Alþýðublaðið - 24.11.1967, Síða 9
"íVorst í Vestur-þýzkalandi
hús utan Þýzkalands, þar á me3
al 75 trúboðsstöðvar, og all'r
eru þessir aðilar 1 hinum svo_
nefndu vanþróuðu löndum.
Samtökunum berast mánaða.r-
lega 220-250 vættir alls konar
lyfja, og má segja að um 25
myndarlegar sendingar komi á
degi hverjum. Þetta eru pillur,
töflur, skammtar og belgir, er
berast úr hinum óþrjótandi sýn
ishornasendingum, sem lyfja.
verksmiðjur senda læknum og
sjúkrahúsum til kynningar á
framleiðslíi sinni. Um 70% af
heildarmagninu, sem menn viða
að sér í Vorst, eru fengin með
aðstoð fólks, sem bundizt hef
ir samtökum, sem það kallar
„action 365“, en það aflar sýn
ishornanna hjá læknum og
lyfjaverzlunum, en 10-12% eru
gjöf frá lyfjaverksmiðjum
beint. Þegar sendingar berast
til Vorst, eru þær teknar til
flokkunar og athugunar, og er
það starf unnið af 25 hús-
mæðrum og ellistyrkjum fyrir
lág laun, en um 40% allra send
inga, sem að berast, teljast ó-
nothæfar af ýmsum sökum. í
sumum tilfellum er endingar_
tími viðkomandi lyfja útrunnin
eða lyfið þolir ekki hitabeltis-
hita, þá hafa umbúðir skemmzt
á sumum og innihaldið orðið
fyrir tjóni.
En „action medeor" sendir
frá sér fleira en það eitt, sern
þannig safnast. Samtökin nota
það fé, sem þeim berst, til að
kaupa ýmis konar lyf, einkum
ýmis sérlyf til notkunar við
hitabeltissjúkdómum. Eru aðal
efnin keypt í heildsölu, en sér
stakt fyrirtæki sér um að gera
úr þeim pillur eða belgi, eftir
því sem hentugast er eða nauð
synlegt. Meðal þeirra lyfja, sem
þar er um að ræða, eru ýmis,
sem notuð eru við holdsveiki
og mýraköldu, en auk þess eru
töflur gegn inflúensu, bandorm-
um og berklum. Sending á
„medeor“lyfjum fer fram sam-
kvæmt tilmælum lækna og
’sjúkrahúsa, sem hafa þörf fyr
ir slíkt en ekki fé til greiðslu.
Hins vegar verða viðtakendur
að standa undir sendingarkostn
aði. Meðal þeirra landa, sem
fá að staSaldri lyífjasendingar
frá samtökunum, eru Nýja- Gí-
nea, Brazilía, Kongó, Suður-
Afríka, Ghana, Tanzania og
Hong Kong.
Byrjunin á þessu mikla líkn
arstarfi var fólgin í bréfi, sem
barst á sínum tíma frá sjúkra
skýli í bænurn Levobela á
eynni Plores, sem er í Indónes
íu. Þar sagði meðal annars
svo: „Við erum sannarlega
þreytandi. Þar komum við með
beiðni um lyf. Allt er uppurið.
Við eigum ekki fleiri vítamin
sprautur, enga augndropa,
hósta- eða kveftöflur, súlfóna.
mídefni, plástur, berklatöflur,
skyrbjúgsáburð, lyf við mýra-
köldu . . “.
Dr. Bökels fékk þetta bréf
í hendur, og þar með var
„action medeor" tekin til starfa.
Nú er svo komið, að 120-130
bréf berast í hver.ium mánuði
og er svarað. Þann 8. ágúst síð
astliðinn barst til dæmis eftir
farandi frá Púsan í Suður-Kór
eu: „Þótt ég geti sagt, að ég
sé ekki tilfinningamaður, gnt
ég ekki annað en komizt við,
þegar ég opnaði böggulinn frá
ykkur. Ég grét af gleði og fcg
inleik. Það er svo algengt, sað
við útfyllum umsóknareyðublöð
til að reyna að verða fátæklini*
um í Pusan að liði, en þarna
barst sendingin frá ykkur án
þess að um væri beðið. Og
þar sem þetta hefir allt ver-
ið flokkað og því, sem ónothæft
er hefir þegar verið fleygt, gat
ég afhent þetta strax til notk
unar. Hjúkrunarkonan varð
mjög glöð. Ef þið hefðuð bara
getað séð, hvernig augu henna”
liómuðu, þegar hún kom öll’i
fyrir á réttum stað, munduð
þið telja það ríkuleg laun fvr
ir hjálp ykkar. Þeir fátækling
ar, sem hafa ekki efni á að afja
sér evrópskra lyfja, geta nú
fengið þau, og gleði þeirra
mun verða takmarkalaus. í
Pusan er fátt efnamanna, og
þeir mundu fúslega greiða mik
ið fé fyrir ýmis þeirra lyfja,
sem við höfum eignazt með
Framhald á 15. síðu.
