Alþýðublaðið - 03.12.1967, Síða 9
Sunnudags Alþýðublaðið • 3. desember 1967
9
„ÓPERA er ómöguleg.” Þessa fullyrð-
ingu hefur mátt heyra af vörum heim-
spekinga, fræðimanna og jafnvel tónlistar-
manna, sem hafa fyrirlitið og hatað þetta
tónlistarform frá upphafi. Óperan hefur orð-
ið fyrir tókasti alla sína tið. Því hefur ver-
ið lýst yfir, að hún væri dauð og búin að
vera, væri blátt áfram hlægileg og í alla
staði forkastanleg. Hvernig er hægt að þola
þessa vitleysu? er sagt. Hvenær hefur nokk-
uð í þessum hroðalegu textum verið sungið?
Hvemig getur fólk afborið að hlusta á sömu,
crðin endurtekin aftur og aftur í sömu arí-
unni? Hver getur ímyndað sér að tveir hat-
ramir óvinir geti sameinast’í fallegum tví-
söng, áður en þeir leggja til atlögu hvor við
annan? Hver hefur nokkru sinni heyrt dauð-
vona manneskju rísa upp við dogg og
syngja flókna coloraturaríu, áður en hún
gefur upp andann? Hvers vegna dettur fólki
sem er á flótta undan óvinum, í hug að
syngja og syngja þindarlaust og beina með
þvi óvininum á slóð sína? Þetta eru aðeins
nokkur atriði sem komið hafa fram sem
gagnrýni á óperuna. Aðrir hafa ekki deilt á
hana vegna lítillar rökhyggju (hún á reynd-
ar sína eigin rökvisi), heldur frá fagur-
fræðilegu sjónarmiði. En ekkert hefur
megnað að koma óperunni á' kné.
Þessi „ómögulega” ópera lifir enn góðu
lífi og er jafnvel fastari í sessi og lifir
betra lifi en nokkru sinni fyrr og á að fagna
rneiri og almennari hylli siðmenntaða heims
hafa verið reist sérstök söngleikahús og í
meira en þrjú hundruð ár hafa óperusöngv-
arar verið með dáðustu listamönnum í heimi
og margur áhorfandinn fellt höfugt tár í
áheyrendasal vegna hrikalegra og örlög-
þrunginna átaka uppi á sviðinu. Óperusöngv-
arar eru sagðir hafa svimandi háar tekjur
og ævintýral. sögur eru sagðar af deilum
og togstreitu í heimi þeirra. Óperuaríur eru
sennilega vinsælasta tónlistarefni, sem um
getur. ■>;
Ópera — hvílíkt töfraorð! Samræmi allra
iistgreina. Snilld á öllum sviðum. Heiilar
augað engu síður en hún kætir eyrað og
andann. Skáldleg andagift, leikræna og tón-
gleði. Akur skálda orðsins Jistar og tónlist-
ar, hljómsveitarstjóra, leikhússtjóra, hljóð-
færaleikara, málara, teiknara, leikstjóra,
dansara og statista. Bak við þetta fólk er
svo annar her manns, sem ekki kemur fram
á sviðið. Klæðskerar, hárgreiðslufólk, skó-
smiðir, leiksviðsmenn, ljósameistarar og
fleiri og fleiri. Þeir strita og erfiða, en
þeirra er ekki dýrðin. Frægðin fellur aðeins
þeim í skaut, sem syngur. Og til þess að
tryggja sér þann heiður þarf þrennt til, ef
við eigum að trúa Rossini: Rödd, rödd og
aftur rödd. Og Rossini ætti að vita hvað
hann söng.
íslendingar hafa fengið orð fyrir að vera
söngvin þjóð og hafa íslenzkir söngvarar
getið sér góðan orðstír úti í hinum stóra
heimi og landar þeirra glaðzt af og fundið
til stolts. Nú gefst tækifæri að heyra og sjá
íslenzka óperusöngvara á heimavelli og
reynir nú á söngelskt fólk að þeim sé sköp-
uð frambúðaraðstaða hér heima svo að við
getum notið krafta þeirra hér í framtíð-
inni, en þurfum ekki að láta okkur nægja
reykinn af réttunum í gegnum blaðaum-
mæli frá útlöndum.
Það ætti engan að svíkja að koma við í
söngleikaliúsi borgarinnar, Tjamarbæ og
bergja af Ástardrykk íslenzkra óperu-
söngvara. — G. P.
HHPPDEUEUI SiBS
DREGIÐ Á ÞRIÐJUDAG
Hæsti vinningur 1 milljón krónur
Samtals tvö þúsund vinningar
EnouRnvjun evkur
n hRdegi nnftiTRRDica
setting lotion
cleansing milk
bubble bath
hand-lotion
eg-shampoo
Halldór Jónsson ”
Hafnarstræti 18
simi 22170-4 línur
Jólasveinar
einn og átfa
Verzlanir, félagsjheimili, starssmannahópar og
allir þeir sem hug hafa á að ráða JÓLA-
^ SVEINA til starfa, hafi samband við skrif-
stofuna sem allra! fyrst. Vinnumiðlunin veitir alla þjónustu í sambandi
við ráðningu skelmmtikrafta. Viljið þér ráða skemmtikrafta þá vinsam-
legast hafið sambánd við skrifstofu vora. Opið frá kl. 9-5.
VINNUMIpLUNIN
Austurstræti 17, 2. hæð — Sími 14525. 'T
Alþýðublaðið
Gnoðarvog
Voga
Rauðarárholt
Laugarás
i
Kleppsholt
Höfðahverfi
Bræðraborgarstíg
Túngötu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ, sími 40753.