Alþýðublaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 6
Marías Þ. Guðmundsson: Vandamál frystihúsanna AÐ undanförnu hefir fiskifinað- ur og einkanlega hraðfrystiiðn- aður landsmanna verið til um- ræðu í íblöðum, útvarpi og manna á meðal. Er það ekki að ólíkindum þar sem mjög alvar leg vandamál blasa við, í umræ® um og svo óvandaðri málsmeðferð hinum fáránlegustu fullyrðing- um og óvandaðri málsmeðferð, að til ólíkinda má telja. Ekki hafa verið spöruð stór orð og svigurmæli íil þeirra sem við at vinnuveg þennan fást. Sjðasita dæmið sem ég þekki frá þessum umræðum er þáttur inn „Um daginn og veginn“ sem fluttur var í útvarpinu í gærkveldi af Sigurði Guðmunds syni, skrifstofustjóra. Sigurður fjallaði þar um hraðfrystjiðn- aðinn og síðustu gerðir sölu- samíaka hans, m. a. orða við- hafði hann þessi ummæli, ,að hraðfrystihúsaeigendur hefðu gripið um háls þeirrar þjóðar, sem alið hefði þá við brjóst sér.“ Minna mátti það nú ekki vera. Ég hefði ekkj látið mér bregða við orð þessi eða gripið til penna þeirra vegna, ef ég teldi mig ekki kannast við mann inn og ekki þekkja hann af öðru en prúðmennsku og heilbrigðri afstöðu til manna og málefna. Þegar slíkir menn taka svo til orða, hvað þá um hina, sem orð hvatari eru. j Ég er ekkert undrandj þó menn greini á um viðbrögð og vinnubrögð, þegar jafn al- varlegt ástand skapast í þjóðfé- laginu sem nú, cr útflutningur landsmanna lækkar að verðmæti um 25-30% á skömmum tíma. Verðlækkunin bitnar á tveimur framleiðslugreinum í þjóðar búinu þ. e. síldariðnaði, lýsi og mjöl og hraðfrysíiiðnaðinum, lækkun freðfisks og úrgangs til fiskjmiöisverksmíðja. Að vísu hafa síldveiðisjómenn og útvegs menn itekið á sig allverulega lækkun þá sem síldariðnaður- inn hefir orðið fyrir, með lækk un hráefnisverðs til verksmiðja. Samfara þessum lækkunum á erl. mörkuðum hafa orðið nokkr ar hækkanir hér innanlands; hitnar það mjög á hraðfrysti- iðnaðinum. Þessar staðreyndir ættu að vera öllum mönnum kunnar og l.iósar, ekki hvað sÍTit beim. sem telja sig færa til að fjalla um mál þessi og taka þau til umræðna. Vera m'á, að í önn dagsins og ekki hvað sízt, ef reiði grípur menn. sjáist þeim yfir staðreyndir. Ekki er því að ievna. að oft gleymist / það sem. Ijðið er. Ég viídi með þessu greinar- korni minna á nokkur atriði, ef þau mættu verða til þess ,að hinum orðhvötu mönnum gæf- ist itækjfæri íil að átta sig og leggja réttara mat á málið. Eðlilegt og ré'ct væri að fara nokkuð aftur í tímann og líta þar til áitta, en að sinni verður það látið bíða. Á árinu 1965 og nokkru áður var mjög hagstæð verðlagsþró- un fyrir framleiðendur á freð fiskmarkaði Bandaríkjanna og söluhorfur taldar góðar á árinu. í ársbyrjun 1966 var því li'tið björtum augum til framtíðarinn ar. Verð á ferskfiski hækkaði til sjómanna og útvegsmanna um 21,65% að meðaltali. Þorskur stór, 1. fl.. A, sl- með haus hækkaði úr kr. 4,09 pr. kg. í 4,93 pr. kg. Þó markaðs ástand væri talið all go.tt var þessi hækkun meiri en svo, að fisk- iðnaðurinn gæti tekið hana alla á sig. Von manna var sú að þessi hækkun yrði til þess að örva til bolfiskveiða. Það er einfalt mál að aukin vinnsla skapar hagstæðari rekstur við allar eðli- legar aðstæður. Von sú, sem bundin var vjð aukningu bolfisk veiða brást. Þorskafli á árinu 