Alþýðublaðið - 11.10.1967, Qupperneq 14
Misjöfn veiði
Frh. af 2. síöu.
töluverð vöntun er á fólki til vinnu
við síldina. Skólarnir hafa þegar
hafið göngu sína og er því ekki
um að ræða, að unglingarnir vinni
við síldina eins og venjulegt er á
sumrum. Tiltölulega jöfn vinna
hefur verið í frystiliúsinu á Dal-
vík í allt sumar og liaust. Bindur
frystihúsið talsvert vinnuafl.
HÚSAVÍK.
Á Húsavík er nú búið að salta
í 1800 til 1900 tunnur síldar. Hef-
ur söltunin farið fram á tveimur
söltunarstöðvum. Hjá söltunarstöð
ínni Barðanum hefur verið saltað
í ca. 1300 tunnur, en hjá söltunar
stöðinni Saltvík hefur verið salt
að í ca. 550 tunnur.
Á Húsavík var saltað yfir alla
helgina síðustu allt fram á mánu-
dagsmorgun. Var það síld upp úr
fjórum skipum. Voru það Dagfari
með 250 tonn, Ljósfari með 70 tonn
Örn RE. með 200 tonn og Örfirisey
með 200 tonn.
í sumar hefur verið tekið á móti
2.700 tonnum síldar í bræðslu á
Húsavík.
SEYÐISFJÖRÐUR.
Á Seyðisfirði var verið að salta
í gær. Blaðinu var ekki kunnugt
um heildarsöltun þar eins og hún
stóð í gær, en á laugardag var þar
búið að salta í 5,958 tunnur síldar.
Saltað er nú á 6 söltunarstöðvum
og má búast við að fleiri stöðvar
bætist í hópinn næstu daga. í
fyiVa var saltað á alls 9 söltunar
stöðvum á Seyðisfirði.
Þegar Alþýðublaðið átti samtal
við Seyðisfjörð í gærdag, var þar
því tjáð, að síldveiðiskipin kæmú
nokkuð ört til iands með síld,: enda
væri orðið næsta stutt leið af mið-
unum, eða u.þ.b. 16-17 klukku-
stunda sigling.
FUJ-fundur
Frh. ur opnu.
ungra jafnaðarmanna í Reykja-
vík var glæsilegur og boðaði
gott starf félagsins í vetur.
Þess skal getið, að á næstunni
verður haldið upp á 40 ára af-
mæli FUJ í Reykjavík, sem er
næstelztu stjórnmálasamtök
ungs fólks í landinu.
Stjórn Félags ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík 1966 — 1967
er þannig skipuð:
Form.: Kristján Þorgeirsson.
Varaform.: Hilmar Hallvarðs-
son.
Ritari: Vilmar Pedersen.
Gjaldkeri: Runólfur Runólfsson.
Meðstjórn.: Ólafur Eggerts-
son, Helgi E. Helgason og
Ólafur Þorsteinsson.
Ungt fólk í Reykjavík! Látið
innritast í stjórnmálasamtök
unga fólksins: Félag ungra jafn-
aðarmajnna. — Hafið samband
við skrifstofu Alþýðuflokksins,
Hverfisgötu 8—10.
Kjörbréf
Framhald af 1 síðu.
al annars hafa rætt um kjör-
bréfamálið og mótað afstöðu
sína. Mun hún koma fram í
dag í þeirri kjördeild, sem fær
kiiörbréf Steingrríms til af-
greiðslu, og síðan í umræðum í
Sameinuðu þingi, er bréfin
verða borin upp.
Ríkisstjórn
Framhald af bls. 1.
5. utn að veita dr. Kristni Guð-
mundssyni lausn frá embætti sem
ambassador í Sovétríkjunum, Bulg
aríu, Rúmeníu og Ungverjalandi
frá 31. desember 1967 fyrir aldurs
sakir,
6. um að embættisstig sendi-
herra Spánar og Portúgal á ís-
landi og sendiherra íslands í þeim
löndum verði framvegis ambassa
dor í stað sendiherra.
Ennfremur voru staðfestar ýmsar
afgreiðslur, sem farið höfðu fram
utan fundar”.
Hvert viljið þér fara?
Nefnið staðinn. Við flytjum
yður, fljótast og þcegilegast.
