Alþýðublaðið - 30.11.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 30.11.1967, Blaðsíða 4
 I Eltsjtjórl: Benedlkt Grðndal. Slmar 14900—14903. — Auglýslngaslml: 149Ó6. — ASsetur: AlþýOuhúsIB vlð Hverfisgötu, RvSc. — PrentsmiSja AlþySublaSsins. Slml 14905. — Askriftargjald kr. 105.00. — t lausa* sölu kr. 7.00 elntakiO. — Útgefandl: AlþýOuflokkurlnn. Kosningar og gengislækkun i FORYSTUMENN stjórnarandstöðunnar fluttu til- lögu um vantraust á ríkisstjórnina og kröfðust þess, að um hana yrðu útvarpsumræður tvö kvöld. Þeir riðu ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Eftir um- l’æðurnar er ríkisstjórnin sýnu fastari í sessi en áð- ur og skilningur almennings á afstöðu hennar án efa meiri. Hér fara á eftir nokkur þeirra meginatriða, sem fram komu í ræðum Alþýðuflokksmanna: Bragi Sigurjónsson sýndi mjög greinilega fram á, ;að s|jórnarflokkarnir hefðu löngu íyrir kosningar Ivarað þjóðina við þeim hættum og erfiðleikum, sem lian’iindan væru í efnahagsmálum. Hann færði j.sterk rök að því, að almenningur hefði verið með á jnótunum um efnahagsmálin, og kenningar stjórnar pndstöðunnar um blekkingar og kosningavíxla séu jfjarstæða. Þetta var þó meginástæða Eysteins Jóns- jsonar fyrir vantraustinu. \ Gylfi Þ. Gíslason sýndi fram á, að framsóknar- Imenn og kommúnistaforingjarnir í Alþýðubandalag- iinu hafi ætlað sér að ganga framhjá úrslitum kosn- inganna, en nota erfiðleika og verkföll til að komast í ríkisstjórn: Þeir vildu mynda fjögurra flokka stjórn, ;þannig að samið væri um ráðherrasióla, en ekki um jmálefni. Úiræði sín ætluðu þeir ekki að nefna, fvrr jen þeir væru komnir í stjórn. j \ Gylfi sýndi ennfíemur fram á, að framsóknar- menn hefðu alltaf vcrið fylgjandi gengislækkunum, þegar þeir hefðu verið í stjórn. Gylfi sagði: „Vita í raun og veru ekki allir, sem þekkja dálítið til Fram- sóknarflokksins, að það hefði verið lítill vandi að fá hann til að samþykkja gengislækkunina? Líklega hefði einn ráðherrastóll dugað. Enginn vafi er á, að tveir hefðu verið fullnægjandi.“ , Þetta er harður dómur um Framsóknarflokkinn, en allir þeir, sem eitthvað þekkja til íslenzkra stjórn Inála, viía að harm er réttur. Og Gylfi sagði ennfrem ur, að stiórnarflokkarnir hefðu ekki séð ástæðu til að greiða það verð fyrir stuðning Framsóknarflokks , ins, sem hann setti upp. í lok ræðu sinnar sagði Gylfi, að ríkisstjórnin «íi ’fli leitast við að hafa sem nánast samband við 'stjórn Alþýðusambands íslands og annarra heildar- sa-mtnka atvinnuveganna til þess að gera þær byrð rar, sPm gengislækkúnin mun leggja á um si'nn, sem .Iéttbærastar. Hann kvað stjórnina einnig fúsa til að .ræða þers’- mál við' stjórnarandjstöðuflokkana, en sTík samvinná megi ekki byggjast á hrossakaupum, .heldur á sameiginlegum skilningi á vandamálununi og vi' j: til að leysa þau. 4 30. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ FdSraðir og ófóðraðir VINNUKLOSSAR KARLMANNA Hagstætt verð. Skóhúð Austurbæjar LAUGAVEGI 100. Loðfóðraðir KULDASKÓR KARLMANNA háir og lágir — Skóbúð Austurbæjar LAUGAVEGI 100. Ódýr skéfatna ður fyrir kvenfólk — karlmenn og börn. Skóbúð Austurbæjar Skódeildin, Kjörgarði LAUGAVEGI 100. LAUGAVEGI 59 f Austurstræti 18, ★ ENN UM VERÐLAGIÐ Húsmóðir í Austurbænum kom að máii við okkur út af verðinu á dönsku eplunum, sem minnzt var á hérna á dögunum, og staðfesti það sem við reyndar þóttumst vita, að það væri mjög mismun- andi í bænum. En hún gat líka um fleiri vörur, sem væru seldar á ólíku verði eftir vcrzlunum. T.d. segir hún, að högginn sykur hcfði vérið aug- lýstur í Kron í tíu kg. kössum á 5 krónur kílóið og fengizt þar síðustu dagáiia fyrir gengisfelling- una, en þá hefði liann kostað kr. 13,50 kílóið í þeirri búð, sem hún skipti aðállega við. Ef til vill hefur þetta ekki verið alveg samskonar sykúr. en verðmunurinn er líka mikill. Þá er líka vitað, að verð á eggjum er ákafléga mismunandi eða allt frá kr. 75.00 og upp í kr. 100.00 hvert kg. og svona mætti lengi telja. ★ SNJÓTITTLINGARNIR SPÁ IÍÖRÐUM VETRÍ Ég sá ékki betur en snjótittlingarnir væru lcomnir hérna í garðinn íyrir utan gluggann hjá mér i gær. Það er óvenjulegL að sjá þá svona snemma á ferð í baínum ög einhvertímann hefði líklega verið sagt, að þeir spáðu hörðum vetri. Ég veit ekki, hvað veðurfræðingarnir okkar segja urn! það. kannski eru þetta bara gamlar kellingabækur. En hvað sem. því líður, þá ættum við að minnast þessara smávöxnu kunningja okkar, þegar harðn- ar á dalnum og erfitt fer að verða fyrir þá um fæðu' öflun úti í náttúrunni. Þá leita þeir gjarna til húsa og mannabústaða í von um eitthvað til að seðja svangan maga. Það væri kannski ekki úr vegi að bcnda á, að sólskríkjufóðrið svokallaða fæst í næstu taúð. :i Alltaf kemur mér Þorsteinn Erlingsson í hug þegar minnzt er á sólskríkjuna og aðra smáfugla, sem leita' heim til okkar á veturna, enda hafa dýr og fuglar líklega átt fáa skeleggari og áhrifameiri málsvara en hann og Jónas Hallgrímsson. A. m. k. hafa ekki aðrir kveðið af meiri. skilningi og nær- færni um þeirra hag en þessi tvö öndvegisskáld þjóðarinnar. Ef til vill væri ekki úr vegi, að láta eftirfarandi hendingar úr kvæðinu Vetur eftír Þoý stein fylgja þessum línum, þær eiga ennþá erindi til allra' góðra ísléndinga: Hann leitar því að líkn í nauð/ að létta þráutum sínum,/ og þú átt, vin- úr, ærinn auð/ í öllum jötum þínum,/ ef mylsnu- sáld og salla þann/ þú seðja fuglinn lætur,/ þá gleymir sínu hungri hann/ og hörmurig kaldra næt ur. — Steinn. ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.