Alþýðublaðið - 27.08.1968, Page 7
hafið
Þúsund þátttakendur
Norræni byggingardagurinn, sá 10. í röðinni, var
settur í Háskólabíói kl. 10 í gærmorgun. Nálægt
1000 manns tekur þátt í ráðstefnunni, þar af eru um
700 erlendir þátttakendur. Við setningarathöfnina í
Háskóiabíói flutti Hörður Bjarnason, húsameistari
ríkisins ávarp og bauð gesti velkomna. Þá flutti einn
fulltrúi frá hverju Norðurlandanna ávarp og að lok
um setti Eggert G. Þorsteinsson, félagsmálaráðherra
Norræna byggingardaginn með ræðu.
Erlendu gestirnir fóru að koma vel tekið. Að loknum hádegis-
til landsins á laugardag, flug-
leiðis, og einnig kom hópur á
sunnudag. Snemma í gærmorgun
kom svo skemmtiferðaskipið
Fritz Heckerl með um 300 þátt-
takendur. Munu farþegar skips-
ins búa um borð á meðan á dvöl
þeirra stendur hérlendis. Eins
og gefur að skilja var erfitt
að finna húsnæði fyrir svo stóran
lióp útlendinga og var því grip-
ið til þess ráðs að leigja Fritz
Heckert., en það annaðist ferða-
skrifstofa Geirs Zoega.
Flestir þátttakenda eru frá
Svíþjóð eða rúmlega 300. Danir
eru næst fjölmennastir á ráð-
stefnunni með 170 þátttakendur.
íslenzku þátttakendurnir eru
um 150 talsins, þeir norsku um
100. Fámennastir eru færeysku
þátttakendurnir, eða um 20 tals-
ins.
Að lokinni setningarathöfn-
inni í gær flutti Hörður Ágústs-
son, skólastjóri handíða- og myndl
iistaskólans erindi, íslenzkur
byggingastíll að fornu og nýju.
Sýndi hann litskuggamyndir til
cWn’ííHJai’ Vor nt*índí lionn mínrr
Að loknum
verði fóru þátttakendur í skoð-
unarferð um borgina og kl. 18
fóru þeir í Þjóðleikhúsið í boði
ríkiss’tjórnarinnar og -Reykjavík-
urborgar.
í morgun kl. 9 hlýddu gestir
á fyrirlestur danska arkitekts-
ins Philip Arctander, sem nefn-
ist -Híbýlahættir í nútíð og fram-
tíð,- Að loknum fyrirlestrinum
voru umræður og stýrðu þeim:
Olavi Kanerva, forstjóri frá' Finn
landi, Skúli H. Norðdahl, arki-
tekt, Per Norseng, arkitekt frá
Noregi og Anders Berg, arkitekt
frá Svíðþjóð. Fundarstjóri var
Ulf Snellman, arkitekt frá Sví-
þjóð.
Kl. 10.45 er svo fyrirlestur,
Breytingar híbýlahátta-. Fyrirles-
ari er prófessor John Sjöström
frá Svíþjóð. Þá verða umræður
og stýra þeim: Svend HögSbro,
arkitekt frá Danmörku, Egil
Nicklin, arkitekt frá Finnlandi,
Roar Björkto, arkitekt frá Nor-
egi og Sigurjón Sveinsson, arki-
tekt'
Fundarstjóri er Sören Rasmus-
Cnvi Trorlrf í' no i^inrfiin f nó T^on
Forseti íslands dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra Ingólfsdótt-
ir, héldu í gær utan með flugvél frá Loftleiðum til þess að verða
v'iðstödd brúðkaup Haralds ríkisarfa Noregs og Sonju Haraldsen.
Handhafar forsetavalds, sem fara með forsetaembættið í fjarveru
forsetans, fylgdu þeim hjónum úr hlaði, og á myndinni hér að of-
a"sjást tveir handliafanna, dr. Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra og Birgir Fínnsson forseti Sameinaös alþingis, ásamt forseta-
hjónunum.
mörku.
