Alþýðublaðið - 07.10.1967, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 07.10.1967, Blaðsíða 10
Hafnarfjörður Framhald af J. síðu réðst í því sambandi harkalega að ýmsum forustumönnum íþrótta hreyfingarinnar í Hafnarfirði, sagði að fundurinn væri ekki hald 4nn vegna íþróttamanna í bænum, heldur væri um að ræða pólitísk an áróðursfund Alþýðuflokks- manna, sem með því misnotuðu herfilega aðstöðu sína innan í- þróttarhreyfingarinnar. Hið rétta er, að fundurinn í fvrradag var haldinn samkvæmt samþykkt á síðasta þingi ÍBH og samþykkt íþróttafélaganna síðar í sumar. Á þingi ÍBH í apríl var sam þykkt tillaga um að kalla saman horgarafund í Hafnarfirði, ef í- þróttahúsið yrði ekki fokhelt á þessu hausti, eins og gert hafði verið ráð fyrir. í júlímánuði sam þykkti bæjarráð að fresta öllum fram.kvæmdum við húsið en 5 mill jónum króna hafði verið veitt til þess af fjárhagsáætlun. Þegar í bænum saman til fundar og þetta lá fyrir, komu íþróttafélögin samþykktu þar að efna ekki til Iborgarafundar eins og kom fram í þeirri ályktun, sem samþykkt var á bandálagsþinginu, heldur skyldi ÍBH koma saman lá aukaþing til að ræða málið. Miklar umræður urðu á fund inum í fyrrakvöld og stóð hann langt fram á nótt. í fundarlok var samþykkt svo hljóðandi tillaga, þrátt fyrir andmæli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa meirihlutans, sem mættu á fundinn: „2. aukaþing ÍBH, haldið 5. októ- ber 1967 harmar, að byggingar- framkvæmdir við íþróttahúsið hafa Iegið niðri á þessu ári, þrátt fyrir að ákveðið hafi verð að verja 5 millj. króna til verksins. Skor- ar þingið á bæjarstjórn Hafnar- fjarðar að sjá svo um að þetta fé verði sett á biðreikning og verið handbært, þegar ráðgert er að hefja framkvæmdir í marzmán- uði n.k. Þingið skorar eindregið á bæjar stjórn að veita eigi minna fé til byggingar íþróttahússins á fjár- hagsáætlun fyrir árið 1968 og að séð verði um að unnið verði fyrir verði sett á biðreikning og verði 5>að fé sem áætlað hafi verið fyr- ir 1967 og 1968“. Bygging íþróttahúss í Hafnar- firði er búin að vera mjög lengi á döfinni en eina íþróttahúgið þar er 45 ára gamall leikfimisalur við barnaskólann. Mikið vantar á, að unnt sé að fullnægja laga- kröfum um íþróttakennslu í skól- um bæjarins, og íþróttafélögin tvö FH og Haukar, standa nú að heita má alveg á götunni með æfingar. Félög þessi hafa um skeið æft í Valsheimilinu, en fá ekki húsrúm þar áfram, og er eini æfingatími þeirra eins og er 45 mínútna stund í Laugardalshöllinni einu sinni í viku. Undanfarin ár hefur alls verði veitt á fjárhagsáætl. bæjar- ins 20.4 millj. kr. til hússins en ekki hefur enn verið unnið fyrir meira en 11.1 millj. Af því hef- ur ríkissjóður lagt fram 4.1 mill- jón, en Hafnarfjarðarbær 7 mill- jónir. Er þetta því ekki í fyrsta skipti, sem fjárhagsáætlun bæjar- ins hefur verið sniðgengin í sam- Ibandi við þetta verk enda sagði annar aðalforingi núverandi bæjar stjórnarmeirihluta í umræðum á sínum tíma, er fjárhagsáætlun- in var til afgreiðslu, að þða væri hægt að samþykkja hvað sem væri fjárhagsáætlanir væru ekki til að fara eftir þeim! Eruin vlð svona? Framhald af bls. 1. Bráðabirgðaniðurstöður þær, sem settar eru fram í greininni, eru þó um margt athyglisverðar. Þar segir t.d. að Reykvíkingar hafi fremur tilhneigingu til að umgangast móðurfrændur sína en föðurfrændur, þótt það sé ekki bein regla. Einnig segir, að ógift. ir Reykvíkingar eigi yfirleitt syst kini, sem einnig séu ógift, elztu og yngstu systkini séu oftar ógift- en miðsystkini og að fólk, sem ekki giftist hafi yfirleitt verið lengi á brjósti sem ungböm. Þá segir, að karlmenn ráði yf- irleitt fjármálum