Hafið samband
við ferðaskrifstofurnar eða
PA.ttT AMEiUCABÍ
Hafnarstræti 19 — simi 10275
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
GJAFABRÉF
FRÁ SUNOCAUOARSJÖOl
skAlatúnsheimilisini
fETTA BRÉF ER KVITTUN, EN PÓ MIKLU
FBEMUR VIÐURKENNING FYRIR STUÐN-
ING VID GOTT MÁLEFNI.
ttrniAYlt.* n
r.k Ollilll.HlllMAW
411._____
ÖKUMENN
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
lesið Alþýðubiaðið
^4 11. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Nýjar kennslubækur
Ríkisútgáfa námsbóka hefur nú
sent frá sér 4. og síðusta hefti
lestrarkennslubókarinnar „Barna-
gamans” eftir Rannveigu Löve og
Þorstein Sigurðsson með teikning
um eftir Baltasar.
Þetta síðasta hefti er fyrst og
frems.t helgað kennslu samhljóða
sambanda, og eru öll þau helztu
kynnt og æfð í orðalista og texta,
en skotið inn á milli' upprifjunar-
æfingum, þulum og ævintýrum.
Fjórða heftið er svipað liinum
fyrri að stærð og útliti, 48 blað-
síður í stóru broti. Eins og fyrr
hefur ísafoldarprentsmiðja h.f.
sett textann og Litbrá h.f. offset-
prentað.
Lestrarkennslubókin BARNA-
GAMAN, sem nú er komin út í
heild, er á ýmsan hátt nýstárleg.
Bókin hefst á undirbúningsæfing
um, sem ætlað er að kanna leS-
þroska barnanna, skerpa athygli
þeirra og einbeitingu, festa nauð-
synleg hugtök og vinnuvenjur og
auka orðoforða. Yfirferð er liæg,
námsatriði mörg og þyngd stig-
skipt. Þá er í byrjun mikið magn af 1
léttum texta, en öllum heftunum
eru orðalistar í ýmsu formi mikið
notaðir til kynningar á orðmynd
um og skýringar nafnorðunum,
þar sem þess er kostur. Allt miðar
þetta að því að leggja traustan
grundvöll að lestrarnáminu og
koma í veg fyrir lestrarörðugleika
síðar á námsferlinum.
Litlu bókstafirnir eru eingöngu
notaðir, meðan á kennslu hljóð-
anna stendur. Þessi nýbreytni er
upp tekin, vegna þess að samsöm
un hijóðs og hljóðtákns (bókstafs)
veldur sumujn nemendum örðug
leikum í byrjun. Tvenns konar
hljóðtákn fyrir sama hljóðið (t.d.
D-d) gerir börnunum þá mun erfið
ara fyrir og ruglar þau að óþörfu.
Að lokinni innlögn hljóðanna eru
stóru bókstafirnir kenndir og sér
staklega æfðir í léttum textum,
sem jafnframt er ætlaður til al-
mennrar upprifjunar og könnunar,
áður en kennsla samhljóðasam-
banda og tvöfaldra samhljóða
hefst.
Almennt má segja, að „Barna-
gaman” sé byggt upp samkvæmt
grundvallarlögmálum hljóðaað-
ferðarinnar, en jafnframt leitazt
við að hagnýta kosti annarra að-
ferða og sneiða hjá þeim van-
köntum, sem lestrarsérfræðing
ar hafa fundið á hljóðaaðferðinni.
Ný lestrarbok fyrir 7-8 börn,
eftir Herselíu Sveinsdóttur, fyrr-
um skólastjóra er kominn út hjá
Ríkisútgáfu námsbóka.
í bókinni, sem nefnist HAUK-
UR OG DÓRA, segir frá' dvöl barna
í sveit sumarlangt hjá afa og
ömmu. Efnið er gamalkunnugt, en
höfundur bókarinnar segir söguna
þannig, að hún hæfir sem bezt
yngstu nemendum barnaskólanna.
Letrið er stórt og skýrt, og fjöldi
mynda eftir Baltasar prýða bók-
ina.
Sendisveinar
óskast hálfan eða allan daginn. — Þurfa að
hafa hjól.
Alþýðuhlaðið
Sími 14900.
Hafnarfjörður Hafnarfjörður
SPILAKVÖLD
Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði verður í Alþýðuhúsinu fimmtudag-
inn 12. október, kl. 8.30 stundvíslega.
★ Félagsvist.
★ Ávarp: Hörður Zophaníasson, bæjarfulltrúi.
★ Kaffiveitingar.
★ Myndasýning.
Munið hin vinsælu spilakvöld Alþýðuflokksins. — SPILAÐ Á TVEIMUR
HÆÐUM. — Veitt verða glæsileg kvöldverðlaun. — Verið með frá upp-
hafi. — Öllum er heimill aðgangur. Pantið aðgöngumiða í síma 50499.
SPILANEFNDIN.