Alþýðublaðið - 03.11.1967, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 03.11.1967, Blaðsíða 15
S þ «'t, Framhald af 7. síð'u. Stofnskráin leiðir okkur fyrir sjónir eru ekki lengur aðeins hcimspekilegur draumur. Hug- sjónir hafa ævinlega reynzt vera nytsamasta og dýrmætasta eign mannkynsins. í heirhi sem er fullur af múgmorðstækjum eru slíkar hugsjónir nú orðnar eina mótvægið gegn sjá’lfstortímingu. Við skulum því á þessum degi enn ó ný játa skynsemina í þeim lifnaðarháttum sem boðaðir eru í Stofnskránni og strengja þess heit að endurnýja viðleitnina við að gera þá að veruleika. Um börn og Ijósmæður í HVERT sinn sem slagæð þín slær, lesandi góður, fæðast þrjú börn í heiminn. Aðeins 1 þeirra lítur fyrst dagsins ljós með að-. stoð lærðrar ljósmóður eða læknis. Fæðingatalan fyrir all- an lieiminn er um 115 milljónir árlega. Ef allar þær ljósmóður- töskur, sem Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna (UNICEF) hefur útbýtt, væru settar hver ofan á aðra, yrði staflinn fimm sinnum hærri en hæsta fjall jarðar, Mt. Everest. Töskurnar eru 139.871 talsins, allar búnar nauðsynleg- um tækjum. Sviðsljós tí|f Framhald af 10. síðu. þá. Sjáðu augun, ég er búinn að vinna lengi að þessari mynd og enn á liún töluvert í land. Við ræðum um stund um þess ar mjög svo athyglisverðu myndir. Þessi nýja og. óvænta fhlið á söngvaranum er girni- leg til fróðleiks. Það er boðið aftur í bollann, en því er hafn að. Tíðindamaður þáttarins hef ur lokið erindi sínu 'og því til staðfestingar stingur hann penn anum og skrifblokkinni í brjóst vasann. Rúnar fylgir okkur til dyra. Við þökkum ánægjulegar móttökur og hverfum við svo ibúið út í kalt og svalt haustloft ið. Já, vel á minnzt, það er kom inn vetur. íþróttir .Framhald af 11. síðu. Bæði félögin hafa sent kvörtunar bréf vegna starfa hans. Leikurinn var mjög harður og átti dóm- arinn mestan þátt í því. í töl- um lítur leikurinn þannig út. 37 aukaspyrnur 2 leikmönnum vísað af velli 1 leikmaður fékk áminningu 3 leikmenn illa meiddir. Forstjóri Everton sagði eftir lei.k inn að hann hefði aldrei séð jafn harðan leik. Aðeins einn leik- maður Everton var ómeiddur, en það var markvörðurinn en honum var vísað af leikvelli. Leeds telur sig hafa fundið upp skriftina að meistaratitlinum. en hún er sú að krækja sér í öll stiginn á heimavelli og annað stig- ið á útivelli. Ekkj munar miklu að þeir standi við þetta því þeir hafa fengið 11 stig af 12 mögulegum á lieimavelli, en að vísu ekki nema 4 af 12 á útivelli, því þeir töpuðu á laugardag 0-1 fyrir Manchest- er City. íþróttir Framhald af 11. síðu. 4x100 m fjórsund karla: A.-Þýzkaland, 4:01,3 mín. Sovétríkin 4:01,4. 4x100 m fjórsund kvenna: Bandaríkin, 4:39,1 mín., Ungverjaland, 4:45,7. 1500 m skriðsund karla: G. Eccheverria, Mexíkó, 17:05,8. S. Geuman, Sovét, 17:55,7. 400 m fjórsund kvenna: C. Kolb, USA, 5:22,9 mín. S. Steinbach, A.-Þýzkal., 5:32,8. 100 m. brlngusxuid kvenna: G. Prosmentsjikova, Sovét, 1:17,2. A. Grebennikova, Sovét, 1:19,9. 4x200 m skriðsund karla: 4x200 m skriðsund karla: Bandaríkin, 8:32,2 mín. Mexíkó, 8:38,4. 4x100 m skriðsund kvenna: Bandaríkin, 4:17,2 mín. Ungverjaland, 4:26,6. 100 m bringusund karla: V. Kosinskinsj, Sovét, 1:07,7 mín. G. Prokopenko, Sovét, 1:08,9. 