Alþýðublaðið - 09.11.1967, Side 1
Fimmtudagur 9. nóvember 1967 — 48. árg. 256. tbl. — Ver8 7. kr.
Hvert veröur
fromhald
Bjarg-málsins?
Meðferð bæjarfógetaembættis-
ins í Hafnarfirði á Bæjarmál-
inu svonefnda virðist nú vera
um það bil að ljúka. Rúmlega
10 viststúlkur hafa nú borið
vitni í málinu, sömuleiðis hef
ur starfsfólk á ríkisupptöku-
heimilinu í Kópavogi borið
vitni svo og annað fólk, sem
kunnugt er málum Bjargs. Þá
hafa starfskonur Bjargs verið
yfirheyrðar.
Blaðið hafði siðdegis í gær
samband við Einar Ingimundar
son, bæjarfógeta í Hafnarfirði
og spurðist fyrir um gang rann
sóknar Bjargsmálsins. Kvað
hann rannsókn bæjarfógeta-
embættisins í Hafnarfirði vera
um það bil að ljúka. Sagði hann
að málið yrði síðan sent til hlut
aðeigandi aðila fyrir eða um
helgina.
Eigi fékkst skýrt hverjir lilut-
aðeigandi aðilar væru. Frétta-
maður blaðsins spurði því,
hvort saksóknari væri sá að-
ili, em næst fengi málið til með
ferðar. Svaraði bæjarfógeti því H
til, að málið væri þannig vax- S
ið, að enginn hafi raunverulega g
verið kærður, þegar málið barst g
embættinu. Rannsókn hafi í H
upphafi verið bundin rannsókn 0
á hvarfi færeysku stúlkunar fs|
Marjun Gray, þó að fleira hafi
spunnist inn í rannsóknina síð
ar. Bæjarfógeti kvað rannsókn
arlögreglumenn í Hafnarfirði
hafa haft með höndum yfir-
heyrslur og rannsókn málsins.
Bæjarfógetinn kvað túlkun
dagblaðsins Tímans um yfir-
heyrslur á lögreglukonum í
Reyjavík vera villandi. Sagði
bæjarfógeti, að það væri ekki
venja að lögreglumenn taki
skýslur af öðru lögreglufólki.
Fréttamaður spurði þessu við
víkjandi, hverjir ættu að taka e
skýrslur af lögreglukonum í
Reykjavik, er kynnu að vera við
málið riðnar. Sagðist bæjarfó-
geti ekki geta svarað til um
það.
Framhald á 15. síð'u.
F.UJ. FERTUGT
í gær voru merk tímamót í sögu Félags ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík, er félagið hélt upp á 40 ára afmæli sitt.
Félagið var stofnað hinn 8. nóvember 1927.
í gærkvöldi var haldinn í tilefni afmælisins glæsilcgur há-
tiðarfundur í Átthagasal Hótel Sögu. Hátíðarfundurinn var
f jölsóttur bæði af gömlum félögum F.U.J. í Reykjavíkur og ung-
um starfandi félögum í dag.
Myndin sem texta þessum fylgir, tók Bjamleifur á fund-
inum í gærkvöldi.
Sagðist hann hafa byrjað saka-
dómsrannsókn í Búðardal á sunnu
dag og væri nú frumrannsókn
málsins lokið vestra. Sagði hann
málið hafa verið sent til yfirsak-
sóknara til framhaldsrannsóknar,
enda þyrfti málið einnig rann-
sóknar við í Reykjavík, þaðan sem
peningarnir hafi upphaflega ver-
ið sendir.
Blaðið hafði samband við Njörð
Framhald á 15. siðu.
Samninga-
fundur í aær
’í fyrradag komu til fu.idar full-
trúar Stýrimannafélags íslands,
Vélstjórafélags íslands og Félags
íslenzkra loftskeytamanna og full-
trúar Vinnuveitendasai.ibands ís-
lands til að fjalla um boóaða vinnU
stöðvun farmanna um næstu helgi
hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. Enginn árangur varð
af þessum fundi, en sa.nkomulág
varð um að vísa málinu til Sátta-
semjara ríkisins.
