Alþýðublaðið - 18.01.1968, Síða 9

Alþýðublaðið - 18.01.1968, Síða 9
Hljóðvarp og sjónvarp HUÓÐVARP Fimmtudagur 18. janúar. 7.00 IMorgunútvarp. Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30 Fréttir. Tónleikar. 7.55 Bæn. 8.00 i Morgunleikfimi. Tónleikar. 8.30 Fréttir og veðurfregnir. Tónleik- ar. 8.55 Fréttaágrip og útdráttur úr forustugreinum dagblaðanna. ' 9.10 Veðurfregnir. Tónlelkar. 9.30 Tilkynningar. Húsmæðraþáttur Dagrún Kristjánsdóttir húsmæðra kcnnari talar öðru sinni um um gengnishætti í sambýli. 9.50 l>ing fréttir. 10.10 Fréttir. Tónleikar. 12.00 Hádegisútvarp. Tónleikar. 12.15 Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðuríregnir. Til kynningar. Tónleikar. 13.00 Á frivaktinni. Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óska- lagaþætti sjómanna. 14.40 Við, scm hcima sitjum. Svava Jakobsdóttir talar um dag legt líf hjá Aztekum. 15.00 Miðdegisútvarp. Fréttir. TiLkynningar. Létt lög. Philharmoniu Promenade hljóm- sveitin leikur valsa eftir Wald- teufel. lan og Sylvia syngja og leika lög í þjóðlagastíl. Peter Kreuder og félagar hans leika syrpu af gömlum lögum. 16.00 Veðurfregnir. Síðdegistónleikar. Maria Markan syngur „Nótt“ eft- ir Árna Thorsteinsson. Eileen Croxford og David Parkhouse leika sónötu í g-moll fyrir selló og pianó op. 19 eftir Rakhmanin off. 16.40 Framburðarkennsla í frönsku og spænsku. 17.00 Fréttir. Á hvítum reitum og svörtum. Ingvar Ásmundsson flytur skák- þátt. 17.40 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson sér um tím- ann. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Endurtekið leikrit: „Konungsefnin" eftir Henrik Ibscn. — fyrri hluti áður fluttur á annan dag jóla. Þýðandi: Þorsteinn Gíslason. Leikstjóri: GísU Halldórsson. Leikendur: Rúrik Haraidsson, Hildur Kalman, Ró- bert Arnfinnsson, Guðbjörg Þor- bjarnardóttir, Helga Bachmann, Guðrún Ásmundsdóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen^ Guðmundur Er lendsson, Pétur Einarsson, Klem enz Jónsson, Erlingur Svavars- son, Jón Hjartarson, Baldvin Haildórsson, Jón Aðils, Sigurður Skúlason, Sigurður Hallmarsson, Jón Júliusson. Þulur: Helgi Skúlason. 21.30 Útvarpssagan: „Maður og kona“ cftir Jón Thor- oddsen. Brynjólfur Jóhannessoa leikari les (13). 22.00 Veðurfregnir. 22.15 Minningabrot. Axel Thorsteinsson rithöfundur talar um Einar H. Kvaran og les úr ljóðum hans. 22.40 Frá samkeppni í fiðlulcik. haldinn í Varsjá á liðnu ári til roinningar um pólska tónskáldij Wieniawski. 23.25 Fréttir stuttu máli. Dagskrárlok. Ofnkranar, Tengikranar. Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlun Réttarholtsvegi 3. Sími 38840. ÓTTAR YNGVASON héraSsdómslögmaSur MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA BLÖNDUHLfÐ 1 • SÍMI 21296 Smíðum allskonar innréttingar. gerum föst verðtilboð, góð vinna, góðir skilmálar. Trésmíðaverkstæði Þorv. Björnssonar. Símar 21018 o*r 35148. SMURT BRAUÐ SNITTUR . ÖL - GOS Opið frá 9-23,30. — Pantlð tímanlega í veizlur. BRAUÐSTOFAN Vesturgötu 25. Sími 1-60-12. LAUSALEIKSBARNID 26 — Þetta var skemmtilega boðið, sagði hann. — Mér fannst gaman að borða með þér í gær. — Eigum við að hittast á sama stað? Klukkan eitt? — Ég kem, lofaði hann. Tony