400 m skriðsund kvenna: G. Meyer, USA, 4:45,1 mín. P. Caretto, USA, 2:51,6. Gróft handprjónagarn úr/ I | J Sameinar eiginleika beggja, hljieika ulíarinnars dralon. Mjög auðvelt í þvottí og öllum meðföru Mölvarið * Hla«nfrit Byltingarafmæli Framhald af 2. síðu. kórinn Fóstbræður undir stjórn Ragnars Björnssonar. Eftir hlé á þessari hátíðar- samkomu fax-a fram tónleikar sov- ézkra listamanna: Ljúdmilla ísa eva (sópran) syngur og Samúil Fúrer fiðluleikari leikur við undir leik Taisu Merkúloxu. Kynnir á samkomunni verður Jón Múli. Á sjálfan afmælisdaginn, 7. nóvember, hefur sendiráð Sovét- ríkjanna svo boð inni fyrir gest.i eins og venja er á afmælisdegi byltingarinnar, seni er jafnframt þjóðhátíðardagur Sovétríkjanna. Hamrahlíðarskóli r rauuiaid af 1. síðu. við hann að meðaltali um 18 millj onir króna, miðað við núverandi 1 byggingarneind Menntaskól- ans við Hamrahlíð eiga sæti: Guð mundur Arnlaugsson rektor, for- maður; Birgir Thorlacius ráðu- ncytisstjóri, ritari og Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins. Arkitekt byggingarinnar er Skarp héðinn JóhannesSon arkitekt, en verkfræðiaðstoð við bygginguna hafa veitt verkfræðingarnir Sig- urbjörn Guðmundsson og Guð- mundur Halldórsson frá verk- fræðiskrifstofu Sigurðar Thorodd- sen. Verktaki er Einar Ágústsson byggingameistari, en Sigurður Halldórsson verkfræðingur hefur annazt raflögn og lýsingu. í kynningu sinni á skólastarf- inu lagði Guðmundur Arnlaugs- son á það áherzlu, að nauðsyn- legt væri í nútíma skóla, að stof- ur væru ekki allar af sömu stærð; oft væri hagkvæmt að kenna mörgum bekkjum saman og þyrfti þá kennslusali, en, stund- um yrði að skipta nemendum í smærri hópa. Þá kvað hann bi-ýna nauðsyn bera til þess að í skól- anum væri nægilegt geymslu- rými fyrir áhöld ýniiss konar, og það taldi hann mikinn kost við bygginguna, að þar væri enn eft- ir óráðstafað húsrými í kjallara; slfkt væri ómetanlegt 1 nýjum skóla, því að æfinlega kæmi fram þörf fyrir húsrými undir starf- semi, sem ekki hefði veríð reikn- að með þegar húsin væru byggð. Nýtt verÓ Fraxohald af 1. síðu. Síld veidd á Norður- og Austur- landssvæði: A. Stórsíld (3 til 6 stk. ( kg.) með minnst 14% heilfitu og ó- flokkuð síld (beitusíld) hvert kg. kr. 1,60. B. Önnur síld, nýtt til frysting- ar, hvert kg. kr. 1,25. Síld veidd á Suffur- og Vestur. landssvæffi: A. Stórsíld (3 til 6 stk. i kg.) meff minnst 14% heilfitu og óflokkuð síld (beitusíld) hvert kg. kr. 1,50. B. Önnur síld, nýtt til frysting- ar, hvert kg. kr. 1,12. Eftirfarandi afhendingar- og nýtingarákvæði gilda á báffum verðlagssvæffum: Verffið miðast við að seljandi afhendi síldina á flutningstæki við lxlið veiðiskips. Verðið miðast við það magn, sem fer til vinnslu. Vinnslumagn telst innvegin síld að frádregnu því magni, er vinnslustöðvarnar skila í síldarverksmiðjur. Vinnslu stöðvax-nar skulu skila úrgangs síld í síldarverksmiðjur seljend- um að kostnaðarlausu. Þar sem ekki verður við komið að halda afla bátanna að- skildum í síldarmóttöku, skal sýn ishorn gilda sem grundvöllur fyr ir hlutfalli miUi síldar til framan greindrar vinnslu og síldar í bræðslu milli báta innbyrðis. Verðákvarðanir þessar voru gerðar með atkvæðum odda- manns, Bjarna Braga Jónssonar og fulltrúa kaupenda, Bjarna V. Magnússonar og Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar, gegn atkvæðum full trúa seljenda, Kristjáns Ragnars sonar og Tryggva Helgasonar: Reykjavík, 2. nóvember 1967. Verfflagsráð sjávarútvegsins. BÍLAKAUP Bílar viff allra hæfi. Kjör viff allra hæfi. Opiff til kl. 9 á hverju kvöldl. BÍLAKAUP Skúlaaötu 55. — Sími 15812. SERVÍETTU- PRENTUN SlMX 32*101. 3. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐiÐ 15

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.