Alþýðublaðið - 24.01.1968, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 24.01.1968, Qupperneq 10
Hægri aksturinn enn Flest virðist ógert, en fæst gert af því sem gera þarf fyr- ir 26. maí n.k., ef úr umferða- breytingu verður, Æfingabrautir, í Svíþjóð voru byggðar flókn ar umferða- og æfingabrautir. þar sem fólk gat æft sig í hægri umferð fyrir H-dag. Að sjálfsögðu voru þessar brautir þannig gerðar, að þær höfðu upp á að bjóða mismunandi erfið akstursskilyrði. , Þar voru lögregluþjónar, lög gæzlumenn og aðrir, þeir, er áttu að stjórna umferð eftir H-dag, látnir æfa sig á því að stjórna H-umferð og læfa að leysa úr umferðahnútum og umferðaflækjum, sem ætíð geta myndazt við viss skilyrði á erf iðum umferðaræðum. Eru líkur til þess að búið vefði að byggja slíkar æfinga brautir hér, í tæka tíð til þess að ökumenn og löggæzlulið gefi æft sig í hægri umferð við fyrrnefnd akstursskilyrði? Hvenær ætli þessar brautir verði byggðar og hvar? Eiga íslenzkír ökumenn og aðrir vegfarendur, og löggæzlu lið sem á að stjórna umferð, kannski ekki að éiga kost á •því að vita hvað hægrí umferð er, fyrr en búið er að breyta umferðareglunni, Ætli þetta verði allt kennt bara á papp írnum. Okuhraði. í Svíbjóð varð að takmarka ökuhraðá, bæði í borgum og á þjóðvegum, vegna umferða- brevtingarinnar Nú, að fjórum mánuðum liðnum hafa Svíar ekki aflétt þessum hraðatak- mörkunum. Að sjálfsögðu voru og eru slíkar hraðatakmarkanir óhjá- kvæmileg afleiðing umferða- breytingarinnar til þess að auka öryggi umferðarinnar. En í kjölfar þeirra hafa siglt aðrir erfiðleikar, sem ennþá er ófyrirséð hvað muni kosta sænsku þjóðina. T. d. má nefna að það tekur langferða- rútur bæði fólks- og vöruflutn inga þriðjungi til helmingi lengri tíma að fara sömu vega- lengd nú en fyrir umferðabrey! ingu. Þetta orsakaði það, að rúiu- bílar á langleiðum svo gott sem tæmdust. í stað þess flykktist fólkið í járnbrautarlestir og flugvélar, svo vart varð við ráðið.Það gef ur því auga leið að þessir flutn inga aðilar liafa orðið fyrir gíf urlegu tjóni. Ef af umferðabreytingu verð ur liér. þá hlýtur ökuhraði hér að vérða takmarkaður með til- liti til þess og að sjálfsögðu þá mikið meira en í Sviþ.ióð vegna hins ófullkomna vega- kerfis sem við eigum við að búa. Hvað munu þeir segja sem þurfa að ferðast með langferða bífreiðum. ef þeir þurfa að vera þriðjungi til helmingi leng- ur í hverri ferð eftir breyringu en áður? Hvað munu þeir segja, sem hafa vöruflutninga út um land, ef þeir burfa þriðjungi til lielm ingi lengri tíma til að flytja sama vörumagn eftir breytingu en áður? Ifvað munu bændur segja, ef þeir þurfa 5 bíla til að flytja sama mjólkurmagn á jafn löng um tíma eftir breytingu og þeir þurftu 3 áður? Svipað hlytur að gilda með flutninga frá mjólkurbúum til GERÐU LÍKAN AF NÚPSSKÓLA MYNDIN ihér að ofan er af lík ani því, sem eldri og yngri nem cndur Núpsskóla létu gera í fyrra af gamla skólahúsinu og fiáíu Núpsskóla á 60 ára afmæli Sians. Ákveðið var á fundi nem en)daj, sem (haldinn var hc't' í Rvik í fyrra, að láta gera litla e/ftirmynd úr málþni aif líkani þessu. Skyldi það vera bréfa- 'pressa og þá minjagripur um leið. Nú hefur þessu verið komið í framkvæmd. Líkan þetta er hinn snotrasti gripur, nákvæm eftir- líking gamla hússins. Vinir og velunnarar Núpsskóla gefa nú fengið grip þennan hjá nefndinni er sá um þessa fram- (kvæmd og ennfremur í verzlun unum Rafiðju, Vesturgötu 11, ís- torg, Hallveigarstíg 10, Guðmundi Þorsteinssyni, Bankastr. 