RS EIGA BAKARAR AÐ
LDA I ÞESSU Landi?
í næturvinnutíminn notaður til
5 brauðgerðar, en slíkt kippir eðli
. legum rekstrargrundvelli frá
skráðu brauðverði. Framleiðsla
á brauðum er fyrirferðarmikil og
krefst dýrra véla, stórra ofna og
útheimtir mikið rafmagn auk
fagmanna — eðlisfyrirferð
í brauða 6r mikil miðuð við verð
iþeirra og annarra matvara og
i umbúðakostnaður í algjöru há-
. marki. Ofan á þetta bætist svo
5 krafan um daglega nýbökuð
brauð, sem liefur í för með sér
' afföll vinnu og efnis í stærri
5 mælikvarðla en ann,arra mat-
5 væla.
í háþróuðum iðnaðarlöndum
- ; eru vikulaun iðnaðarmanna tek-
r in til grundvallar í verðútreikn
i ingi brauða. í löndum, þar sem
vikukaup iðnaðarmanna eru kr.
lv 2.990,00 (ísl. kr.J, er franskbraúð
kr. 13,00—15,00 pr. stk. eftir
gæðainnihaldi — en sérstakur
bakstur er með ýmsum verðum.
Hér á íslandi eru franskbrauðin
á kr. 9,40 pr. stk. og vikulaun
frá 3.000,00—4.000,00 pr. viku,
svo ekki séu nefnd uppmælingar
laun iðnaðarmanna. Með þenn;
an samanburð í huga er íslenzk-
um bökurum gert allt áð 40%
erfiðara fyrir með rekstur og
víðhald á brauðgerðum sínúm
heldur en bökurúm í nágranna-
löndum okkar.
Brauðgerðirnar eru m. a. h^ð
ar kröfum tveggja afla þ. e.
Verðlagsskrifstofunriar annars
vegár og borgarlæknisembætt-
isins hins Vegar. — Fyrri aðil-
inn pressár riiður sém riíinnstán
ágóða', en Liinn aðilinri Veitir pð
hald brauðgerðum, sem þýðir jút
gjöíd. Báðar þessar stofnanir
eru góðra gjalda verðar, næðu
þær samstöðu um útgjöld er lúta
að viðhaldi og nýbyggingu og
færðú þær inn í brauðverðið á-
samt nauðsynlegum rekstrarút-
gjöldum, •— Það verður að telj-
ast heppni að eftirlitsménn borg
arlæknis hafa að öllu jöfnu
reynzt sanngjarnir í mati sínu.
Réttlæting á brauðverði þolir
enga bið. Bakarar þessa lands
bafa staðið af sér skipúlagðá
niðúrlægirigu yfirváidanna með
hömlulaúsum irtnflutriingi bak-
aðrár vöru frá öðrum löndúm og
ósanngjörnum • ákvæðum um
vorðlag á brauðum. ;,i
• .Látum morgupstund gefa.,ön-
um stéttum. þessa lands gull í
mund.
Réykjavík 21. nóv. 1967.
Hermann Bridde.
Sendisveinn
Stúlka eða piltur óskast nú þegar til sendi-
ferða hálfan eða allan daginn. Upplýsingar
veittar á skrifstofu vorri Drápuhlíð 14.
HITAVEITA REYKJAVÍKUR.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í hreinlætistæki í hús Öryrkja-
bandalags íslands, Hátún 10 Reykjavík.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu bandalags-
ins, Bræðraborgarstíg 9.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 18. desenr
ber 1967 kl. 10,30 f. h.
Öryrkjabandalag íslands.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eldhústæki í hús Öryrkjabanda
lags íslands, Hátún 10, Reykjavík.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu bandalags-
ins, Bræðraborgarstíg 9.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 18. desem-
ber 1967 kl. 11 f. h.
Öryrkjabandalag íslands.
Yfirljósmóðursfaða
Staða yfirljósmóður við Fæðingardeild Land-
spítalans er laus til umsóknar. Laun samkv.
18. flokki Kjaradóms. Staðan veitist frá 1.
marz 1968. Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, námsferil og fyrri störf sendist til
stjómarnefndar ríkisspítalanna, Klapparstíg
29, fyrir 1. febrúar 1968.
Reykjavík, 22. nóvember 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Auglýsing varðandi gin- og
klaufaveiki
Vegna þess að gin- og klaufaveiki hefur náð
mikilli útbreiðslu á Stóra Bretlandi er sam-
kvæmt heimild í lögum nr. 11/1928 um varnir
gegn gin- og klaufaveiki bannaður innflutning
ur á fóðurvörum þaðan.
Ennfremur er fyrst um sinn lagt bann við því
að nota matarleifar og sláturafurðir hvers kon
ar til gripafóðurs, sbr. lög nr. 124/1947.
Brot gegn banni þessu varðar sektum.
Landbúnaðarráðuneytið, 22. nóv. 1967.
Áskriftasími Alþýðublaðsins er 14900
M. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ §