Alþýðublaðið - 23.11.1967, Side 13

Alþýðublaðið - 23.11.1967, Side 13
Sjérænlngi á sjö höfum Hörkuspennandi sjóræningja- mynd í litum og Cinema-scope. Gerald Barry. Antonella Luaodl. íslenzkur texti. Sýnd kl. 7 og 9. BÍLAKAUF 15812 — 23900 Höfum kaupendur «8 flest- um tegundum ogr árgerðum af nýlegum blfrelSnm. Vinsamlegast látlð skri bli- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 53 y!8 Rauðart Símar 15812 - 23901. Rafvirkjar Fotoselluofnar, Rakvélatenglar, Mótorrofar. Höfuðrofar, Rofar, Tenglar. Varahús, Varatappar. Sjálfvirk rör, Vír, Kapall, margar gerðir. Lampar í baðherbergl, ganga, geymslur, Handlampar Vegg-, loft og lampafalir inntaksrör, járnrör, 1“ ÍW m“ og 2“. Einangrunarband, margir litir og önnur smávara. — Allt á einum staS. Rafmagnsvörubúðin sf. Suðurlandsbraut 12. Simi 81670. — Næg bílastæði. — Úrslitaleikurinn var háður á E1 Morocco, en þar var Luz svo viðbjóðslegur, að Helen flýði grátandi — í faðminn á Henry Middleton Yates. Það er Henry Middleton Yat- es viðkom var leiknum lokið. Því miður lék Vietor Luz sitt hlutverk eftir eigin handriti. ÞRIÐJI KAFLI. Morguninn eftir hneykslið í næturklúbbnum var Richard E. Troy að drekka kaffið sitt, þegar Effie yngri, dóttir hans, kom inn og sagði óvenjulega æst: Victor Luz bíður í bókalierberg- inu. Hann vill tala við þig. — Náunginn sá, sagði lir. Troy og yggldi sig. — Hvað vill hann? — Ég veit það ekki, pabbi, sagði Effie. — En hann er ó- venjulega stífur og stirðbusa- legur. Kannske ætlar hann að biðja þig afsökunar á því sem gerðist í gær. — Ég ætti víst að lemja hann, sagði faðir hennar. — Hvar er Helen? — Hún vill ekki hitta hann. Svo er hún úti í garði meö Hen ry Yates. Ég er viss um að Henry myndi lemja hann ! — Ég get séð um vandamál barnanna minna sjálfur, sagði hr. Troy, þó hið gagnstæða virt- ist rétt. Hann gekk beint inn í bókaherbergið. Victor Luz sat á stólbríkinni, stórar hendur hans héldu um svínsleðurshanzka og hann var með harðan hatt á höfðinu. Hann var hvítur í framan. Hann reis strax á fætur. — Heyrið þér mig nú, sagði hr. Troy og yggldi sig ennþá meira. — Afsakið hr. Troy, sagði Luz, — en ég kom hingað af tveimur ástæðum. Mig langar til að varpa mér fyrir fætur dóttur yðar og biðja hana afsök- unar á því, að ég skyldi haga mér svona gagnvart henni í gær. En hún vill ekki hitta mig og því verð ég að biðja yður að veita afsökunarbeiðni minni móttöku. — Nú, ó, já-já, ég skil, sagði hr. Troy. — Hin ástæðan er sú að mig langar til að biðja um hönd dóttur yðar, sagði Victor Luz. Ég er yfirmig ástfanginn af Hel- en, hr. Troy. Ég get ekki. .. — Lifað án hennar. — Já, já, andvarpaði hr. Troy. Furðu- legt, hve margir ykkar iifa það samt af. Hr. Luz, ég vil aðeins að dætur mínar verði hamingju- samar. Ef Helen álítur að þér getið gert hana liamingjusama, skiptir engu máli, hvaða álit ég hef. Farið og spyrjið hana. — Þér eruð mikilmenni! hrópaði Luz hamingjusamur. — Alls ekki, sagði Troy bros- andi. — Ég er aðeins að vísa málinu frá mér tii hæfari aðila. En Luz virtist ekki lieyra til hans. — Ég hef talað við hana um fegurð hennar, um það, hve mjög ég elskaði hana, en ,hjóna- band.’ .... Hvernig gat hún mis- skilið mig? Ég ætla að biðja hennar núna! En á þessari stundu opnuðust ^1111111111111111111111111 II111111111111111111111111111111IIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIUIIIII lllll•llll•llllll•llllllllll««llllllll•lllll■lllllll•llllll Vonsvikni BIÐILLINN 2 eftir Ellery Oueen iiiiiiiiiiiniiiit^ dyrnar að bókaherberginu og Helena hin fagra kom inn. Hen- ry Middleton Yales var á hælurn hennar og að baki hans sást í Effie, sem titraði öll. Luz deplaði augunum eins og hann hefði fengið ofbirtu í þau. Hann gekk til hennar, greip um hönd hennar og sagði: — Ég verð að tala við þig, Helen. Helen hló, dró höndina til sín og þurrkaði vandlega af henni með vasaklútnum sínum. Svo gekk hún til föður síns og sagði við hann: — Pabbi Henry þarf að tala við þig. — Henry! sagði