1966 var í. d. 11% minni en ár ið áður. Þegar leið á árið 1966, snéri gæfan við okkur bakj á erlend- um mörkuðum, svo að á Banda ríkjamarkaði má segja, að hafi orðið verðhrun á frysium íiski. Við árslok var svo komið að fisk verð erlendis var orðið 11,8% lægra en meðaiverð ársins. Þessi verðlækkun nemur 170 millj. kr. fyrir hraðfrystiiðnaðinn um árið. Tvímælaiaust hefði hér orðið mun meiri lækkun, ef ekki liefði notið þess verks, sem forystu- menn hraðfrystiiðnaðarins hafa framkvæmt í Bandaríkjamark- aði þ. e. gott sölukerfi, bygging og starfræksla fiskiðnaðarverk- smiðja dótturfyrirtækja S.H. og S.Í.S.. Hafa þau verk verið ísl- lenzkum hraðfrystiiðnaði ómet- anlegur styrkur á liðnum árum. Ættu menn að minnast þess, þeg ar um þessi mál er fjallað að láta þá framsýnu menn, sem hér hafa að unnið njófa hróss, en ekki y kasta til þeirra lastmælum. í dag er unnið að þessum málum af dugnaði og sömu framsýni, sem ávallt hefir einkennt þessi verk. Bráðlega mun ný verksmiðja dótturfyrirtækis S. Jl., Coldwat er Seafoód Corp., taka til starfa. Breytt tiihögun, aukin tæki og hagræðing mun í þeirrl verk- smiðju stuðla að bættum hag frystiiðnaðarins á íslandi. Jafnframt því sem mikil lækk un varð á freðfiskmörkuðum á árinu, þá lokuðust þýðingarmikl- ir\ markaðir. England var um langt skeið liagstæður markað ur fyrir frystan fisk. Á árinu 1962 voru seld þangað 6.000 tn. af frystum flökum, en á árinu 1966 einungis tæp 400 tn. Hug- leiða má hvaða áhrif þetta hefir haft fyrir hraðfrystihúsin í land inu. Skildu vestfirzkir hraðfrysti húsamenn með sinn erfiða og seinunna sumarfisk hafa fundið fyrir lokun Bretlandsmarkaðar- ins? Þá var haustið 1966 tekið upp breytt greiðslufyrirkomulag á viðskiptum við Pólland og Tékkóslóvakíu, sem varð þess valdandi, að stórlega dró úr sölu á frystum fiski til þessara þjóða. Breyting þessi kom harðast nið ur á þeim húsum, sem hafa byggt afkomu sína að einhverju leyti á frystingu síldar. Við árslok 1966 voru viðhorf þau, sem blöstu við hraðfrysti- iðnaðinum á íslandi, allt annað en uppörvandi eða glæsileg. Verð á freðfiski hafði lækkað um 11,8%, fiskverð hafði haékk að í ársbvr.jun um 20%, vinnu- laun liækkuðu á árinu um 19,7 og að auki komu margvíslegar aðrar liækkanir innanlands af völdum verðbólgu, sem laldar voru nema 3% af heildar veltu fyrirtækis. Hvaða áhrif mundi t.d. Sig- urður Guðmundsson og orðhvat ir menn telja, að þessar brcyting ar hafi á rekstur fyrirtækis, sem kaupir hráefni fyrir 20 nvilíj., greiðir 10.5 millj. í vinnulaun og hefi.r annan kostnað að unphæð 7. millj. kr? Söluverð frystra af urða 30 mlllj. krónur. Ég treysti þeim vel til að i-eikna það út, ef þá vantar nánari upplýsingar til að fá niðurstöðu, væri auð- velt að afla þeirra. í ársbyrjun 1967 var því, sam kvæmt framansögðu útlitið íyrir hraðfrystihúsin í Jandinu allt annað en gott. Hraðfrystiimsa- menn vildu ekki grípa til neinna óyndisverka þá, enda eru þeir seinþreyttir til vandræða. í hópi þeirra ríkir bjartsýni, eins og annarra sem við sjávarútveg fást á íslandi, framfara og fram kvæmdahugur, stundum e. t. v. um of. Svo, mun hafa verið í ársbyrj un 1967, og var því treyst á ,,Guð og lukkuna". Vonast var til að verðlækkanir erlendis myndu stöðvast og snúa til hækk unar, vonast var til að