Alþýðublaðið fékk þær upplýk-'
ingar í gær að sáttasen.jari hefði
boðað til fundar með dtiluaðilum
klukkan 21 í gærkvöldi. Blaðið
hafði samband við Ingolf Stefáns
son hjá Farmanna- og íiskimanna
sambandi íslands síðcfegis í gær og
fékk staðfest það, sem áður grein
ir. Spurði fréttamaður bluðsins Ing
ólf, hvort hann teldi líkur á, að
samkomulag næðist á ooðuðum
fundi í gærkvöldi. Ingólfur svar
aði því, að meiri spám&nn þyrfti
til en hann til að segja fyrir um
það, hvort samkomulag næðist
á fundinum, en það væri afar ó-
líklegt.
67 þúsund krónur hurfu úr pen
ingasendingu frá banka í Reykja-
vík til bankaútibús í Búðardal í síð
ustu viku. Búnaðarbankinn í
Reykjavík sendi peningasendingu
til útibús síns í Búðardal síðast-
liðinn fimmtudag. Voru peningarn
ir afhentir Pósthúsinu í Reykja-
vik þann sama dag. Peningasend
ingin barst til Búðardals með á-
ætlunarbifreið Vestfjarða um há-
degisbilið á föstudag. Þegar pen-
ingasendingin var athuguð af fram
kvæmdarstjóra útibúsins í Búðar
dal, reyndist vanta 67 þúsund kr.
upp á þá upphæð, sem send hafði
verið frá Búnaðarbankanum í
Reykjavík daginn áður.
Framkvæmdarstjóri bankaúti-
búsins í Búðardal tilkynnti pen-
ingahvarfið til Ásgeirs Pétursson
ar sýslumanns Borgfirðinga á laug
ardag, en Ásgeir gegnir sýslu-
mannstörfum fyrir sýslumann
Dalasýslu í forföllum.
Peningasendingin var í skrá-
settum ábyrgðarpósti og var af-
hent Pósthúsinu í Reykjavík á
fimmtudag.
Alþýðublaðið átti viðtal við Ás-
geir Pétursson sýslumann viðvíkj
andi þessu máli í gær. Kvað hann
lítið hafa um málið að segja til
viðbótar því, sem þegar væri kom
ið. Hann staðfesti, að peningarn-
ir hafi verið afhentir pósthúsinu
á fimmtudag og að peningarnir
hafi borizt til Búðardals með á-
ætlunarbifreið Vestfjarðaleiða
rétt fyrir hádegi á föstudag.
Slæmt veiðiveður
Undanfarna sólarhringa hefur
veiðiveður verið siæmt á síldar-
^juVunlrn austur af landinu. í
fyrrinótt var komið gott veður,
en síldin stóð þá di’úpt og- erfitt
að ná til liennar. Veiðisvæðið var
á 63 gr. 40 mín. norður breiddar
og 9 er. 35 mín. vestur lengdar.
3 skip tdkynntu um afla í gær,
samtals 200 lestir: Kristján Val-
geir NS. 50 lestir, Sigurbjörg OF
50 og Ásberg RE. 100 lestir.
í gær var bræla á sílarmiðun
um á Jökuldjúpi og skip í land-
vari.
í skýrslu Fiskifélagsins um afla
síðustu viku segir að á sunnudag
og fram á mánudag liafi veður
verið æmilegt á miðunum eystra
og fengu mörg skip al'góða veiði
á svæði 90-120 sjómílur norður af
Færeyjum. Það sem eftir var vik
unnar var norðaustlæg átt ríkj-
andi, oftast 6-8 vindstig og ekk-
ert veiðiveður. Fóru því mörg
skip til veiða í Faxaflóa. í vikunni
bárust á land 9.164 lestir ti'
bræðslu, þar af var 20 lestum
landað í Færeyjum og 78 lestum
Framhald á 15. síðu.