Alþýðublaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 11
Starfsmannafélagr ríkisstofnana AÐALFUNDUR Aðalfundur SFR verður haldinn í samkomuhúsinu Lido Í Reykjavík fimmtudaginn 14. marz 1968 og hefst kl. 20. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf skv. félagslögum. 2. Kosning 19 fulltrúa og jafn margra til vara á þing BSRB 1968. 3. Önnur mál. Athygli félagsmanna skal vakin á 11. gr. félagslaga, en þar segir m.a.: . „Heimilt er 25 eða fleiri fullgildum félagsmönnjun aff gera tillögu um einn eða fleiri stjórnarmenn. Skulu til- lögurnar vera skriflegar og berast stjórn félagsins a.m.k. 25 dögum fyrir aðalfund. — Öllum tillögum skal fylgja skr’iflegt samþykki þeirra, sem stungið er upp á. Vanti samþykki aðila, skal uppástunga teljast ógild að því er hann varðar. Tillögum skulu ennfremur fylgja glöggar upp- lýsingar um heimilisfang.” Stjórn félagsins skipa 10 menn; formaður, 6 meðstjórn- endur og 3 menn í varastjórn. Um kjör fulltrúa á þing BSRB gilda hliðstæðar reglur um uppástungur og við stjórnarkjör, sbr, 29. gr. fél- agslaga. Reykjavík, 8. febrúar 1968. Tryggví Sigurbjarnarson, formaður. FrystlSiús Framhald af 6. síðu. ið, og þó benda sterkar likur til, að hér sé of hátt áætlað og hækk unin muni vera nær 5 til 6%. Menn eiga sjálfsagt ekki að leita aðstoðar eða leita sér'skjóls þó þeir sjái að þeir séu í bráðri lífshættu, slíkt telst e. t. v. hjá einhverjum kveifarskapur og lít- il öryggisráðstöfun. Hraðfrystihúsamenn hafa kom izt að þeirri skoðun, að rekstur fyrirtækja þeirra sé vonlaus við þær aðstæður sem að ofan grein ir. Ríkisvaldið he.ir sett á stofn mjög þarfa og nytsama stofnun, Efnahagsstofnunina. Hefir hún gert ýtarlegar og mjög gagnleg ar athuganir á efnahag frystihús anna I landinu. Niðurstöður þær, sem stofnunin hefir komizt að, virðast benda til að skoðun og álit hraðfrystihúsamanna eigi nokkurn rétt á sér. Þegar málin lágu þannig fyrir gripu lirað frystihúsamenn til þcirrar nauð varnar að loka fyrirtækjum sín- um ,hætta að frysta fisk. Þeir kusu heldur að snúa lykli í skrá fyrirtækja sinna sjálfir í stað þess að skuldheimtumenn hefðu gert það á útmánuðum. Hér var um nauðvörn að ræða. Ljóst dæmj um versnandi af- komu sjávarútvegs og fiskiðnað- ar á Vestfjörðum á árinu 1967 er að skuldir bankaútibúanna á ísafirði við aðalbankann hafa stpraukizt á árinu. Allir vita að megin ástæða fyrir þessari skulda aukningu útibúanna er versnandi afkoma sjávarútvegs- og fiskiðnaðar í fjórðungnum. Mál manna er þó, að ekki sé þessum málum verr stjórnað þar, en annarsstaðar á landinu. Ekki skal því neitað, að mis- munandi sjónarmið geti gilt um athafnir og gjörðir einstaklinga. Tel ég ekki óeðlilegt þó sagt væri, að ástæða til algerrar stöðvunar frystihúsanna hafi ekki verið fyrir hendi, fyrr en séð var hvað ríkisváldið vildi leggja á sig til að gera rekstur iðnaðarins færan. Var ég einn á meðal þeirra. Þegar það væri séð, væri eðlilegt að taka af- stöðu til þess boðs, taka því, ef boðlegt þætti, eða liafna ef boð ið' fUHnægði ekki þeim lágmarks þorfUm, sem farið væri frim á og þá að stöðva. Reksturinn var vonláus við þáu skilyrði sem fyr ir hendi voru. Við síðasta boð ríkisstjórnarinnar má segja, að rofað hafi til. Ég tel, að r.auð- varnaraðgerðir frystihúsamanna hafi flýtt fyrir afgreiðslu máls- infe lijá ríkisvaldinu og raunhæf ara mat hafi verið lagt á hlut- ina, en annars hefði verið gert. Atvinnurekstur sem byggir til veru sína á útflutningsfram- leiðslu á hag sinn að veruiegu leiti kominn uhdir markaðsað- stæðum og hvaða mat lagt er á' þáu verðmæti, sem fást fyrir útflutninginn. Ríkisvaldið fram- kvæmir það mat með gengis- skráningunni, það skyldu menn hafa í huga. í nóvember sl. var mat það sem lagt hefir verið á verðmæti útflutningsíramleiðslunnar tekið til endurskoðunar. Getur það gef ið tilefni til árása á hraðfrysti- luisamer.n, að r.