Alþýðublaðið - 09.01.1968, Blaðsíða 1
ÞriSjudagur 9. janúar 1968 49. árg 5. tbi. — Verff kr. 7
Gerði
sjálfur
Forsetakosningar verða haldnar í júní í vqr.
Hver verður næsti
Forseti fslands?
MIKLAR UMRÆÐUR hafa verið um það manna á meff.
al unclanfarna daga, hver verði næsti forseti íslands.
Vangaveltur um þetta mái hafa raunar veriff öffru hverju
síffustu tvö ár, en fengru byr undir báffa vængi, er Ásgeir
Ásgeirsson lýsti yfir i áramótaræffu sinni, aff hann mundi
ekki verða í kjöri viff forsetakosningarnar á sumri kom-
anda.
■jfc- Margjr hafa veriff nefndir sem hugsanlegir eftirmenn
Ásgeirs Ásgeirssonar á Bessastöðum. Þó verffur aff telja,
að mest hafi verið talaff um Gunnar Thoroddsen og
hann haii verulegt forskot yfir aila hugsaniega keppi-
nauta sína.
á sér
Eæknis-
aðgerð
Moskvu 8. 1. <ntb)
RÚSSNESKUR iæknisfræðipró-
fessor framkvæmdi fyrir skömmu
skurðáiffgerff, sem er einstæð' í
sögu læknavísindanna, er liann
ifjarlægffi sjálfur skaddað brjósk
úr hné sér.
Prófessorinn, sem heitir Nik-
olaj Novikov, var aff fara tii Kiev
til aff halda fyrrlestur. Bíllinn
hans var fastur í snjóskafli og
þegar prófessorinn ætlaði að
losa hann, vildi svo slysalega til,
að hann hnaut og meiddist illa í
liné. Hafíi préfessorinn þá eng
in innsvif, heidur sneri til skurð
stofu sinnar, klæddist gúmfötum
sínum, lagffist síffan á skurðbekk
og gerffi sjáifur að meiffslunum.
Að því loknu fór hann óhindrað
til Kiev og hélt fyrirlesturinn,
svo sem ráffgert liafffi verið.
Langt er síðan helztu stuffn
ingsmenn Gunnars tóku að
undirbúa framboð hans. Þótti
hann sem stjórnmálamaður
líklegt forsetaefni og hefir
aukið hróður sinn að þessu
leyti sem sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
Augljóst er þó, að veruleg
andstaða er gegn Gunmari.
Stafar hún sumpart af póli-
tískum rótum, en sumpart af
því, að Gunnar er tengdason
ur núverandi forseta, þótt eig
inkonan sé honum til mikils
sóma.
Enda þótt margt hafi verið
skeggrætt um þessi mál 'á bak
við tjöld stjórnmálanna, hefur
ekki svo vitað sé orðið sam
komulag um neinn frambjóð-
anda á móti Gunnari. Þessa
daga er helzt talað um Hanni
bal Valdimarsson. alþingis-
mann og forseta Alþýðusam-
bands íslands, en þó óljóst,
hverjir mundu standa að
framboði hans.
Hér verða á eftir taldir i
stafrófsráð nokkrir þeirra
manna, sem nefndir hafa ver
ið forsetaefni manna á meðal
meira eða minna. Rétt er að
taka fram, að ýmsum þeim er
sleppt, sem eru á svipuðum
aldri og núverandi forseti, svo
sem fyrrverandi ambassador-
unum Stefáni Jóh. Stefáns-
syni, dr. Kristni Guðmunds-
syni og Haraldi Guðmunds-
syni Vilhjálmi Þ Gíslasyni og
Hermanni Jónassyni.
Agnar Klemei-.z Jónsson
ráðuneytisstjóri, víðreyndur
og víðreystur diplómat og
fræðimaður, sem kann allra
manna bezt það, sem kunna
þarf til starfans.
Einar Ólafur Sveinsson,
prófessor og norrænn fræði-
maður, sem nýtur viðurkenn
ingar víða um lönd. Ýmsir hall
ast að fræði- eða listamönn
um í forsetastarfið.
