Alþýðublaðið - 24.09.1967, Qupperneq 6
24. september 1967 - Sunnudags Alþýðublaðið
VINSÆLASTILEIKARINNI Hí
„Ég or fæddur í Shaker Heig-
hts, Ohio, og foreldrar <mínir
voru Indíánar. Ég sá aldrei föður
minn. Mamma var ekkja og mjög
heilsutæp, og ég stytti henni
stundirnar með því að lesa fyrir
hana blöðin og þylja yfir henni
forn ljóð og vísur. Þrettán ára
var ég eina fyrirvinna fjölskyld-
unnar og gekk um og seldi bursta
og kústa. Seytján ápa flýði ég
að heiman til að gerast sjómað-
ur. Eftir það vann ég við skógar
högg, síðan varð ég vörubíl-
stjóri. Ef Walt Disney hefði ekki
komið á vettvang og boðið mér
að tala fyrir einn af dvergunum
í Mjallhvít og dvergarnir sjö
væri ég sennilega ennþá að
flækjast um atvinnulaus og pen
ingalaus megnið af tímanum“.
Þetta er ein af mörgum ævisög
um sem Paul Newman segir aðdá
endum sínum. Hann þolir ekki
forvilni og nærgöngular spurn-
ingar, og helzta vörn hans er að
segja grafalvarlegur einhverja
,,ævisögu“ sína sem hann býr til
um leið. í Bandaríkjunum þykir
það sjálfsagt, að frægir menn
hafi unnið sig upp úr örbirgð
og basli og haft með höndum liin
kynlegustu störf áður en vel-
gengnin féll þeim í skaut. Þess
vegna heldur Newman sér við
fasta hefð, og ævisögur Holly-
wodd-stjarna eru hvort eð er
oftast búnar til í skrifstofu um
boðsmanna og auglýsenda. Paul
hefur bara nægilegt ímyndunar-
afl til að skálda sínar upp sjálf
ur.
Eitt er þó satt í þessari frá-
sögn: hann fæddist í Ohio. Að
vísu ekki í Shaker Heights, held
ur Cleveland þar sem faðir hans
Arthur S. Newman, rak sport-
vöruverzlun. Örbirgðin og Indí
ánablóðið er hvort tveggja að-
eins til að krydda söguna.
í skoðanakönnun sem nýlega
fór fram meðal amerískra
kvenna var ein spurningin svo-
hljóðandi: Á hvaða kvikmynda-
leikara hafið þér mestar mæt-
ur? Og hvers vegna?
Sjö af hverjum tíu konum
svöruðu: Paul Newman. Svo vin-
sæll hefur rnginn kvikmynda-
leikari orðið um langan aldur.
Og hvers vegna? Þær voru yf
ir sig hrifnar af bláu augunum
hans, sérkennilega ófríðu andlit
inu, drengjalegu brosi, persónu-
leikanum, segulmagninu. Fáar
minntust á leikhæfileika.
Paul Newman er fjörutíu og
eins árs, fæddur 26. janúar 19
26, 1,75 m. á hæð. Hann er ein
af aðalstjörnunum í Hollywood
núna, ekki aðeins stjarna, held-
ur ,súper-stjarna“ eins og nú
er í tízku að kalla vinsælustu
kvikmyndaleikarana. En hann
hefur aldrei unnið Oscarinn eins
og eiginkona hans hin ágæta
leikkona Joanne Woodward sem
hlaut verðlaunin fyrir snilldar-
túlkun sína í myndinni „Three
Faces og Eve“ sem mörgum er
minnisstæð.
Paul var sendur í úrvalsskóla
í bernsku. Ekki bar mikið á
námshæfileikum hjá honum, en
hann skaraði fram úr í öllum
greinum íþrótta og lék stórt
hlutverk í leikriti við góðan
orðstír þegar hann vai\ tólf ára.
Hann var nýbyrjaður í háskóla
þegar stríðið skall á, og hann
fór í sjóherinn og var þar í þrjú
ár. Eftir stríð hugðist hann
halda áfram námi sínu, en þá
varð leiklistaráhuginn yfir-
sterkari, og hann innritaðist í
leiklistarskóla þar sem hann
vakti fljótt á sér athygli. Áð-
ur en varði fékk hann hlutverk-
i sjónvarpinu og síðan á Broad
way. Það varð upphaf frægðar
hans. Næst var það Hollywood
sem kallaði, og þar hefur hann
verið að mestu leyti frá þeim
tíma, nema hvað hann brá sér
aftur til New York og stund-
aði nám í hinum fræga Actor‘s
Studio undir leiðsögn Lees
Strasberg.
Newman er tvíkvæntur og á
sex börn, þrjú með hvorri
konu. Fyrra hjónabandið var
ekki hamingjusamt, en það
seinna með afbrigðum farsælt.
Joanne og Paul hafa leikið sam
an í fímm myndum, en annars
hefur hún Jremur dregið sig í
hlé til að geta verið manni
sínum góð kona og börnum
þeirra góð móðir. Ekkert hefur
borið á afbrýðisemi vegna Osc-
arsins sem Joanne vann, en
hún er heitasti aðdáandi eigin-
manns síns og telur það arg-
asta ranglæti, að' hann skuli
ekki löngu vera búinn að fá
litlu gullstyttuna til að setja
upp á hillu við hliðina 'á henn-
ar.
Enda þótt Newman hati blaða
viðtöl eins og pestina lét hann
tilleiðast fyrir skömmu að rabba
dálítið við ítalskan blaðamann,
og fer samtal þeirra hér á eft-
ir.
í þetta sinn skulum við ckki
tala neitt um leiklistarferil yð-
ar, hr. Newman, velgengni,
frægð og vinsældir. Nú væri
gaman að ræða við eiginmann-
inn og föðurinn Paul New-
nran.ekki hinn fræga , leikara.
Fjölskyldan er allstór ef mér
skjátlast ekki..........
Við skulum nú sjá — jú, það
má segja, að ættflokkurinn sé
orðinn jtöluvert álitlegur. Átta
krakkar á heimiiinu, tveir hund
ar, tveir kettir, einn gullfisk-
ur og ein eiginkona. Mér veitir
ekki af heilum járnbrautfar-
vagni til að flytja það allt
milli 'heimila okkar í Los Ang-
eles og Connecticut.
Ég vissi, að börnin voru nokk
uð mörg, en átta hélt ég ekkl,
að talan væri komin upp í.
Hann er einnig ham