Alþýðublaðið - 05.11.1967, Blaðsíða 13
Sunnudags AlþýtSublaS — 5. nóvember 1967
13
INGMAR BERGMANS
F0RSTE LYSTSPIL I FARVER
*3fGM0E
/ ENKER
rU» «T IHTE TAIR OM AllA OESSA KVINNOR
HARRIET ANDEKSSON
BIBIANDERSSON
EVA DAHLBECK
JARLKULLE
Allar þessar konur
Skemmtileg og vel leikin gam
anmynd.
Sýnd kl. 9.
HUD frændi
Paul Newman
Malvin Douglas.
Sýnd kl. 5 og 7.
Pétur 4 ára
Sýnd kl. 3.
BÍLAKAUP
15812 — 23900
Höfum kaupendur >S flest*
um tegundum og árgerðum
af nýlegum bifreiðum.
Vinsamlegast látlð skrá bir-
reiðina sem fyrst.
BÍLAKAUP
Skúlagötu 55 viB BauBará
Símar 15812 - SS»0».
ÖKUMENN
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
SVEINN H.
VALDIMARSSON
hæstaréttarlögmaður.
Sölvhóisgata 4 (Sambandshús,
3. hæð).
Símar: 23338 — 12343.
ERLING BLÖNDAL
BENGTSON
MÖRGUM kemur skjótt í hug Bertel
Thorvaldsen, er þeir heyra nafnið Erling
Blöndal Bengtsson, enda eru þessir tveir
menn án efa listfengastir og frægastir af-
komendur dansk-íslenzkra foreldra. Erling
Biöndal Bengtsson er fæddur árið 1932.
Móðir hans, sem er af islenzkum ættum er
píanóleikari, en faðir hans fiðluleikari, hef
ur Erling því drukkið í sig tónlist með
móðurmjólkinni og tifað og hrærzt í tón-
listarandrúmslofti frá blautu barnsbeini.
Þegar hann var þriggja ára gaf faðir
hans honum litla barnafiðlu og sýndi hon-
um, hvernig hann ætti að bera sig að við
spilamennskuna, setja hljóðfærið undir
hökuna, en sá litli var ekki alveg á því
og kom nú í fyrsta sinn fram hinn íslenzki
arfur, þráinn, sem hann segir þó, að hafi
oftsinnis komið sér að gagni í lífinu. Piltur
afsagði sem sagt að halda á hljóðfærinu
eins og vera bar og skaut því milli fóta sér.
iUlar fortölur reyndust árangurslausar. Má
því segja, að snemma hafi krókurinn beygzt
til þess sem vei’ða vildi. Var nú settur
standur í fiðluna, síðar var ,keypt handa
lionum lágfiðla en það fór á sömu leið,
drengurinn hafði sett sig í þær stellingar
sem honum vai’ð ekki úr þokað. Þá var
smíðað handa honum lítið selló. Á þetta
selló lék hann á sínum fyrsta konsert
fjögurra ára gamall. svo ungur, að liann
hefur um hann mjög óljósar endurminn-
ingar.
Hefði Erling ekki verið af skynsömu tón-
listarfólki kominn, er hætt við að mörgum
hefði þótt freistandi að flagga með hið
efnilega undrabarn og hefur margur orðið
að bíta úr þeirri nálinni. Svo varð þó ekki,
drengurinn settur til náms og gefinn tími
til að þroska það, sem í honum bjó. Öld
„snillinganna” eftir skilningi gamla tímans
er nú liðin sem betur fer, en það er ekki
þar með sagt, að hljóðfæraleikur í dag
krefjist ekki jafnmikillar tækni og áður
var gert, þvert á móti, en tæknin er notuð
sem tæki en ekki sem takmark.
Eftir að faðir hans hafði sagt honum til
í undirstöðuatriðum meii’a með leik en
eiginlegri kennslu, kom hann syni sínum
til náms hjá' Fritz Dietzmann þáverandi
konunglegum konsertmeistara, sem sagði
honum til og samræmdi sellónámið hinum
almenna skólalærdómi, framan af aldri. Ár-
ið 1942 kemur hann svo fram opinberlega
og lék konsert Franz Neruda, tveimur ár-
um síðar aftur og lék þá m. a sellókon-
sert Saint-Saens og 1945 m. a. konsert La-
los, þar með var ferill lians sem einleikara
hafinn og hingað til lands kom hann bæði
sem barn og fullorðinn og ætlar nú að
lieiðra okkur með leik sínum með Sym-
fóníuhljómsveit íslands á fimmtudaginn
kemur.
