Alþýðublaðið - 11.10.1967, Síða 3

Alþýðublaðið - 11.10.1967, Síða 3
Líbería á nú stærsta verzlunarflota heims Líbería er nú orðið það land sem hefur stærstan skipastól allra landa, en Bandaríkin hafa áður verið þar í fyrsta sæti. Skipastóll Líberíu er nú 22.598.000 brúttótonn. Kaupskipafloti Bandaríkj- anna hefur minnkað um næst- um því hálfa milljón brúttó- tonna ásiðasta ári, og eru Bandaríkin nú komin í þriðja sætið á' listanum á eftir Bret- um, sem 'skipa annað sætið á- fram. Bæði Bretar og Banda- ríkjamenn eiga rúmlega 20 milljón brúttótonn. Noregur er í fjórða sæti á listanum eins og áður með 18. 382.00 brúttótonn, Japanir í fimmta sæti með 16.883.000 brúttótonn, og hefur ekki floti neins lands aukizt jafnmikið á einu ári og japanski flotinn. Síðan 1962 hefur skipastóll Jap ana næstum tvöfaldast. Sovétríkin eiga sjötta stærsta flotann, Grikkir eru nr. 7, þá koma ítalir, þá Frakkar, þá Hollendingar, og Panama er í 12. sæti, á undan Svíþjóð og Danmörku. Líbería er einnig það land, sem á mest af olíuskipum. 12. 945.000 tonn af öllum skipa- stól landsins eru olíuskip, og þar er næstum því fimmtug- ur af öllum olíuskipaflota heims ins. Noregur er það land, sem á næstmest af olíuskipum. Neita að fall- ast á ver YfirnefBd verðlagsráðs sjávar- útvegrsins hefir meff atkvæðum oddamanns og fulltrúa kaupenda gegn atkvæðum fulltrúa sjómanna og útvegsmanna ákveðið verð á rækju veiddri á komandi vertíð. Yfimefndarverðið er kr. 7,80 pr. kg, en var á síðustu vertíð kr. 8.80 pr. kg. T SLASASTI SLYSI Tveir lögregluþjónar og ein stúlka slösuðust, er 4 bílar rákust sam an eða runnu út af Keflavíkurveginum skammt frá Kúagerði snemma í gærmorgun. Yegurinn liggur þarna í dálitilli dæld og hafði mynd azt þar mikil hálka um nóttina og olli hún óhöppunum. Jerseybúar óttast EBE St Herlier (ntb-reuter). íbúum brezku Ermasundseyjar innar Jersey var tjáð það í gær, að innganga Bretlands í efnahags bandalagið hefði í för með sér að innri sjálfsstjórn eyjarinnar lyki og efnahagslífi hennar, sem hvílir á landbúnaði og ferðamanna móttöku, yrði stefnt í voða. Þetta segir í skýrslu sem yfir- völd á Jersey hafa látið taka sam an og birt var í dag. Eins og er, annast Stóra-Bretland aðeins utan ríkismál eyjarinnar, en lanöbúnað arvörur þaðan fást hins vegar fluttar tollfrjálsar til Bretlands. í skýrslunni segir að innganga Breta í efnahagsbandalagið yrði til þess að grafa undan sjálfstæði eyjarinnar og neyða yfirvöldin þar til að grípa til ráðstafana, sem þcim væri þvert um geð. Meðal annars hlytu óbeinir skattar að aukast og verð á tókbaki og áfengi að hækka, en lágt verðlag á þess um vörum hefur átt þátt í að gera eyna að vinsælum ferðamanna- stað, sem Bretar sækja mikíð til. í skýrslunni er lagt til að Jers- eybúar sendi menn til London og fara þess á leit við brezku stjórn ina, að eynni verði haldið utan við samningaviðræðurnar við EBE, en þó þannig að eyjann verði með innan tollmúra bandalagsins, ef Bretland fær inngöngu í það. Um 8 leytið í gærmorgun var lögreglunni í Hafnarfirði til- kynnt, að tveir bílar hefðu lent í árekstri á Reykjanesbraut rétt við Kúagerði. Fóru þegar tveir lögreglum. af stað á slysstaðinn og óku í Bronco jeppa. Eins og fyrr segir hafði mikil hálka mynd azt í lægðinni við Kúagerði og þegar lögreglubíllinn kom þar að, skipti það engum togum, að hann rann út af veginum, valt eina veltu og stöðvaðist á hliðinni. Báðir lögreglumennirnir slösuðust mikið, lærbrotnaði annar, en hinn tognaði i öxl, ennfremur skemmd ist Bronco bíllinn mikið. Ekki höfðu lögreglumennimir lengi legið, er Landrover jeppi á leið til Keflavíkur kom aðvífandi. FRÚ KENNEDY TRÚLOFUÐ? New York (ntb - reuter) Bandaríska útvarpstöðin CBS skýrði frá því í gærkvöldi, að Jacqueline Kennedy, ekkja \ i Kennedys forseta, myndi inn an skamms tilkynna trúlofun sína og Harlecs lávarðar, fyrr um sendiherra Bretlands í Was i>hington. Harlech lávarður hef- ur verið vinur Kennedyfjöl- skyldunnar um árabil, en hann missti konu sína í bílslysi fyrir , nokkru. Frú Kennedy hefur < enn ekki sagt neitt um þessa ' frétt útvarpsstöðvarinnar. Fór allt á sömu leið með hann og lögreglubílinn, og lenti hann á hliðinni