Alþýðublaðið - 01.12.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Page 7
JÓIablað Alþýðublaðsins — 1967 7 HAHISKIPTI . . . Framhald af 3. síða. aði um gólfið eins og æstur köttur. Nýr, athyglisverður eig- inleiki: en hann var ekki til þæginda fyrir mig við að klæða mig. Loks komst. ég þó í fötin og stóð uppgefinn með halann í hægri buxnaskálm, þar sem hann kipptist til öðru hvoru svo buxurnar bunguðu út. Það leit út eins og ég væri með kanínu falda í buxunum. Ég var án efa yfirmáta hlægilegur, en ég hafði engan tíma til að hugsa um slíkt. Ég dreif mig út til starfa. 2. i Ég vann hjá Caeglevich um þær mundir. Flestir vita hver það er: eigandi fyrirtækisins „Caeglevich & Co.” Þetta fyrir- tæki framleiddi alls konar snyrtivörur og eigandinn var einn af auðugustu mönnum landsins. Þar voru búin til púð- ur og varalitir, hormónakrem og ~ handáburður; ilmvötn og sápa, sólarolía og hreinsunar- krem. Það var löngu viður- kennt, að aliir sem eitthvað vildu láta að sér kveða, urðu að líkjast Caeglevich-fyrirmynd- inni. Auglýsingaslagorð fyrir- tækisins var: Fögur? Já, ef þ é r v i 1 j i ð — og flestir markaðskönnuðir álitu, að Ca- eglevich gæti þakkað þessu slag- orði velgengni sína að .miklu leyti. Alls staðar blasti boðskap- urinn við; á auglýsingaspjöld- um, kvikmyndatjöldum og sjón- varpsskermum; í öllum viku- blöðum voru hinar gríðarstóru auglýsingar Caegleviehs; stjórn- málamenn notuðu töfraorðin í ræðum sínum, vísnasöngvarar bættu þeim inn í viðlög sín sem eins og menn 'vita er sjaldgæfur hápunktur á framabraut auglýs- ingaslagorðs. Eigandi fyrirtækisins, herra Caeglevich, lét sér þó á sama standa um hina ytri fegurð, sem hann mælti svo fagurlega með. Hann fór aðeins að litlu leyti eftir sínu fræga vígorði. En hvers vegna leyfði hann sér að van- rækja sitt eigið útlit? Hin gíf- urlegu auðæfi hans voru næg skýring. Hann hafði ekkert með það að gera að vera fallegur. Hann var kiumpslegur, lágfætt- ur og sköllóttur. Hann var hrif- inn af góðum mat og dvaldist til skiptis í húsum sínum, sem öll stóðu í gríðar stórum görðum. í öllum þessum görðum voru hundahús og fjöldi geltandi og urrandi hunda. Caeglevich var hundavinur. Hann hafði ekki eins mikla ánægju af neinu eins. og að sjá hóp af hvolpum veltast um á jörðinni, bítandi og gléfs- andi. Ekkert vissi hann yndis- legra en reika um skóginn með c hóp veiðihunda á undan sér og ekkert vakti lvjá honum eins mikla blíðu og írskur veiðihund- ur, sem nuddaði sér upp við hann. Þessi ástríða hans, ásamt með auðlegðinni, var ástæðan til þess, að hann hafði ráðið einka-dýralækni. Ég var ráðinn hjá honum alveg eins og garð- yrkjumennirnir, kokkarnir og stofustúlkurnar, en hafði sér- stöðu að því leyti, að ég þurfti daglega að ganga fyrir hann og gefa skýrslu um hina ferfættu vini hans, svo hann gæti vitað hvernig hverjum og einum þeirra liði. 3. . M Þennan dag var ég semsagt á eftir áætlun. Þegar ég hafði barið gætilega að dyrum á hinu glæsi?eg,a vmndliérbergi • hans og var kominn inn, sá ég að hann skálmaði fram og aftur um parketgólfið, illilegur á svip. Hann stanzaði og snéri sér við, og ég