Alþýðublaðið - 27.08.1968, Qupperneq 4
HEYRT&
SÉÐ
Vill giftast
Eins og kunnugt er skildi
Gina Lollobrigida í fyrra við
mann sinn Milko Skofic, júgó
slavneskan lækni, og hefur
síðan leikið lausum hala. Nú
herma fregnir, að hún sé orð-
in þreytt á sínu makalausa
lífi og hyggst giftast á nýjan
leik;
Hér á myndinni sést hún
uppi á þaki á villu sinni Costa
del Sol og er búningur henn-
ar allfrumlegur. Hún virðist
halda sér vel, þótt við aldur sé.
ra Anna érabelgur
Ertu að koma af fuglaveiðum, pabbi?
t
IFyrr og nú
EKKERT er nýtt undir sól-
inni, og sagan endurtekur
sig. Þessi orðatiltæki eru
oft notuð við ýmis konar
tækifæri, og nú þykjumst
við geta notað þau með
þessum tveimur myndum.
Efri myndin sýnir fag-
urskapaða fótleggi nútíma
konu, sem er klædd pilsi
með nútímasídd. Neðri
i myndin sýnir hins vegar
l1 klæðaburð karlmanna á
*! miðöldum. y
íí.::;
4 27. ágúst 1968 - ALÞYÐUBLAÐIÐ
Barbara í 7.
— Allt er gott í sjöunda
sinn, segir milljónamærin
Barbara Hutton, sem álítur,
að nú hafi hún loksins öðlazt
sanna og varanlega hjúskapar
hamingju i sínu sjöunda hjóna
bandi.
Sjöundi eiginmaður Bar-
böru Hutton er 52 ára gam-
all prins frá Laos. Doam Vinn
að nafni. Hann er ákafur yoga
iðkandi og áhugalistmálari.
Brúðhjónin eyddu hveitibrauðs
B.B. dregin
á tálar
Ástarævintýri Brigitte Bardot
og ítalska glaumgosans Luigi
Kizzi var heitt en skammært.
'Luigi hvarf á braut frá lúx
usvillu BB fyrir nokkrum dög
um og sigldi frá Saint Tropez
á lystsnekkju eins vinar síns,
en undanfarnar vikur hafa
þau skötuhjúin notið Tífs-
ins í St. Tropez og hnífurinn
ekki gengið á milli þeirra.
— Öllu er lokið á milli okk
ar, sagði Luigi við vini sína,
sem þegar í stað létu fréttina
berast í pressuna.
Talið er, að Luigi hiafi kom
ið sér í mjúkinn hjá BB til
þess eins að koma af stað um-
tali um sig og nýjan nætur-
Framhald á bls. 15.
ALFRED Hitchcock hefur ný-
lega verið kjörinn heiðursdokt
or við Kaliforníuháskóla.
Hann hefur sagt, að næsta
mynd, sem hann framleiðir
verði „Tipaz“ eftir sögu Leon
Uris, en hún fjallar um njósn
ir í Frakklandi og er sann-
söguleg. Því næst ætlar dokt-
orinn að framleiða mynd, sem
tekur til meðferðar geðsjúkan
morðingja í New York. Hún á
að heita „Franzy.‘‘
Nýr sjúkdómur
Nýr og hættulegur kynsiúk-
dómur hefur nú borizt til Evr
ópu frá Bandaríkjunum. Var
hann fyrst uppgötvaður í
París, en hefur nú fundizt í
Noregi. Sýklarnij- standast
pencillín, og búizt er við að
hann breiðist mjög ört út, þar
sem enn hefur ekki tekizt að
finna lyf, sem vinnur á sýkl-
unum, sem sjúkdómnum valda.
himni
dögunum í hnattferð, og nú
njóta þau lífsins í lúxusviilu
á ítalíu.
— Ég hef alltaf verið svo
óheppin í makavali mínu, en
Vinh prins hefur skapgerð og
lífsskoðun, sem bindur okkur
eilífum böndum, segir hin 55
ára gamla Barbara Hutton.
En hún hefur nú líka leitað
með logandi Ijósi um allan
heim að réttum maka, svo að
vonandi hefur hún lög að
mæla.
Sex fyrrverandi eiginmenn
hennar eru danski greifinn
Reventlow, leikarinn Gary
Grant, þýzki baróninn von
Kramm, Trubetzloy prins,
Midvani prins og hinn frægi
glaumgosi Porfirio Rubirosa.
Öll leystust þessi hjónabönd
Framhald á 14. síðu.
ítalía er alltaf fyrst með það
nýja og einfalda og hefur nú
skapað nýja tízku í sambandi
við hina sígildu skyrtu. Það
er venjuleg hárspenna með
röð af litlurn skyrtutölum á.
Þetta er auðvelt; notið; sterkt
tnálmlím og þekið spennuna
litlum, hvítum skyrtutölum.
Þetta gerir skyrtuna ekki
eins ókvenlega.