Alþýðublaðið - 05.11.1967, Qupperneq 14
%
14
Sunnudags Alþýðublað — 5. nóvember 1967
MYNDIR FRÁ
Framhald af 7. síðu.
liðinu margar skráveifur, sem
stytti ófriðinn.
Borgin Minsk var algerlega
Uigð í rústir í ófriðnum, en hún
iliefur verið endurbyggð af fá-
dæma þrótti. Einmitt þess
vegna má segja, að hver bygg
ing sé minnisvarði um ófriðinn.
Breiðgötur eru heitnar eftir
tþjóðskáldum Byeloórússa og rit
stjórinn okkar þylur kvæði
iþeirra með djúpri hrynjandi
sem vekur tilfinningar jafnvel
8ijá manni, sem ekki skilur orð
í málinu.
Það var sömu sögu að segja
um Varsjá í Póllandi og fleiri
borgir á þessu svæði. Raunar
-var þetta ekki í fyrsta sinn,
sem ófriðarbál geisaði eftir
þjóðbrautunum austur og vest
ur um álfuna frá Þýzkalandi til
Moskvu, eða norður og suður
.iíinar fornu vílcingaleiðir frá
Eystrasalti til Svartahafs.
Smám saman verður það ljóst,
að ófriðurinn mikli, sem lauk
fyrir liðlega 20 árum, er á þess-
um slóðum ógróið sár. Fólkið
leið svo miklar hörmungar,
'Ijyggðir þess voru flestar ger-
eyðilagðar og uppbygging ’hefur
verið svo mikið átak, að það
gleymist ekki. Þetta veldur
hinni linnulausu tortryggni Sov
'étmanna í garð Þjóðverja og
gerir augljóst, að vandamál Ev-
rópu er ekki sambúð Sovétríkj
anna við Breta eða Frakka,
fiieldur Þýzkaland, stjórn iþess,
styrkur þess og stefna — og við
Ihorf Austur-Evrópumanna til
þess.
Blaðamenn virðast njóta mik-
illar virðingar í Sovétríkjunum
Og miklar kröfur vera til þeirra
gerðar. Það er athyglisvert að
hitta ungan mann, sem hefur
fiiáskólaoróf í málvísindum, starf
ar á skrifstofu blaðamannasam-
þands og dreymir sjálfan um að
verða blaðamaður! Það virðist
ekki vera auðhlaupið að komast
í stéttina austur þar. Blaða-
mannasambandið gerir og nokk
rar kröfur til þeirra,, sem fá að
ganga í það. Þeir verða að hafa
fengið birt ákveðinn fjölda
greina undir nafni til að fá inn-
göngu í samtökin.
Sovézku blöðin eru fáar síð-
ur, enda lítið sem ekkert af aug
lýsingum. Fyrir utan pólitísku
blöðin er til urmull af ýmis kon
ar sérblöðum, um bókmenntir,
um efnahagsmál, um íþróttamál,
um landbúnað og svo framveg-
is. Blöðin eru eign og undir
stjórn ýmissa aðila, svo sem
stéttarsamtaka,. sveitarfélaga og
annarra slíkra aðila.
Nýlega hefur verið stofnuð
önnur stór fréttastofa til viðbót
ar við Tass í Sovétríkj.unum,
Novosti. Hún sendir frá sér mik
ið af efni, ekki aðeins til blaða
innan Sovétríkjanna, heldur og
erlendis, og gefur til dæmis út
tímarit á ensku, sem Sputnik
nefnist, og hefur vakið mikla
athygli. Þegar ráðamenn þessa
nvja fyrirtækis eru spurðir,
hvaða munur sé á þeim og Tass
fréttastofunni, svara þeir, að
Tass sé opinberfréttastf. en það
MOSKVU ...
séu þeir alls ekki. Þessi nýja
stofnun er eign Rithöfundasam-
bandsins, Blaðamannasambands-
ins og fleiri slíkra aðila, en rík
ið er þar hvorki skráður eig-
andi né þátttakandi. Vöxtur hinn
ar nýju fréttastofu við hliðina
á Tass er án efa ein þeirra
breytinga, sem varla hefðu
gerzt á dögum Stalins, og verð
ur fróðlegt að sjá framvindu
hennar.