Einar Olgeirsson, svipmikill
baráttumaður og leiðtogi ís-
lenzkra kommúnista, sem hef
ur nú dregið sig frá þing-
störfum.
Emil Jónsson, einn revr.dasti
og traustasti stjórnmálfmaður
þjóðarinnar síðustu 40 ár fyrr
verandi forsætisráðherr? for-
seti Sameinaðs Alþingis o.
fl. o. fl.
Halldór Laxness, NóbeThöf
undur, frægastur íslenzkra
listamanna nútímans, mikilt
heimsborgari.
Hinrik Sv. Björnsson ?,m-
bassador og þrautrendur
diplómat, en sonur fyrtver-
andi forseta, Sveins Bjerns-
sonar. ,
Kristján Eldjárn, forntr.'nja
vörður, viðurkenndur fræffi-
maður, alþýðlegur en virffu-
legur ræðumaður, sbr. sjón-
varpsþætti.
Jónatan Hallvarðsson, for-
seti hæstarétlar viðurkenndur
lagamaður úr æðstu stofnun
þess arms ríkisvaldsins.
Framhald á bls. 11.
Tvær fjölskyldur
misstu aleiguna
Klukkan 22.41 á laugardagskvöldi var slökkviliðinu tilkynnt um,;
aff húsiff aff Snuðurlandsbraul 66 væri alelda. Er hér um aff ræffa
timburhús, ein hæð og ris. Fjögurra manna fjölskylda bjó á efrl,1
hæðinni, ung hjón meff tvö ung börn sín, Á neðri hæðinni bjuggu{
mæðgur, kona meff 14 ára dóttur sinni. Báðar fjölskyldurnav
misstu mestaiiar eignir sínar í eldsvoffanum.
Þegar eldsins varð vart, sátu
Rósn Guðmundsdóttir og dóltir
hennar sem bjuggu á neðri hæð-
inni að kaffidrykkju hjá Viðari
Sigurðssyni starfsmanni Rafveit-
unnar og konu hans, sem bjuggu
á efri hæðinni. Varð fólkið þess
vart, að reykjarlykt lagði upp á
efri hæðina og aðgætti, hvað ylli.
Þegar niður kom, var hæðin full
af reyk og forðaði fólkið sér þeg
ar í stað út úr húsinu.
Þegar slökkviliðið kom lá vett-
vang, var allur austurendi húss-
Vinningar H.A.B.
Dregið var í Happdrætti Alþ-ðubiaðsins 13. des. s.l. hjá Borgar
fógetanum í Reykjavík Vinnjngar komu á eftirlalin númer:
5018 Toyota
4331 Hilmann Imp
7001 Volkswagcn
Vinningana skal vitjað á skrifstofu Happdrættisins á Hverfis-1
isgötu 4. Opiö kl. 9-5.
ins alelda. Eldurinn var á milli
þilja, Húsið var allf einangrað
með spónum og seihentspokum
og flaug því eldurinn milli þilj-
anna um allt húsið á mjög skömm
um tíma. Þegar slökkviliðið fékk
tilkynningu um eldinn, var sagt,
að allt húsið væri alelda. Sýnir
það glöggt, hve eldurinn barst
fljótt um húsið.
Slökkviliðinu tókst fljótlega að
ráða niðurlögum megineldsins.
Hins vegar var erfiðara að eiga
við eldinn millj þiljanna og tók
langan tíma að ráða niðurlögum
hans þar til fullnustu og var orð
ið liðið á nótt, þegar því lauk.
Talið er, að eldurinn hafi kom
ið upp á n,eðri hæðinni, en þar
hafi gleymzt logandi kerti, þegar
fólkið fór upp. Ekki var blaðinu
kunnugt um það í gær að hve
miklu leyti búslóð fólksins var
vátryggð. Hins vegar er ekki nokk
ur vafi á að íbúar hússins hafa
orðið fyrir tilifinnanlegu tjóni
við eldsvoðann.
Agnar
Einar OI. Einar Ol. Emil
Eysteinn
Gunnar Halldór Ilannibal
Hinrik Sv. Kristján
Jónaían
Pétur