Alþýðublaðið - 05.11.1967, Page 2
2
Sunnudags AlþýSublað — 5. nóvember 1967
ROME/BEIRUT
Hin nýja Chesterfield íiíter
fer sigurför um allan heim
NýttChesterfield Filters
Skipasmiðir
mótmæla
FUNDUR í stjórn Sveinafé-
iags skipasmiða mótmælir harð-
lega þeirri árás á kjör launafólks,
<sr fram kemur í efnahagsmála-
frumvarpi ríkistjórnarinnar, og
telur að með þessum ráðstöfunum
.sé brotinn grundvöllur júnísam-
■feomulagsins um vísitölugreiðslu
á kaup, en einmitt það atriði tel-
ur fundurinn að hafi verið mjög
inikilsvert hagsmunaatriði.
Fundurinn krefst þess að áður
cn þrengdur sé kostur láglauna-
fólks, sem þegar hefur of lág
faun, verði að neita allra annarra
'bragða til að rétta við fjárhag
ríkissjóðs.
Þá vill fundurinn lýsa þeirri
%on sinni, að samkomulag náist
i viðræðum fulltrúa ASÍ og BS-
■RB við ríkisstjórnina um breytta
etefnu í þessu máli, en fari svo,
að viðunandi lausn fáist ekki, —
-iivetur fundurinn Alþýðusamband
íslands að fylkja öllum launþegum
saman til að hrinda þessari órétt-
Biætu kjaraskerðingu.
Samband skipasmiða
í Reykjavík.
Helf/i Arnlaugsson jorm.
ALÞÝÐUFLOKKS
KONUR
Alþýðuflokkskonur.
Munið málfundaæfingu Kven
félags Alþýðuflokksins í Rvik
n.k. þriðjudagskvöld kl. 20.30
í Ingólfskaffi .
Umræðuefni máfundarins er:
Á að leyfa áfengan bjór.
Leiðbeinandi verður Björgv
in Guðmundsson.
Kvenfélag Alþýðuflokksins í
Reykjavík.
PRENTARAR!
Fundur HÍP er í dag kl. 1,30
e. h. að Hverfisgötu 21. Til um-
ræðu: Skipulagsmál ASÍ og við-
horf samninganna.
HANNIBAL OG
ARON Á RÖK-
STÓLUM í
ÚTVARPINU
Björgvin Guðmundsson hefur nú
ekið við þættinum „Á rökstólum’1
í útvarpinu, og verður fyrsti þátt-
urinn í umsjá hans annaö kvöld.
Þar koma fram tveir þjóðkunnir
menn sem rökræða athyglisverð
efni, þeir Hannibal Valdimarsson
forseti Alþýðusambands íslands
og Aron Guðbrandsson forstjóri.
Umræðuefnið er Ríkisvaldið og
verkalýðshreyfingin.
Þessi þáttur var áður í umsjá
Tómasar Karlssonar, en þeir
Björgvin skiptu þannig að nú er
Tómas kominn með þáttinn ..Efst
á baugi“ sem Björgvin liefur haft
á hendi í sjö ár. Þeir Tómas og
Björgvin voru fyrst með þann
þátt saman, en nú er Bjöm Jó-
hannson með Tómasi.
VERSIÖÐIN
REVKJAVlK
TROLLBÁTARNIR héðan
hafa aflað sæmilega að undan-
förnu. Drífa landaði 1. nóv. 10,6
tonnum, þar af um helmingur
karfi. Klængur landaði 1. nóv.
2,5 tonnum af ýsu og aftur 3.
nóv. 3,9 tonnum. Fróði landaði
hjá ísbirninum 3. nóv. 5,640
tonnum af ýsu. Sæmileg síldveiði
er um þessar mundir í Jökul-
djúpinu. Kópur, Ve., landaði 29.
okt. 440 tunnum og 30. okt. lönd-
uðu Kristbjörg 1000 tunnum og
Kópur 460 tunnum. Húni II. land-
aði 31. okt. 100 tunnum og sama
magni aftur þann 2. nóv. Sama
dag landaði Gjafar, Ve. 500 tunn-
um og Kópur 480 tunnum. í dag
iöstudag eru þrír að landa þ. e.