fékk að sjá framan í eld- rautt fésið á honum. Hann muldraði einhvers konar kveðju. Ég tók auðmjúkur við ávítum hans og hlustaði á orðaflaum- inn um áríðandi fundi, ástand og verðbréf; ég muldraði ein- hvers konar afsökunarbeiðni, meðan ég braut .heilann um hvernig í ósköpunum ég ætti að útskýra fyrir ’honum hina raunverulegu ástæðu fyrir þess- ari töf. En hann varð fyrri til. „Hvern djöfulinn eruð þér með þarna?” Iíann benti á hægri buxnaskálm mína, þar sem efn- ið bungaði út á mjög einkenni- legan hátt. Ég roðnaði og tautaði eitthvað. Útstæð augu Caeglevichs störðu á mig og það kom enn meira fát á mig og við það urðu hinir undarlegu kippir í hægri buxnaskálminni enn ákafari. „Getið þér ekki svarað, maður?” hreytti hann út úr sér og stamaði og rugl- aði enn meira. Ég var ruglaður — skömmustulegur og fullur örvæntingar. Spennan jókst. Caeglevieh krafðist skýringar. Ég varð að finna upp á ein- hverju, sönnu eða lognu, eitt- hvað varð að gerast. Það gerð- ist líka og við urðum báðir jafn- undrandi: Halinn kipptist nefni- lega upp úr buxunum. Beinn og rennilegur eins og vatns- súla í gosbrunni reis hann upp og vingsaðist létt og frjálslega fram og aftur — og gaf til kynna innstu hugsanir mínar betur en nokkur orð hefðu getað. Það varð þögn í stofunni. Ekkert heyrðist nema þyturinn í halanum. Caeglevich jafnaði sig þó brátt og æpti: „Hvern íjandann á þetta að þýða?” „Ekkert,” sagði ég, sannleik- anum samkvæmt, ,,en náttúran krafðist réttar síns.” Caeglevich hélt áfram að æpa: „Hvað haldið þér að ég sé, með leyfi.” - „Ég held þér séuð hr. Caeg- levich, snyrtivöruframleiðandi.” „Viljið þér hætta þessu taf- arlaust.” „Það skyldi ég gera með á- nægju, ef ég gæti. En því miður hefur mér ekki enn tekizt að ná valdi á þessum líkamshluta.” Caeglevich starði á mig. Síðan sagði hann ógnandi á svip: „Þér ætlið semsagt að halda því fram að þetta sé .... sé raunveru- legt?” „Já,” sagði ég, hálfergilegur yfir því, að líka skyldi vera dregin í efa tilvera halans, eins og hann bakaði mér ekki nægi- leg óþægindi og erfiðleika. Mér tókst að ná taki á honum og ég beindi brúskinum að Caeglevich. „Gjörið þér svo vel, þreifið á honum.” Caeglevich hörfaði undan og fórnaði höndum i skelfingu. — „Komið yður út, þetta er við- bjóðslegt,” stundi hann hálf- kæfðri rödd. Ég yppti öxlum — ég gát ekk- ert gert annað. Reyndar var ég móðgaður yfir því, að Caegle- vich skyldi verða svona lirædd- ur við halann. Ég hafði óneit- anlega sýnt honum einstakt fyr- irbæri og enginn gat mótmælt því að halinn hafði til að bera sérstakan þokka. Og hann, sem var óþreytandi talsmaður feg- urðarinnar, var svona blindar fyrir sönnum yndisþokka. „Út með yður, ég vil ekki sjá yður oftar í mínum húsum,” stundi Caeglevich. Ég sleppti halanum og spurði: „Hvers vegna ekki?” „Mitt líf er fegurð. Ég get ekki haft svona viðbjóð innan minna veggja,” sagði hann og hélt á- fram að stynja. Þá fór ég. Án þess að kveðja og bitur í lund gekk ég á vit öryggisleysisins. Þegar ég kom fram í íorstofuna, sem tii allr- ar hamingju var mannlaus, kom ég halanum við illan leik ofan í buxurnar aftur; ég tók