í morgun kl. 9 var sérstök
dagskrá, ætluð kvenþátttakend-
um Nordisk byggedag.
Að loknum hádegisverði í dag
fara þátttakendur í skoðunar-
ferðir og að þeim loknum heim-
sækja þeir heimili í borginni.
Á miðvikudag lýkur ráðstefn-
unni Kl. 9 verður fyrirlestur,
Heimilisframleiðsla og tækni
flutningsmaður verður Jan F.
Reymert, verkfræðingur frá' Nor-
egi. Að loknum fyrirlestrinum
stýra umræðum þeir Meinertz
Knudsen, verkfræðingur frá
Finnlandi, Guðmundur Einars-
son, verkfræðingur og Sture
Nyström, forstjóri frá Svíþjóð.
Fundarstjóri verður prófessor
Beato Kelopuu frá Finnlandi.
Kl. 10.45 verður svo síðasti
fyrirlestur mótsins, Bygginga-
kostnaður, sem Olafi Lindblom
aðalforstjóri frá Finnlandi flyt-
ur. Umræðum stjórna Niels Sali-
cat’h, forstjóri frá Danmörku,
Torfi Ásgeirsson hagfræðingur,
Ásbjörn Austvik, tæknifræðing-
ur frá' Noregi og Harry Bern-
hard, yfirverkfræðingur frá Sví-
þjóð. Fundarstjóri verður Ivar
Mathisen frá Noregi.
Að loknum hádegisverði á mið^
vikudag fara mótsgestir í skoð-
unarferðir og kl. 20 um kvöldið
verður mótinu slitið.
Hluti gestanna dvelur hér um
tíma að loknu mótinu og ferðast
um landið.
Skrifstofa Nordisk byggedag
er í Hagaskóla. Þar er einnig
sérstakt pósthús, rekið í tilefni
mótsins og er sérstakur póst-
stimpill notaður. Þá er í Haga-
skóla símaþjónusta, svo og sím-
skeyta og telex þjónusta.
Forseti Nordisk byggedag er
að þessu sinni Hörður Bjarna
son en aðrir í undirbúningsnefnd
mótsins eru: Gunnlaugur Hall-
dórsson, Axel Kristjánsson, Hall-
grímur Dalberg, Sigurjón Sveins
son, Sveinn Björnsson og Tómas
Vigfússon. Aðalritari er Gunn-
laugur Pálsson.
Næst verður Nordisk byggedag
haldinn í llelsingfors í Finn-
landi árið 1971.
Brúðkaupsgjafir
Sífellt streyma gjafir í
stríðum straumuim ti'l konungs-
'hallarinnar i Osló, vegna brúð
'kaups Haralds ríkisarfa og Sonju
Haraldsen. Meðal þeirra gjafa
sem bárust má nefna frystikistu
með ríkulegum forða af 'kjoti,
fiski og ismjöri, skipskiu'kku,
stórt handofið teppi með norsk1
um mynstrum, blómaskálar og
silfurmuni alls konar.
Trygginga -
skrifstofa
f Bankastræti
Tií að bsðftt þjonustuna við viðskiptamenn í mið- og vesturbae var opnuð umboðs-
skrifstofa í Samvinnubanka íslands, Bankastræti 7, sem annast um hvers konar
nýjar tryggingar, nema bifreiðatryggingar. Það er sérlega hentugt fyrir viðskipta-
menn a þessu svæði að snúa sér til hennar með hækkanir og breytingar á trygg-
fngum sínum svo og iðgjaldagreiðslur.
VIÐ VllJUM HVETJA VIÐSKIPTAMENN TIL AÐ NOTA SÉR ÞESSA ÞJÖNUSTU.
SAMVINNUTRYGGINGAR
KJFTECVGGINGAFÉLAOIÐ andvaka
BANKASTRÆTI 7, SÍMAR 20700 OG 38500
27. ágiíst 1968 - ALÞÝDUBLAÐIÐ f