Alþýðublaðið - 07.10.1967, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 07.10.1967, Blaðsíða 12
 KO IŒKÍFC® OFAUKIÐ ita 1>AÐ eru margir sem amast við ■kommunum, ekki aðeins þeim sem eru að vasast í pólitíkinni, íieldur líka liinum sem standa í Ibókum. Sumir vilja helzt hvergi ^sjá kommur í rituðu máli, nema þá helzt þar sem þær eiga ekki að vera eftir reglunum, þótt aðr- ir vilji hafa þær eins margar og frekast er unnt að koma fyrir. f»eir sídarnefndu munu vera í minnihluta, en líklegast er sá flokkurinn fjölmennastur sem á- lítur að einu megi gilda hvort Ikommur eru notaðar eða ekki og þá um leið hvernig þær eru not- aðar. Auðvitað hafa þessir flokkar all ir mikið til síns máls, eins og æv- inlega er þegar menn deila. Það væri lítið gaman að deilum, ef sú væri ekki undantekningarlítið raunin að allir deiluaðilar hefðu rétt fyrir sér. En af því allir hafa ævinlega á réttu að standa í deil- um, þá verða deilur ætíð svc skemmtilegar og óleysanlegar að hreinasta unun er að. En þetta átti að vera um komm. ur en ekki deilur, nema kannski lítils háttar um deilur um komm- ur, og skal því aftur vikið að efninu. Að mörgu leyti færi bezt á iþví að kommusetning væri algjörlega gefin frjáls eins og annað. — En öllu frelsi fylgir nokkur ábyrgð eins og kellingin sagði, og þess vegna yrðu menn að vera við því búnir í kommu- frjálsræðinu að segja stundum dá lítið annað en menn ætluðu að segja, einfaldlega af því að komm an hefði slysazt á rangan stað. Það er nefnilega svo skrítið með kommurnar, að þótt þær séu ger- samlega óþarfar, að flestra áliti, þá geta þær samt haft talsverð áhrif á merkingu þeirra setninga sem þær standa í. Oft er þetta aðeins til bóta og ekkert við því að segja, en stundum getur þó verið að þessu bagi. Baksíðan er til dæmis ekki alveg viss um að þær ágætu konur sem nýlega sátu aðalfund Bandalags kvenna í Reykjavík hafi ætlað sér að sam- þykkja þá ályktun sem þær hafa nýlega sent frá sér og upphafið að hljóðar þannig: „Fundurinn skorar á landsmenn alla, ekki sízt konur, að leggja niður þann ósið, að hafa áfengi um hönd á heimilum og gefa þann ig börnum sínum gott fordæmi“. Annars getur vel verið að þetta hafi ótt að vera svona og konurn- ar séu þeirrar skoðunar, að það sé ósiður að gefa bömum sínum gott fordæmi, en hitt sé þó gott fordæmi að hafa áfengi um hönd á heimilunum. Það er aldrei að vita upp á hverju konur geta tek ið og 'hvað þeim dettur í hug að setja í ályktanir. BORGARSPÍTALINN FLYT- UR í FOSSVOGINN FYRIR ÁRAMÓT. Vísir. Eins og það geti ekki allir krakkar fengið hiksta. Ég held að þetta hljóti að vera prentvilla. Það hefur átt að standa FYRIR ALDAMÓT. Nú veit ég hvers vegna brennivínið er svona dýrt. Það er af því að öl er innri maður. . . I Ef þeir fara að flytja í borg- arspítalann núna, hverju á þá að lofa fyrir næstu borgar- § stjórnarkosningar?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.