ýja matið full- nægði ekki þörfum liraðfrystiðn- aðarins. Við athugun kom í ljós, að ekki hefir verið tekið tillit til allra staðreynda. Um endup matið, gengisskráninguna, var var ekki fjallað af frystihúsa- mönnum, Getur það verið thefni til árása á forsvarsmenn hrað- frystihúsamanna, ef þeir sem halda um stjórn þjóðfélagsins og efnahagsmál þess, hafa taliff það þjóðfélaginu og efnaliags- líff hentugra að hraðfrystiiðnað urinn fengi bein framlög úr sam eiginlcgum sjóði þegnanna í stað þess að fella gengið svro að það fullnægði iðnaðinum. Þess- ar aðgerðir geta átt rétt a sér, ef gengisskráningin fullnægir öðrum greinum útflutnings fram leiðslunnar, en það getur ómögu lega verið hraðfrystihúsamönn- um til lasts að sú leið er farin, þeir hafi ekki valið hana. Fyrir skömmu síðan taldi stjórn eins fyrirtækis í mínu byggða- lagi, að tekjur fyrirtækisins nægðu ekkj fyrir þörfum þess og því þyrfti að auka þær. Tekjuaukinn til handa fyrirtæki þessu er fenginn með einfaldri samþykkt stjórnarmanna, 2 millj. krónum, 20% tekjuauka; Hverjir eiga svo að koma með þennan tekjuauka? Það er hinn almenni neytandi, sem fyrirtæk ið selur framleiðslu sína eða þjónustu. Það er ekki á svona einfaldan hátt, sem hraðfrysti- iðnaðurinn í landinu getur auk- ið tekjur sínar. Orðhvatir menn ásaka frysfl- húsaeigendur og segja að athafn ir þeirra hafi verið langar, skipu lag iðnaðarins öðruvísi en það eigi að vera, verktilhögun megi vera öðruvisi o.s. frv. Þegar um slíkt er rætt skulum við hafa í huga orð þau, sem kennd eru Bismark hinn þýzka. Hann á að hafa sagt; að það sé ljóta starf ið að þurfa sífellt að vera að taka ákvörðun, takist vel til með framkvæmd sé stjórnvizku hrós- að, takist illa sé heimska stjórn- andans höfð í hámæli, þó svo sé að samskonar vitneskja og sama stjórnvit liggi að baki báðum á- kvörðunum. Með rökum verður því ekki í r.ióti mælt að hraðfrystiiðnaður inn í landinu og síldveiðarnar Jiafa skilað þjóðinni meiri hag- vexti en nokkrar aðrar starfs- greinar, þar hefir framleiðni aukningin verið mest. Ný tækni við síldveiðar hefir gefið aukna veiði, aukin hagræðing tækni og nýjar vinhsluaðferðir hafa hald ið innreið í hraðfrystiiðnaðinn. Ef ég nota sömu rökhyggju og liggur baki þeirra orða Sig- urðar Guðmundssonar í upphafi þessarar greinar, gæti ég sett upp dæmi, hliðstæðu við það sem hann talaði um; Ég veit ekki, hver laun starfs fólks eru hjá stofnun þeirri, sem Sigurður Guðmundsson vinnur við, en segjum að það sé saman- lagt 300 þús. kr. um mánuðinn. Um næstu mánaðamót samþykk- ir stjórn stofnunarinnar, að þar sem hún hafi ekki fé handa í milli ákveðj hún, að skrifstofu- stjórinn fengi 200 þús. kr. til ' greiðslu launa starfsfólksins, en þau skilyrði fylgi, að hann verði að greiða sama fjölda og sömu 1 upphæð hverjum og hann greiddi með 300 þúsund krónun- um. Ég velt ekki, hvort Sigurð ur teldi það kverkatak um háls yfirmanna sinna, þó hann til- kynnti þeim, að þetta væri sér ómögulegt, og ef svo ætti að vera, yfirgæfi hann starfið. Ég veit ekki, hvort hann teldi sig „brjóstmylking” stjórnendanna þótt hann fengi leiðréttingu og varla teldi hann, að sér væri færð -upphæðin á silfurfati, þeg ar leiðréttingin væri gerð. Ég vildi, að hinir orðhvötu menn kæmu hér til Vestfjarða og skoðuðu rekstur hraðfrysti- húsanha, athuguðu hvernig þeim fjármunum hefði verið varið, sem fyrirtækin hafa haft með höndum. Hvaða áhrif það hefir á byggð Vestfjarða, ef al- varlegur kyrkingur og fjárhags- vandræði ná að hrjá hraðfrysti- iðnaðinn í fjórðungnum. Jafn- framt mættu þeir gefa því gaum, hve margir eru uppistandandi í sjávarútvegi og fiskiðnaði, af þeim sem þar hösluðu sér völl á fyrri helm. þ. aldar. Þeir hafa lagt starf sinna beztu ára að bandi við hann, en oftast að lok- sjávrútvegi og fiskiðnaði í sam- badni við hann, en oftast að lok um staðið í rústum fyrirtækja sinna niðurbrotnir á sál og lík- ama sökum aðstæðna, sem þeir á engan hátt hafa getað haft áhrif á, aflabrögð, tíðarfar, mark aðsaðstæður o.fl. Hraðfrystiiðnaðurinn