við hina vegarbrúnina, gegnt lögreglubílnum. Tveir menn voru í Landrover jeppanum og | sluppu þeir báðir ómeiddir, en bíllinn skemmdist nokkuð. í bílunum tveimur sem upphaf lega lentu í árekstrinum, voru 3 menn og hafði farþegi í öðrum bílnum slasazt og annar ökumaður inn farið með honum til Reykja- víkur í bíl, sem átti leið framhjá. Það var því aðeins ökumaður Papandreou fær aö fara úr landi Aþena 10-10 (ntb-reuter) Gríska herforingjastjórnin hef ur ákveðið að veita Geogis Papan dreou fyrrv. forsætisráðherra leyfi til að yfirgefa landið og leita sér lækninga erlendis. Fregnin var birt í dagblaðinu Eleftheros Kos- mos, en þar stóð að Papandreou hafði fengið leyfi til að fara úr landi. Papandreou sem nú er 79 ára gamall var látinn laus á sunnu- dag eftir að hafa setið í stofufang elsi síðan i byltingunni í Aþenu í apríl síðastliðinn, en hann er sem kunnugt er foringi Miðflokka- sambandsins í Grikklandi. Fulltrúar stjórnarinnar í Aþenu skýrði frá því á þriðjudag að inn an skamms yrðu fjórir fyrrverandi þingmenn Miðflokkasambandsins sóttir til saka fyrir að hafa verið viðriðnir hið svonefnda Aspida- mál og haft yfir mótgerðir í garð stjórnarinnar. hins bílsins, sem var eftir á slys staðnum og varð vitni að ósköp unum, sem á eftir komu, og má honum hafa þótt nóg um. Lögregluþjónarnir tveir voru báðir fluttir á sjúkrahús og fékk annar þeirra að fara heim strax, en hinn verður sjálfsagt að liggja talsvert lengi, þar sem meiðsli hann reyndust allalvarleg. Á fjölmennum fundi í smábáta eigendafélaginu Huginn sem ihald inn var s.l. laugardag, — en i því félagi eru allir þeir útvegsmenn, sem rækjuveiðar stunda við ísa fjarðardjúp, — samþykkt sam- hljóða að hefja ekki veiðarnar fyrr en tryggt sé, að ekki verði greitt lægra verð fyrir rækjuna en gert var á s.l. ári, * í samþykktinni er bent á þá staðreynd, að afkomumöguleikar rækjuveiðanna hafi verið veru- lega skertir, bæði með takmörk un á því aflamagni, sem heimilað er að veiða, samfara auknum út- gerðarkostnaði. Á fundinum var kosin þriggja manna nefnd til að ræða við ís firzku þingmennina og aðra hlut aðeigandi aðila um lausn máls- ins. í yfirnefndinni sem ákvað verð ið áttu sæti: Pétur Eiriksson, deildarstjóri í Efnahagsstofnun- inni, sem var oddamaður, Bjarni V. Magnússon, framkv.stj. og Eyj ólfur ísfeld Eyjólfsson, framkv. stj. tilnefndir af fulltrúum kaup- enda í Verðlagsráði og Jón Sig- urðsson, formaður Sjómannasam- bands íslands og Kristján Ragn- arsson, fulltrúi, tilnefndir af full trúum seljenda í Verðlagsrtáði. Afli síðustu viku Samkvæmt skýrslu Fiskifé-lags íslands um síldveiðar síðustu viku. Var saltað í 26.296 tunnur, 290 lestir voru frystar, en 10.486 lestir síldar fóru i bræðslu. Óhagstætt veður var á miðun- um flesta daga vikunnar og má segja, að vinnuveður hafi verið sæmilegt aðeins tvo daga vikunn ar. Síldin hélt áfram göngu sinni til suðurs og suðvesturs siðast- liðna viku. Var hún í vikubyrjun um 70 gráður n. br. og 6 gráður v. 1., en í vikulokin var hún um 67 gráður n. br. og 7 til 8 gráður Hótar að sprengja járnbrautarstöðvar Hamborg 10-10 (ntb-reuter). Maður sem kallar sig Roy Clark V.-Þýzkalands um 300,000 mörk, hefur krafið járnbrautayfirvöld ella kveðst hann sprengja járn- brautarstöðina í Hamborg eða Bremen í loft upp hafi hann ekki fengið peningana fyrir 11. þ.m. Er fresturinn tók að styttast, hóf lögreglan og járnbrautayfir- völdin mikla leit að hinum dular- fulla manni. Nokkur leynd hvíldi yfir að- gerðum lögreglunnar og haft var eftir einum embættismanna henn ar að mikið riði á að glæpamann- inn grunaði ekki hvað yfirvöldin hyggðust fyrr. Um síðustu lielgi var lögreglan vongóð um að ná manninum sem undanfarið hefur skelft járnbraut ayfirvöldin með hótunum sínum um sprengitilræðið, en í nokkur skipti hefur hann gert alvöru úr hótunum sínum og framið ódæðið. Síðasta sprengja hans sprakk í járnbrautavagni og varð til þess að farþegi einn slasaðist verulega. Talsmaður járnbrautayfirvald- anna sagði nýlega að til greina hefði komið að greiða manninum 300.000 mörk gegn því að hann lofaði að láta af ógnunum sínum og sprengjutilræðum. 11. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.