Erling Blöndal Bengtsson hefur sagt, að
hann hafi lært að leika á hljóðfæri sitt
innan við þykk gluggatjöld á myrkvunar-
tímum stríðsins. Stríðið lokaði öllum sam-
gönguleiðum við umheiminn. Oft og tíðum
var lítið um eldivið og gat þá verið erfitt
að ylja fingur og hljóðfæri, svo að hægt
væri að æfa sig. En þá notaði hann tímann
og hlustaði á hljómplötur með beztu lista-
mönnum heims.
Árin 1948 — 53 dvaldist Erling við nám
og kennslu við Curtis Institute of music
í Fíladelfíu undir leiðsögn hins kunna
sellóleikara Gregors Piategorskys og kynnt-
ist fjöldanum öllum af nýjum verkum svo
sem sellósónötu Sjostakovitsj. stói’u sónötu
Ilindemiths sem hann samdi 1948 og
slrengjakvartettum Bartoks svo að eitthvað
sé nefnt af verkum, sem nú eru orðin klass-
isk. Árið 1953 varð Erling kennari við Det
Kgl. Danske Musikkonservatorium í Kaup-
mannahöfn.
Erling Blöndal Bengtsson telur, að aðal
hljóðfæraleikarans sé að endurvekja verk
tónskáldsins. „Aldrei má gleyma því, að
við, hinir túlkandi tónlistarmenn enim
þjónar hinna skapandi, ja, ég mætti ef til
vill segja, að við ættum að vera dálítið
endurskapandi. Aðalatriðið fyrir túlkand-
ann er að setja sig algerlega í spor tón-
skáldsins, svo að fólk hafi á tilfinningunni,
að verið sé að skapa þessa tóna á þeirri
stundu sem þeir eru leiknir eða sungnir.
Þetta er takmarkið, sem við eigum að
keppa að. Við verðum alltaf að vera að
bæta við okkur, forðast vanabundna txilkun,
hún verður að vera fersk og hrífandi í
livei’t sinn sem við leikum jafnvel þótt
við höfum leikið ver.kið ótal oft áður. ..
Það færir líka túlkandanum auknar skyld-
ur á herðar þegar beztu skáld samtíðar-
inriar semja vei’k fyrir hljóðfæri hans. Sell-
óið hefur nokkra sérstöðu meðal hljóð-
færanna, t. d. miðað við píanó og fiðlu;
„gömul” sellóverk eru tiltölulega fá'. Eng-
ir.n sellókonsert er til eftir Mozart, eng-
inn eftir Beethoven, enginn eftir Brahms,
en þrátt fyrir það er auðvitað til ógrynni
sellóverka, en það er ekki eins greiður að-
gangur að þeim og verkum fyrir önnur
liljóðfæri. Sannleikurinn er sá, að ekki er
leikið nema brot af þeim mörgu yndislegu
verkum, sem samin hafa verið fyrir þetta
hljóðfæri. Menn verða aðeins að leita svo-
lítið neðar í nótnahlaðanum og þá getur
verið dálítið erfitt að ganga fram hjá verk-
um, sem liggja ofarlega, verkum eins og
t. d. A-dúr sónötu Beethovens eða F-dúr
sónötu Brahms. Það hafa ekki verið samd-
ir margir sellókonsertar hingað til. En
þau tónskáld, sem ég þekki, hafa verið
mjög iðin að semja fyrir sellóið og fyrir
það skulu þeir hafa heiður og þökk, —
ég mæli líka fyrir hönd komandi kyn-
slóða sellóleikara. — Niels Viggo Bentzon,
Hermann Koppel, Leif Thybo, Sven West-
erbaard. Svíinn Sven-Erik Back og Norð-
maðurinn Klaus Egge hafa aukið verulega
við þau sellóverk, sem áður voru til og ég
verð að segja, að ég er fyrir hönd sellósins
stoltur af þessum mönnum. Það sýnir hve
mikill áhugi er á hljóðfærinu.” — Stuðzt
við Musikalske Selvportrætter. — G. P.
PILKINGTON’S Hyaðer
nu bað?
Það eru veggflísar á:
BÖÐ
ELDHÚS
OG HVAR
Verðið er víða lágt — En hvergi íægra.
SEM ER
f f *TT A\ÍC D Grensásvegi 22 og 24
Lml I r\ V C fv Símar — 30280 og 32262.