Alþýðublaðið - 13.10.1967, Side 7
Knattspyrna er vinsælasta umræðuefnið
Frá barþj ánakcppninni.
i
Garðar R. Sigurðsson á barnum á Hótel Borg.
Það er vinsælt hjá fjölda
manns að fara á barinn á Hótel
Borg í hádeginu og fá sér þar
einn lítinn með kunningjum sín
um. Flestir barir eru aðeins opn
ir á kvöldin, en barinn á Hótel
?org er opinn í bádeginu líka
og þar er oft mikil stemming
meðan menn ræðast við um dag
lega lífið í Reykjavík.
Við ákváðum því að rabba við
barþjón á Hótel Borg og vita,
hvort hann hefði ekki eitthvað
að segja okkur um aðsóknina
og vínmenningu á íslandi yfir-
leitt.
— Hvernig atvikaðist það að
þú gerðist barþjónn, Garðar?
— Ég var búinn að vera
lengi á Gullfossi sem ungþjóm
og vann þar í sölunum og hjá
Stefáni Þorvaldssyni, sem var
barþjónn þar. Síðar gerðist ég
svo háseti á Gullfossi og Lagar
fossi, en ég varð leiður á því
og fór í land. Þá fékk ég samn
ing á Hótel Borg hjá Guðmundi
H. og lærði þar. Fyrst vann ég
sem þjónn í salnum um tíma,
en síðan fór ég hingað á barinn.
Það mun hafa verið um það
bil fyrir tveim árum.
— Hvernig líkar þér barþjóns
starfið?
— Mér finnst það að mörgu
leyti skemmtilegt, hér er létt
yfir öllu og starfið er tilbrej't
ingarríkt. Maður kynnist mörg
um skemmtilegum mönnum hér.
Hitt er svo annað, að þetta
starf er þreytandi á köflum,
stöðurnar eru miklar og hreyf-
ingin lítil, þannig að menn kom
ast gjarnan í sæmileg hold.
— Tala viðskiptavinirnir mik-
ið við ykkur og um hvað helzt’
— Það er mikið rætt um nýj-
ustu fréttir og það sem skeðttr
hverju sinni, hins vegar held ég
að knattspyrna sé vinsæiasta og
almennasta umræðúefnið. Það
virðast allir vita eitthvað tim
knattspyrnu og hafa áhuga á
henni. Menn gizka á úrslit í
næsta leik og ræða um þann
síðasta, um einstaka leikmenn,
dómara, línuverði og yfirleitt
allt sem knattspyrnu viðkemur.
Núna undanfarið hefur aðalum-
ræðuefnið verið lokun sjónvarps
ins en þeirri ráðstöfun bölva
nær því allir.
— Er sjónvarpið vinsælt hjá
ykkur?
— Það er með sjónvarpið eins
og annað. Það hafa engir tveir
menn sömu skoðun á hlutunum.
Sumir vilja hafa kveikt á sjón
varpinu og reyna að hlusta á
það. Öðrum finnst sjónvarpið
vera fyrir og þreyta þá. Það er
stundum vont að reyna að ger.i
öllum til hæfis.
— Er munur á aðsókninni í
hádeginu og á kvöldin?
— Aðsóknin er rnjög jöfn há
degis og kvölds. En viðskipta-
vinirnir, sem koma á kvöldin
eru ólíkir þeim, sem koma í há-
deginu. í hádeginu koma menn,
sem fá sér stundum tvo og
fara eftir það, en það er ekki
algengt á kvöldin. í hádeginu
eru menn líka yfirleitt að flýia
sér, en á kvöldin doka þeir
lengur við. Það eru mjög skipt
ar skoðanir um barmenningu á
íslandi. Sumir telja að hún sé
góð, aðrir, að hún sé slæm eða
jafnvel engin. Mér persónulega
finnst barmenningin hér ágæt
að mörgu leyti. Það eru við-
skiptavinirnir, sem skapa bar-
menninguna og hingað kemur
þægilegt og gott fólk, þótt hóp
urinn sé margvíslegur og stór.
— Er töluvert um, að menn
biðji ykkur að ráðleggja sér
drykk? 1
— Það er algengt. Sumir óska
ekki eftir að blanda samarí teg
undum, enda þykir það víst ekki
gott. Stundum er beðið um eiit
hvað hressandi og bragðgott eða
eitthvað, sem fer vel í maga,
eitthvað við höfuðverk og álíkn.
Mér finnst það hins vegar undar
legt, þegar menn koma og jóska
eftir að fá einn „Kill me quick“
enda hef ég aldrei heyrt á þann
drykk minnst.
— Það hefur hevrzt, að þjón
ar séu drykkfelldari en aðrar
stéítir. Ert þú sammála því?
— Alls ekki. Ég er viss um,
að þiónar eru ekki drykkfelldari
en aðrír. jafnvel þó að þeir um
gangist vín meira en almenning
ur gerir. Kannski þar sé að leita
orsakanna fyrir þessum orðrómi.
— Koma konur mikið á bar
inn til ykkar? ■
— Ekki mikið, nei. í hádeg-
inu eiginlega ekkert, en á kvöld
in koma þær nokkuð, sérstak-
lega um helgar og þá í fylgd
með herrum sínum eða nokkr
ar saman.
— Hvernig fer, ef ykkur er
greitt með ávísun, sem engin
Frh. á 14. síðu.
Tdlað við Garöar R.
Sigurösson, barþjón
7