heimilisins og hafi frumkvæðið að ástaratlotum. Konur hugsi hins vegar meira um börnin og fylgist betur með mennt un þeirra og séu að jafnaði trú- hneigðari, Ennfremur segir, að Reykvíkingum þyki vænt um börn og vilji veita þeim allt, nema brot af tíma sínum. Iþróttir Fra'mhald 11. síðu, kvöldsins. Víkingar höfðu setið hjá og voru nú líklegir til alls. Fram skoraði fyrsta markið en Einar Magnússon skorar tvö stór- falleg mörk og þannig var stað- an í hálfleik. í seinni hálfleik skor uðu svo Framarar 3 mörk gegn 2 og lauk þannig leiknum, svo framlengja varð í 2x3Vþ mín. — Jón Hjaltalín skorar snemma fal- legt mark og Fram fær tækifæri til að jafna, en Gunnlaugur ó- gildir vítakast sitt og áður en fyrri framlengingu lýkur skorar Jón annað mark sitt með stór- glæsilegu skoti. í seinni hlutan- anum minnkar Gylfi Hjálmarson muninn, en Páll Bjarnason eyk- ur forskot Víkinga með lúmsku skoti og síðar innsiglar Jón sig- urinn með fallegu marki, en síð- asta markið kom svo úr víta- kasti frá Gylfa Jóhannssyni. Lið Fram sýndi eins og í leikn um gegn ÍR, að þeir eru æfingar- litlir og þungir og allt spil geng- ur hægt. Bezti maðurinn var eins og svo oft áður Sigurður Einars- son, þá voru Þorsteinn í mark- inu og Gylfi Hjálmarsson allgóð- ir. Mörk Víkinga skoruðu Einar 4, Jón 3, Páll 1. Mörk Fram skoruðu Gylfi Jó. og Gylfi H. 2 hver og Sig. E. og Pétur Böðvars 1 hver. ★ FH-Haukar (3:2) (5:1) 8:3 Þessa leiks var beðið með dá- lítilli eflirvæntingu því að bæði liðin höfðu sigrað andstæðinga sína með miklum yfirburðum. — Fyrri hálfleikur var jafn og byrj uðu Haukar að skora og gerði Stefán það með fallegu skoti. Auð unn jafnar, en aftur skorar Stef- án fallega. En næstu tvö mörk skorar svo Örn Hallsteinsson. I seinni hálíleik lék FH mjög vel, spilaði vel og sleppti helzt ekki boltanum fyrr en í netinu, auk þess varði Hjalti vel í markiuu. Geir skorar fyrsta markið, síðan Auðunn af línu og Örn bætir einu við og -loks Geir með skoti af mjög löngu færi, sem hafnaði efst í markhorninu. — Þórarinn Ragnarsson skofar yrir Hauka, en síðasta markið skorar nýliði hj'á FH, Þorvaldur Karlsson, eftir stórglæsilega sendingu frá Geir. Lið Hauka sýndi í leikjum sín- um að þeir eru til alls líklegir í vetur. Logi er mjög snjall mark- vörður og Þórður er að ná sér á strik sem stórskytta. Stefán er alltaf hættulegur. Mörk FH skoruðu Örn 3, Geir og Auðunn 2 hver og Þorvaldur 1. Mörk Hauka skoruðu Stefán 2 og Þórarinn 1. ★ FH-Víkingur (2:2) (4:2) 6:4 Jón Hjaltalín skorar fyrsta markið, en skömmu síðar einleik ur Örn í gegnum Víkingsvörnina og skorar fallega. Geir kemst tnn í sendingu og skorar auðveldlegn, en Jón Hjaltalín jafnar með þrumuskoti. — í seinni hálfleik byrjaði Einar Magnússon með því að skora og bjuggust nú allir við að Víkingur ætlaði að endur- taka leikinn á móti Fram, en Ein ■>r Sigurðsson jafnar með því að vipa yfir markvörðinn og Geir nær yfirhöndinni úr hröðu upp- hlaupi. Nú er tveimur FH-ingum vísað af leikvelli í einu, en samt sem áður skorar FH og Árni brýzt í gegn, en Einar M. skorar fyrir Víking og síðasta mark kvöldsins skorar svo Auðunn og innsiglar sigur FH. Lið Víkings kom á óvart með getu sinni, en hæpið er að það endist þeim fullan leiktíma að beita tveimur stórskyttum og engu öðru, að vísu stóð markvörð urinn, Björgvin Jóhannsson, sig mjög vel og er áreiðanlega mikið efni. Annars bera þeir Jón og Einar liðið uppi. FH sýndi í þessu móti að þeir eru í góðri æfingu og að þeir hafa á langmestri breidd leik- manna að skipa. — Þeir léku þessa leiki án Birgis, Jóns Gests, Páls og Kristófers, en það virt- ist' engin 'áhrif hafa. Markmenn- rnir Birgir