hringdi til móður sinn- ar og bað hana að hitta sig klukkan rúmlega eitt á' Mel- chester. Það var enn auðveld- ara fyrir hann að fá hana til að játa, því að lífið hafði'ekk- ert gildi fyrir Emily Harridge án Tonys. Þegar hann hafði lagt á, sagðj hann við Irene: — Ég skammast mín. Ég held, að hún hafi grátið. — Við viljum vel, sagði Ir- ene. — Ef þau skilja það að- eins. Og það gæti líka hent sig að þau kæmust ekki að því, að við gerðum þetta viljandi. — Nei, sagði Tony. — Þau eru alltof skynsöm til þess. Irene fór í laglega silkidragt og hvíta blússu og setti á sig perlufestina, sem Bramley Burt hafði gefið henni. Þegar hún beið eftir honum í anddyrinu, kom hann hlaupandi til hennar. — Ég sé að þú ert með perl- urnar. Finnst þér þær fallegar? — Ég hef aldrei átt mun, sem mér þætti vænna um. — Litli lygari! sagði hann hlæjandi. — En unnusta þinn? — Það er allt annað. Þau voru rétt setzt, þegar Ir- ene sá' að Tony og Emily lcomu inn. Hún gætti þess vandlega að líta ekki á þau og henni fannst eilífðartími líða, þangað til hún heyrðí Tony segja: — Ertu hérna, elskan mín? Og þér, hr. Burt! Irene sagði mér, að hún ætlaði að borða með yður, en mig dreymdi aldrei um. .... — Þekkizt þið ekki? — Jú, við höfum sézt áður, tautaði Bramley Burt. Hann virti fyrir sér konuna, sem hann hafði forðast í 21 ár. Síð- an spratt hann á fætur og rétti henni höndína. Frú Harridge roðnaði og þetta kom henni mjög á óvart. Hún tók eins laust í höndina á honum og hún gat, sagði eins fátt og henni var unnt og leit undan. — Þar sem við erum öll hér, getum við borðað saman, sagði Tony. — Við skulum setjast þarna. Irene fann að Bramley Burt virti hana fyrir sér og hún varð að líta í augun á honum. Hún las úr þeim skilning. Hún vissi allt! Hún leit biðjandj á hann. til að biðja um fyrirgéfningu og um stund hélt hún að hann myndi hreyta einhverju út úr sér, en svo leit hann á Eimly Harridge. — Það er langt síðan við sá- umst, Emily, sagði hann rólega. Það fór hrollur um hana og hún yppti öxlum, en hún svar- aði engu. Þjónn rétti þeim mat- seðil og Tony virtist feginn. — Sérðu hvað er á matseðl- inum, Emily? spurði Bramley Burt. — Steikt akurhænsni. — Manstu hvenær við borðuðum saman síðast? — í Torquisy. — Og við sögðum þjóninum, hvað okkur hefði þótt hænurnar góðar og hann kom til okkar með tvær fjaðrir. Hann hló. — Ég held, að ég eigi mína fjöður enn. — Mamma líka, sagði Tony, ég sá hana í skartgripaskríninu hennar, og ég hef oft undrazt að hún skildi geyma hana. Éigum við að fá okkur akurhænsni öll fjögur? En örlögin voru Irene and- snúin þennan dag. Þau voru rétt búin að borða súpuna, þegar þjónninn kom með dagblað til Bramley Burts. — Þér misstuð þetta, herra. Bramley Burt leit vingjarn- lega á Irene. — Ég keypti það á leiðinni til að vita, hvað væri sýnt í leikhúsunum. Ég ætla að bjóða þér í leikhús á næst- unni. Svo hann var hvorki reiður né móðgaður og Irene var feg- in yfir því sem hún hafði gert. Samt vildi hún ógjarnan líta í augun á Emily Han-idge yfir borðið og til að forðast það, leit hún í dagblaðið og sá nafn sem skar sig úr öllu öðru. Thiskey Warren. Dagblaðið lá þannig, að hún sá' greinina og hún v a r ð að lesa hana. „í morgun