Alþýðublaðið - 05.01.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.01.1968, Blaðsíða 1
Föstudagur 5. janúar 1968 — 49. árg. 3. tbl. — Verff 7 kr. FærrS sklp en stærri SKIPASTÓLL íslendinga telur nú 868 skip, samtals 149,861 brúttórúmlest. Á síóasta ári lief- ur íslenzkum skipum fækkað alls um 10 skip, en skipastóllinn auk ist um 1312 brúttórúmlestir alls. Fiskiskip samtals eru 756 skip samtals 61.761 rúmlest auk tog ara. Skráðir togarar eru nú 30 alls og hefur fækkað um 2 skip á árinu. Tólur þessar koma fram í skýrslu Hjálmars R. Bárðarson ar, skipaskoðunarstjóra um ís- lenzkan skipastól 1. janúar 1968. Fiskiskip unöir 100 rúmlestum brúttó, eru 548, samtalsl8.382 rúm lestir og hefur þeim fækkað um 29 skip. Fiskiskip sem eru 100 og yfir eru nú, að frátöldum tog- urum, 208, samtals 43.379 brúttó- rúmlestir. Hefur þeim fjölgað um Framhald á 2. síðu. itiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiuiituiii 11111111111 ii iii | H.A.B. | = DREGIÐ hefur verið í liapp- = § drætti Alþýðublaðsins, en I i vegna vanskila á uppgjöri [ = frá umboðsmönnumi verður = | ekki hægt aff birta vinnings- i i númer fyrr en á morgun, i 1 laugardag. Þessir bátar eru meðal þeirra mörgu, sem nú bíða þess aff veður lægi og fiskverðið verði ákveðið (Ljósm. Bjl. Bjl.) Ákvarðanir um starfrækslu frystihúsanna verða ekki teknar fyrr en fiskverffið hefur verið ákveðið, en að undanförnu hafa frystihús- in yfirleitt ekki verið starfrækt. Þctta kom frain í viðtölum, sem Alþýðublaðið átti í gær vð talsmenn S.H. og SÍS. Alþýðublaðið hafði samband við Guðmund G. Harðarson fulltrúa hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna í gær varðandi rekstrarhorf- ur þeirra nú í byrjun nýs árs. Eins og kunnugt er neyddust sum frystihús til að stöðva rekstur sinn í desembermánuði. Guðmundur kvað erfitt um það að segja, hve mörg frystihús hafi raunverulega neyðzt til að loka í desembermánuði. í sumum tilvik- um hafi alls ekki verið um neinn rekstrargrundvöll að ræða, en í öðrum tilvikum hafi tímabundinn hráefnisskortur valdið því að hús- in hafi neyðzt til að loka. Guðmundur sagði það engar ýkjur, að á árinu 1967 hafi dregið mikið úr starfsemi margra frysti- liúsa, og sum hafi framleitt mikl- um nnin minna en áður. Almennt hafi rekstur íslenzkra frystihúsa verið með afbrigðum erfiður á síðasta ári og möi’g þeirra af þeim sökum, hafi þurft að loka. Nú væri starfandi nefnd, sem ynni að því gagngert að ganga úr skugga um, hver raunverulegur starfsgrunövöllur íslenzkra hrað- frystihúsa væri. Sömuleiðis væri nú unnið að því að rannsaka hvaða áhrif gengisbreytingin hafi haft á rekstrargrundvöll frystihúsanna, en enn lægju niðurstöður þeirrar rannsóknar ekki fyrir. Þá sagði Guðmundur, að hagur frystihúsanna væri mjög háður því fiskvcrði, sem ákveðið yrði einhvern næstu daga. Sömuleiðis hefðu söluhorfur fr.vstra sjávaraf- urða íhikil áhfif á rekstur frysti- húsanna. Tjáði Guðniundur blaðinu, að samningar hafi ekki enn tekizt við Rússa fyrir árið 1968, en þeir hafi verið- afarmikih'ægir kaupendur frystra sjávarafMi’ða til þessa. Við- ræður hafi farið fram í Moskvu í desembermánuði milli fulltrúa ís- lenzku sölusamtakanna og Proten- torg, en þeim viðræðum hafi ver- ið frestað rétt fyrir jólin. Varðandi verð á frystum fiski á erlendum markaði kvað Guð- mundur, að enn örlaði ekki á nein- um breytingum. Miðað við botn- verð í byrjun síðasta árs hafi orð- ið nokkur hækkun ,á verði íslenzkr ar fiskblokkar í Banda ikjunum, þegar líða tók á árið, en eins og hann hafi áður sagt haf samning- ar um verðið á frystum fiski til Sovétríkjanna fyrir árið 1968 ekki enn tekizt. Alþýðublaðið hafði einnig sam- band við Othar Hansson hjá Sjáv- Framliald á 11. síffu. Flestir fara aftur á síld Stærri bátar fara flestir aftur til síldveiffa viff Austurland strax ogr veffur skánar, en í ráði cr aff allmargir þeirra haldi á loðnuveið- 'ar seinni hluta vetrar, ef verð á loffnu verffur viðunanlegt. Minni bátarnir bíða hins vegar bolfisksverðsins sem væntanlegt er 7. janúar, en halda sennilega aff því búnu flestir til veiffa meff linu. Bátar í verstöðum í Rc;ykjavík og nágrenni hafa flestir legið í höfn yfir hátíðina. Blaðið leitaði í gær til nokkurra skipstjóra og útgerðarmanna á þessu svæði og sphrði þá hvað þeir liygðust fyrír á næstunni. Gunnar Hermannson skipstjóri á Eldborg kvaðst halda á síldveið ar fyrir austan strax og viðgerð lyki á bátnum. Taldi hann of dýrt að breyta um veiðarfæri, og lét hann sér lynda að halda áfram Framhald á bls. 11. l•lllllllllllllll■lllllllllllllllllllllllll•l■l■llllllllllllllllllllllllllll•l•lllllllllllll■lllllll•llllll•lt■■lllllll«llllllllllllll•lllllllllllll•llllllllltllllll•lllllllllllllll••llllll•lllll•lll■ll■lll■ll■llll■lllll IFISKVERÐIDINÆSTU VIKUI SJÓMENN um allt land bíffa nú í ofvæni eftir ákvörffun um fiskverðið á vetrarvertíffinni, sem er aff hefjast. Allur fisk veiffiflotinn bíður ákvörffunar innar, enda fer þaff eftir fisk verffinu á hvers konar veiffar skipin fara nú. Frestur til á- kvörðunar fiskverffsins rennur út hinn 7. janúar, effa næst- komandi sunnudag. Aff því er Vcrðlagsráff sjávarútvegsins tjáffi blaðinu í gær, eru fund ir haldnir daglega um fiskverff ið, en enn bólaði ekki á sam- komulagi og ekki hægt aff segja til um, hvenær þess væri aff vænta. Framhaldsaðal fundur LÍÚ átti aff fara fram nú í dag, en hefur nú veriff frestaff til miffvikudagsins 10. janúar. Verffur hann haidinn í átthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 16.00. í fréttatilkynn ingu frá LÍÚ um- frestunina segir, aff hún sé gerff þar sem augljóst sé aff ákvörffun. um fiskverff geti ekki legiff fyrir fyrr en um miffja næstu viku.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.