hr. Troy. — Nú, já, já', já. — Ég bað Helen um að verða konan min, sagði Ilenry Middle- ton Yates, — og hún játaðist mér. Er það Ó.K.? Hr. Troy virtist ringlaður. Það heyrðist vein úr óvæntri átt, frá dóttur hans, Effie. Eftir þá stunu varð Effie enn þögulli og lítilsigldari, en nokkru sinni fyrr, hún hljóp út eins og ljón væri á hælum hennar. Helen virtist hugsandi og Henry Yates undrandi. Þetta var of mikið fyrir hr. Troy sérstaklega vegna þess að augnabliki síðar var Henry Yat- es liggjandi á bakinu á gólfinu og virtist leika mann sem berst fyrir lífi sínu. Victor Luz hafði hent honum til jarðar og nú hélt Luz með sínum stóru höndum um hálsinn á Henry og lamdi höfði hans við stein- gólfið. Hr. Troy heyrði að Helen ✓ dóttir hans veinaði. — Lúsablési! öskraði Luz og var nú orðinn, eldrauður í fram- an. — Þú færð hana aldrei! Ég drep hann íyrst. Henry reyndi að veina, en Helen lamdi i hausinn á Luz með regnlilífarskafti. Hr. Troy fann að hann varð sterkur af reiði. Hann hafði alltaf trúað á bræðralag mannanna og hann hafði stutt Sameinuðu þjóðirn- ar af öllu hjarta, en þetta ..! Og hr. Troy gerði svo ákafa tilraun til að kyrkja Vietor Luz, að Luz, sem var milli tveggja elda — kverkataksins og regn- hlífarhögganna — neyddist til að sleppa takinu á vesalings Henry Yates og hann datt á gólf- ið hvítur og magnlaus. Helen kráup á kné við lilið unnusta síns og faðmaði liann að sér. Luz reis á fætur og fálmaði eftir regnhlífinni sinni. Hann leit ekki á þau. — Ég sagðist ætla að drepa hana, sagði hann við engan sér- stakan, — og ég geri það, ef hún giftist Yates. FJÓRÐI KAFLI. — En það var ekki allt, hr. Queen, sagði hr. Troy mánuði síðar. — Þegar tengdasonur minn tilvonandi komst á fætur, lamdi hann náungann niður og maður hefði haldið að það væru endalokin á þessu máli. En því fór fjarri. — Fleiri ógnanir? spurði EIl- ery. — Eða réðst hann á dóttur yðar? — Nei, nei, allt breyttist við þetta. Ég skil ekki þetta unga fólk í dag, sagði hr. Troy og snýtti sér. — Á minni tíð hefði hann verið flengdur eða honum stungið í fangelsi, sama live mikið hann skreið — afsakið ungfrú Porter — en ég er eyði- lagður maður. — Við fylgjumst víst ekki rétt vel með, hr. Troy, sagði Nikki kurteislega. — Luz var ekki fyrr búinn að jafna sig eftir högg Henrys en hann gjörbreyttist. Hann skreið og hann mjálmaði og hann néri sér upp við lappirnar á honum. Hann baðst afsökunar á hnján- um. Ég blátt áfram fór hjá mér. Næsta dag sendi hann Helen körfu af brönugrösum og spjald: ,;Inniiegustu hamingjuóskir, vin- ur þinn, Victor Luz”. Hann kæm ist ekki langt í gjafarkorstabras- anum! Svo sendi hann Henry Yat es kassa af sextíu og fimm ára gömlu koníaki og árangurinn varð sá að innan viku hefði Hel en fyrirgefið honum og Henry sagði að hann væri bara ágætur. — Og eftir tvær vikur? spurði Ellery. — Mér skilst að það hafi ekki verið þar með búið. — Svo sannarlega ekki, sagði hr. Yates hneykslaður. — Eftir tvær vikur var Helen búin að bjóða honum í brúðkaupið, því að Luz hélt stórveizlu, þar sem Helen og Henry voru heiðurs- gestirnir og mér skildist að ná- unginn hafi ekki gcrt annað allt kvöldið en drekka þeirra skál í kampavíni. — En indælt, sagði Nikki. — Ég held, Nikki, sagði Ellery — að hr. Troy álíti að það sé maðkur í mysunni. - Ég er ekki á móti því að menn bæti fyrir syndir sínar og sé þar með fyrirgefið, sagði hr. Troy - og ég segi þetta ekki vegna þess að náunginn er Evrópumað ur - sumir beztu vina minna eru þaðan - en þessum náunga er langt frá því treystandi. Hann er jafnvel hættulegur og hann væri ekta Ameríkani. Ég er mann þekkjari og ég horfði framan í hann þegar hann heyrði HARÐVIÐAR ÚTIHURÐIB TRÉSMIÐJA Þ. SKOLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 Thames-Trader'64 þriggja tonna með ábyggðri loftpressu til sölu. Gaffaltyftarj Coventry Cly- max, árgerð ’60. Lítið not- aður. Við seljum tækin. Bíla- og Búvélasalan v. Miklatorg, sími 23136. 23. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.