gróf lögreglan upp kjallaragólf í „Galtarhausnum’' í Thockey Warren, Sommerset og þar fannst mannslík. Ástæða er til að álíta, að þetta sé lík ungs bónda, Franks Westons, en lögreglan hefur rannsakað hvarf hans í fleiri vikur. Frekari rann- sókn málsins er yfirvofandi bæði þar og hér í London. .” Irene sagði ekki orð, en hún varð kríthvít og þegar Tony leit á hana til að brosa til hennar, sá hann hve illa hún leit lít. — Hvað er að, elskan mín? Bramley Burt leit á hana. — Þú ert veik, Irene. — Mér líður illa. Ég ætla að fá mér ferskt loft. Hún reis á' fætur og Tony stökk strax til hennar. Hún. reyndi að koma í veg fyrir það, en hann greip fast um hand- legg hennar og hefði hann ekkl gert það, hefði hún dottið ú gólf- ið. — Segðu mér, ef ég get eitt- hvað gert, sagði Bramley Burt. Svo leit hann á Emily. — Hún virtist heilbrigð fyrir skammri stundu. Hvað getur verið að? — Ég sá, að hún var að lesa eitthvað í blaðinu, sagði Emily Harridge stíft. Bramley Burt tók blaðið og þau lásu saman greinina, sem Irene hafði lesið. Hvorugt beirra hafði matarlyst lengur og þau gengu fram 1 anddyrið, en þar voru Tony og Irene. Bramley Burt rétti Tony dagblaðið og leit á Irene. — Þetta er alvarlegt mál, sagði hann. — Vissir þú um það? — Já', hvíslaði hún. — Þetta virðist vera morð- mál. Frú Harridge spurði tilfinn- ingarlaust: — Ert þú blönduð í þetta mál? — Já, svaraði Irene örvænt- ingarfull og reyndi að verjast gráti. — Ég ætlaði ekki að vera hér! Ég átti aldrei að tala við ykkur! Eg veit ekki hvernig ég á að segja ykkur, hve leitt mér þykir þetta. Það gerast hræði- legir atburðir út af þessu og ekkert ykkar má‘ blandast i mál- ið. Þið verðið að yfirgefa mig! Gleyma að þið hafið nokkru sinni þekkt mig! Eg er farin! Hún gekk til dyra, en Tony stóð við hlið hennar. — Vertu hjá þeim, sagði hún. Það er það eina rétta, Tony. En hún vissi að hún gat ekki hrint honum frá sér og í hjarta sínu elskaði hún hann meira en nokkru sinni fyrr. Hún hafði aldrei þarfnazt ástar jafn mikið og nú. Hann studdi hana út fyrir og inn í bíl sinn. Fyrsta áfallið var .um garð gengið og roðinn litk- , aði kinnar hennar. — Hvert á ég að aka þér? spurði Tony. — Fyrst heim, sagði hún. Ég vildi að ég væri hjá mömmu. — Ég skal aka þér þangaS, ef þú vilt! — Þú ert svo góður, Tony og ég eíska þig svo heitt! — Þú verður að segja mér alit af létta, núna. Viltu það ekki sjá’lf? — Jú. Þau óku upp að húsinu og sáu að það beið bíll fyrir utan dyrnar. — Gestir! sagði Tony. — Ilver getur það verið? Tveir menn komu út iir hús- inu og biðu á tröppunum þegar Tony nam staðar. Þeir voru í bláum fötum og með svarta hatta. — Lögreglumenn? hvíslaði Irene. — Það er greinilegt. Þeir gengu að bílnum og tóku sér stöðu sinn við hvora hliO hans. — Ungfrú Bruton? spurði maðurinn, sem stóð þeim megin, sem Irene sat. — Ég er frá Scot- land Yard og ég geri ráð fyrir, að þér vitið, hvers vegna við erum komnir hingað. - Ég .... var að lesa blöð- in .... sagði Irene. — Lík Frank Weston fannst á fyrrverandi heimili yðar. Ég vara yður við því, að allt sem eftir J.M.D. Young 18. janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Q,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.