Svo er það auðvitað Stalin.
Það sjást ekki merki um hann
á almannafæri í Moskvu — nema
igröf hans. Var svo að skilja á
blaðafréttum, þegar hann var
fjarlægður úr grafhýsi Lenins,
að hann hefði verið óvirðulega
heygður úti undir vegg. En
hann var aðeins fluttur aftur
fyrir grafhýsið og er þar í
næstu röð ásamt öðrum leiðtog
um byltingarinnar. Að vísu hafa
þeir flestir brjóstmynd á leið-
inu, en hana hefur Stalin ekki
fengið. Og þeir tugir þúsunda
karla, kvenna og barna, sem á
degi (hverjum ganga í langri
röð gegnum grafhýsið, fara síð
an framhjá þessari röð af leið-
um, þar sem Stalin nú liggur.
Þetta er veglegur legstaður
fyrir Lenin og þá alla, svo og
aðra meiri háttar kommúnista,
sem eru grafnir í Kremlmúrnum
sjálfum. Rauða torgið (réttari
þýðing á þessu gamla nafni væri
Fagratorg að því er fróðir segja)
er allt annað en ætla mætti af
gráum fréttamyndum, sem
sýna það fullt af skriðdrekum
og eldflaugum, og svo lands-
stjórnina efst á grafhýsinu.
Torgið er miklu minna, litrík-
ara og fallegra en búast mætti
við. Svo eru spengileg barrtré
meðfram múrnum og grafhýsið
fellur smekklega inn í heildar-
myndina. Bílaumferð hefur nú
verið stöðvuð um torgið, svo að
fótgangandi pílagrímar geta í
friði horft á varðmannaskiptin
við grafhýsisdyrnar.
Það er helzt í Grúzíu, hinu
lilýja og sögulega fjallalandi í
Kaukasus, að Stalin er enn í há
vegum hafður. Hann var líka
Grúzíumaður, eins og raunar
ýmsir fleiri áhrifamenn bylting
arinnar og Sovétríkjanna síðan.
En suður þar er því hvíslað að
manni með tilhlýðilegri virð-
ingu, að bílstjórinn okkar sé
frá næsta nágrenni við fæðingar
stað Stalins.
Rússar byrja ekki að tala um
Stalin við ókunnuga. En gefist
gott tækifæri eftir dálitla við-
kynningu, er eins víst að þeir
komi að því umræðuefni. Og þá
er sem opnuð sé flóðgátt. Þeim
liggur á að létta af hjarta sér
sögunum um hörmungar þeirra
tíma, er hann réði ríkjum. Hver
hefur sína sögu að segja, ýmist
af sjálfum sér eða öðrum, sem
hann þekkti til. Virðist svo,
sem miklu oki hafi verið létt af
þessu fólki og það telji sig nú
búa í öðrum heimi.
Þeir, sem hafa faaft tækifæri
til samanburðar, staðfesta að
rnikil breyting hefur orðið í Sov
étríkjunum frá tímum Stalins.
Nú verður ekki annað séð af því
fólki, sem blaðamaður kynnist
á ferðalagi, en að það sé óþving
að og vandalaust að tala við það
um heimsins mál. Stundum má
sjá merki þess, að þeim leiðist,
ef gestur þeirra er á öðru máli,
enda lifa þeir ekki á pólitísku
rifrildi eins og stjórnmálaritstj.
Reykjavíkurblaðanna. En þá
er að minnast þess, að um margt
erum við sammála, og það má
bjóða þeim upp á skál fyrir
friðnum eða vináttu þjóðanna
eða auknum samskiptum, sem
toáðir taka undir af heilum hug.
Það efast víst fáir um það
Iengur, að rússneska byltingin
blífur og Sovétríkin eru sterkt
þjóðfélag. Hins er einnig gott
að minnast, að þau virðast vera
þjóðfélag í örri þróun, sem er
sífellt háð breytingum, og verð
ur fróðlegt og örlagaríkt að
fylgjast með því næstu áratugi,
hvert það stefnir og hvernig
það notar styrk sinn.