Þorsteinn með 800 tunnur, Haf-
rún með sama magn og Gjafar
með um 1000 tunnur. Öll fer
þessi síld í frystingu en töluvert
gengur úr henni, en engu að síð-
ur er þetta göður glaðningur fyr-
ir fólkið í frystihúsunum. Nú er
verðið á síld til frystingar komið
og varla ætti það að aftra frysti-
húsunum frá að taka á móti síld-
inni, því það fer alltaf lækkandi
ár frá ári. Hvað um það þá er
óskandi að hér sunnanlands verði
hressileg síldarvinnsla svo að ein-
hverjir aurar komi í pyngjur
verkafólksins. Verksmiðjurnar
hafa samþykkt að taka við síld
frá verkunarstöðvunum og má
það teljast afrek eftir uppgjafa-
tóninn sem í þeim er annars. Ef
einhver bátur fær smáa síld í
einu kasti eða svo, þá er ekki
annað við síldina að gera en
henda henni aftur í sjóinn. En
sem sagt er Klettur hættur að
heita að taka við síld af sínum
eigin eigendum. B.Ú.R., sem tók
síld til frystingar í vikunni varð
að selja bændum úrganginn
vegna móttökubanns hjá Kletti,
sem B.Ú.R. á samt að einum
fjórða. Nú er Víkingur frá Akra-
nesi kominn úr breytingu þeirri
sem gerir honum fært að stunda
síldveiðar. Eftir er að sjá hvort
skip sem kostar 50—60 miHjónir
getur staðið undir sér þegar að
bátar sem kosta 15—20 milljón-
ir berjast í bökkum.
Togararnir. Afli togaranna
hefur oft verið lélegur en aldrei
muna menn hann eins dræman
og nú. Marz seldi í Englandi á
mánudag 206 tonn fyrir aðeins
9331 stpd. en fiskurinn úr hon-
um mun hafa verið orðinn allt
að 20 daga gamall. Á miðviku-
dag seldi Úranus í Bremerhaven
123 tonn fyrir D. M. 81.900 og
voru 6 tonn af aflanum ónýt og
13 tonn lágu óseld á markaðnum.
Karlsefni seldi sama dag í Cux-
haven 101 tonn fyrir 86.262
mörk og í dag, föstudag, seldi
Jón Þorláksson í Þýzkalandi og
mun hafa fengið um 91.000 mörk
fyrir aflann. í næstu viku mun
aðeins eitt skip selja erlendis og
er það Neptúnus. Af fiskiríi hjá
togurunum er lítið að frétta,
þeir fá sáralítið. Ingólfur Arn-
arson var kominn með 72 tonn
í dag, föstudag, en hann fór á
veiðar þann 24. okt. Sölur togar-
anna líta ekki illa út á pappírn-
um en þegar búið er að draga
tollana frá er útkoman ekki eins
glæsileg. Tollur á þorski og ufsa
hefur verið 9% en lausafréttir
hafa flogið fyrir um að til stæði
að þessir tollar yrðu lækkaðir og
hafa Þjóðverjar stutt okkur i
þeim efnum. Ef þessar lausa-
fregnir eru réttar þá er víst
meiningin að tollarnir lækki úr
þessum 9% og niður í 4M>% og
er það vissulega ánægjulegt og
ekki mun togurunum okkar veita
af. Ég gleymdi að geta þess í
sambandi við síldveiðarnar áðan
að í höfninni liggur liið nýja
síldarleitarskip Árni Friðriksson
og hefur legið í um það bil viku.
Pétur Axel Jónsson.
Mjólkurfræðingar
mótmæla
Á fundi Mjólkurfræðingafé-
lags íslands 27. þ. m. var eftirfar-
andi samþykkt gerð með sam-
hljóða atkvæðum:
„Fundur stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Mjólkurfræðingafé-
lags íslands, haldinn 27. október
1967, mótmælir liarðlega efna-
hagsmálatillögum ríkisstjórnar-
innar. Telur Mjólkurfræðingafé-
lagið óverjandi að ráðizt sé að
launþegum með því að skerða
samningsbundinn rétt þeirra til
verðlagsuppbótar á kaup, sem
verkalýðsfélögin hafa samið um
við atvinnurekendur fyrir milli-
göngu riíkisstjðmarinnar, sbr.
júnísamkomulagið 1964.
Þá mótmæla mjólkurfræðingar
því, að með ört. vaxandi tækni-
þróun og sívaxandi auðsöfnun
litils hluta þjóðarinnar sé ráðizt
að þeim, sem minnst hafa handa
á milli.
Skorar fundurinn á öll laun-
þegasamtök laadsins að hervæð-
ast gegn þessum óskammfeilnu
árásum á kjör almennings.”
Virðingarfyllst.
F. h. Mjólkurfræðingafélags
íslands.
Sigurður Runólfssou«