Alþýðublaðið - 05.01.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.01.1968, Blaðsíða 6
Grein um öldungana / Georgíu, en á þeim slóðum ná fleiri menn háum c í lítilli borg, Abchasia við Svartahaf, sat gamall maður ut an við hús eitt og grét beizk- lega. eins og litið barn. Vegfarandi vék af leið sinni til þess að hugga þennan sorg- mædda mann, en þá stóð allt í einu yfir honum kempulegur maður, mikill vexti, með yfir- skpgg og svartklæddur. •i— Láttu strákhvolpinn vera. Hann er sonur minn. Hann er að' betla um pening og hefur hagað sér óvirðulega gagnvart afá sínum 143 ára gömlum. Faðirinn sem var að hirta áttatíu ára son sinn var sjálf- ur 113 ára. •Þetta er góð saga. en sjálf- sagt hreinn uppspuni. Svona gamlir verða menn ekki! Fólk á Vesturlöndum hristir höfuðið og verður efablandið þegar Rússar taka að segja sög ur af 125 ára fjallabændum sem temjæ ólma hesta, af hundr að ára öldungum, sem eiga erf ingja og af mönnum sem voru fsgddir fyrir frönsku stjórnar- byltinguna og lifðu langt fram á vora daga. En nú er þetta að breytast. Miklar aldursrannsóknir fara nú fram í Sovétríkjunum. Ger ontologían, vísindin um líffræði legar breytingar í sambandi við ellihrumleika, breiðist út, og stöðvar til slikra rannsókna eru þegar til í mörum borg- urp. Erlendum fræðimönnum er boðið til þessara stöðva. Þeir geta gert læknisfræðilegar rann sóknir á oldúngunum og spurt þá spjörununi.. úr. Og niður- staðan er alltaf sú sama að það nái fleiri menn hundrað ára aldri í Sovétríkjpnum en nokk urs staðar í heiminum. Mesta mögúléika til að verða yfir hundrað' árá hafa þeir sem eiga heima | kákíska lýðveld- inu. í Georgiii eru yfir 2000 manns komirjvá aðrá öldina Og á fjallaslóðum- Kárábach og Az erbajdzjan eru 144 menn hundr að ára og eldri á móti hverjum 1000 íbúum. Eg hef átt -þess kost að hitta einn af þessum þekktu öldung um í Georgíu. MYNDIR: HANN var5 161 árs. Hann reykti ekki og drakk ekki vín, en kvenmannslaus hafði hann aldrei verið (Efsti til vinstri). ÞRÍR öldungar í Dzjarda í Abc- hasia spila nardý. Þeir eru tal- ið frá vinstri: 95, 110 og 115 ára gamlir. (Til hægri). í FJALLAÞORPUNUM í Georgíu er kyrð og friður. Asi þéttbýlisins á Vesturlöndum er ekki kominn þangað enn og vonandi halda þessar fallabyggðir áfam að vera sú paradís á jörð sem þær jafnan hafa verið. 'Lengst ti! vinstri). Bjartan sumardag er sólskin- ið flóðiryfir þurra sléttuna um hverfis ^Tbilisi, höfuðborg Ge- orgíu, nam bíllinn okkar stað- ar franjan við hvítan múrvegg í Mtskifeta. Þessi litla borg var einu sfnni höfuðborg ríkisins, og er ein af elztu 'oorgum í heimi. Hún er um nokkrar mílur frá Tbilisi. — Hér eigið þið að fá að heilsa upp á Vladimir Sjara og skoða garðinn hans, sagði leið sögukonan. Sjálfur er hann i’aun ar enginn sýningargripur þó að hann sé orðinn hundrað ára, en garðurinn hans þykir einkar fagur. Gamli maðurinn fór með okk ur um garðinn sinn hreykinn af fegurð hans, rósunum, pálma gróðrinum og eukalyptustrján- um sem hneigðu skuggsælar krónur yfir tjarnir og gos- brunna. Hann sagðist alla sína daga hafa verið réttur og sléttur garðyrkjumaður, hann ætti eina dóttur barna sem væri að nema iæknisfræði, og í sínum augum væri Tbilisi Sódóma og Gómorra vorra daga þar sem alltof mikið væri um nútíma uppáfinningar og gjálífi. Einfalt lif úti í sveitinnj, mjkið af ávöxtum og geitamjóik með jógúrt nokkrum sinnum á dag —- þetta er forskriftin fyr ir langri ævi. Ég spurðist fyrir um þetta hjá dr. Pitskeiauri hjá gerent ologí stofnuninni í Tbilísi. — Það er rétt, sagði liann. Þessir gömlu menn hafa slopp ið við allt argaþras um dagana. Þeir hafa unnið baki brotnu, en í kyrrð og ró, og komizt upp á lag með að skipta deginum eðlilega milli vinnu, hvíldar og skemmtunar. Margir þeirra fá sér í staupinu þegar svo bér undir, en fara þó gætilega í sakirnar. Nokkrir þeirra hafa reykt, en hætt þegar þeir voru á tíræðisaldri. Flestir eignuð- ust stóra fjölskyldu, mörg börn og oft fleiri en eina konu. Það furðulegasta við þessa öldunga í Kákasus, er það að þeir eru enn við sömu störf og þeir hafa stundað alla tíð. Sumir vinna á tóbaks- eða te- ökrum, sem þeir eiga sjálfir, aðrir reka sauðféð til beitar upp í fjalllendið og þeir halda sínum gömlu venjum, fava snemrha á fætur, vinna allan daginn, en ganga snemma til náða. Allir hinir 400 öldungar sem orðnir eru yfir hundrað ára og rannsakaðir hafa verið hafa enn eitt sérkenni sem vert er að minnast á. Þeir láta aldrci ofán í sig feitt kjöt, en borða mikið af grænmeti og ávöxt- um allt árið um kring. Dr. Pitskelauri: — Við höfum yfirheyrt þessa fjögur hundruð öldunga í smáu og stóru, um mataræði þeirra, hvort þeir hafi drukkið vín eða reykt, hvenær kynork an fór að réna o. s. frv. Flest ir virðast hafa haldið óskertu kynþreki fram á háan alduv. Svo virðist og sem þeir hafi síoppið við þau vandkvæði sem leiða til þess að menn þurfi að neita sér um kynferð islegt samband. Ef þeir missa konu sína fá þeir sér vanalega aðra þegar í stað. ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.