Það er gaman að spyrja Sov-
étmenn að því, hvort sem er í
Moskvu, Byelórússlandi eða
Grúzíu, hvað sé næst á dagskrá
hjá þeim Þeir hafi náð stór-
torotnum árangri af 50 ára
starfi, en favar standi þeirra
kommúnismi, hvert stefni faann
á næstu 50 árum.
Þeir svara því, að það ríki ekki
'kommúnismi í Sovétríkjunum
•enn. Þar sé nú sósíaiismi, sem
sé áfangi á leiðinni til kommú
nisman. Nú muni verða sótt síð-
asta spölinn á næstu áratugum,
en þá muni ríkið leysast upp og
þjóðskipulag framtíðarinnar
taka við.
Þessar kenningar eru alkunn
ar, og þær eru sýnilega lifandi
veruleiki í huga ungra kommú-
nista í Sovétríkjunum. Þegar
þeir eru spurðir um það nánar,
hvað muni gerast, þegar ríkið
leysist upp, hvort þetta eða
faitt hverfi eða haldi áfram,
verða svör ekki alltaf skýr. Ef í
faarðbakkann slær bjarga þeir
sér á því að spyrja: Hafið þér
ekki lesið Lenin?
Það verður þó Ijóst af svör-
HILLUBÚNAÐUR
VASKABORÐ
BLÖNDUNARTÆKI
RAFSUÐUPOTTAR
PLASTSKÚFFUR
HARÐPLASTPLÖTUR
RAUFAFYLLIR
FIÍSALÍM
POTTAR — PÖNNUR
SKÁLAR — KÖNNUR
VIFTUOFNAR
HREYFILHITARAR
ÞVEGILLINN
og margt fleira.
Smiðjubúðin
HÁTEIGSVEGI
SÍMI 21222.
um þeirra, að þeir faugsa sér
dreifingu á ríkisvaldinu og eigi
ýmis konar aðilar., sveitafélög,
samvinnufélög, menningarsam-
tök og félög fólksins á einstök-
um sviðum, að fá stóraukið vald
í þessu sambandi tala þeir
mjög um aukið lýðræði, þótt
ekki sé alveg öruggt, að þeir
noti það orð í nákvæmlega sömu
merkingu og við. Það verður
sannarlega fróðlegt að sjá, hvað
■gerist næstu áratugina hjá
þeim,
í íslendingahópi í Moskvu var
sögð saga. Hún er á þá lund, að
Kosygin forsætisráðherra hafi
verið í faeimsókn fajá Kekkonen
Finnlandsforseta. Þá á Kekkon-
en að hafa sagt: Munurinn á
Finnlandi og Sovétríkjunum,
er sá, að við erum á leiðinni til
sósíalisma um lýðræði — en þið
eruð á leiðinni til lýðræðis um
sósíalisma.
Vonandi reynist hann sann
spár.
Kþróttir
Framhald af 11. síðu-
á Holmenkollenmótinu í fyrra.
Japanir hafa ákveðið að senda
þrettán keppendur og fjóra farar
stjóra til Grenoble
Framhald af 3. síðu.
vel til varnar tannskemmdum.
Heildarkostnaður við flutning
vatns alla leið undan Eyjafjöll
um og út í Vestmannaeyjar er
áætlaður 103 millj., eða um
20 þúsund krónur á hvert
mannsbarn í Eyjum. Af þess-
um 103 milljónum fara 18
milljónir í byggingu dreifing
arkerfis.
Lóð undir einbýlishús
óskast til kaups í Stór - Reykjavík. Tilboð er
greini stærð og verð sendist Alþb. fyrir 15.
þ.m.
\
\
i'
(»
«>
«»
i»
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför Sigurðar Benediktssonar fram-
kvæmdastjóra, Fjólugötu 23.
Fyrir hönd okkar og annarra vandamanna.
Guðrún Sigurðardóttir og börnin.
sem veitir tilsögn í viðgerðum á smágang-
truflunum svo og almennri meðferð bílsins
verður haldið í Ökukennslunni s.f., Vestur-
götu3. *
Kynnizt bílnum yðar og verið fær um að fram
kværna smáviðgerðir, svo sem skipta um kerti.
platínur, viftureim, benzíndælu, háspennu-
kefli, þurrkublöð o. s. frv.
Upplýsingar í símum 19896, 21772 og 34590.
Volkswagen-eigendur
NÁMSKEIÐ