Alþýðublaðið - 17.12.1967, Side 9
Sunnudagur fllþýíubfaSið — 17. tíes. 1967
i
The Trap
Heimsfræg brezk litmynd tek-
in í undrafögru landslagi í
Kanada. <
íslenzkur tezti.
Sýnd kl. 5 og- 9.
ALLT Á GRÆNNI GREIN.
Sýnd kl. 3.
Takið eftir
Klæði og geri við
bólstruð húsgögn.
HAFN ARFIRÐI
Síml 50020.
Rafvirkjar
Fotoselluofnar,
Rakvélatenglar,
Mótorrofar.
Höfuðrofar, Rofar, Tenglar.
Varahús, Varatappar.
Sjálfvirk rör, Vír, Kapall,
margar gerðir.
Lampar í baðherbergi,
ganga, ge.vmslur,
Handlampar
Vegg-, loft og lampafalir
inntaksrör, jámrör,
1" 1V4" ÍW og 2".
Einangrunarband, margir
litir og önnur smávara.
— Allt á einum stað.
Rafmagnsvörubúðin sf.
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670.
— Næg bílastæði. —
ÖKUMENN
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
SIBELUS
HVAÐ kemur mönnum í hug, þegar þeir
Jieyra Finnland nefnt? Líklega vötn og
skógar, þytur í skógi og barátta finnskrar
þjóðar fyrir tilverurétti sínum. Út í frá
eru Finnar sennilega þekktastir fyrir vask-
leik sinn í íþróttum og þrautseigju á
þrengingartímum, ennfremur frumleik og
listfengi í byggingarlist og tónlist Sibeli-
usar, sem hefur að geyma sögu og nátt-
úru Finnlands í tónum og ber þar fyrst
að nefna tónaljóðið Finlandia.
Jean Sibelius var af læknaættum kom-
inn, en báðir foreldrar hans höfðu dálæti
á tónlist og börn þeirra þrjú mynduðu tríó
þegar á unga aldri og iðkuðu kammermúsik
á heimilinu. Faðirinn hafði, þegar við
íæðingu sonarins, ákveðið að piltur skyldi
læra lögspeki, en drengurinn sýndi alla
daga lítinn áliuga á fræðigreininni. Hins
vegar undi hann löngum úti í náttúrunni
og reikaði oftlega um skógarstíga og hlust-
aði á raddir náttúrunnar og til þess að
geta leikið í þessu frjóa umhverfi lærði
iiann að leika á fiðlu. „Heillaður af söng
náttúrunnar lék ég á fiðluna frá morgni
til kvölds öll sumur,” segir hann. Sibelius
notaði hvert tækifæri til þess að fara með
fiðlu sína út í skóginn og þar samdi hann
sín fyrstu verk. Eitt þeirra var lítið inter-
mezzo fyrir fiðlu og celló, Vatnsdropar.
Tónlistin tók hann fanginn í þann mund
sem hann sagði skilið við lögfræðina. —
líann sagði sjálfur svo frá, að hann hefði
reikað heilan sólarhring úti í skóginum, og
er hann sneri heim um morguninn var
hann ráðinn í því að helga líf sitt tónlist-
inni. Síðar komst hann svo að orði, að þá
nótt hefði tónskáldið Jean Sibelius fæðzt.
Eftir margra ára nám í Helsinki, Berlín og
Vín, fór hann að semja fyrir alvöru. Árið
1888 voru fyrstu verk hans gefin út, þar á
meðal sónata í F-dúr fyrir fiðlu og pianó,
sem sver sig mjög í ætt við verk Griegs.
Sem ungur maður lét Sibelius heillast af
sögu Finnlands og mörg beztu verk hans
eiga rætur sínar að rekja til sögulegra við-
burða. Árið 1892 lauk hann við sitt vold-
uga Kullervo. Hér koma fram helztu per-
sónulegu eiginleikar hans sem tónskálds
mótaðir af ættjarðarást. Enn voru þó fáir,
sem kunnu að meta hann. Það var fyrst
þegar tónaljóðið En Saga kom út sama ár,
að hann öðlaðist almenna hylli. í kjölfarið
fylgdu fleiri þjóðlcg verk og nú hófst Sl-
belius handa með að semja óperu £ sam-
vinnu við skáldið J. H. Erkko. Efniviðinn.
völdu þeir úr frægasta sagnaljóði Finna,
Kalevala.
f Helsinki var hann í félagsskap annarra
listamanna samtíðar sinnar, svo sem Ro-
berts Kajanusar og málarans Galléns, sem
var aðaldriffjöðrin í klúbbnum Symposion.
Þar skemmtu hinir ungu listamenn sér,
skeggræddu um vandamál sín og viðfangs-
efni og sóttu hugmyndir hver til annars.
Eftir frumflutning Kullervo fékk Sibel-
ius sín fyrstu listamannalaun (2000 mörk).