aflabrögð ykjusf og það yrði til hagsbóta við reksturinn. Hvorttveggja bfást. Vetrarvei-tíð var mjög erfið, stormasöm og því miklar frátafir frá veiðum, sem og minni afli þá er hægt var að stunda veið ar, t-d var framleiðsla frystihúsa á Vestfjörðum innan S.H. ver- tíðina 1967 11% minni en 1966 og í Rcykjavík og nágrenni 30% minni. Slíka sögu er að segja annars staðar. Allir, sem vilja, g°+a skilið hvaða áhrif minnk- andi vinnsla hefir á rekstur eins f'JTirtækis, þar sem fastakostn- aður breytist lítið þó framleiðsla minnki eða aukist al! verulega. Hraðfrystihúsamenn hafa á síð ústu mánuðum athugað sinn hag, skoðað á hvaða vegi iðnaðurinn er staddur í lok ársins 1967 og byrjun nýs árs. Verðfallið frá meðalverði 1966 er þekkt stærð. Hjá því fyrir- tæki, sem ég vinn við, nemur það í krónutölu á árinu 1967 1590 þúsundum, sem minna fékkst íyr ir framleiðsluna 1967 en meðal- verð 1966 hefði gefið. Þessu til viðbótar er verðlækkun á úr- gangi til fiskimjölsverksmiðju og lifur 390 þús. kr.. Þá er ó- kannað hvað verður um ca. 100 tonn af skreið. Gæti þar ekki komið viðbótarverðfall?. Mér er tjáð að álit bankanna á söluhorf- um skreiðar og verðmæti henn- ar sé það, að þeir muni ekkj á komandi vertíð lána fé út á fisk þann, jem e.t.v. kann að verkast í skreið. Af þessu ættunv við að geta lagt nokkuð mat á verð- mæti þess, sem fyrir er. Til viðbótar þeim tekjumíssi, sem þekktur er, 1980 þús. kr., hefir á árinu orðið nokkur Ivækk un á kostnaðarliðum, vivvnu, þjónustu o.fl. Þótt frystihúsamenn séu margs megnugir og kennd ýms brögð, þá hrista þeir ekki 2 millj kr. fram úr erminni. Nú spyrja hinir visu menn: „Var þetta ekki bætt. nveð gengis fellingu krónunnar í nóvember s.l.“ Ekki er því að neita, nð sú mun hafa verið ætlunin hjá hin um vísu landsfeðrum. Væri ckki rétt að litast nánar um, áður en tekin er afstaða til .,bóta“ þeirra senv gengisfellingin færir hrað- frystiiðnaðinum. Hvaða breyting ar hafa nú þegar orðið, eftir gengisbreytinguna, sem áhrif hafa á rekstur hraðfrystilvús- anna. Laun hafa hækkað unv 3.4 %, rafmagn um 30%, olía, ýnvis þjónusta, sem leiðir af launa- hækkunum o.fl. (þessar hækkan- ir munu áætlaöar um 14,5% af heildarveltu árið 1968) Fersk- fiskur til vinnslustöðvar hefir hækkað um 20%. (Þorskur stór 1. fl.. A. sl. með haus hækkar úr kr. 4.94 pr. kg. í kr. 5.93 pr. kg.) Dreg ég í efa, að útvegsmcnn eða sjómenn séu ofsælir af hækk un þeirri, sem þeir hafa íengið, en svo bezt getur hækkunin nóð tilgangi, að fært sé að greiða lvana. Fiskverðshækkunin til sjó manna er talin 10%, til viðbót ar við það eiga fiskkaupendur að greiða verðbætur þær sem ríkissjóður greiddi á s.l. ári, sem var að meðaltali 8%. Betri gæðaflokkar eru lvækkaðir í verði, munu ílestir telja það til bóta. — Nýir viðskiptasamningar hafa verið gerðir við Rússlnnd, sem boða okkur lækkun um 130 til 140 millj. króna miðað við verð 1967. Til að mæta versn- andi afkomu iðnaðarins á órinu 1967, fiskverðs hækkun í ársr byrjun 1968, væntanleguro verð: lagshækkunum á árinu 1968, ný lega orðinni verðlækkun á Rúss- landsmarkaði. á gengislækkunin að konva. Efnahagsstofnunin lvef- ir áætlað að hún gefi 8,4% hækk un á fiskverði, ekki var það mik Framhald á 11. síðu. C 8, febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.