Finnbogaon og Hjalti stóðu sig vel og vaf gaman að sjá Hjalta aftur í markinu. Örn og Geir voru beztir af útispilur- unum, en Einar Sig. er alltaf hinn sterki varnarmaður. Árni og Auðunn voru virkir á línunni. Mörk FH skoruðu Geir 2, Örn, Einar, Auðunn og Ámi 1 hver. Mörk Víkings Einar og Jón 2 hver. Að lokum afhenti Gunnar Sig- urðsson formaður ÍR fyrirliða FH, Einari Sigurðssyni, bikar í sigur laun. Rlpley Framhald af bls. 3. seld á markaðstorgum og ár:ð 1913 var ekki ein einasta dúfa eftir. Dr. Ripley hefur stutt Surtseyj arrannsóknir dyggilega og haft mikinn áhuga á þeim og í ræðu, er hann flutti á fagnaði íslenzk- ameríska félagsins í gærkvöldi, sagði hann m.a. ,,Auk hinnar ó- spilltu náttúru, sem ísland hef- ur að bjóða náttúrufræðingum til rannsóknar, hefur eitt alveg ómótstæðilegt aðdráttarafl fyrir vísindaheiminn. Það er að Surtsev er eina óspillta landssvæði í heim 10 7' október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐID inum, sem hægt er að rannsaka frá upphafi. Þess vegna er hún svo mikilvæg fyrir líffræðilegar rannsóknir, hvernig plöntur og dýr þróast á nýju landi. Og í Surtsey væri hægt að finna mik- ilvægastar staðreyndir um upphaf lífs á jörðinni. Þess vegna verð ur að fylgjast vel með þar og vísindalegt mikilvægi eyjarinnar er nú í dag, fjórum árum eftiv sköpun hennar. því að þakka að- allega að hún hefur verið svo dyggilega vernduð. Stofnun Surts eyjarfélagsins hefur því verið þarft verk. Það verk er félagið hefur þegar Unnið lofar góðu. En það em enn fleiri tækifæri til vísindarannsókna í Surtsey. Auk líffræðilegu rannsóknanna gefst þar einstakt tækifæri til eldfjalla og jarðfræðirannsókna". í lok ræðu sinnar sagðist Dr. Ripley vilja koma fram með þá uppástungu, að á íslandi væri sett upp alþjóðleg vísindastofnun, þar sem visindamenn frá mörgum löndum gætu unnið með íslenz'.c- um vísindamönnum við umhverfis rannsóknir. UNESCO gæti ef til vill að einhverju leyti hvatt til stofnunar hennar, en UNESCO hefur stundum veitt aðstoð við stofnun slíkra vísindamiðstöðva t.d. Charles Darwin Foundation vís I indamiðstöðvarinnar á Galapagos eyjum. Dr. Ripley sagði enn frem ur, að Smithsonian Institution myndi vilja aðstoða við þetta og skapa áhuga á máli þessu í Banda ríkjunum. Gefjun — Bðunn rramhaid af 3. siou. þyrfti rekstur allra iðnaðarfyrir- tækja Sambandsins á Akureyri, en við þau starfa um það bil 550 manns. Sagði Erlendur að Sambandið mundi gera allt sem í þess valdi stæði til þess að bjarga fyrirtækjunum, en við mjög ramman reip væri að draga, þar sem iðnaðinum væri ekki veitt sú hjálp eða aðstoð er har.n þyrfti, eins og væri um sjávar- útveg og landbúnað. Hin nýja verzlun er hin smekk legasta í útliti og fyrirkomulagi. Teiknistofa Sambandsins sá um gerð allra teikninga. Sigurgeir Sigurjónsson Málaflutningsskrifstofa. Óðinsgötu 4 — Sími 11043. IVAR BRUDEVOLL, prentari andaðist þann 5. október 1967. HIÐ ÍSLENZKA PRENTARAFÉLAG. Eiginmaður minn og faðir SVEINN KR. VALDIMARSSON, fiskeftirlitsmaður, Háteigsvegi 20 andaðist 5. október. Jarðarförin auglýst síðar. Elín Theódórsdóttir, Ilalldóra L. Sveinsdóttir. Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður oklcar JÓNASAR TÓMASSONAR, ísafirði Sérstakar þakkir færum við Bæjarstjórn ísafjarðar, sem sá um útförina. Tómas A. Jónasson, Ingvar Jónasson, Gunnl. Fr. Jónasson. Þölckum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, pípulagningameistara. Katrín Sigurðardóttir, Ingigerður Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson, Guðlaug Bjarnadóttir, Sæmundur Sigurðsson, Sigríður Þórðardóttir og barnabörn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.