Alþýðublaðið - 17.12.1967, Blaðsíða 10
10
Sunnudagur AlþýðublaSiS — 17. des. 1967
OPNA
Framhald úr opnu.
Hvað eftir annað féll ég í öng-
vit, hvað eftir annað er ég vatni
ausinn og ég er dreginnn upp.
Loksins heppnast þeim það
— handleggirnir losna frá lík-
amanum. Vöðvarnir við axlarlið-
inn eru að nokkru sprungnir,
og liðamótin úr lagi.
Hvað varð um vegabréfin?
Er ég búinn að átta mig, eða
neyðast þeir til að ganga gjör-
samlega frá' mér, áður en ég
vitkast?
Ég svara engu, það síðasta,
sem ég heyri, áður en ég fell
í ómegin að nýju, er Behrens,
sem grenjar í tryllingi............
Seinna um daginn vakna ég
á klefagólflnu. Ég hef enga
tímaskynjun, hef ekki hugmynd
um, hve lengi þeir hafa haldið
áfram.
Ég afber þetta ekki lengur.
Einhvern tímann um nóttina
geri ég mér ljóst, að lengra verð-
ur ekki gengið.
Hefði ég haft hugrekki til að
svipta mig lífi? Ég held það. Það
er svo komið, að þarf meira
hugrekki til að lifa lífinu en
að svipta sig því.
Drottinn minn, ég er svo
hræddur......
Bjame Thorsen,. hvað var aft-
NYJUNGIBARNA-
W BÓKAÚTGÁFU!
Komnar eru út á vegum Heimskringlu tvær eftirtektarverðar
barnabækur í nýjum bókaflokki. Bækurnar eru einkum eftir-
tektarverðar fyrir:
• Smekklegan og nýstárlegan frágang. * Fallegar litmyndir.
•Fræðandi og skemmtilegt efni. • Verð aðeins kr, 90.00.
Kjörin tækifærisgjöf handa börnum og unglingum.
HVER ER?
HVER ER?
tSBSöli
Ibwií
ur með hann. .. Ég ligg í hita-
sóttarmóki og finn volga tauma
leggja niður eftir hálsinum á
mér. En ég held dauðalialdi í
hugsunina, veit, að ég er með
eitthvað þarna.
Svo kemur morguninn og aft-
ur er ég hirtur upp af gólfinu
og borinn fram í lyftu.
Þeir setja mig í stólinn hjá
Eckhardt, ég greini Behrens og
Klein og auk þess þann fjórða,
Klötscer, alræmdán lvrotta,
jafnvel í samanburði við þessa.
Ætla ég að leysa frá' skjóð-
unni núna? Er það loksins orð-
ið ljóst, að þeim er alvara?
Handleggirnir lafa niður með
síðunum, andlitið er blá bólgu-
hella, frá hryggnum og mjaðma-
grindinni berast sársaukakippir
um allan líkamann.
Alvara!
Tárin brjótast fram, ég skynja
ógeðið af sjálfum mér og bem
mig ekki lengur........
Einhver hneppir frá mér blóð-
ugri skyrtunni og rífur hana af
mér, og Klein setur fötu milli
fótanna á mér. Ég á ekkert eft-
ir, nema líftóruna, ætla þcir að
tappa hana af mér núna? —
Komið ykkur þá að því.........
Maður kemur með sprautu,
hann stingur nálinni inn i síð-
una á mér, vinstra megin, rétt
ofan við hjartað. Ýtir á.
Vísindin í þágu menningar-
þjóðarinnar. ....
Ég fer að selja upp, ég veit
ekki, hversu rétt ég hef haft
fyrir mér. Þetta er engin vana-
leg ógleði, sem þeir hafa veitt
mér, engir leiðinlegir timbur-
menn eftir fimmtugsafmæli, —
þetta er innra eldgos á mörk-
um delirium tremens, hin end-
anlega uppgjöf áfengissjúklings-
ins eftir ævilanga ákafa drykkju
Ég æli viðstöðulaust, er hrædd-
ur um, að þarmar og gallblaðra
komi með í ósköpunum, og ég
finn, hvernig síðasta mótstöðu-
þrekið fjarar út, rétt eins og
líftóran sjálf sé að yfirgefa mig
og hverfa niður í fötuna.
— Hvar eru vegabréfin? —
Hvaðan fór báturinn, Magnus-
son, — hvar eru vopnin, hverj-
ir eru með þér í hreyfingunni.
Ég æli og græt, græt og æii,
og ég finn, að ég verð að tala
—■ ég þoli þetta ekki lengur. ..
— Ég veit það ekki, kjökra
ég.
Og þar með er ég kominn að
leiðarlokum.
Það gerist leiðindaatburður
síðar um daginn.
Þeir hafa farið með mig nið-
ur í kjallara, sfaðið yfir rúm-
fletinu og látið spurningunum
rigna yfir mig. En ég þarf dá-
lítinn frest til að hugsa mig
um, og ég lézt véra of mátt-
farinn til að geta svarað þeim.
l.oks hreyttu þeir úr s.ér ein-
hverjum hótunum og fórú leið-
ar sinnar.
Þá koma inn tvær þvotta-
konur, sem ég kannast við. Þær
unnu áður í Æolus-byggingunni,
en svo fóru þær að léggja lag
sitt við Þjóðverja, og það varð
of hættulegt að hafa þær þar.
Ég varð að segja þeim upp.
Þær segjast hafa fengið fyrir-
mæli um að þvo blóðið. Þáð er
þá farið að ganga fram af jafn-
vel Eekhardt og Behrens.
Þær eru ekki aldeilis að flýta
sér. Þær setjast á fletið, kross-
leggja fæturna; nú er þeim
skemmt. Svo að ég et loksins
kominn niður á jörðina? Hættur
öllum rembingi? Húsvörðurinn
valdamikli ekki alveg eins
valdamikill og hann var, ef þær
mættu segja svo? íþróttamaður-
inn ekki alveg eins íþróttamann-
iegur, ha?
Þær njóta sigurgleðinnar,
íiissa að orðheppni sinni. (
Þegar þær taka fötur sínar
og búast til brottfarar, bergmál-
ar hlátur þeirra um allan kjall-
araganginn. Svo skellur húrðin
aftur á hæla þeim.
Þegar verðirnir lyfta mér
upp á stólinn hjá Behrens morg-
uninn eftir, læt ég fallast fram
á skrifborðið og græt.
— Ekki lemja meira, gerið
það, ég þoli ekki meira........
Það verður allt hljótt í her-
berginu. Ekkert heyrist, nema
gi'áturinn. Svo eru gluggatjöld
dregin frá, og gluggar opnaðir,
andnimsloftið inni breytir
skyndilega um, verður bjart og
vinsamlegt.
ONDÚLA
Hárgreiðslustofan
opnar aftur að Skólavörðustíg 18, 3 hæð.
þriðjudaginn 19. desember. Sími 13852.
Þuríður Sigurðardóttir.
10 16 desember 1967 — Alþýðublaðið