Alþýðublaðið - 09.05.1968, Síða 9
Tin gifti sig
það rsrsjög sv§
nnilegt, s©m slls
úr stjörnumem, jjlli
urma-snét æftti jjjj[
ianni, er næii ;Ss»
þetta ræfttist
elzta barn sitt sem var drengur.
Þau tóku sér það mjög nærri.
Seinna eignuðust þau dóttur
sem heitir Aye Aye, og enn síð-
ar annan son, Maung Tin
Maung. Þau ólu líka upp fóst-
urson er þau tóku strax eftir að
þau misstu eldri soninn.
En svo kom að því að and-
spyrnuhreyfingin og bandamenn
gátu gert árás og rekið Japani
úr Rangoon í maí 1945.
Eftir stríðið þurfti að sam-
eina þjóðina og skapa nýtt þjóð-
félag miðað við nýjan tíma. Þá
var einnig kominn tími til að
Iosa hana undan yfirráðum Breta.
Og nú fékk kennarinn frá Pan-
tanaw bráðlega ný verkefni, enda
fór nú ýmislegt að benda til að
spádómar stjörnuspekinganna
ættu fyrir sér að rætast. Hann
gerðist nú eldheitur barátíumað-
ur fyrir lýðræði.
Með það fyrir augum að vinna
að hugsjónum sínum hugðist U
Thant stofna tímárit og í þeim
tilgangi vildi hann flytja til
Rangoon. Allir vinir hans og
vandamenn snérust öndverðir
gegn þessari ráðabreytni og eng-
inn stóð með honum nema konan
hans. Hún mundi eftir því sem
stjörnufræðingarnir höfðu sagt.
Meðan á þessu stóð, tók U Thant
furðulegan sjúkdóm. Stjörnu-
spekingar voru kallaðir til. Og á-
bótinn í Sein-klaustrinu sá í stund
sjá hans mikla framtíð, ef hann
flytti til Rangoon. Hann gaf fyr-
einn. U Nu, bezti vinur U Thants
var orðinn ráðherra, og hann
slapp einn. í sömu viku varð U
Nu forsætisráðherra. Hann fékk
vin sinn U Thant til að verða
blaðafulltrúi stjórnarinnar og
skyldi hann undirbúa þjóðina
undir sjálfstæðið.
Eftir að landið fékk sjálfstæði
fór U Thant úr eipni stöðunni
í aðra: varð aðstoðarráðuneyt-
isstjóri í upplýsingamálaráðu-
neytinu.
Stjórnin átti við margs konar
vanda að glíma Þjóðarbrot sem
heitir Karanar gerðu uppreisn
og heimtuðu sjálfstjórn. U
Thant var sendur til höfuðstöðva
þeirra til að reyna að koma á
vopnahléi. Hann fékk vingjarn-
legar móttökur, en honum tókst
samt ekki að koma á' sættum.
Það var ekki fyrr en 1954 að
friður komst á milli stjórnar-
innar og Karana, en þá var U
Thant á bólakafi í alls konar
ráðstefnum erlendis, og orðinn
mikilvægasti ráðgjafi U Nu í
utanríkismálum.
Eftir því sem umfangsmeiri
störf voru lögð á U Thant þurfti
Daw Thein Tin að taka meira
U Thant ræðir við frú U Nu, eiginkonu bezta vinar hans og fyrrum forsætisráðherra Burma,
Svo leið að þeim tíma, er
Japanir réðust inn í Burma og
hernámu það 1942. U Thant var
kallaður til Rangoon, en fékk að
fara heim aftur. Hann varaðist
árekstur við Japani. Meðal ann-
ars fjarlægði hann úr bókasafni
sínu allar bækur sem leitt gátu
í Ijós, að hann var and-fasisti.
Hann gekk í andspyrnuhreyfing-
una og fékk m. a. það verkefni
að útvega hrísgrjón, sem fela
átti á vissum stað og geyma þar
unz unnt væri að gera uppreisn
gegn Japönum. Hernárhsyfir-
völdin tóku þó að gruna hann
um græzku, enda lét hann hjá
líða að gera japönsku að skyldu-
námsgrein í skólunum, sem voru
undir hans stjórn. Hann afsak-
. aði.. sig með því, að sér hefði
J ekki tekizt að útvega hæfa kenn-
ara, en hann fékk að heyra það,
að dauðadómur vofði yfir hon-
um. .- ;.0
irmæli um vissa siði, sem hafa
skyldi til að reka út þá illu
anda, sern herjuðu á manninn.