er mikil- vægasta grein útflutningsfram- leiðslunnar. Á árinu 1966 voru afurðir hans seldir til 25 landa í tugum mismunandi paklcninga. Framleiðsluverðmæti var 1650 millj. krónur. Útflutnings skýrsl ur segja, að árið 1966 hafi 92,5% af útflutningi landsins ver- ið sjávarafurðir, af heildar út- flutningi 25,8% frystar afurðir. Auk þess á' frystiiðnaðurinn nokkurn þátt í söltun, skreiðar- framleiðslu og mjölsölu sem hlið argreinum og betri nýtingu hrá- efnis. Hraðfrystiiðnaðurinn hef- ir náð lang lengst í sölustarfi all ra greina útfl. framleiðslunnar. Af þessu má sjá að hér er um að ræða eina þýðingar mestu grein ísl. atvinnulífs, sem snert ir hvern þjóðfélagsþegn, ekki hvað sízt, fólkið sem býr út um hinar dreifðu byggðir landsins og á alla sína afkomu undir því að þessum atvinnuvegi vegni vel, samfara því að útgerð og sjó- sókn haldist. ísafirði, 30. jan. 1968. Marías Þ. Guðmundsson. Kvikmyndir Framhald af 5. síffu. maríu, sem er nemandi hans, þar sem 'hann kennir við skóla í Vín, en embættisins veana geta þau ekki gengið í hjóna- iband. Tom Tryon er Stefán kardináli og hefur Preminger tekizt með ágætum að laða fram hjá hon- um ýmga prestlega ejginleika, en fýlusvipurinn er ekki beint viðeigandi. Einnegin er Carol Linley bærjleg í hlutverki syst urinnar, en hún hefur vist -jald an fengið góð tækifæri. Sá sem vekur þó mesta at'hygli af leik- endum er John Huston (Glenn- on kardínáli), en hann er ann ars þekktari sem leikstjóri. Þá er hin geðfellda og fagra leik- kona, Romy Sehneider, í hlut- verki Önnumaríu, sem hún leik ur af alkunnum þokka. Vegna þessa yfirgripsmikla söguefnis verða sumar aukaper sónur ekki eins skýrt dregnar og ella. Preminger fellur líka í þá gryfju að skipía pei-sónum í góðar og vondar. Vegna þess- arar yfirborðskenndar og grunn hyggni verður húmanisminn, sem ekki kemur einungis fram hjá Stefáni, heldur og mörgum aukapersónum, helzti bragðdauf ur og óraunverulegur. Þó er myndin hlessunarlega laus við alla væmni, að undianteknum halleljújasöng austurrísks æsku fólks. Anníirs er myndin H heild þokkalega unnin og lítið sem ekkert um dauða kafla. Breið- tjaldsmyndun Shamroys er vel úr garði gerð, en Preminger virðist betur kunna að notfæra sér breiðtjaldið en margir sam landar hans. Þgtta er sem sagt ósköp þægi leg mynd og engan veginn leið inleg, þrátt fyrir lengdina, og Iþess virði að vera gerð að kveld eyði, geri menn ekki of háar ‘kröfur. *** LAUGARÁSBÍÓ: Arabesque. Bandarísk frá 1966. Leikstcóri ! og framleiðandi. Stanley Donen. Kvikmyndun: Christopher Challis. Klipping: Frederick Wilson. Tónlist: Henry Mancini. 105 mín. Sagt er, að kvikmynd eigi fyrst og fremst að vera fyrir augað, og er það líklega sann- mæli, svo langt sem það nær. Þá má segja um þessa mynd, að hún sé að öllu ley>ti fynir augað. Kvikmyndatökumaðurinn Ihefur brugðið á leik með myndb vélina og gerir jú marga hluti skemmíilega, en þegar til lengd ar lætur verður þetta óstöðv- andi ,,fótógrafíufyllerí“ hálf- þreytandi. Þó skal ekki á móti því borið, að það er myndatak- an, sem heldur þessari kvik- mynd uppi, fyrst og fremst, því að efnið er í sjálfu sér ekkert sérstakt. Henry Mancinf stendur fyi'ir sínu að vanda, og Gregory Peck og Sophia Loren í aðalhlutvea-k um skyggja ekki á heildarsvip- inn. Sigurffur Jón Ólafsson; 4 _ - - SKIPAUTGCRB RiKlSlNS M.S. ESJA fer austur um land í hringférff 13. þ.m. Vörumóttaka á fimmtu dag og föstudag til Djúpavögs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðis fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna- fjarðar, Þórshafnar, R.aufarhafn ar, Húsavíkur, Akureyrar og Siglufjarðar. M.S. BALDUR fer til Vestfjarða 13. þ.m. Vöru móttaka á fimmtudag og fösth- dag til Patreksfjarðar, Tálfctta- fjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Bolungfi víkur og ísafjarðar. 8 febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLA0IÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.