Alþýðublaðið - 08.02.1968, Qupperneq 4
n
VID I
IVIÓT í
MÆLUM
ÞAÐ heíur lengl verið á
allra vitorði, að öngþveiti og
ófremdar.ástand ríkir í barná
he'imilamálum Reykvíkinga. í
yngstu aldursflokkum eru eih
stæðar mæður og námsmenn
látnir sitja fyrir með börn -
en jafnskjótt og hinir síðar-
'nefndu hafa lokið námi sínu
er börnum þeirra vísað á göt-
una. Ríkir í þeim efnum hin
mesta nákvæmnj - en ekk'i að
sama skapi jafnræði.
- O —
I*AI) er skilyrðislaus krafa
borgaranna, að málum þess-
um verði kippt I lag hið bráð
asta. Fé hefur eflaust verið
eytt í annað óviturlegra hér í
borg. Það er eðlilegt og samr
gjarnt, að þeim mæðrum,
sem vinna v'ilja úti, hvort sem
það er af fjárliagsástæðum
eða öðrum ástæðum, sé sköpuð
til þess aðstaða.
- O — ^
BIÐLISTAR barnaheimil
anna hér í borginni munu orðn
ir allangir. Hverjar útbætur
eru fyrirhugaðar?
- O —
LÖGREGLUMÁL hafa ver-
ið mjög á döfinni undanfarna
daga og vikur og ekki að á-
stæðulausu: Iítilmannlegt morð
svo að segja í miðborg og stór
felld skemmdarverk á sumar-
bústöðum í nágrenni hennar
hafa um stund snúið huga
manna að þessari hlið hins dag
lfcga lífs Annað þessara
mála hefur enn ekki tekizt
að upplýsa og er það illt.
Læðist ekki að mönnum grun
ur um, aö hér sé eínhvers staö
ar pottur brotinn? Erlendis
tíökast og liefur lengi tíð-
kazt að lögsagnarumdæm
um sé skipt í stærri eða smærri
varðsvæöi. Þar eru til taks lög
reglumenn - gjarnan með bif
reiðar eða bifhjól . og gegna
þeir eftirl'itsstörfum hver á
sínu svæði, án þess að sveima
á milli borgar - eða bæjarhluta
eins og hér mun tíðkast. Fyrir
þetta verður allt starf lög-
gæzlunnar mun auðveldara og
öryggi fólksins meira. Það
mun einnig hafa bor'ið við, að
millj Iögreglumannanna og
íbúanna hafi skapazt tengsl,
sem hafi gert þá engu síöur
handgengna fólkinu en lækn-
ar eru og prestar. Er nú ekki
mál til komið, að lögreglan í
Reykjavík endurskoði varð-
svæðafyrirkomulag sitt, þannig
að menn geti ekki gert svona
nokkurn veginn hvað sem þeim
sýnist. meðan lögregluþjónarn
ir ráða ráðum sínum niðri á
lögreglustöð? Það er víst ó-
þarfi að taka það fram, að
Reykjavík hefur löngu teygzt
út fyrir gamla miðbæfnn!
4 8. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐID
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
BRAUÐHÚSIÐ
SNACK BAR
Laugavegi 126.
sími 24631.
EIRRÖR
Kranar,
fyttings,
einangrun o. fl. til
hita og vatnslagna.
Burstafell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3. S. 38840.
E inangrunargl er
Hú'íe'igeiidur
Byggingameistarar.
Úivcgum tvöfalt einangrunargler með mjög stuttum fyrir-
vara. Sjáum um ísetningu og alls konar breytingu á glugg-
um. Úlvegum tvöfalt gler í lausfög og sjáum um mál-
toku.
Gerum við sprungur í steyptum veggjum með þaulreyndu
gúmmíefni. — Gerið svo vel og leitið tilboða. — Sími
51139 og 52620.
' tAWJMS-JLidKi
Frá Gluggaþjónustunni
Tvöfait einangrunargler, allar þykktir af rúðugleri,
sjáum um ísetningar, leggjum mósaik og flísar og margt
fleira
CLUGGAÞJÓNUSTAN,
Hátúni 27. — Sími 12880.