hatt minn og frakka, gekk út úr hús- inu og niður malarstíginn, sem marraði undir fótum mínum, og heyrði hundana gelta eftir mér. Ég varð að taka eitthvað til bragðs. Halinn ógnaði tilveru minni, það hafði ég þegar komizt að raun um. Ég varð að losna við hann sem fyrst. Samt fann ég til mótþróa, þegar ég hugs- aði um að skiljast við halann. Því olli ekki einungis hinn fyrr- nefndi ótti við sársauka, heidur einnig söknuður. Ég var farinn að venjast halanum, hvort sem hann var ógeðslegur og óþægi- legur eða ekki. Hann var hluti af sjálfum mér, og enginn get- ur saknaðarlaust sagt skilið við hluta af sjálfum sér. 4. Ég fór til hins fræga skurð- læknis, Dr. Suffé. Ég varð að bíða nokkuð lengi á biðstofu hans. Á borðinu voru vikublöð og þar blasti við auglýsingin: Fögur? J á, ef þér vilj- ið. .. Ég lokaði augunum beisk- ur í skapi, og fór aftur að hugsa um Caeglevich. Þótt ég skildi hann að vissu leyti, fannst mér framkoma hans gagnvart mér miskunnarlaus. Þarna gekk hann um gólf í hinu ríkmann- lega húsi sínu og var alveg sama um mig, sem ekki átti annað en halann minn. Ég hafði unn- ið hjá honum, og hann rak mig á dyr. Ég reyndi að horfast í augu við staðreyndirnar. Hvort sem ég hafði hala eða ekki var framtíð mín óviss. Ég var af fátæku fólki og ég hafði ráðið fnig hjá Caeglevich ein- ungis vegna þess, að ég hafði ekki efni á að kaupa dýralækn- ispraxís; ég h^fði gert ráð fyr- ir að leggja dálítið til hliðar af mánaðarlaunum mínum og spara þannig á nokkrum árum það fé, sem til þurfti. Nú var sá draum- ur búinn. Ég hafði ekki getað lagt nema lítið fyrir, og eitt- hvað af því mundi ég þurfa að nota til að borga fyrir upp- skurðinn, sem átti að losa mig við lialann. Suffé bauð mér inn. Ég skýrði í fáum orðum frá því, sem gerzt hafði, sagði honum frá athugun- um mínum á eðli þessa nýja lík- amshluta, og því með, að ég vildi gjarnan losna við hann. Lækn- irinn starði vantrúaður á mig, hann hélt sýnilega að ég væri genginn af göflunum. Ég fullviss- aði liann um að ég segði satt, enda gæti hann fengið að sjá það sjálfur. Hann skipaði mér byrstur í bragði að fara úr bux- unum. Nú var auðsæ fagleg for- vitni hans, hann reif mig næst- um úr nærbuxunum. Svo fór hann að skoða á mér bakhlut- ann. Hann hlustaði, bankaði, mældi- og spurði og skrifaði allt hjá sér. Loks sá ég framan í hann aftur. Augu hans ljómuðu og hann hrópaði: „Þetta mun gera okkur báða fræga.” „Nei,” orgaði ég skelfingu lost- inn og sagði honum skjótlega, að ég yrði að leggja alla áherzlu á þagmælsku og skýrði fyrir honum með fáum vel völdum orð- um, að þetta gæti hæglega eyði- lagt líf mitt. Hinn frægi skurð- læknir hristi höfuðið og mót- mælti, skírskotaði til vísinda- legrar menntunar minnar, talaði um þau verðmæti, sem ég gæti gefið læknavísindunum. En ég gat einnig komið fyrir mig rök- um, ég gat líka skírskotað til hans: — hann var bundinn þagn- arheiti scm læknir. ég færði að þvi meginrök, að þar sem líkami minn væri lagalega séð mín einka eign, væri það ég sem ætti hal- inn, og gæti einn gert við hann það sem mér sýndist. Við stóð- um þannig langa hríð og rifumst og halinn