Alþýðublaðið - 17.12.1967, Side 5
Sunnudagur AlþýffublaðiS — 17. des. 1967
s
JttM/uutatp
ÆÐJMJÖ)
ŒtMHíP
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. — Eitstjórl Sunnudagstilaffs: Kristján
Bersi Ólafsson. — Sfmar: 14900—14903. — Auglýsingasíml 14908.
Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Eeykjavík. — Prentsmiðja
Alþýðuhlaðsins. Sími 14905. —' Áskrlftargjald: kr. 105,00. — í lausa-
sölu: kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn.
FRYSTIHÚSIN
ÞEGAR verðlag á hraðfrystum
fiski tók að lækka í fyrrasumar, kom
fljótlega í ljós, að fá frystihús í land
inu voru við því búin að taka á sig þá
hækkun. Síðan hefur mátt telja þauhús
á fingrum, sem hafa getað haldið
uppi nokkurn veginn eðlilegum rekstri.
Allur þorri þeirra hefur barizt í bökk
um og mörgum verið lokað, þar á með
al tiltölulega "nýjum og fullkomnum
húsum.
Þetta sorglega ástand frýstiiðn
aðarins var viðurkennt með því að setja
upp sérstaka nefnd til að fjalla um
málið, og voru í hana skipaðir ýmsir
af fremstu stjórnunarheilum þjóðar-
innar. Mun hún hafa unnið mikið, en
ekki skilað áliti. Verður fróðlegt að
heyra, hvaða niðurstöðum hún kemst
að, en óvarlegt að búast við skyndi-
iausn á vandanum.
Frystihúsin eru máttarstólpar at
vinnu umhverfis allt land. í hverri
sjávarbyggðinni á fætur annarri eru
eitt eða fleiri slík hús, sem taka við
mestu af afla bátana á staðnum. Hangir
þannig afkoma útgerðar- og sjómanna
ekki síður en landverkafólks á þess-
um fyrirtækjum. Þarf ekki að orð-
lengja, hve alvarlegt ástand skapast,
ef frystihúsin geta ekki greitt. Sá vandi
færist yfir til sjómanna og útgerðar-
manna, oft til vörubifreiðastjóra og
svo að sjálfsögðu inn á heimili verka-
fólksins. Víða um land er i*ú mjög
þröngt fyrir dyrum á heimilum vegna
ógreiddra vinnulauna fyrir stopula
atvinnu, og ættu stjórnvöld og peninga
stofnanir að leggja sig fram um að
létta þann vanda, ekki sízt af því að
rekstur húsanna hlýtur að fara
batnandi upp úr áramótum.
Vonandi leiða niðurstöður frysti
húsanefndarinnar !til þess, að menn
gera sér grein fyrir orsökum erfiðleik
anna og veikleika þessarar atvinnu-
greinar. Mörg hafa húsin verið illa
undirbúin og ill*a smíðuð, þannig að
þau eru raunverulega í byggingu ára-
tugum saman og fjárfestingu er aldrei
lokið. Ófullkomin aðstaða og á stund
um léleg stjórn valda því, að hallar
undan fæti, og virðist þá erfitt að
stöðva hrunið.
Það þarf vafalaust að beita rík
isvaldi og heildarsamtökum hús-
anna til að leggja mörg þeirra niður,
sérstaklega þar sem tvö eru á litlum
stöðum, en hráefni varla nema til eins
í meðalári. Margar fleiri ráðstafanir
þarf að gera, og er mikilvægt að nú
verði notað tækifærið og þessu máli
fylgt eftir, svo að frystihúsin verði
framvegis sterkari stoð fyrir afkomu
þjóðarinnar en þau nú hafa reynzt.
Enskar slár með pilsum
Nýjasta t'izka - Verð kr. 1760.-
BERMHARÐLAXDAL
Kjörgarði.
Ný sending
af vönduðum hollenzkum vetrarkápum
BEHNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði.
Greiðslusloppar í miklu úrvali.
Barnaundirkjólar í stærðunum 2—14.
Nælonúlpur, peysur og blússur í barnastærð
um.
Jólalöberar.
Jóladúkar.
Dúkar undir jólatré.
Náttföt á alla fjölskyldima.
B E L L A
Barónsstíg.
Verðlistinn
Suðurlandsbraut 6 — Sími 83755.
Buxnadragtir — Skikkjur — Buxur og skikkjur — Pils og
skikkjur — Táningakápur. Glæsilegir tízkulitir.
Athugið: Meðlimir hinnar vinsælu hljómsveitar
„SÁLIN"
leika vinsælustu plötur unga fólksins alla daga til jóla.—
Verðlistinn, KÁPUDEILD Verðlistinn
Laus lög reg 1 uþjónsstaða
Staða eins iögregluþjóns í Grindavíkurhreppi er laus til
umsóknar.
Byrjunarlaun samkvæmt 13. launaflokkj opínberra starfs-
manna, auk 33% álags á nætur- og helgidagsvaktir.
Upplýsingar um starí'ið gefur undirritaður og skulu umsókn-
ir, sem ritaðar séu á þar 1il gerð eyðublöð, sem iást á lög-
reglustöðinni í Hafnarfirðj haia fcorizt honum fyrir 1. jan
n.k.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, 14. des. 1967.
Einar Ingimundarsson.
ÚTBOÐ
Kópavogskaupstaður óskar eftir tilboðum í
byggingu leikskóla. Skilafrestur er til 5. jan
úar n.k.
Útboðsgagna skal vitjað á Bæjarskrifstofu
Kópavogs gegn kr. 2000.00 skilatrvggingu.
Bæjarverkfræðingur.
Áskriftasiminn er 14901