19092 og 18966
TIL LEIGU LIPRIR NÝIR
SENDIFERÐABlLAR
án ökumanns. Heimasími 52286.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa
FRIÐRIKS GUNNLAUGSSONAR
Hafnargötu 43 Keflavík.
Gunnfríður Friðriksdóttir, Friðrika Friðriksdóttir,
Janus Guðmundsson, Lára Janusdóttir,
Sigurveig Magnúsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir,
Friðrik Magnússon
Við þökkum innilega þeim öllum einstaklingum og félags-
heildum sem heiðruðu minningu
ÁGÚSTS JÓSEPSSONAR
fyrrverandi heilbrigðisfulltrúa,
við útför hans 6. þ.m.
Ar'inbjörii Þorkelssoh, Siguröur Stefánsson,
og barnabörn.
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og Benedikt Gröndal. Símar: 14900 —
14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu,
Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr.
120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf.
LÆRDÓMUR
FÁRVIÐRIÐ, sem gekk yfir
la'ndið um síðustu helgi, mun
skipa sér á bekk með hinum
verstu, sem sögur fara af. Rík sam
úð er látin í ljós við aðstandendvr
hinna horfnu sjómanna, hvort
sem eru íslenzkir eða brezkir. En
samúðin fyllir aðeins lítinn hluta
af því skarði, sern ungir menn
eða fjölskyldufeður skilja eftir.
Tvær ályktanir má draga af
þessum atburðum, enda þott þær
stangist að nokkru leyti á. í fyrra
lagi má telja víst, að tjón í fár-
yiðrinu hefði getað orðið mun
meira, ef ekki væri sú nútíma
tækni í veðurfræði, aðvörun, skips
gerð og björgunartækjum, sem
raun ber vitni. í síðara lagi má
minnast þess, hve bjargarlausir
mennirnir geta verið í náttúru-
hamförum, þrátt fyrir mikla og
rómaða tækni á mörgum sviðum.
Aðstaða sjómanna verðuraldrei
gerð of 'góð. Til öryggis þeirra
verður aldrei of mikið gert-
Þetta er gamalt markmið hjá
fiskveiðiþjóðum eins og íslending
um. Ef til vill ber opinber rann-
sókn í Bretlandi einhvern árang
ur og þokar þessum málum enn í
rétta átt. íslendingar munu fylgj
ast vandlega með því máli og
draga ,af því sem og atburðum
þessum í einu og öllu eins mikinn
lærdóm og framast er unnt.
TOLLALÆKKUN
ÞAÐ HEFUR verið fátt um góð
tíðindi eða hagstæð á sviði efna-
hagsmála undanfarna mánuði.
Þar hefur verið við ærna og sí-
vaxandi erfiðleika að etja, og ís-
lenzka þjóðin hefur sjaldan mætt
svo miklum andbyr fyrr.
Nú hefur ríkisstjórnin þrátt
fyrir allt lagt fram frumvarp um
mikla tollalækkun. Er ætlunin að
lækka tolla á f jölmörgum vöruteg
undum, bæði neyzluvörum neyt-
enda og hráefnum iðnaðar- Nem-
ur lækkunin hátt á annað hundr
að milljónum.
Ríkisstjórnin sagði fyrir hátíð-
ir í vetur, er fjárlög voru afgreidd
að hún mundi nota allt umframfé,
er ríkissjóður hefði á komandi
ári, til lækkunar tolla. Breyttar
aðstæður og yfir 300 milljónir
króna í framleiðslustyrkjum hafa
valdið því, að í raun réttri er eng*
inn afgangur hjá ríkinu.
Ríkisstjórnin hefur því ekki
svikið nein loforð, eins og Tíminn
heldur fram. Hins vegar verða
gerðar sérstakar ráðstafanir til að
standa undir þessari tollalækkun,
og mun það dæmi verða almenn
ingi og þjóðarheildinni hagstætt,
er það kemur allt í ljós. Þess
vegna er rík ástæða til að fagna
frumvarpinu um tollalækkun.