Árið 1899 kom út tónaljóðið Finlandia og
á einnu nóttu varð nafn Sibeliusar á hvers
manns VQrum. Verkið skipaði heiðurssess
í hljómleikaför, sem tónskáldið fór með
Symfóníuhljómsveit Helsinkiborgar til
til flestra landa EvTÓpu árið 1900. Hér á
landi er Finiandia kunnasta verk hans
eins og víða annars staðar. En þegar Si-
belius stóð á hátindi frægðar sinnar, snerl.
hann, án sýnilegrar ástæðu baki við frægff-
arljómanum. — „Nú er kominn tími til
þess að ég fari að senija,” sagði hann við
konu sína. Haustið 1904 dró hann sig í hlé
og fluttist til Jarvenpaa, rólegs stáðar i um.
50 km. fjarlægð frá Helsinki. Á næstu 25"*"
árum starfaði hann mikið og afkastaði ó-
trúlega miklu, um 150 tónsmíðum, þar á
meðal hinni frægu Kalevalatónlist og 7
symfóníum.
Sérkenni Sibeliusar eru fyrst og íremstl
þjóðleg, finnsk. Auk margra skáldlegra og
hljómfagurra hljómsveitarverka hefur han.n
gert sér mat úr hinum fjölskrúðugu söngv-
um þjóðar sinnar. En einnig í stóru hljóm-
sveitarverkunum er uppistaðan líf þjóðar-
innar og náttúru landsins, án þess þó að
hann færi sér í nji; finnsk þjóðlög. Veiga-
mestu verk hans eru symfóníur hans. Con-
stant Lambert segir: „Enginn efi er á því,
að Sibelius hefur þróað symfóníuformið til
ineiri fulikomnunar en nokkurt annað tón-
slcáld síðan Beethoven leið. Því hefur verið
haldið fram, að hann sé sá eini af síðaii
tíma tónskáldum, sem ásamt Brahms sú
verður þess að kallast arftaki Beethovens.
Þessi skoðun á sér ófáa formælendur I
Bretlandi og Bandaríkjunum. En Sibeliua
var útnefndur heiðursdoktor við Yaleh.V
skóla. Á hinn bóginn eru skiptar skoðanir
um symfóníur hans annars staðar, t. d. hafa
verk hans mætt litlum skilningi í Frakk-
lantíi og eru sjaldan leikin þar.
Sibelius hefur sjálfur sagt: „Ég er mað-
ur hljómsveitarinnar og þið verðið að dæma
mig eftir þeim hljómsveitarverkum. mín-
um. Ég sem píanóverk í tómstundum min-
um. Píanóið vekur ekki áliuga minn, það
syngur ekki.” Söngvar hans eru þeim mun
ei'tirtektarverðari, þó kemur þar í Ijós að
píanóið er ekki hans sterka hlið. Undirleik-
inn vantar hina miklu spennu og vídd, sem
við eigum að venjast í hljómsveitarverkum
hans. Meðal söngva hans eru samt meistarn-
verk eins og „Flickan kom ifrán sin alskl-
ings möte”, „Den första kyssen,” „Pá ver-
andre vid havet,” „Sav, sav, susa,” og „Höst-
kvall” svo að einhverjir séu nefndir. AI
kammerverfcum tónskáldsins er aðeins eitt
scm talíð er bera af en það er Voces inti-
mae. En það er líka eitt af sérstæðustu
og persónulegustu verkum hans. Aufc
áðurnefndra verka eru Vals triste og fiðlu-
konsert í d-moll ásamt fleiri sönglögum mjög
þekkt tónverfc og eiga eftir að hljóma svo
lengi sem- þýtur í skógum Finnlands.
Stuðzt við Musikkens Verden. — G. P.
GJAFABRÉF PRA »UKOtAOO»R»JÖ»1 SHAL»TÚH»HR>M 1
KTTA EBfF ER KVITTUN, EN FÓ MIKEU FREMUR VIDURKENHINð FTRIR STUÐH- INð VIÐ COTT MÁIEFNI. tlXKlAVlK, K 9 ák tm*n>B*4** Ut* H 1 > Klt
SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI S2-101.
I
ATHYGLI skal vakin á því, að þeir sem telja slg
eiga rétt til bóta samkvæmt lögum nr. 65/1966
• um hægri handar umferð, skulu hafa skilað kröf-
um sínum þar að lútandi á skrifstofu vora Sól-
eyjargötu 17 ReykjaVík, fyrir 1. janúar 1968.
Kröfunum skulu fylgja greinargerðir og sundur-
liðaðar kostnaðaráætlainr.
Fra m kvæmda nef nd
hægri umferðar.
BÍLAKAUP
15812 — 23900
-j
'i
Höfsm kaupenður »8 fletit- •
um tegundum og árgerðm -
«f nýiegum bifrelðum. ^
Vínsamlegast látlð skrá bíi-
reiðina sem fyrst.
BÍLAKAUP
Skúlagötu 55 við Rauðará
Sirnar 1581* - «80». i
Auglýsið í Álþýðubíaðimj
SNITTUR . ÖL - GOS
Opiff frá 9-23,30. — Pantíð
timanlega vcizlur.
BRAUÐSTOFAN
'esturgötu 25. Síml 16012.
SMURT BRAUÐ