Alþýðublaðið - 08.06.1968, Blaðsíða 4
Fjölbreytt safnaöarhátíö
í Bústaðarskóla á morgun
Á sunnudaginn kemur, þann
9. júní, efnir Bústaðasókn til
síns fimmta kirkjudags. Var
sá fyrsti vorið 1964 og hefur
verið árlega síðan. Eru þessi
safnaðarhátíðahöld bæði til
fjáröflunar fyrir kirkjubygg-
ingu safnaðarins, svo og til
þess að auka á fjölbreytnina í
safnaðarstarfinu og takast á
við stærri verkefni.
Kl. 10,30 á sunnudagsmorg.
uninn verður barnasamkoma í
Réltarholtsskólanum, en þar
fara öll dagskráratriði fram,
síðan verður guðsþjónusta kl.
2 síðdegis, og prédikar sóknar
presturinn, séra Ólafur Skúla-
son. Eftir messuna hefst kaffi
sala, sem kvenfélag safnaðar-
ins hefur forystu fyrir og er
ekki að efa, að þær kræsingar,
sem fram verða bornar munu
gleðja gestina; sú hefur reynsl
an að minnsta kosti verið und
anfarin ár. Forstöðu fyrir veit
ingunum hefur frú Elín Guð-
jónsdóttir, ein úr stjórn Kven
félags Bústaðasóknar. Um
kvöldið kl. 8,30 hefst svo al-
menn samkoma. Þar tnun
Njörður P. Njarðvík, lektor í
Gautaborg flytja ræðu, og
fjallar hann um efnið: Ný kyn
slóð, ný veröld. Brynjólfur
Jóhannesson, leikari les upp.
Ungt fólk, sem hér hefur dval
ið undanfarna mánuði, skipti.
nemar á vegum kirkjunnar,
mun syngja þjóðlög, en þetta
fólk hefur getið sér hið bezta
orð fyrir flutning sinn- á slík-
um lögum. Þá mun kirkjuorgan
istinn, Jón G. Þórarinsson
flytja orgelverk og stjórna
söng kirkjukórsins. Samkom-
unni lýkur svo með helgistund,
en síðan er aftur haldið að
hlöðnum veizluborðum.
Bústaðakirkja ásamt for-
kirkju er nú fokheld og verð
ur til sýnis almenningi undir
leiðsögn kunnugra milli kl.
3,30 og 7 á sunnudaginn. Hafa
þær framkvæmdir, sem sjást
þar á horni Bústaðavegar og
Tunguvegar kostað tæpar 6
milljónir króna. Er næst áform
að að gera safnaðarheimilið,
sem er áfast kirkjunni sjálfri,
fokhelt í sumar, og er kostn-
aðaráætlunin kr. 1.100.000.00.
Tii þess að afla hluta af þessari
upphæð, verður efnt til skyndi
happdrættis í sambandi við
kirkjudaginn. Verða seld
merki, sem Rafn Hafnfjörð
hefur séð um gerð á, og eru
þau númeruð og dregið að
kveldi kirkjudagsins. Er vinn
ingurinn Mallorca. og Lund-
únaferð með Ferðaskrifstof-
unni Sunnu. Er ekki að efa
það, að þeir munu margir, sem
vilja freista gæfunnar, um leið
og þeir styrkja gott málefni
og hjálpa söfnuðinum f kirkju
byggingu hans, svo að öll ork
an þurfi ekki að fara í það ár-
um saman að skapa heppilega
starfsaðstöðu.
Trúlofunar-
hringar
Sendum gegn póstkrefu.
Fljót afgreiðsla.
Guðm.
Þorsteinsson
gullsmiður,
Bankastræti 12.
FRÁBÆR
ENDING
4 8- júní 1968
ALÞYÐUBLAÐIÐ