12 og G. B. Silfurbúðinni, Laugavegi 55. Nefndin hefur ákveðið að kalla Núpverja búsetta hér syðra, sam an á fund bráðlega þar sem ekki vannst tími til þes fyrir jólin. Þar verður skýrt frá þessum framkvæmdum og öðru sem nefndinni var falið og nánar verður auglýst síðar. dreifingarstöðva í þéttbýli. Að sjálfsögðu hlýtur þetta einnig að koma niður á allri landbún aðarvöru t. d. kjöt, fóðurvöru og áburði. Og allri annarri vöru sem dreift er um landið með bifreiðum. Hvað munu Reykvíkingar segja, ef strætis-vagnaíerðir^ sem nú taka 30 mínútur, taka eftir breytingu 50, jafnvel 60 mínútur? Hvað þarf þá að fjölga strætisvögnum t. d. Reykjavíkur, Kópavogs og Hafn arfjarðar mikið til þess að full nægja fólksflutninga þörfinni eftir breytingu? Frumvarpið um frestun og þjóðaratkvæða greiðslu er því bæði eðlilegt og sjáífsagt, til þess að fólk geti sagt til um það, hvort það viil fá yfir sig illa undirbúna og algjörlega óþarfa, hættulega og rándýra umferðabreytingu með öllu því ófyrirsjáanlega sem henni kann að fylgja. Hvaða kjósandi mun t.d. tiaia því að óreyndu á sinn þing- mann, að hann verði til þess að neita honum um þennan sjálfsagða rétt, án tillits til þess livort þingmaðurinn eða kjós- artdinn er með eða móti um- ferðabreytingunni? Þannig ætti þjóðaratkvæða- greiðsla hér að geta orðið ráð gefandi fyrir þingið, alveg eins og hún var það á sínum tíma í Svíþjóð. Þó er langtum eðlilegra að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram hér heldur en í Svíþjóð t.d. vegna legu landsins, sem eylands, og einnig vegna þess að við eigum enga sérfræðinga í umferðamálum. Ekki skal því heldur trúað að umrætt frumvarp fái ekki þinglega meðferð, því það yrðí sá smánarblettur á yfirstand- andi Alþingi sem seint mundi af því þveginn. Reykjavík, 10. janúar 1968. Ingvi Guðniundsson, bifrelðastjóri á B.S.R. Daníel Pálsson, bifreiðastjóri Bæjarl. T rúlof usiarhrinsgar Sendum gcgn póstkröfu. Fljót afgreiðsla. Guðm. Þorsteinsson gullsmiður, HARÐVIÐAR OTIHURDIR TRÉSMIÐJA Þ. SKÚLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 FASTEIGNIR FASTEIGNAVAL Skólavörðustíg 3A. — 1L Bsaeðp Símar 22911 og 19255. HÖFUM avallt til sölu úrval af 2ja-6 herb, íbúðum, einbvlishús- um og raðhúsum, fullgerðum og I smíðum i Reykjavik, Kópa- vogi, Seltjarnarnesi, Garðahreppi og víðar. Vinsamlegast hafíð sam band við skrifstofu vora, ef þér ætlið að kaupa eða selja fasteign ir JÓN ARASON kdL Til sölu Höfum ávallt til sölu ár- val íbúða af flestum stærðum og gerðum, ýmist fullbúnum eða £ smíðum. FASTEIGNA SKRIFST0FAN AUSTURSTRÆTI 17. 4. HÆD. SlMI: 17466 Uofum jafnan til sölu fiskiskip af flestum stærðum. Upplýsingar í síma 18105 og i skrifstofunni, Hafnarstræti 19. FASTEIGNAVIÐSKI PT I 1 BJÖRGVIN JÓNSSON Þeir sem óska nánari upplýs- inga fyrir þann tíma geta snúið sér til nefndarinnar m. a. í sím um 51559 (Stefán Pálsson), 82464 (Laufey Guðjónsdóttir), 30321 (Jónína Jónsdóttir) og 33621 (Ingimar Jóhannsson). Nefndin. Eiginmaður minn og faðir okkar TÓMAS G. MAGNÚSSON, Skeiðarvogi 77 verður jarðsettur frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 25. janúar kl. 13.30. Sigríður Sigurðardóttir og börn. 10 24. Janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐI0

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.