæta dýpt og skilning, og fjölhæfni hans virtist tak- markalaus. „Scofield hefur aldrei selt sig — hvorki fyrir auðfenginn gróða né almenningshylli“, var eitt sinn skrifað um 'hann. Ég minntist á þetta við hann og spurði hvað liann liefði um það að segja. Hann hló og yppti öxlum. ,,Ætli þetta sé nú ekki dá- lítið fært í stílinn". segir 'hann. ,,Við skulum heldur orða það svona — ég hef ekki tekið að mér hlutverk sem mér lík- aði ekki, þ.e.a.s. síðan ég komst í þá aðstöðu að geta valið og hafnað. Ég hef aldrei viljað leika í verki sem ekkert listrænt gildi hafði, bara vegna peninganna. Það er ekki af því að ég kunni ekki að meta peninga. Þeir hafa sína kosti. En það hlýtur að vera hræðilega leiðinlegt þegar þeir eru orðnir aðalatriðið í lif- inu. Og hvað almenningshylli snertir, held ég, að leikurum sé hollara að sækjast ekki of mikið eftir henni. Hún getur leitt menn á villigötur. Það er ærið nóg umfangsefni að sökkva sér niður í hlutverk og leika þau eins vel og manni er unnt“. Árið 1955 gerðist sá sögulegi atburður, að enskur leikflokkur var í fyrsta sinn sendur til Moskvu að halda sýningar þar. Þegar farið var að ræða undir- búninginn var tvennt strax á- kveðið: — Auðvitað kom ekk- ert annað leikrit til greina en „Hamlet“, og auðvitað kom eng nin annar túlkandi til greina en LEIKARINN SEM í ÁR FÉKK OSC- ARS VERÐ- LAUNIN (þá hafði hann þegar ákveðið að leggja fyrir sig leiklist). Hvorki meira né minna en að- alhlutverk í „Rómeó og Júlíu! Nei, hann lék ekki Rómeó... heldur lék liann Júlíu! Þetta var í skólaleikriti, en það var upphaf á glæsilegum listferli, þótt fáa grunaði það þá. .... Og Paul Scof’eld hlær glaðlega þegar hann rifja.1 upp fyrstu túlkun sína á Shakespe are. „Ég var hálffeiminn", segir hann. „Að vísu var hlutverkið skrifað fyrir ungan pilt eins og önnur kvenhlutverk í leikritum Shakespeares, en ég hafði ekkr átt von á að leika Júlíu Mig langaði að vera Rómeó og klifra upp á svalirnar, en að þurfa að

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.