vingsaðist svohtið á meðan. Hreyfingar hans æstu Suffé enn meira og tilraunir hans til að fá mig á sitt band urðu æ ofsafengnari. Loks sagði hann óþolinmóður, að ef hann ætti að skera mig upp yrði það með því skilyrði, að um væri að ræða sjúklegt fyrirbæri. En þá hefði hann líka rétt til, meira að segja væri'það skýlda hans, að greina stéttax-bræðrum sínum frá því, svo læknavísindin gætu haft gagn af. Ef • ég á hinn bóginn vildi ej>ki,fallast á, að þetta væri sjúklegt fyrirbæri, gegndi öði-u máli og honum bæri engin skylda til að hjálpa mér. Þá missti ég alveg móðinn. Ég andvarpaði og kom bæði sjálfum mér' og halan- um í fötin og fór í vondu skapi frá hinum fræga skui-ðlækni Suffé. Ég fór inn á næsta veilinga- hús til að fá' mér eitthvað i svanginn og íhuga ástandið. Yfir kaffinu og rúnnstykkinu lifði ég upp aftur atburði morgunsins. Ég skalf af bræði og örvænt- ingu. Til þess að sýna í verkj hugaræsingu mína, skauzt hal- inn lit um rennilásinn á buxun- um. Tvær konur, sem sátu við næsta borð, ráku upp skerandi vein, þjónustustúlkan missti bakka með kaffi og rjómakökum. Ég stökk á fætur, þreif frakk- ann minn, reyndi eftir beztu getu að hylja halann og þaut út úr kaffihúsinu. Ég veit varla sjálfur, hvernig ég komst upp á herbergið mitt. Ég veit bara, að ég þaut eftir götum, sem voru fullar af fólki og á endanum hafði ég auk míns eigin hala halai'ófu af flissandi og skrækj- andi unglingum á hælunum al- veg að dyrunum. Ég skellti. hurðinni í lás, náði í flösku í is- skápinn og þambaði allt úr henni á fimmtán mínútum. Síðan sofn- aði ég út af frá óliamingju minni. Ég vaknaði við að barið var að dyrum. Tveir laglegir og prúð- mannlegir menn stóðu fyrir utan dyrnar. Annar kvaðst skrifa um vísindi í stórt dagblað, hinn var sýnilega blaðaljósmyndari: — hann var sljólegur á svip og þétt- settur blossalömpum og mynda- vélum. Blaðamaðurinn gei'ði mér hæverskiegt tilboð. Hann vildi gjarnan kynna halann fyrir lesendum sínum í máli og mynd- um. Ég æpti ofsareiður: „Nei,” en hann bauð stöðugt betur. — Loks var upphæðin sem hann nefndi orðin svo há, að mér varð lióst. að draumurinn um eigið dvralæknisstai'f gæti oi’ðið að veruleika. Því skyldi ég ekki slá t'1? Því skyldi ég ekki hafa eitt- hvað raen af bessum hala, sern hingað til hafði einungis verið méi' til skammar og skapraunar? Næsta morgun vai'ð .ég var við stóran hóp forvitins fólks, fram- an við dyrnár. Það veifaði í æs- ingi dagblöðum mcð myndum af halanum. Það lá við að ég sæi eftir því að hafa lát.ið til leiðast kvöldið áður; halinn dinglaði háífóstýrkur til og frá, en þegar ég leit á álitlegah seðlabunkann á borðinu fór mér að líða bet- ur. Til að dreifa huganum opn- aðí ég útvarpið. Það fyrsta sem ég heyrði var frétt um halann. Um liádegisbilið í'unnu stórir bílar upp að húsinu þar sem ég bjó. Menn með kvikmyndavélar og lampa stigu út, börðu að dyr- um hjá mér, kröfðust inngöngu, veifuðu tékkheftum og kepptust við að bjóða mér sem stói'kost- legastar fjárupplxæðir. Ég fékk aftur stórfé, á ný var lxalinn fest- Framhald á blaðsíðu 15.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.