Átti að gefa beiningamönnum
hrísgrjón, og setja svo hrísgrjón
í skálar og láta standa hjá
rekkju sjúklingsins, eina skál
við höfuðið, eina hjá honum
miðjum og eina við fætur hans.
Næsta morgun átti svo að sjóða
hrísgrjónin, sums átti hann sjálf
ur að neyta, sumt átti að gefa
beiningamönnum og sumt
Búddha.
Kona hans og vinir fóru ná-
kvæmlega eftir þessum fyrirmæl-
um, en hann var sjálfur ekki
látinn vita af. En honum batn-
aði. Og fjölskyldan flutti til
Rangoon í júlí 1947*
En ekki átti tímaritið eftir
að verða að veruleika. Á þessum
tímum var óeirðasamt í fiurma.
Og í einu uppþotinu voru allir
ráðherrarnir myrtjr,. nema
við uppeldi barnanna. Fóstur-
sonurinn Saw Lwin gekk í skóla,
en upp komst að hann var í
þingum við stúlku eina. Fóstur-
föðurnum gazt ekki að slíku hátt-
erni, en strákur gerði sér lítið
fyrir og strauk með kærustunni.
Varð ærið fátt með þeim fóst-
urfeðgum um sinn. En Daw
Thein Tin laumaði til ungu hjón-
anna peningum og ýmislegri
hjálp. Og seinna greri alveg um
heilt á milli U Thant og fóstur-
sonarins.
Árið 1955 gat fjölskyldan flutt
í þægilegt nýreist hús, þó að U
Thant sjálfur ætti í rauninni
hvergi heima. Hann var alltaf á
ferðalagi. Og dvölin í nýja hús-
inu.; var heldur ekki löng, því
1957 var U Thant sendur til
New York sem aðalfulltrúi
þjóðar sinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Daw Thein Tin var
Framhald á)14. síðu.
Réftftingar
Ryðbæfting
Bílasprauftun.
Tímavinna. — Ákvæðisvinna.
Bílaverkstæðið
VESTURÁS HF.
Ármúla 7. — Sími 35740.
Auglýsing.
Sveitarst j órnirnar 1 Reykjavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Garðahreppi og Seltjarnarnes-
hreppi hafa samþykkt að nota heimild í 2.
málsl. síðustu málsgr. 31. gr. laga nr. 51 10. |
júní 1964, um tekjustofna sveitarfélaga, sbr.
breyting frá 10. apríl 1968.
Samkvæmt þessu verða útsvör þessa árs því f
aðeins dregin frá hreinum tekjum við álagn-
ingu útsvara á árinu 1969 í áðurnefndum sveit-
arfélögum, að gerð hafi verið full skil á fyrir-
framgreiðslu eigi síðar en 31. júlí í ár og út- ii
svör ársins einnig að fullu greidd fyrir n.k.
áramót. Sé eigi staðið í skilum með fyrirfram f
greiðslur samkvæmt framansögðu, en full
skil þó gerð á útsvörum fyrir áramót á gjald-
andi aðeins rétt á frádrætti á helming útsvars
ins <við álagningu á næsta ári. Þá skal vakin
athygli á því, að þar sem innheimta gjalda til
ríkis og sveitarafélaga er sameiginleg (sbr.
lög nr. 68 frá 1962) er það enn fremur skil- j
yrði þess, að útsvör verði dregin frá tekjum
við álagningu, að öll gjaldfallin opinber gjöld,
sem hin áameiginlega innheimta tekur til,
séu að fullu greidd fyrir ofangreind tímamörk.
8. maí 1968.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Sveitarsíjórinn í Garðahreppi.
Sveltarstjórinn í Seltjarnarneshreppi.
LISTMUNAUPPBOÐ
Sigurðar Benedikftssonar
TILKYNN I R
ALMENNT UPPBOÐ
á fágætum og fínum
PERSNESiftUlVI GÓLFTEPPUM
og öðrum austurlenzkum teppum og mottum
sem upphaflega voru sýningargripir
pantaðir fyrir Bandaríkjamarkað, en beint til íslands vegna
skuldalúkningar. Eftirfarandi gæðaflokkar verða seldir:
KIRMAN, KESHAN, NAIM,
TEHERAN, ISPAHAN, BOKHARA,
TABRIZ, DJOSHAGAN.
SELJIST UPP Á ALMENNU UPPBOÐI
í vörugeymsluhúsi
ÉIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF.
Suðurlandsbraut 2 (kjallara, vesturdyr)
föstudaginn 10. maí 19G8 kl. 11 f. h.
Til sýniö föstudaginn 10. maí 1968 frá kl. 8,30 f.h.
., 9. maí 1968 — ALÞýÐUBLAÐIÐ 9
<