Alþýðublaðið - 24.11.1967, Qupperneq 14
Japanskur Kæknir telur sig hafa fundið ráð til að lækna þvínær alla sjúkdóma
sem hrjáð geta mannkynið.
DR. HARA heldur um handfangið
sem setur tækið í gang og hieður
sjúklinga hans með háspenntu
stöðurafmagni.
ÞAÐ er íburðarmikil sjón að sjá
sjúkling í „hásæti heilbrigðinnar".
Þessi maður heitir Ryoichi Sas-
agawa. Hann þjáðist af alvarleg-
um lifrarsjúkdómi, en telur sig
miklu betri síðan hann fór að
ganga til dr. Hara og láta „hlaða"
sig.
MARGVÍSLEG ráð hafa ver-
ið fundin gegn hinum ýmsu
sjúkdómum sem herja á hrjáð
mannanna börn, og hversu
fjarstæðukennd sem sum þeirra
kunna að virðast eru alltaf
einhverjir sem telja sig hafa
fengið bót meina sinna með
þeim. Jurtaseyði, heilsudrykk.
ir af öllu tagi, segularmbönd,
hljóðbylgjur, handaálagning,
helgir brunnar og heilagar lind
ir... og nú síðast „hásæti heil-
brigðinnar".
Dr. Toshiuki Hara er jap_
anskur læknir sem hefur fund
ið upp þetta galdratæki er liann
telur geta læknað alla sjúk-
dóma. Það eru rafmþgnaðir
stólar og pallar sem hann læt-
SJÖ sjúklingar bíða þess að fá
smávægilega „hleðslu" sem undir-
búning sjálfs „hásætis heilbrigð-
iíinar". Þeir verða að fara úr skón
um á meðan, svo að sambandið
náist fyllilega.
>
sjúklingana sitja á, og aðferð-
ina nefnir hann „að setjast i
hásætí heilbrigðinnar“.
Um það bil áttatíu sjúkling
ar láta „hlaða“ sig á hverjum
degi og segjast finna greini.
leg batamerki, sumir telja sig
albata orðna.
Það var árið 1925 sem dr.
Hara fékk fyrst þessa hugmynd.
Hann var þá að lesa læknis-
fræði við háskólann í Naga-
saki og rakst á grein í þýzku
læknatímariti þar sem sagt var
frá einkennilegri uppgötvun: að
fólk sem býr undir háspennu
leiðslum er hér um bil alltaf
stálhraust og kennir sér einsk
is meins. í greininni var ekki
reynt að skýra fyrirbrigðið nán
ar, en ungi japanski stúdent
inn komst strax að þeirri niður
stöðú, að það hlyti að stafa
af því, að þetta fólk lifði mik V
inn hluta ævi sinnar á svæði
þar sem óvenju mikið stöðuraf
magn væri að finna.
Hann ákvað að gera tilraunir
og rannsaka hvaða áhrif há-
spennt stöðurafmagn hefðj á
mannslíkamann. í því augna-
miði vann hann þrjú ár að
smíði tækis sem gat hlaðið lík
ama manns upp í milljón volta
stöðurafmagn. Affalerfiðleilfc'arn
ir voru í því fólgnir að sanna
kenninguna, því að enginn lif-
andi maður þorði að lááta
lileypa svona sterkum straumi
gegnum líkama sinn. Dr. Hara
sannaði með tilraunum á dýr_
um, að straumurinn gat ekki
skaðað neinn, en fólk daufheyrð
ist við skýringum hans. Raf-
magn er nú einu sinni raf-
magn, og því fleiri volt, þeim
mun hættulegra er það —. eða
svo héldu menn.
Á endanum tókst dr. Hara
að finna manneskju sem ekki
var hrædd. Það var móðir
hans, heilsutæp gömul kona.
Hún varð fyrst til að setjast
í „hásæti heilbrigðinnar“ og
láta hlaða sig. Það tók aðeins
fáeinar sekúndur, en toún full-
yrti, að sér liði strax betur.3*
Þegar hún hafði fengið hleðsl
ur I viðbót sagðist hún vera
orðin fullfrísk.
Og dr. Hara hóf tilraunir
með fleiri. Árið 1960 taldi hann
sig hafa sannprófað kenningu
sína, og þá skrifaði hann dokt-
orsritgerð um þessa nýju lækn
isaðferð. Hann fékk leyfi t’l
að taka sjúklinga til meðferð
ar á Hakuju-spítalanum í Tó-
GJAFABREF
PRÁ SUNDLAUQARSJÓBI
SKÁLATÚNSHBIMILKIPID
kíó. Og nú kom áttatíu manns
á dag til að láta hlaða sig.
Hvort aðferð dr. Hara á eft-
ir að ná útbreiðslu um heim-
inn, er ekki gott að segja, en
hún virðist að minnsta kosti
ekki gera neinum illt, og marg
ir fullyrða, að þeir hafi hlot-
ið fulla bót meina sinna með
því að setjast í „hásæti heil_
brigðinnar".
HTTA BRÉF ER KVITTUN, EN >6 MIKIU
FREMUR VIÐURKENNING FYRIR STUDN-
ING VIÐ GOTT MÁLEFHI.
BMUAVlK, P. 19.
AUGLÝSIÐ
í Alþýðublaðinu
HARDVIÐAR
UTIHURDIR
TRÉSMIÐJA |
Þ. SKOLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
n
HÁSÆTI HEILBRIGDINNAR"
24. nóvember 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