Alþýðublaðið - 09.11.1967, Blaðsíða 4
tmm$)
Eltstjórl: Benedikt Gróndal. Stmar 14900—T4903. — Auglýsingastml:
14906. — Aðsetur: AlþýBuhúsið vlð Hverfisgötu, Evik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðslns. Sími 14905. — Askrlftargjald kr. 105.00. — i iaus>
eölu kr. 7.00 eintakiO. — Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn.
Ellilaunin
ALÞÝÐUFLOKKURINN hefur frá öndverðu barizt
fyrir viðunandi kerfi ellilauna. Flokkurinn hefur tal-
ið, að nútíma þójðfélagi bæri skylda til að sjá vel
fyrir því fólki, sem lagt hefur fram ævistarf sitt og
krafta í þágu heildarinnar.
Allmikill árangur hefur náðst í þessari baráttu í
tíð núverandi ríkisstjórnar. Hefur Alþýðuflokknum
tekizt að fá framgengt verulegri aukningu á ellilaun-
um, ekki sízt í upphafi viðreisnarinnar. Var þá kom-
ið á miklum hækkunum á þeim upphæðum, sem
gamla fólkið fékk til ráðstöfunar.
En kjaramáli sem þessu er aldrei lokið. Þarf að
standa vörð um afkomu gamla fólksins, þegar erfið'
lega blæs í þjóðfélaginu sem heild. Á þetta sannarlega
við nú, er miklir erfiðleikar herja efnahagslífið og
ollum stéttum þykir þunglega horfa um afkomu sína.
,Er rík nauðsyn að reyna að láta ekki það fólk, sem
hyggir afkomu sína á ellilaunum, verða fyrir barð-
inu á þeim vandræðum, sem við er að etja.
I þessum efnum er því miður ekki góðra kosta vöi.
þegar fjárhagur ríkissjóðs er eins erfiður og hann er
á þessu hausti. Samt sem áður er rétt að hugsa til elli-
og örorkulauna og minnast þess fólks, sem við þau
verður að búa.
Um þessar mundir hafa orðið miklar breytingar á
ellitryggingum hinna Norðurlandanna. Þar hefur ver
ið tekin upp viðbótartrygging, serrr byggð er á launa*
Ljörum hvers og eins og beztu starfsárum æivinnar.
Éllilaunin eru hin sömu fyrir alla, viðbótartrygging-
ia er mismunandi, enda mismunandi mikið fyrir hana
greitt. Markmiðið er að tryggja hverjum og einum á-
líká lífskjör í ellinni og á starfsárum.
Þetta nýja kerfi er að sjálfsögðu stórbrotin trygg-
iagastarfsemi, þar sem miklir fjármunir eru hafðir
um hönd. Safnast gildir sjóðir, sem kerfið byggist á,
og hefur það orðið að stórpólitísku deiluefni, hvernig
raeð þá skuli farið. Hér á landi er ekki að því komið
erm, er.da málið allt á frumstigi. Kann svo að fara að.
eí'nahagslegir erfiðleikar verði til að fresta fram-
kværnd þessa stórmáls. Hitt er þó augljóst, að þar
getur aðeins verið um frestun áð ræða — kerfið hlýt-
ur að koma.
Þetta mál mun gerbreyta hlutskipti aldraðra í
framtíðinni og fjarlægja allar áhyggjur vegna elliár-
•anna. Er þetta eitt mesta réttlætismál, sem Alþýðu-
•flokkurinn hefur barizt fyrir, enda mun flokkurinn
ekki gefast upp, fyrr en það er komið í örugga höfn.
£ 9. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ'
HVER VAR AÐ TALA UM LEVTS STA PBEST HEFUR <
VARANLEG BUXNABROT? VARANLEG BUXNABROT
SPYRJIÐ EFTIR LEUI'S STA-PREST BUXUM.
FYRIRLIGGANDI í ÖLLUM STÆRÐUM OG FJÖLBREYTTU LITAVALI,
LEVIS STRAUSS. UPPHAFSMENN NÝTÍZKU VINNUFATNAÐAR.
EINKAUMBOOSALl FYRIR LEVIS STRAUSS &CO.
' VONNOJIFATAaBŒIR© 0§HAMID§ %
HAFNARFJORÐUR
HAFNARF J ÖRÐUR
SPILAKVÖLD
Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði verður í Alþýðuhúsinu í kvöld
fimmtudagskvöld 9. nóv. kl. 8.30 stundvíslega.
★ Félagsvist. ★ Kaffiveitingar.
★ Ávarp. Þórður Þórðarson formaður Alþýðufl.félags Hafnar-
fjarðar.
★ DANS.
Munið vinsælu spilakvöldin í Alþýðu-
húsinu,
Spilað á tveimur hæðum.
Pantið aðgöngumiða í
SÍMA 50499.
Öllum er heimill aðgangur.
SPILANEFNDIN.